Morgunblaðið - 22.01.1958, Page 6

Morgunblaðið - 22.01.1958, Page 6
6 MOPCrrNnr 4 ÐJÐ Miðvikudagur 22. jan. 1958 Kaupmannahafnarbréf frá Páli Jónssyni Þegar Rússar horfðu aðgerðar- lausir á 120 þús. Pólverja falla miklum erfiðleikum, að rússneski björninn kikni í hnjáliðunum og deilumálin milli Vesturs og Austurs leysist án stríðs. En margt getur á daga okkar drifið, áður en svo langt er kom- ið. Ég vona að vestrænar þjóðir ir skilji, að Rússar óttast aðeins eitt, nefnilega máttinn. Eingöngu með auknum styrkleika og sam- heldni geta vestrænar þjóðir varð veitt friðinn og beðið þess, að rússneska kúgunarkerfið molni innan fi á. Kaupmh. í janúar 1958. RÚSSAR frömdu eitt mesta níð- ingsverkið í veraldarsögunni, þegar þeir sviku pólska frelsis- herinn í Varsjá sumarið 1944 og horfðu aðgerðarlausir á, að hann var brytjaður niður. Bor Komorowsky hershöfðingi, sem stjórnaði pólska frelsislið- inu, sagði þetta, þegar blaða- menn hittu hann að máli í Kaup- mannahöfn. Hann er þar nú nokkra daga og heldur fyrir- lestur um uppreisnina í Varsjá sumarið 1944. Komorowsky er 63 ára að aldri, ungur í anda, en eldri að útliti. Hann hefur verið í útlegð síð- astliðin 13 ár og á nú heima í Lundúnum. — Uppreisnin í Varsjá í ágúst 1944 var vel undirbúin, segir hers höfðinginn. Pólska mótspyrnu- hreyfingin hafði komið sér upp álitlegum her. í honum voru 43.000 sjálfboðaliðar, allir vel æfðir. Rússneski herinn undir stjórn Rokossovskys marskálks nálgaðist Varsjá. Við biðum með eftirvæntingu eftir skipun um að gera uppreisn gegn þýzka her- námsliðinu. Þegar rússneski her- inn var aðeins fáeina km. frá “borginni, kom skipunin. Hún kom í útvarpi frá Moskvu og var á þessa leið: Varsjárborgarar. Grípið til vopna á móti nazistum. Rauði herinn veitir ykkur hjálp. Við gripum strax til vopna, en þýzki herinn var langtum betur vopnum búinn og fékk þar að auki fljótlega liðsauka. Við átt- um ekki nema létt vopn, sem við höfðum smiðað sjálfir eða Bretar og Bandaríkjamenn varpað nið- ur til okkar með fallhlífum. Við gátum ekki af eigin rammleik unnið bug á þýzka hernum. Mikil urðu vonbrigðin, þegar það kom í ljós, að rússneski her- inn veitti okkur enga hjálp, prátt fyrir gefin loforð. Við gátum greinilega séð hermenn Rokos- sovsky hinum megin Vistulafljóts ins, en þeir hreyfðu hvorki hönd né fót okkur til hjálpar. Roose- velt og Churchill báðu Rússa að koma til liðs við okkur. Samt sem áður gerðu þeir það ekki. Bandaríkjamenn buðust til að senda 100 sprengjuflugvélar okk- ur til áðstoðar, ef þær maéttu lenda bak við rússnesku herstöðv arnar til að fá þar benzín til heimferðarinnar, en Rússar synj uðu þeim um lendingarleyfi. Eftir 58 daga blóðuga bardaga í Varsjá höfðu 100.000 borgarar látið lifið og helmingur frelsis- hersins var fallinn eða tekinn höndum. Við vorum orðnir skot- færalausir, matarlausir og vatns lausir. í>egar svona stóð á, bað ég Rokossovsky í síðasta sinn um hjálp. En rússnesku fallbyssurn- Efstu menn D-listans á Siglufirði Hiff sögulega andartak, 2. október 1944, er Bor ók frá bækistöð Þjóðverja í Warsjá, þar sem hann hafði undirritað samning um uppgjöf eftir 63. daga vonlausa baráttu. ar voru áfram þöglar. I 5 daga beið ég árangurslaust eftir svari. Svo gafst ég upp. — Hvers vegna vildu Rússar ekki hjálpa ykkur eins og þeir höfðu lofað? — Stalin bannaði það, af því að við vorum ekki kommúnistar. Hánn vildi losna við okkur, til þess að við yrðum ekki yfirráða- stefnu hans í Póllandi til fyrir- stöðu. — Hvert fóruð þér, eftir að þér höfðuð gefizt upp? — Ég var sendur til Þýzka- lands og sat þar í fangelsi þangað til Bandarikjamenn komu og létu mig lausan. Seinna var mér sagt, að Hitler hefði mælt svo fyrir, að ég yrði skotinn, en þýzkur hershöfðingi hefði-frestað aftök- unni. — Þér farið líklega ekki til Póllands fyrst um sinn? — Nei, mér þykir að vísu gam- an að ferðast, en mig hefur aldrei langað til að verða sendur til Síberíu. — Hvaða þýðingu hafa gervi- hnettirnir rússnesku, séð frá pólitísku og hernaðarlegu sjón- armiði? — Þeir hafa vakið Bandaríkja- menn. — Má búast við nýrri bylting- artilraun í Póilandi? — Varla