Morgunblaðið - 04.02.1958, Side 1

Morgunblaðið - 04.02.1958, Side 1
20 síður 45 árgangur. 29. tbl. — Þriðjudagur 4. febrúar 1958 Prentsmiðja MorgunblaBstes Setur um Bulganin skrifar Eisenhowsr enn skilyrði íyrir umræðum friðlýsingu geimsins MOSKVU, 3. febr. — Búlganin hefur enn einu sinni tekið sér penna í hönd og skrifað bréf, að þessu sinni til Eisenhowers — og er það hið þriðja í röðinni á skömmum tíma. Þetta bréf er svar við svarbréfi Eisenhowers við öðru bréfi Búlganins. Er bréf ið svipað að lengd og fyrri bréf Búlganins, 17 síður. Fátt nýtt er þar að finna annað en það, að Bulganin setur ýmis skilyrði fyrir umræðum um samn samning um að vígvélar verði í framtíðinni ekki sendar um geiminn — og, að kalda stríðið verði takmarkað við jörðina og gufuhvolfið. Segir Bulganin, að umræður um þetta mál séu tengd ar og háðar samkomulagi um bann við framleiðslu og tilraun- um með kjarnorkuvopn. Ljóst er því, að Rússar ætla að óbreyttu ástandi að nýta geimflugið í þágu liertækninnar. Þá er og bent á það, að í bréf- inu telur Bulganin, að fundi ríkisleiðtoga beri að ræða mögul. á samkomul. milli austurs og vest urs, sem kæmi í veg fyrir að hægt verði að gera skyndiárás. Þetta mál hafa Vesturveldin boi’- ið mjög fyrir brjósti við umræð- ur um afvopnunarmálin, en Rúss ar hafa jafnan vísað öllum tillög- um á bug — m.a. tillögunni um gagnkvæmt eftirlit úr lofti. Þá hafnar Bulganin framkomn um tillögum um að utanríkisráð- herrunum verði falið að undir- búa ríkisleiðtogafund, ef til hans kemur. í bréfinu hafnar Bulganin og framkomnum tillögum um af- nám neitunarvaldsins í öryggis- ráðinu. Frjálsum kosningum í Þýzkalandi er sömuleiðis hafnað. Að öðru leyti er bréfið keim- likt hinum fyrri — en aðalatriði Áframhaldandi aðsfoð BELGRAD, 3. febr. — Undirrit- aður liefur verið samningur Júgóslava og Bandaríkjanna þar sem Bandaríkin heita því að senda Júgóslövum matvæli af of- framleiðslu sinni, að verðgiidi 63,5 millj. dollara. þess eru talin níu. Tilraunum með kjarnorkuvopn verði hætt, stórveldin lýsi yfir banni á notkun slíkra vopna, samið verði um afmarkað svæði í Evrópu, þar sem engin kjarn- orkuvopn verði geymd, griðar- sáttmáli verði gerður með NATO og Varsjárbandalaginu, erlendur her í Þýzkalandi og annars stað- ar verði að mestu fluttur heim, samkomulag verði gert, sem komi í veg fyrir skyndiárás, milliríkjaviðskipti verði • aukin, styrjaldaráróðri verði hætt — og reynt verði að draga úr styrjald- arhættunni í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafsins. Island að verða þreyff á kommúnislum New Yorfc Times ræðir fcosninga- úrslifin á íslandi BANDARISKA stórblaðið New York Times birti þann 28. jan. s. I. forustugrein, sem f jallaði um bæjarstjórnarkosningarnar og stjórnmálaástandið á íslandi. Forustugreinin nefnist Iceland reconsiders, eða ísland tekur til endurnýjaðrar íhugunar, og hljóð ar svo: ísland varð aldrei kommúnískt, jafnvel ekki þegar vitleysan náði hámarki. Það lengsta sem fsland hefur komizt í þá átt, í kosning- unum í júní 1956, var að velja Alþingi (eða þing sem sagt er elzt í heimi) er hafði átta komm- únistaþingmenn af fimmtíu og tveimur. Framsóknarmenn sem höfðu seytján þingmenn og Jafn- aðarmenn með átta þingmenn bundust síðan samtökum við hina rauðu bræður sína og mynd- uðu samsteypustjórn. Kommún- istarnir vildu æstir að ísland segði sig úr NATO og að hinn litli hópur bandarískra hermanna yrði rekinn af landinu. Tvær andstæðar stefnur mynd- uðust. í fyrsta lagi töldu allmarg- ir hinna 162,000 íbúa íslands, að öryggis þeirra væri betur gætt með dvöl bandarísku hermann- anna i landinu. Vissulega hefðu fáir íbúanna kosið að það væru rússneskir hermenn, sem færu í hergöngu fram og aftur um land þeirra. f öðru lagi girntust þeir Stofna Jórdanía, Saud Arahía og Iranq með sér sambandslíðveldi KAIRO og LONDON, 3. febr. — Tilkynnt var í Kairo í dag, að her sambandsríkjanna Egypta- lands og Sýrlands yrði samein- aður innan tíðar og þjóðarat- kvæði færi væntanlega fram á næstunni um hinn nýja samning ríkjasambandsins. Þá var og til- kynnt, að