Morgunblaðið - 22.01.1958, Síða 9

Morgunblaðið - 22.01.1958, Síða 9
Miðvik'udagur 22. jan. 1958 MORCVNBLAÐIÐ 9 Þarfasti þjóriaiinn Sjónarspil, sem gæti gerst í þessari viku JÓN sterki: Ég hef boðað til þessa fundar með efstu mönn- um vinstri listanna, til að und- irbúa valdatökuna eftir bæj- arstjórnarkosningar, því nú hljótum viff aff vinna grenið. Til að flýta fyrir vinnu- brögðum vil ég strax setja fram kröfur minna manna og eru þessar helztar: Þórður Björnsson verði borg arstjóri. SÍS fái aðstöðu til að setja upp 100 búðir á þessu ári og velji sjálft staði fyrir þær. Freðmjólkur-sjoppur Denna dæmalausa njóti sömu forrétt- inda og SÍS-búðir væru. Formaður sölunefndar setu liðseigna fái til umráða hús bæjarins við Skúlatún, enda skiptist ágóðinn af skransölu hersins milli stjórnarflokk- anna í réttu hlutfalli við þing- mannatölu þeirra. Höfnin verði stækkuð svo að Hamrafell geti lagzt að bryggju. Klambratún verði skipulagt sem mógrafir, enda stjórni Valborg þar framkvæmdum. Kolakraninn verði rifinn, svo að ekki berist þaðan ryk í Arnarhvol og SÍS. Sigurður Jónasson fái full umráð yfir höll sinni í Þing- holtunum. Þá mun SÍS gefa bænum ís- hús sitt við tjörnina sem fram tíðarráðhús fyrir bæinn, enda verði þar aðstaða til að spila okkar vinsælu vist. Við gerum engar kröfur fyr ir Sigurjón, sem fór úr banka- ráðinu né Björn sem var i kart öflunum. Hins vegar væri æskilegt, að þeir sem búa ná- lægt tjörninni fengju sérleyfi til að skjóta þar fugla við og við, ef þá langar. En síðasta og fyrsta krafa okkar er: Þórður Björnsson verði borg arstjóri. Eins og sjá má af þessum kröfum viljum við allt til vinna, að samvinnan megi verða traust og þægileg. Krati: Ég hefi í rauninni engar kröfur að gera. Minn flokkúr er búinn að koma fram öllum sínum málum, nema hvað fá- einir flokksmenn gætu enn bætt á sig nokkrum beinum, sem ekki þarf að eyða miklum tíma í, en um þá hlið málanna mun 2. maður listans sjá í framtíðinni. Ég geri ekki ráð fyrir að mæta oft í bæjar- stjórn frekar en áður og alls ekki til aff taka þátt í aff stjórna bænum með kommún- istum. Þjóffvörn: Ég er að fara úr landi til langdvalar og ef Þjóðvörn kemur að manni, sem ég held að ekki verði, þá mæta þeir til skiptis fulltrúi Menningar- sjóðs og Draupnisútgáfunnar. Við erum til þess eins í heim- inn komnir, að reka herinn úr landi og förum ekki aff stjórna bænum meff þremur liernáms flokkum. Kommi: Þið Þjóðvarnarmenn og hægri kratar eruð íhaldsbull- ur og Ákavíti og þið skuluð verða malaðir svo á sunnudag- inn, að enginn þurfi framar á ykkur að halda. Jón sterki: Ekki styggja litlu skinnin. Ég skal tala við þá á eftir. Kommi: Ég kem þá að málefna- grundvellinum. Mér finnst kröfur frummælanda hóflegar og réttmætar, en við munum fyrir hönd Kron, Mír, Kím og nokkurra annarra austrænna fyrirtækja krefjast tilsvar- andi aðstöðu og SÍS og vanda menn frummælanda fá. Auk þess krefjumst við þess, að borgarstjórar verði tveir og til nefnum af okkar hálfu Þor- vald, sem bar út ekkjuna. Þá gerum við ráð fyrir, að þegjandi samkomulag sé um, að við styðjum gengisfellingu og kaupbindingu og að herinn verði hér áfram. Síðar má svo ræða um eldflaugastöðvar og kjarnavopn, ef þörf krefur, til að halda okkar sameiginlegu