Morgunblaðið - 22.01.1958, Qupperneq 4
4
MORCVTS BLAÐIÐ
Miðvikudagur 22. jan. 1958
1 dag er 22. dngur ársins.
Miðvikudugur 22. janúar.
Árdegisflæði kl. 6,58.
Síðdegisflæði kl. 19,13.
Slysavarostofa Reykjavíkur 1
Heilsuverndarstöðinni er opín all-
an sólarhringinn. Læknavörður L
R (fyrir vitjaniri er á sama stað,
fif' kl. 18—8. Sími 15030.
Nælurvörður er í Reykjavíkur-
apóteki, sími 11760. Laugavegs-
apótek, Ingólfs-apótek og Lyfia-
búðin Iðunn, fylgja öll lokunar-
tíma sölubúða. Apótek Austurbæj-
ar, Garðs-apótek, Holts-apótek og
Vesturbæjar-apótek eru öll opin
til kl. 8 daglega nema á laugar-
dögum til kl. 4. Einnig eru þessi
síðasttöldu apótek öll opin á
sunnudögum milli kl. 1 og 4.
Kópaxogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl 13—16. Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga kl. 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Kristján Jó-
hannesson.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
frá kl. 9—16 og helga daga frá
k' 13—16. — Næturlæknir er
Guðjón Klemensson.
I.O.O.F. 7
b Spkv.
1391228% 5 N K
□ GIMLI 5958123 = 2 Fls.
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Jóhanna Sigurð
ardóttir, Mjóuhlíð 4 og Stefán
Sverrisson, iðnnemi, Eskihlíð 6.
Skipin
m. — Þar verður ísienzkur matur
á borðum. Prófessor Guðni Jóns-
son segir draugasögur.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla
er á Austfjörðum á norðurleið.
Esja fer frá Reykjavík kl. 20 í
kvöld vestur um land í hringferð;
Herðubreið er á Austfjörðum. —
Skjaldbreið er á Húnaflóa á leið
til Akureyrar. Þyrill er á lei? frá
Reykjavík til Austfjarða. Skaft-
fellingur fer frá Reykjavík í kvöld
til Vestmannaeyja.
Eimskipafélag Rvíkur h. f.: —
Katla er á leið til Spánar. Askja
lestar saltfisk á Norðurlandshöfn-
um. —
Skípadeild S.Í.S.: — Hvassafell
fór 20. þ.m. frá Riga áleiðis til
Reykjavíkur. Arnarfell fór ; gær
fr.-. Riga til Ventspils og Kaup-
mannahafnar. Jökulfell væntan-
legt til Húsavíkur í dag, fer það-
an til Hvammstanga. Dísarfell
fór 20. þ.m. frá Reyðarfirði áleið-
is til Hamborgar. Litlafell fór í
gær frá Siglufirði áleiðis til Ham-
borgar. Helgafell fór væntanlega
í gær frá New York áleiðÍL til
Reykjavíkur. Hamrafell er í
Reykjavík.
f^jAheit&samskot
Sólheimudrengurinn, afh. Mbl.:
A T krónur 100,00.
Ymislegi
Þorrablót Rangæingafélag ins
verður haldið laugardaginn 25. þ.
N'if'St*.>%&*» 4t***£é
Kvikmyndir Sophiu Loren munu
framvegis ekki verða sýndar
neinu hinna 7.000 kvikmyndahúsa
á Ítalíu. Ástæðan er hjúskapur
hennar og kvikmyndaframleiðand-
ans Carlo Ponti, en Páfagarður
hefur lýst megnri vanþóknun á
þeim ráðahag. En Sophia kærir
sig kollótta um það. Um þessar
mundir er hún í Englandi við kvik
myndaleik — og svo er það annað,
sem tekið hefur allan hug hennar:
Hún á von á barni — a. m. k.
hefur hún skýrt ensku blöðunum
svo frá. Um þessar mundir sýnir
Stjörnubíó eina af kvikinyndum
hennar — og hefur sú mynd hlot-
ið mikla aðsókn.
OrS lífsins: — Þá fylltist Ne-
búlcadnezar heiftarreiði við þá
Sadrak, Mesak og Abed-Negó, svo
að ásjóna hans afmyndaðist, og
hann skipaði að kynda afninn sjö-
falt heitara, en vanalega var að
kynda hann. (Dan. 3, 19).
