Morgunblaðið - 09.01.1958, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 9. Janúar 1958
MORGUNBLAÐ1Ð
3
Efstu Eueun D-listans á Akureyri
Annríki hjá Lofl-
leiðum
Öldruð kona í Reykjavík hlaut
happdræftisíbúð DAS
1 GÆR var dregið í 9. flokkí
happdrættis DAS um 10 vinn-
inga.
1. vinningur, þriggja herbergja
íbúð, að Álfheimum 72, fullgerð,
kom á miða nr. 2601. Eigandi mið
ans er frú Guðrún Jóhannsdótt-
ir, Grundargerði 4, Rvík.
2. vinningur, Mercedes-Benz
fólksbifreið, módel 190, kom á
miða nr. 60447. Eigandinn er Ást-
valdur Gunnlaugsson, Aðalstræti
16, Rvík. Umboð Vesturver.
3. vinningur, Fiat-fólksbifreið,
kom á miða nr. 23169, umboð í
Stykkishólmi. Eigandi er Viggó
Þorvarðarson, bifreiðarstjóri í
Stykkishólmi.
4. vinningur, húsgögn, 25. þús.
kr. virði, eftir eigin vali, kom á
nr. 49054, umboð á Keflavíkur-
flugvelli. Eigandi er Sigurður
Jónsson, Vallargötu 24, Keflavík.
5. vinningur, Zimmermann-
píanó, kom á miða nr. 59310, um-
boð Seyðisfirði. Ekki hefur enn-
þá náðst í eiganda þessa miða.
6. vinningur, Hornung & Möll-
er píanó, kom á nr. 19583, umboð
Vesturver. Eigandi er Gunnar
Friðriksson, Hjarðarhaga 31,
Rvík.
7. vinningur, útvarpsgrammo-
fónn með segulbandstæki, kom á
nr. 47818, umboð Vesturver.
Eigandi Bjarni Bjarnason, Tún-
götu 16, Rvík.
8. vinningur, sem er heimilis-
tæki eftir eigin vali fyrir 15 þús.
kr., kom á nr. 8793, í umboði
Sigríðar Helgadóttur, Miðtúni
15. Eigandi er Gunnar Einarsson,
lögregluþjónn, Höfðaborg 57,
Rvík.
9. vinningur, húsgögn eftir
eigin vali fyrir 15 þús. kr, kom
á nr. 33897, umboð Vesturver.
Eigandi Matthías Haraldsson,
kennari, Ljósvallagötu 8, Rvík.
10. vinningur, heimilistæki fyr-
ir 10 þús kr., kom á miða nr.
43257, umboð Vesturver. Eigand-
inn er Halldór Vilhjálmsson.
matsveinn í Þjóðleikhússkjallar-
anum, Laugagerði 76, Rvík.
Háskólaprói tekið á
Keila vxkurílucfvelli
FYRIR nokkru lauk liðsforingi i
einn í varnarliðinu háskólapróii
á Keflavíkurflugvelli. Var hon-
um afhent prófskírteini við há-
tíðlega athöfn í gærkvöldi. Maður
þessi nefnist Carl W. Bradford
undirofursti og hefur hann lokið
„Bachelor of Science“ prófi við
kennslumiðstöð Marylandháskóla
á Keflavíkurflugvelli.
Þar sem það kom mönnum á
óvart, að háskóli sé starfandi á
flugvellinum skal frá því skýrt,
að nokkur ár eru síðan ríkishá-
skólinn í Maryland í Bandaríkj-
unum tók að reka umfangsmikla
kennslustarfsemi utan sinna eig-
in heimkynna og skólasvæðis. Er
þessi starfsemi nú rekin í samtals
200 kennslustöðvum í 18 löndum.
Með henni er m.a. stefnt að því
að gefa bandarískum hermönn-
um, sem dvelja utan heimalands
síns kost á að halda áfram há-
skólanámi sínu, jafnframt því
sem þeir gegna herþjónustu.
Kennsla þessi hófst á Kefla-
víkurflugvelli árið 1951 og hafa
um 200 nemendur að jafnaði tek-
ið þátt í námskeiðunum. Meðal
námsgreina sem þar eru kenndar
má telja bandaríska sögu, stærð-
fræði, þýzku, spænsku, hagfræði,
bandarískar bókmenntir og landa
fræði. Tveir íslendingar starfa
við þessa kennslu, þeir Ástvaldur
Eydal er kennir landaíræði og
Henrik Thorlacius er kennir
þýzku.
Jón G. Sólnes,
bankafulltrúi.
Helgi Falsson,
erindreki.
NÓG hefir verið að starfa hjá
Loftleiðum núna um hátíðirnar
því að á rúmum hálfum mánuði,
eða frá 15. desember til 5. janúar
hafa 846 farþegar ferðazt með
flugvélum félagsins. Af þeim
fóru 607 milli Bandaríkjanna og
flugstöðva Loftleiða á megin-
landi Evrópu og Bretlandi, en
239 ferðuðust, til eða frá Reykja-
vík. Segja má að á þessu tímabili
hafi hvert sæti verið skipað í
flugvélum og vörur fluttar að
auki eftir því sem unnt var.
Áætlanir stóðust mjög vel, þrátt
fyrir óhagstætt veðurfar.