ríkisstjórn við völd og verka- lýðnum í skefjum. Jón sterki: Ég vil sérstaklega þakka síðasta ræðumanni frá- bærar undirtektir. Þar kom fram hinn sanni samstarfsandi og er gott að eiga slíka menn að. Við kratana sé ég ekki á stæðu til að tala. Þeir eru fangar mínir og má festa þá upp hvaða dag sern er. Þess vegna tel ég það ákveðið mál, að við vinnum allir saman eft- ir kosningar og framkvæmum öll þau stóru mál, sem ég hef sett fram hér í dag. Þetta leggst allt vel í mig. Framsókn: En verður þetta bara nóg lið, sem við fáum. Jón sterki: Ja, hvað fóum við marga kosna? Krati: Við ættum að vera vissir með einn. Framsókn: Og við vonumst til að halda okkar eina. Þjóffvörn: Okkar von um einn er bæði völt og myrk. Kommi: Síðan systir Áka fór höf um við haft tvo, en vegna sigr anna í Ungverjalandi og setu í ríkisstjórn vonumst við nú til að merja þrjá. Jón sterki: Hvað segiff þið? Einn og einn, enginn og þrír. Það eru bara fimm. Á þá íhaldið að fá tíu? Allir hinir: Vonandi verður það nú ekki svo slæmt. Rödd úr hópnum: Verður þetta bara hægt, Matthías? Jón sterki: Ja, þá bara breytum við lögum, eins og þegar við samþykktum, að Eggert væri þingmaður þó að hann félli. Það er hægt að gera allt með bráðabirgðalögum. Ekki er ég hræddur um að þau fáist ekki til að fara í bæjarstjórn mað- urinn frá Djúpavogi, Valborg og þarna rafmagnsmaðurinn hjá krötunum. Látið mig um það. Kommi: Þetta er auðvitað ráðið, enda hafði félagi Stalín það svona þegar á þurfti að halda. Þessi aðferð verður líka við- kunnanlegri en sú sem mínir menn nota stundum, að hrinda mönnum út um glugga á 6. hæð, ef þeir eru eitthvað borg aralegir í sér. Jón sterki: Ég ætlaði að skreppa austur á heiði og vita hvort ég næ í eina rjúpu. Ég skal svo láta prófessorinn okkar fara að undirbúa lagabreyting arnar. Hann hefur æfingu frá bandalaginu og Eggertsmál- inu í fyrra. Þaff þýffir sjáan- lega ekkert aff vera aff treysta á úrslit þessara kosninga á sunnudaginn. (fer). Krati: Dramb er falli næst. Framsókn: Mikill maður og sterk ur, minn kall. Þjóðvörn: Guð má vita hvar við dönsum næstu jól. Kommi: (hugsar upphátt). Víst er hann okkar þarfasti þjónn — í bili — þó að ýmsu verðum við að kyngja fyrir hann. En alltaf segir Billinn, að áður en lýkur munum við verða að stilla honum upp við vegg. Og þá bætir félagi Jón því við, að ekki mundi saka þó að opnan- legur gluggi yrði á þeim vegg eias og í Tékkóslóvakíu hér um árið, þegar Masaryk datt n'ður í portið. Craig frá New York og Ormar frá Lundúnum Forstjórar LoftleiBa- deilda í New-York og London bjartsýnir í EINU allra víðlesnasta vikuriti Bandaríkjanna TIME, birtist í vetur grein um flugfélagið Loft- leiðir og ítök þess i farþegaílugi milli Bandaríkjanna og Evrópu. Var grein þessi að sjálfsögðu byggð á sérstökum upplýsing- um, sem blaðið hafði aflað sér um Loftleiðir. Greininni fylgdi mynd af forstjóra Loft- leða í New York, Mr Nicolas Craig. Forstjórinn er nú staddur hér á landi ásamt forstjóra Loft leiðaskrifstofunnar í Lundúnum Mr. Ronald Orme. Komu þeir fyr ir nokkrum dögum frá New YorK, en þar ræddum við um ýmiss kon ar samræmingu á starfi okkar sagði Mr. Orme. Báðir hafa menn þessir stað- góða þekkingu á svið flugrekstr- ar, en í þeim efnum mun þó Mr. Craig hafa