Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.10.1957, Blaðsíða 10
10 MORGVHBT AÐIÐ Miðvikudagur 2. okt. 1957 CTtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigíús J ónsson. UTAN UR HEIMI Aðairitstjórar: Valtyr Steíánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, simi 33045 Auglýsmgar: Arm Garðar K-ristinsson. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og algreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480 Askriftargjaid kr 30.00 á mánuði ínnaniands. t lausasöiu kr 1.50 eintakið. AUKINN SPARNAÐUR OG HAGKVÆMNI í REKSTRI mejináherzlu á Rússar leggja nú smíði stórra kafbáta Á sama tíma og herir Atlants- hafsbandalagsríkjanna efndu til mikilla heræfinga á Atlantshafi, efndi rússneski flotinn, sem bæki- stöðvar hefur í Hvítahafi, til mik- illa æfinga á Barentshafi. Þar gerðu Rússar tilraunir með kjarn. orku- og vetnisvopn — og hafa æfingar þeirra verið talsvert um- ræddar. Ekki er með vissu vitað um herstyrk Rússa við Hvítahaf, en hins vegar byggja Rússar nú Stórir kafbátar Meira en helmingur af kafbáta- flota Rússa eru stórir kafbátar ætlaðir til langrar útivistar — og mundu þeir, ef til styrjaldar kæmi, efalaust verða notaðir til þess að granda skipum á úthöf- unum, og einnig er talið, að ætlun þeirra sé að búa kafbáta þessa kjarnorkuflugskeytum. Stærsti hluti alls flota Rússa bækistöðv- ar á fjórum aðalstöðvum. Frá flotahöfnum við Eystrasalt og Hvítahaf sigla skip þeirra um Atlantshafið, en Svartahafsfloti þeirra er mjög bundinn, því að talið er útilokað. að þeir geti siglt skipum sínum, jafnvel kaf- bátum, út úr Svartahafi án þess að Tyrkir verði þess varir. í þessu sambandi má einnig benda á það, að flest, ef ekki öll her- skip Rússa, sem siglt hafa inn í Miðjarðarhafið — til Egypta- lands, Sýrlands og kafbátastöðv- BORGARSTJÓRINN i Reykjavík, Gunnar Thor- oddsen hefur nýiega haft forgöngu um samþyklct tillögu um sérstakar ráðstafanir til þess að auka sparnað og hagkvæmni I rekstri Reykjavíkurbæjar Þeg- ar Mbl. átti samtal við borgar- stjórann um þessi mál s.l. suunu- dag komst hann m.a. að orði á þessa leið: „Síðustu árin hefur starfað hjá Reykjavíkurbæ sérstök sparnað- arnefnd sem skipuð er þremur ágætum bæjarstarfsmönnum, sem þaulkunnugir eru rekstri Reykja víkurbæjar. Hefur nefndir, undir- búið fjárhagsáætlun Reykjavíkur og gert margar tillögur. En um jafn umfangsmikinn rekstur og hjá Reykjavíkurbæ tel ég nauðsynlegt að starfandi sé að staðaldri sérstök stofr.un, sem hafi það hlutverk að fylgjast með vinnubrögðum og starfshátt- um í öllum greinum og gera til- lögur um verkaskiptingu, vinnu- brögð og nýja starfsháttu og sparnað, hvar sem því verður við komið, allt byggt á nákvæmri rannsókn og íhugun“. Gagnleg og skynsamleg tillaga Óhætt er að fullyrða, að þessi tillaga sé skynsamleg og gagnleg. Rekstur höfuðborgarinnar og stofnana hennar er orðinn geysi víðtækur. Hjá nálægum þióðum hefur sérstökum stofnunum ver- ið falið að fylgjast með rekstri einstakra borga og gera tillögur um sparnað og hagkvæmni í rekstri þeirra. Hafa bæjaryfir- völd Reykjavikur t.d. kynnt