Þegar samanburður er gerður
á farbeiðnum þeim, er liggja nú
fyrir og því, sem tíðkazt hefir
á sama árstíma að undanförnu,
má telja að útlit sé fyrir, að fyrri
hluti þessa nýbyrjaða árs muni
verða Loftleiðum hinn hagstæð-
asti. — (Frá Loftleiðum).
Héraðsdýralækna-
embætti auglýst
STÖÐUR fimm héraðsdýralækna
eru augl. í síðasta Lögbirtingi.
Það er landbúnaðarmálaráðuneyt
ið sem þessi embætti veitir, en
þau eru: ísafjarðarumdæmi,
Dalaumdæmi, Laugarásumdæmi,
Þingeyjarumdæmi og Skagafjarð
arumdæmi.
Gísli Jónsson,
menntaskólakennari.
Jón H. Þorvaldsson,
byggingameistari.
Jónas G. Rafnar,
lögfræðingur.
Árni Jónsson,
tilraunastjóri.
Ólafur B. Björnsson,
ritstjóri.
Sverre Valtýsson,
Iyfjafræðingur.
Sigríður Auðuns,
húsfrú.
Efstu menn
D-listans
i Akranesi
Rafn Pétursson,
verkstjóri.
Jón Arnason,
útgeröarmaður.
STAKSTEIIUAR
Hin mikla krossgáta
,,vinstri“ stjcirnar-
flokkanna
Hvað boðaði ræða forsætisráð-
herrans á gamlárskvöld? Boðaði
hún gengislækkun eða ekki?
Um þetta snúast skrif mál-
gagna „vinstri“ stjórnarinnar
aðallega um þessar mundir.
Þeirra eigin stjórnarstefna er
orðin hin mikla krossgáta, jafn-
vel í þeirra eigin blöðum.
Kommúnistar fullyrða hik-
laust að Hermann hafi boðað
gengislækkun, enda sé það ekk-
ert launungarmál, að tveir
stjórnarflokkanna hafi undanfar
ið barizt eindregið fyrir gengis-
fellingu. Þessir flokkar séu
Framsókn og Alþýðuflokkurinn.
Kommúnistar standi hins vegar
hart á móti gengislækkun og
hafi tekizt að hindra liana til
þessa, segir „Þjóðviljinn“.
Sett upp að vegg
Kommúnistablaðið hefur dag
eftir dag sett blöð samstarfs-
flokka sinna, Tímann og Alþýðu-
blaðið upp að vegg og krafizt
yfirlýsinga frá þeim um raunveru
lega þýðingu orða forsætisráð-
herrans á gamlárskvöld. Meinti
hann gengislækkun eð'a ekki?
En Tíminn og Alþýðublaðið
eru í vandræðum. Svarið vefst
fyrir þeim. Blöðin birta eitthvert
hrafl úr ræðu Hermanns og segja
svo: Ummælin eru skýlaus. Her
mann boðaði ekki berum orðum
gengislækkun. Hann sagði að sér
fræðingar væru að rannsaka
ástand efnahagsmálanna. Þeirra
tillögum mundi vera fylgt.
Og Tíminn lofsyngur dag eftir
dag þessa djúpu speki forsætis-
ráðherrans. Hann hafi sagt hið
mikla lausnarorð. „Úttektin",
sem lofað var „fyrir opnum tjöld-
um“ sé að fara fram. Því miður
verði niðurstöður hennar samt
ekki kunnar fyrr en eftir kosn-
ingar og tillögur ríkisstjórnar-
innar ekki heldur.!
Ef sérfræðinga og vinnu-
stéttir greinir á?
f lok einnar lofgreinar sinnar
um hin „glöggu ummæli" for-
sætisráðherra í áramótaræðunni
kemst Tíminn m.a. þannig að
orði s.l. þriðjudag:
„Það mun fara eftir áliti sér-
fræðinga og viðliorfi vinnustétt-
anna, hvernig rikisstjórnin reyn
ir að leysa vanda efnahagsmál-
anna“.
Ekki leysist hin mikla kross-
gáta um stefnu vinstri stjórnar-
innar í efnahagsnjálum með
þessu. Hvernig fer ef vinnustétt-
irnar vilja nú alls ekki sætta sig
við þá lausn, sem sérfræðingarnir
leggja til að reynd verði? Þá
gátu hefur Tíminn ekki ennþá
leyst. Annars er rifrildi stjórnar-
flokkanna um það, hvað falizt
hafi í ræðu Hermanns á gamlárs-
kvöld táknrænt um ræfildóm
þeirra, sundurþykkju og stefnu-
leysi. Hermann boðaði hreina og
klára gengislækkun. Hann sagði
að gengi krónunnar væri allt of
hátt skráð í dag og það „hag-
kerfi“, sem byggt væri á hinni
röngu krónuskráningu væri
búið að ganga sér til húðar.
Þessu yrði að breyta.
En það eru kosningar fram-
undan. Þess vegna þora málgöga
Framsóknar og krata ekki að við
urkenna það, að ræða Hcrmanns
þýddi þetta og ekkert annað.
Kommúnistar þykjast hins veg-
ar vera á móti gengislækkun,
enda þótt lciðtogar þeirra haft
fyrir löngu ákveðið að samþykkja
Íhana, alveg eins og áframliald-
andi dvöl hins ameríska varnar-
liðs í landinu.