miklu lengri starfs- feril að baki en starfsbróðir hans í Lundúnum. Ég hefi tæplega önnur störf unnið en þau sem eru beint í sambandi við flugfélög, sagjði hann. Hann átti að baki sér 11 ára starfsferil hjá Pan Americanflug félaginu er hann hætti þar fyrir 5 árum og tók við skrifstofu Loft leiða í New York. Mr. Craig er bartsýnn þegar farþegaflutningar Loftleiða milli Bandaríkjanna og Evrópu berast í tal. — Jú sjáið þér til, sagði Craig. Með okkur ferðast yfir- leitt fólk af millistéttum Banda- ríkjanna, fólk sem lætur sig muna 100 dala verðmun á farmið um okkar og stóru flugfélaganna. Okkur hefur tekizt að „skapa Loftleiðum nafn“ í Atlantshafs- flugi. Sem dæmi um ört vax- andi farþegaflutninga msð flugvélum félagsins, get ég t.d. sagt yður frá því, að nú um há- veturinn, sem er að .sjálfsögðu daufasti tíminn í fluginu á þess- ari leið, hefur orðið mjög veru- leg aukning frá því sem var í fyrra, hvað þá heldur í hitteðfyrra. Þannig hafa Loftleiðir undan- farin ár stöðugt verið að vinna á, enda er æskilegt að opna í fleiri stórborgum Bandaríkjanna eigin skrifstofur, en slikar skrifstofur eru nú aðeins í tveimjporgum auk ] New York. Eðlilega barst talið einnig að 1 auglýsingastarfsemi. í Banda- , ríkjunum verja flugfélögin gífur ; legum fjárfúlgum í auglýsinga ■ starfsemi. — Mr. Craig sagði að algjört lágmark í þeim efnum fyr ir Loftleiðir væri 100,000 dala fjárveiting á ári í því skyni. En okkur hefur einnig tekizt að koma mjög oft fram í útvarpi og sjónvarpi og höfum við þá ýmist sagt frá félaginu, eða þá að út- varpsþættirnir hafa verið tvíþætt ir þar sem jafnframt hefur.verið -sagt frá íslandi. En böggull fylgir skammrifi, þrátt fyrir allt. Fjöldi farþega okkar hefir komið fram með ósk- ir um að fá að hafa 2—5 daga viðdvöl í Reykjavík, á leið smni til Evrópu eða heim aftur. Við höfum orðið að segja þessu góða ólki, að á gistingu sé ekki að treysta þar í borg. Meðal annarra orða, sagði Craig, hvenær ætlið þið að snúa ykkur að því af fullri alvöru að bæta hér aðstæður ferða- langa og byggja gistihús? Mr. Ronald Orme, sem veitt hefur skrifstofu Loftleiða í Lon- dc/ í forstöðu síðan hún var sett á stofn, sagði að London myndi e/ fram líða stundir vafalaust verða aðalendastöð Loftleiða Evróþu. Ekki ferðast Banda- ríkjamenn meira til annarra landa en Bretlands, að Frakk- landi undanskildu, en þó hefur verulega dregið úr ferða- mannastrauminum þangað. — Við munum nú leggja áherzlu á aukna auglýsinga starfsemi í London og höfum ýmislegt á prjónunum í þeim efnum og kynna almenningi þar hversu hagstæðari eru fargjöld með Loftleiðum en hinum stóru flugfélögum. Ég tek undir orð kollega míns um það, að þrátt fyrir tilkomu flugvéla sem flogið geta án viðkomu milli Evrópuborga og Bandaríkjanna, þá muni það ekki taka mikil vð- skipti frá okkur, af þeirri einföldu ástæðu, að ekki munu flugfélögin geta sett niður fargjöldin a.m.k. liggur ekkert fyrir um þa'ð, sagði Orme. Stjórn Sjómannoíél. Reykjavíkur var sjálfkjörin — Frá aðaUnndi AÐALFUNDUR Sjómannafélags Reykjavíkur var haldinn s.l. sunnudag 19. þ.m. Á fundinum var lýst stjórnarkjöri en stjórnar kosning fór ekki fram að þessu sinni, eins og undanfarin ár, þar sem ekki kom frarn nema einn listi, borinn fram af trúnaðar- mannaráði