sér rekstur slíkra stofnana í Stokk- hólmi, Oslo, Kaupmannahöfn, Helsingfors og Gautaborg. En í öllum þessum borgum hefur starf semi slíks sparnaðareftjrlits þótt gefast mjög vel. Það hefur haft í för með sér bætt vinnubrögð og betra eftirlit með emstökum greinum hins opinbera rekstrar. Allt bendir til þess að sami árangur ætti að nást með þessu hér. Hekstur hinnar íslenzku höfuðborgar er að vísu ekki eins stórbrotinn og höfuðborganna á Norðurlönd- um. En bæjarfélagið verður þó að annast flest söntu verk- efnin og þessar borgir Stofn- anir þess eru svipaðs eðlis og hjá höfuðborgum nágranna- landanna. Margt á því að vera mögulegt að læra af þeirra skipulagi og vinnuhrögðum. Margar umbætur þegar framkvæmdar Forystumenn Reykjavíkurbæj- ar hafa einnig á undanförnum árum beitt sér fyrir margvísleg- um bótum á rekstri bæiarféiags- ins og stofnana þess. Hefur verið reynt að framkvæma þar mag- víslegan sparnað og haga vinnu brögðum eins haganlega og tök hafa verið á. Sérstakar sparnað- arnefndir hafa unnið gagniegt verk og aukin tækni hefui sparað bæjarfélaginu mikil útgjöld. Hin- ar stórvirku bókhalds- og skrif- stofuvélar bæjarins og einstakia stofnana hans hafa spaiað stórar fjárfúlgur og nýtízkuvélar og verkfæri hafa gert framkvæmdir hans fljótunnari og ódýrari. Þá hefur kostnaður við rekstur strætisvagnanna verið stórlækk- aður með því að breyta þeim í dieselvagna, sem eru mikiu ódýr- ari í rekstri. Um birfreiðakostnað bæjar- starfsmanna og stofnar.a bæjarins hefur mikið verið rætt a undan- förnum árum. Hafa bæjaryfir- völdin beitt sér fyrir gjörbréyttri tilhögun í þeim efnuiti tekizt að spara með því mikið fé. Takmark S j álf stæðismanna I eins umfangsmiklum rekstri og rekstri Reykjavíkurbæjar og stofnana hans er vafalaust eitt og annað, sem gagnrýna má með rökum. En það er og helur jafnan verið eindreginn vilji Sjálfstæðis manna, sem bænum hafa stjórnað að bseta sem mest má verða allt skipulag á rekstri bæjarfélagsins. í þeirri viðleitni hefur þeim eins og áður er getið orðið mxkið ágengt. En takmark þeirra er að gera bæjarreksturinn eins hagkvæman, fullkominn og ódýran og frekast er kostur. Það er hlutverk hinnar nýju eftirlits og sparnaðarstofnun- ar að stuðla að því, að því tak- marki verði náð. 'Sjálfstæðismönnum er fylli- lega Ijóst, að Reykvíkingar hafa orðið að borga há útsvör undan- farin ár, enda þótt út.svör séu hér lægri en í öðrum kaup,..oð- um landsins. En hveigi á íslandi hefur fólkið fengið eins mikið fyrir bæjargjöid sín og hér í Reykjavík. Hér hefur verið unnið brautryðjandastarf í raforkumál- um og hitaveitumálum til stór- kostlegs atvinnuöryggis og þæg- inda fyrir fólkið. Hér hefur verið lagt meira fé en nokkurs staðar annars staðar í að fegra umhverf- ið, bæta götur og garða. Traustur fjárhagur En þrátt fyrir hinar gífurlegu framkvæmdir Reykjavíkurbæjar er fjárhagur bæjarins þó traustur og síbatnandi. Skuldlausar eignir bæjarfélagsins stóraukast með ári hverju. En vöxtur bæjarfélagsins skapar stöðugt ný og stcrbrotin verkefni. Börnum og unglingum í skóluin bæjarins fjölgar t.d. um 