Morgunblaðið - 02.10.1957, Page 15

Morgunblaðið - 02.10.1957, Page 15
Miðviltudagur 2. okt. 1957 MORGVISBLAÐIÐ 15 Skrifstofuhúsnœði Nokkur skrifstofuherbergi eru til leigu í miðbænum strax. — Þeir, er óska nánari uppl. sendi nöfn sín í lokuðu umslagi á af- greiðslu Mbl. fyrir 5. okt. merkt: Centralt — 6790. Klara Aðalhjarnardóttir m i nningar orð Júlíana Sveinsdóttir: Sumarmorgun í Horneby. Sýning Júlíönu Sveinsdóttur 1>AÐ ER hressandi að líta inn á sýningu Júlíönu Sveinsdóttur, sem haldin er þessa dagana í húsakynnum Listasafns ríkisins. Þegar sleppt er nokkrum mynd- um, sem málaðar eru í Dan- mörku, en þar hefur listakonan lengi átt annað föðurland, þá er þetta íslenzk sýning að nokkru unnin úr íslenzkum hráefnum. Flest málverkin sýna íslenzkt landslag, en hið sérkennilegasta og nýstárlegasta við þessa sýn- ingu hér á landi er alls konar myndvefnaður og handknýtt teppi. Maður undrast óft litaval- ið, hvort sem Júlíana málar með olíulitum eða ull. Bláir og græn- ir litir sem geta oft verið vara- samir, þegar þeir standa saman, eru hér hins vegar örvandi og innilegir. í einni Vestmannaeyja- myndinni er grængresið dásam- lega ferskt og lifandi, eða þá blátæra vatnið, sem brotnar á flúðum í gljúfri. Mér datt ósjálf- rátt í hug mynd frá bökkum Seljalandsár undir Eyjafjöllum, sem ég sá eitt sinn fyrir ára- tugum. Þar birtist mér fegurst samræmi grænnar grundar og bláasta vatns, sem ég hef litið á íslandi. — En minnisstæðust frá sýningu Júlíönu Sveinsdóttur er mér mýkt litanna. Litirnir eru sjálfstæðir, hreinir og persónu- legir, og njóta sín til fulls, en samt svo mjúkir og samkembdir. Listakonan leikur sér að þeim, handfjallar þá á sinn mjúka, sér- stæða hátt. En það sem kom mér til að skrifa þessi fáu orð um sýningu Júlíönu Sveinsdóttur er vefnað- urinn. Það var mikið lán fyrir hana og okkur, að hún skyldi rekast á ónotaða vefstólinn á geymslulofti vinkonu sinnar. Þar var forsjónin að verki. Með vinnu sinni hefur Júlíana sannað, hve ágætt hráefni íslenzka ullin ev til listvefnaðar, enda keppast listunnendur í Danmörku við að skreyta hýbýli sín með hlutum unnum að Júlíönu Sveinsdóttur. Að undanförnu hafa fslendingar sýnt íslenzku ullinni vítavert tóm læti, en með þessari sýningu hef- ur listakonas hafið hana til vegs og virðingar. Reynsla hennar í ullarvinnu er dýrmæt og má ekki fara forgörðum. Menntamálaráð íslands hefur gert gott verk og þarft að bjóða henni heim og setja upp þessa sýningu. En það þarf að gera meira, það er ekki nóg að bjóða henni heim til þess að halda sýningu, heldur verður að gera henni fært að setjast hér að og búa þannig í haginn ,að þjóðin geti notið þekkingar henn- ar og leiðsagnar í listiðnaði. Gæti þá svo farið, að hér rísi upp meira en vísir að heilbrigðri iðju fyrir unga og gamla og nýr menn ingarstraumur félli að þvi marki að vinna úr innlendum hráefnum og búa sem bezt að sínu. Laufey Vilhjálmsdóttir. Á mánudag s.l. var lögð til hinztu hvíldar Klara Aðalbjarn- ardóttir, sem andaðist 24. sept. s. 1., eftir langvarandi vanheilsu. Hún var fædd að Espihóli í Eyjafirði hinn 13. ágúst 