að svo stöddu. Yfir- gnæfandi meirihluti pólsku þjóð- arinnar er að vísu andvígur kommúnistum. Sérstaklega má segja þetta um æskulýðinn. En þó er ekki um neina skipulagða mótspyrnuhreyfingu að ræða í landinu. Rússar hafa þarna njósn ara og fimmtuherdeildarmenn á hverju strái. Ef reynt yrði að skipuleggja mótspyrnuhreyfingu, þá mundi erindrekar Rússa fljót lega finna leiðtogana og hand- taka þá. Af sömu ástæðu er ekki hægt að stofna leynilegan frelsisher í Póllandi. En pólski herinn, 400,000 manns, er yfirleitt and- vígur kommúnistum. Það væri þó fífldirfska, ef hann reyndi að gera uppreisn. Rússar eiga öfluga heri í nágrannalöndunum og eru reiðubúnir til að senda þá til Pól- lands til að bæla uppreisnartil- raun niður. Þetta er sagt um nánustu fram tíð. En ég vona að svo fari að lokum, að pólska þjóðin rísi upp á móti kúgurunum og öðlist frelsi að nýju. Ég trúi ekki á friðsamleg sam- skipti milli Austurs og Vesturs. Þegar Rússar tala um frið o samvinnu, þá gera þeir það í von um að vinna þannig tíma til að efla aðstöðu sína og um leið kommúnismans. Ég er heldur ekki á þeirri skoðun, að þriðja heimsstríðið með öllum þeim skelfingum, sem kjarnorkustríð hefur í för með sér, sé eina leiðin út úr vandræðunum. Ég býst við, að þannig fari með tímanum, að frelsisþráin og frelsishreyfingar í rússnesku leppríkjunum og jafn- vel í Rússlandi sjálfu muni valda hinum austrænu valdhöfum svo 2. Stefán Friðbjarnarson, skrifstofumaður. 4. Þórhalla Hjálmarsdóttir, húsmóðir. 1. Baldur Eiríksson, forseti bæjarstjórnar. 3. Ófeigur Eiríksson, lögfræðingur. Arthúr Sumarliðason, verkamaður. sferifar úp 1 daglega fífinu j É‘ Bor hershöfðingi í Kaupmannaltoxn. Um tónlist í kirkjum Kæri Velvakandi. g hlustaði mér til mikillar ánægju á erindi Guðmund- ar Jónssonar söngvara um dag- inn og veginn í fyrri viku. Eitt af því, sem hann talaði um, var það, að meiri fjölbreytni þyrfti að vera í kirkjusöng okk- ar. Mig langar til að segja frá því, að í éinum af yngri söfnuðum borgarinnar hefur þetta einmitt verið gjört. í Langholtssöfnuði var það föst venja einn veturinn að fá einsöngvara eða einleikara með fiðlu fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Ég man, að ég hlustaði þar á Kristin Hallsson, Sigurð Ólafsson, Sigfús Halldórsson, Ingvar Jónasson, Þuríði Pálsdótt ur og Kristínu Einarsdóttur. Lisc þessa fólks setti hátíðlegan blæ á guðsþjónustuna, og var fólk yfirleitt ánægt með þessa ný- breytni. Einnig gjörði söngstjórinn mik- ið að því að kynna lítt þekkt sálmalög eftir íslenzka höfunda. En stundum mátti heyra nöldrað um, hvers vegna maður fengi ekki að heyra gömlu, góðu lögin. En mikill fjöldi fólks fagnaði þessu. Þess skal getið, sem gjört er. Með beztu kveðju. Kona í Langholtssöfnuði“. Skóhlífamar hurfu UNG húsmóðir hér í bæ hitti Velvakanda á förnum vegi fyrir nokkrum dögum. Hún bað hann að láta þess getið, að hún væri nú búin að kaupa þrennar skóhlífar handa manninum sín- um á nokkrum vikum. Ekta- makinn er í háskólanum og skil- ur skóhlífar sinar þar eftir í for- dyrinu, er hann kemur í bygging una — eins og lög gera ráð fyrir. En ekki er nú virðing fyrir ann- arra manna eignum meiri en svo meðal einhverra þeirra, sem um fordyrið ganga, að þeir gera sér lítið fyrir og slá eign sinni á skóhlífar, sem þar eru. Heldur er þetta nú leitt fyrir háborg ís- lenzkra mennta. Kosningalögin nýju VELVAKANDI hefur orðið þess var, að fólk hefur ekki gert sér fulla grein fyrir því ákvæði kosningalaganna, sem sett voru á Alþingi fyrir jólin, er fjallar um upplýsingar um þá, sem kosið hafa. Það er fullkomlega heimilt að spyrja fólk, hvort það eða aðrir hafi kosið, og því er heimilt að svara spurningunni. (Þó það nú væri!) Hið eina, sem er óheimilt í þessu sambandi snertir það fólk, sem listarnir senda inn í herberg in, sem kosið er í, til að fylgjast með kosningunni. Það fólk má ekki segja hverjir hafa kosið. I upphaflega lagafrumvarpinu var gert ráð fyrir, að það varðaði sektum, að gefa nokkrar upp- lýsingar í þessu sambandi, en sú fjarstæða komst ekki gegnum 1 þingið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.