1000 á ári. Sú mikla fjö'gun skap- ar að sjálfsögðu þörf fyrir sí- aukið skólahúsrými. Það hefur verið ómetanlega mikils virði fyrir hið mikla uppbyggingarstarf, sem unnið hefur verið í Reykjavík undan farna áratugi að bæjarfélagið hefur notið traustrar og sam- hentrar forystu Sjálfstæðis- manna. Þá forystu munu Reyk víkingar einnig tryggja sér næsta kjörtímabil. Rússar eiga engan kjarnorkuknúinn kafbát. Myndin var tekin, þegar Nautilusi var hleypt af stokkunum, en b»nn «■ 'Harnorkuknúinn eins og kunnugt er -- nt eitt helzta stolt bandariska flotans. herskip af meiri krafti en allar aðrar þjóðir heims til sainans að Bandaríkjunúm undanskildum. Rússneski flotinn hefur fjórar aðalbækistöðvar. Eru þær sem fyrr segir í Hvítahafinu — og í Eystrasalti, Vladivostol: við Kyrrahaf og á Svartahafi. Kaf- bátafloti Rússa er mikill og er tal ið, að um einn fjórði hluti hans sé staðsettur í höfnum Rússa við Eystrasalt. Áherzla lögð á kafbátasmíði Hermálasérfræðingar á Vestur löndum fullyrða, að Rússar eigi nú 30 beitiskip, 150 tundurspilla, 500 tundurskeytabáta, 1300 minni hersnekkjur og fylgdarskip — og yfir 500 kafbáta. Flest beitiskip þeirra eru á stærð við hið fræga skip Sverdlov, eða um 13,000 lest- ir — skip, sem Krúsjeff hefur sagt, að væru ekki til annars en að „flytja menn á vinafund". Athyglisvert er talið. að Rússar eru nú nær hættir að byggja beitiskip, en hins vegar hafa þeir að undanförnu lagt meiri áherzlu á smíði stórra kafbáta, sem haft geta langa útivist, og mun kaf- bátafjöldinn verða kominr. upp í 600 í lok næsta árs. kafbátur Rússa mun vera 2,900 smálestir að stærð og hafa 19 hnúta ganghraða undir yfiroorði sjávar — og eldneytisbirgðir til 20,000 mílna spóferðar. Engan kjarnorkukafbát — engin flugvélamóður- skip Enda þótt kafbátafloti Rússa sé mikill að vöxtum, telja Vestur- veldin, að þau hafi mikla yfir- burði á einu sviði: Rússar eiga enn engan kjarnorkuknúinn kaf- bát svo vitað sé. Hins vegar byggja þeir nú fjölda venjulegra kafbáta, sem sérstakiega eru ætl- aðir til þess að flytja kjarnorku- flugskeyti yfir úthöfin Enda þótt Vesturveldunum væri hætta bú- in af slíkum bátum — þá hafa þau í þessu tilfelli mikla yfir- burði yfir Rússa: Flugvélamóður skipin. Ekki er vitað til að Rússar hafi eignazt flugvélamóðurskip — né, að slíkt skip sé í smíðum hjá þeim. arinnar í Albaníu hafa komið frá stöðvum við Eystrasalt eða Hvila haf. Ef til styrjaldar kæmi yrði Svartahafsfloti þeirra mnilokað- ur, ef þeir hefðu ekki fullkomn- að samgönguleiðir fyrir skip í gegnum Rússland sjálft svo vel sem raun ber vitni. A undaniöi-n- um árum hafa skipaskurðir verið dýpkaðir og breikkaðir mjög — og talið er, að Eystrasalt og Hvíta haf séu nú tengd vatnaieiðum, sem jafnvel beitiskip geta siglt eftir. Svartahafið er emnig talið tengt Eystrasalti, en hve stór skip geta farið.þar á milli eftir vatna- leiðunum er ekki vitað. Þetta herskip, Ordzhonikidze, flutti þá Krúsjeff og Bulganin „á vlnafund" til Englands í fyrravor. Það er eitt af stærstu herskipum rússneska flotans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.