stjórnmálaflokkar Sýr- lands yrðu leystir upp — og Nasser Egyptalandsforseti hefði verið skipaður forseti sambands- ríkisins. Á Vesturlöndum eru menn ekki á einu máli um afleiðingar sam- bandsstofnunarinnar. Þó eru þeir flestir, sem telja Vesturlöndum aukna hættu búna — og Nasser nú náð betri tökum á Araba- ríkjunum og flutningaæðunum um Súez og löndin fyrir botni Miðjarðarhafsins. Margir hafa kennt Dulles og utanríkismála- stefnu Bandaríkjanna hvernig fór, sagt, að Bandaríkin hefðu átt að leyfa Bretum að ljúka Súez- stríðinu — þá hefði Nasser fallið um sjálfan sig. í Amman er sá orðrómur á kreiki, að Hussein konungur geri nú allt sem í hans valdi stendur til þess að fá Saud Arabíukon- ung og Faisal írakskonung til þess að stofna samband Araba- ríkjanna þriggja — til þess að vega upp á móti Nasser. ameríska dollara, ef þeir fengið þá á heiðarlegan Framh. á bls. Alþiagi kemur saman í dag ALÞINGI kemur saman í dag kl. 1,30, að loknu jólaleyfi þing- manna, .en 20. des. sl. 1. hófst jólafríið. Þingstörf hefjast með fundi í Sameinuðu Alþingi. Það var flugskeyti af Jupi- ter-gerð, sem flutti „Könn- uð“ út í geiminn. Er nú hætt við seðlainnköllunina? Timinn staðfestir frétt Mbl. um komu seðlaprentarans til landsins TÍMINN staðfesti í gær þá fregn sem Mbl. flutti fyrra sunnudag, að hingað til lands væri kominn „sendimaður“ eins og Tíminn orðar það nú, frá enskri seðlaprentsmiðju sem útbýr peningaseðla Landsbankans. Það þurfti viku umhugs- unarfrest til að viðurkenna þessa staðreynd og er nú sú skýring gefin að slíkur mað- ur komi hingað á hverju ári. 'Sú spurning vaknar í þessu sambandi hvers vegna blað fjármálaráðherrans dregur í heila viku að geta um komu seðlaprentarans, því fullt til— efni var til, að blaðið hefði skýrt frá komu þessa „sendi- manns“ jafnsnemma og Mbl. Önnur spurningin er svo sú af hverju ríkisstjórnin ekki hefur svarað beinum og ítrekuðum fynr spurnum Mbl. um það, hvort hún ætli nú að framkvæma gengis- fellingu, seðlainnköllun og eigna könnun. Við þessari spurningu hefur ríkisstjórnin þagað, enda þótt hún hafi að gefnu tilefni margoft verið borin fram og al- menningur bíði eftir svari. Þessar síðbornu afsakanir Thnamanna út af sendimanninum og yfirlýsing Landsbankans, sem hér er birt og einnig tók viku að semja, benda til að hik hafi komið á ríkisstjórnina og hún notað tímann. sem liðinn er þetta mál í ljósi kosningaúrslit- anna. Benda Tímaklausan og yfir- lýsing Landsbankans í þá átt, að niðurstaðan af þessum íhugun um hafi orðið sú, að ríkissljórnin leggi nú fyrirætlanir sínar um scðlaskipti á liilluna, eftir að úrslit kosninganna urðu ljós, og sé nú verið að breiða yfir það sem fyrirhugað var og dylja það síðan fregnin birtist, til að íhugafyrir almenningi. Yíirlýsing, sem tófc vihu uð seiufu Eftirfarandi fréttatilkynning barzt Mbl. síðdegis í gær: í TILEFNI af frásögnum í Morg unblaðinu um heimsókn fulltrúa tveggja brezkra s'eðlaprentunar- fyrirtækja hingað til lands skal eftirfarandi upplýst: 1. Fulltrúar þessara fyrirtækja beggja hafa komið hingað til jands oft áður, annar þeirra að minnsta kosti einu sinni á ári mörg undanfarin ár, enda prent- ar fyrirtækið svo að segja öll frí- merki póststjórnarinnar. 2. Menn þessir hafa verið hér í venjulegum viðskiptaerindum nú sem endranær. Til athugunar hefur t.d. verið, hvort hentugt mundi vera að gefa út nýjar stærðir eða gerðir seðla, þegar núverandi birgðir þrjóta, t.d. 1000 króna seðla í stað 500 króna seðla, sem nú eru brátt á þrotum. Ekki mundi þó til þess koma mjög íljótlega, þar sem undirbúning- ur að útgáfu eins nýs seðils tek- ur að minnsta kosti eitt ár. Slíkar breytingar á stærð og gerð seðla eru að sjálfsögðu algengar alls staðar í heiminum og á engan hátt fréttnæmar, og eiga þær ekk ert skylt við almenna innköllun peninga. 3. Bankinn hefur ekki haft neitt samráð við ríkisstjórnina um þessi mál, og ríkisstjórnin hef ur engin afskipti haft af þeim. Reykjavík, 3. febr. 1958 Landsbanki íslands Seðlabankinn Vilhjálmur Þór, Jón G. Maríasson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.