1903, og voru foreldrar hennar Lilja Randversdóttir og Aðalbjörn Kristjánsson. Faðir Klöru var kennari og organisti í Eyjafirði og síðar á Akureyri og var hann mjög vel látinn af öllum sem þekktu hann. Klara missti móður sína á mjög ungum aldri, og ólst upp að nokkru leyti hjá móðursystur sinni Rósu Randversdóttur, sem enn er á lífi á Akureyri. Klara varð fyrir þeirri þungu raun að missa heilsuna á unga aldri, og fluttust þau feðgin til Reykjavíkur árið 1934, til þess að leita henni lækninga. Klara var mjög vel gefin stúlka og trygglynd við þá sem hún batt vináttu við, þótt sjúkdómur sá sem hún átti við að stríða mótaði líf hennar að nokkru leyti. Það var mikið áfall fyrir hana þegar hún missti föður sinn árið 1941, því hann lét sér mjög annt um hana alla tíð, og skömmu eftir að þau fluttust til Reykja víkur, festi hann kaup á litlu húsi að Baugsvegi 3A, þar sem hún bjó eftir að hún missti föður sinn, til dauðadags, en síðustu mánuðina sem hún lifði lá hún í sjúkrahúsum oft sárþjáð, þar til yfir lauk. Ég undirrituð kynntist Klöru fyrst, er ég dvaldist á Akureyri árið 1925, og síðan hefir engan skugga borið á vináttu okkar og Rest-Best koddar eru lagaðir eftir mannslíkamanum. Menn hvílast því bet- ur á þeim en öðrum koddum. — Nokkrar birgðir fyrir- liggjandi. HARALDARBÚÐ Ath.: Veljið þann kodda, sem einmitt hæfir yður og svo jafnframt Rest-Best svæfil til notkunar undir sérstökum kringumstæðum. — Lesið ritgerð, sem fylgir hverjum kodda og lærið að liggja og hvíla yður. RAFGEYMAR I FIAT XIL SOLU vönduð 4ra herb. íbúð á þriðju hæð við Skaptahlíð. — Laus til íbúðar nú þegar. IMýfa fastelgnasalan Bankastræti 7 — Sími 24-300 og kl. 7,30—8,30 e.h. 18546 oft hef ég komið á litla heimilið hennar og við átt þar indælar stundir saman. Elsku Klara mín, við áttum margt sameiginlegt. Nú ertu horfin mér, en ég á margar og góðar minningar um samveru okkar, þú áttir trúna á Drottin þinn og Frelsara, sem þú hafðir öðlazt á unga aldri, sem gaf þér þrek til þess að berjast sem hetja til hinztu stundar, allan þinn sjúkdómsferil. Það var ekki öllum kunn sú barátta sem þú háðir 0£ ef til vill hefir þú verið misskilin af mér og öðrum, en þú varst ekki misskilin af Frelsara þínum * sem hefir nú gefið þér sigurkórónu lífsins, lof sé Drottni fyrir allt. Ég þakka þér trygglyndi þitt frá fyrstu stundu og einlæga vin- áttu, og kveð þig með sárum söknuði. Móðursystur þinni og öðrum ást- vinum, votta ég innilega samúð. Að lokum kveð ég þig elsku vina, með þessum orðum sálma- skáldsins: Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin, á bak við dimma dauðans nótt. Kristin Bjarnadóttir. Skátafélag Reykjavíkur tilkynnir Allir skátar, sem ætla að starfa í vetur, mæti til inn- ritunar sunnudaginn 6. okt. frá kl. 2—4 í Skátaheimilinu. Nýir meðlimir, 11 ára og eldri, mæti á sama tíma. — Árgjald fyrir 1958 15 kr., greiðist við innritun. Ylfingar og drengir á Ylfinga aldri mæti frá kl. 5—6 og greiði árgjald sitt 5 kr. við innritun. Aðeins verður innritað þennan eina dag. Stjórn S. F. R.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.