Pennavinir. — Sænsk stúlka sem
býr í Osló, vill komast í bréfa-
viðskipti við íslenzkan pilt eða
stúlku, á aldrinum 15—16 ára. —
Nafn og heimilisfang er Karin
Skallsjö, Montebelloveien 3, Sme-
stad, Osló, Norge. Hún skrifar
á ensku.
Þá hefur blaðinu einnig borizt
bréf frá Hong Kong, sem hefur
inni að halda fimm nöfn og heim-
ilisföng ungmenna þar sem vilja
komast í bréfaviðskipti við ís-
lenzkt æskufólk. Bréfið er ritað á
ensku. Þess má vitja til Dagbók-
ar Morgunblaðsins.
Bob Riebards, U.S.A., fékk gull-
verðlaun fyrir met í langstökki á
Olympíu leikunum 1957. Hann
segir: „Allir afburða íþrótt^menn
verða að temja sér reglusamt og
heilbrigt líf. Næstum enginn
þeirra, er ég þekki, neytir áfengra
drykkja". — Umdæmisstúkan.
• Gengið •
Gullverð ísl. krónu:
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .... kr. 45,70
1 Bandaríkjadollar. . — 16,32
1 Kanadadollar .... — 16,56
100 danskar kr.......— 236,30
100 norskar kr.......— 228,50
100 saenskar kr.......—315,50
100 finnsk mörk .... — 5,10
1000 franskir frankar .. — 38,86
100 belsiskir frankar. . — 32.90
Vögguljób
(Framsókn raular við Krata
litla). —
„Ég skal vakna ogN vera góð
vininum mínum smáa“.
Austanglóðin glilar rjóð
gljúfrasteininn lóga
og Kiljan syngur leirug ljóð
um lús og róna fláa.
Var ekki eins í vetur Ieið
víða roimt á glugga?
Stjórnin bjó við stríð og neyð
stödd í döprum skugga.
— Við Austurstræti bankinn beið
með beinin til að liugga.
f hásætinu lireykir sér
Hermann, vesalingur.
Austur í löndin Einar fer,
eftir línu springur.
Er í landi ennþá her.
— Enginn hreyfir fingur.
Eysteinn rær og reytir í
ríkissjóðinn snauða.
Skattþcgna um borg og bý
ber að hungurdauða.
Sanit við gjaldið SÍS er frí,
safnar gulli rauða.
Beinatíkur brosa á ný,
bita í næði maula,
meðan ráðlaus Rússaþý
reginslega gaula.
— Kátt er nú í koti því.
—— Kvígur saddar baula.
C. X.
100 svissn. frankar .. — 376,00
100 Gyllini ..........—431,10
100 tékkneskar kr. .. — 226,67
100 vestur-þýzk mörk — 391,30
1000 Lírur ...........— 26,02
Hvað kostar undir bréfin?
1—20 gLömm.
Innanbæjar .................. 1,50
Út á land.................... 1,75
Sjópóstur til útlanda ....... 1,75
Bvrópa — Flugpðstur:
Danmörk ......... 2,55
Noregur ......... 2.55
SvlþjóS ......... 2,55
Finnland ........ 3.00
Þýzkaland ........ 3,00
Bretland ........ 2,45
Frakkland ....... 3,00
írland .......... 2.65
Spánn ........... 3,25
Ítaiía .......... 3,25
Luxemburg ....... 3.00
Malta ........... 3.25
Holland ......... 3.00
Pólland ......... 3,25
Portugal ........ 3,50
Rúmenía ......... 3,25
Svlas ........... 3.00
Tyrkland ........ 3.50
Vatikan.......... 3,25
Rússland ........ 3,25
Belgia .......... 3.00
3,25
Búigarla .........
Júgóslavia ....... 3,25
Tékkóslóvakla ... 3.00
Bandaríkin — Flugpó.stur:
l— 5 gr 2.45
5—10 gr. 3,15
10- -15 gr. 3,85
15—20 gl 4.55
Kanada — Flugpóstur:
1— 5 gr 2,55
5—10 gr 3,35
10—15 gr. 4,15
15—20 gr. 4,95
A/rika.
Egyptaland ........ 2,45
Arabia ............ 2,60
ísrael ............ 2,50
Asia:
Flugpóstur, 1—5 gr.:
Japan ... ......... 3,80
Hnng Kong ......... 3.60
Hinn frægi bandaríski kvikmyndaleikari Orson Welles er um
þessar mundir á ítalíu. Hér sést hann við komuna til Genúa
ásamt konu sinni, Paola Mori, og 2ja ára dóttur þeirra,
Beatrice. Orson Welles var eitt sinn kvæntur Ritu Hayworth.