félagsins og voru því allir sjálfkjörnir, sem á þeim lista voru. Stjórn félagsins fyrir yfir- standandi ár, er þannig skipuð: Formaður flutti langa og greinar varaform., Hilrnar Jónsson, rit- ari, Jón Sigurðsson, gjaldkeri, Sigfús Bjarnason, varagjaldkeri, Sigurður Backmann. Meðstjórn- endur: Steingrímur Einarsson og Ólafur Sgurðsson. Varastjórn: Jón Júníusson, Karl E. Karlsson, Þorsteinn Ragnarsson. Form. flutti langa og greinar- góða skýrslu um starfsemi fé- lagsins á umliðnu ári. Reikningar félagsins voru lesn- ir upp og samþykktir: Bókfærðar eignir félagsins voru í árslok kr. 710.713.66 og reyndist eignaaukning á árinu vera kr. 91.996.18. Um áramótin voru félagsmenn 1760. Á fundinum voru ýmis mál rædd m.a. samþykktar tillögur þær er hér fara á eftir: 1. Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur haldinn 19. jan. 1958 skorar á ríkisvaldið, að sjá um, að í starf hjá skipaeftirliti ríkisins verði settur maður úr hópi óbreyttra sjómanna, er hafi aðallega það verkefni með hönd- um, að fara milli skipa og athuga hvort um borð séu öll þau örygg- istæki, sem þar eiga að vera og í því lagi sem ætlazt er til og þá einnig hvort þær björgunaræf- ingar sem lögskipaðar eru, séu framkvæmdar. Fundurinn telur nauðsynlegt að á hverju skipi sé, í það minnsta einn maður sem góða þekkingu hefur á meðferð og viðgerð gúmmíbáta og að skipshöfninni allri séu kynnt hin einföldustu atriði varðandi með- ferð þeirra. 2. Aðalfundur Sjómannafélags Reykjavíkur haldinn 19. jan. 1958 telur, að þótt mikið og vel hafi verið að því unnið hin síðari ár, að bæta kjör íslenzkra sjómanna, vanti mikið á, að kjörin séu það góð, að eftirsóknarvert geti talizt að starfa á sjó og þá sérstakiega á fiskiskipum. Fundurinn vill benda á, að fyr- ir þjóðarheildina er voði vís, ef fiskveiðarnar sem er okkar aðai undirstöðuatvinnuvegur, dragast saman vegna manneklu, og skor- ar því á alla þá aðila, er þessi mál sérstaklega varða, að vinna skelegglega að því, að gera kjör fiskimanna það góð, að eftirsóki arvert verði, launanna vegní að stunda sjóinn. 3. Aðalfundur ájómannafélag Reykjavíkur, haldinn 19. jai 1958, lýsir ánægju sinni yfir, a skipuð hefur verið nefnd mann: til að gera framdrög að lögur um lífeyrissjóð togaramanna. Hins vegar telur fundurinn, a lífeyrissj óðurinn eigi, að ver fyrir alla sjómenn og treystir þ\ að ekki verði langt að bíða a svo verði. Skorar fundurinn eindregið nefndina að hraða störfum sei mest og á Alþingi að taka máli til afgreiðslu svo fljótt sem vi verður komið, svo sjóðurinn tal til starfa ekki síðar en á næst komandi vori. 4. Aðalfundur Sjómannafélas Reykj avíkur haldinn 19. jai 1958 skorar á stjórn Sjómanna sambands íslands að vinna ötul lega að því, að efla Sjómanna sambandið sem mest og hafa þa að markmiði, að sameina inna þess vebanda alla þá íslenzka sj menn sem í þvi geta vei ið, samk' lögum þess og reglum. Jaffffrair beinir fundurinn því eindregi til stjórnar sambandsins, að beit sér fyrir þvi, að endurskoðu verði sem allra fyrst sjómanna og siglingalög og lagfærð tj^sam ræmis við breyttar aðstæður o tækni, svo og að endurskoðu verði önnur þau lög er sjómen sérstaklega varða. (Frá Sjómannafél. R.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.