Öruggasta höfnin
ÁRIÐ 1913 var byrjað að byggja
höfn í Reykjavík. Sú hafnargerð
heldur í rauninni stöðugt áfram.
Á hverju ár bætast við bryggjur,
garðar, verbúðir o.fl. Reykja-
víkurhöfn er fyrsta höfnin sem
gerð hefur verið af mannahönd-
um hérlendis og í dag er engin
höfn á Islandi eins örugg
og hún. Þeir sem eiga góðar
hafnir af náttúrunnar hendi,
eins og ísfirðingar, Akureyr-
ingar og Siglfirðingar eru
jafnvel ekki eins öruggir um
skip sín eins og við hér í okkur
góðu höfn í Reykjavík. Þegar
vond veður eru koma togar úr
næstu byggðarlögum eins og
Hafnarfirði. Akranesi og KeEla-
vík til þess að liggja veðrið af
sér í Reykjavíkurhöfn. Nú ný-
lega komu bátar hingað frá Sand
gerði til að leita skjóls.
Ég segi hér frá þessum stað-
reyndum að gefnu tilefni,
því að í kosningabaráttunni að
undanförnu hafa ýmsir ungir
menn farið að skrifa greinar um
höfnina í Reykjavík, þar sem
þeir níða hana niður. Slík skrif
sýna aðeins fáfræði, enda hefðu
þessir ungu menn ekki þurft
annað en að tala við sjómennina
okkar, um það hvaða þýðingu
Reykjavíkurhöfn hefur.
Annað vil ég einnig geta um
að gefnu tilefni. Það er viðlegu-
plássið fyrir mótorbáta ' Hér eru
5 ágætar bátabryggjur, svo að
afgreiðsla tefst aldrei vegna
bryggjuleysis. Spyrjið svo sjó-
menn úr öðrum byggðarlögum
hve margar bátabryggjur séu
þar t.d. í Hafnarfirði. Ekki sé ég
heldur að vöntun sé á bryggju-
plássi fyrir fragtskip. Ef skip
liggja í öllum plássum, þá eru
ekki til nægir verkamenn til þess
að vinna í nema helming skip-
anna.
Ef mótorbátum fækkar hér í
Reykjavík, gæti það fremur staf
að af því, að Reykjavík liggur
lengra frá aðal línu-fiskmiðun-
um n t.d. Keflavík og Sandgetði.
Vegalengdin nemur 3—4 klst.
aukasiglingu í róðri. Hefur það
mikið að segja, því að sjómenn
vilja heldur vera á bátum, er
þurfa skammt að sækja.
Reykjavík hefur byggt ör-
uggustu höfn landsins, Hefur
hún þó ekki átt upp á pallborðið
hjá Alþingi. Aðrar hafnir fá 33%
framlag frá ríkinu og ríkisábyrgð
fyrir afganginum 67%. Reykja-
víkurhöfn fékk 500 þús. kr. lán í
upphafi, sem hún hefur sjálf
greitt upp. Til hennar renna ekki
framlög frá ríkinu. Hún er samt
bezta höfnin, með beztu aðhlynn-
ingu og beztu þjónustu, sem til
er á fslandi.
Þessir ungu menn ættu ekki að
vera að reyna að draga niður í
svaðið það sem bezt hefur venð
gert hér á landi. Gamla Reykja-
vík stenzt samanburð við önnur
bæjarfélög í þessu efni sem
mörgum öðrum.
Geir.
Etsenbower svarar
FERDIINIAND
VínnuvísSndB
WASHINGTON, 20. jan. — Eis-
enhower Bandaríkjaforseti sendi
í dag stutt svar við síðara bréfi
Búlganins forsætisráðherra
Rússa, en það var dagsett 9. jan.
Það var í þessu bréfi, sem Búlg-
anin lagði til að haldin yrði ráð-
stefna æðstu manna ýmissa rikja
í ajustri og vestri.
í svarbréfi sínu kveðst Eisen-
hower hafa fjallað um öll helztu
vandamálin, sem Búlganin vík-
ur að í síðara bréfi sínu, í svar-
bréfi sem forsetinn sendi til Búlg
anins 12. janúar. „Ef ýtarlegra
svar við síðara bréfi yðar reyn-
ist nauðsynlegt, mun ég hafa
samband við yður síðar“, segir
Eisenhower í bréfi sínu.