Morgunblaðið - 04.02.1958, Page 8

Morgunblaðið - 04.02.1958, Page 8
8 MORCVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 4. febrúar 1958 40 þús. bílum fleygf í Svíþjóð síðastliðið ár GAUTABORG. — vandræða. Hver þessa bíla? Erfitt svæði fyrir þessi Það horfir til á að „jarða“ er að fá jarð- ílök, auk þess sem engin prýði þykir að slíkum „kirkjugörðum". Þetta eru sem sagt bílar, sem ekki svarar leng- ur kostnaði að gera við. Þeir, sem eiga slíka bila og hirðulausastir eru, skilja þá eftir á götunum eða aka þeim eitthvað út fyrir bæinn og skilja þá eftir úti i móum — taka síðan strætisvagn heirri^ Þeir, sem hafa til að bera einhverja fegurðartilfinningu sökkva bílum sínum í sæ eða þvíumlíkt, — eða að minnsta kosti sjást þeir hvergi. Svo eru það þeir, sem vilja fá nokkrar krónur fyrir flökin sín og vilja teljast hirðusamir. Þeir aka þess- um dauðsdæmdu bílum sínum til svokallaðra flakakaupmanna, sem gjarnan greiða nokkrar krónur fyrir þá. Síðan skrúfa þeir úr flökunum það sem nýti- legt er, og hitt sem eftir er fær Útibíó til höfuðs sjónvarpi KAUPMANNAHÖFN, 29. jan. — Bandaríska blaðið „The Satur- day Review“ hefir skýrt frá því, að nú fari aðeins um 30 millj. Bandaríkjamanna í bíó á viku hverri, en 1946 var sambærileg tala um 90 millj. Af þessu megi sjá, hve bíósókn hafi minnkað á undanförnum árum í Bandaríkj- unúm. En hver er ástæðan? Jú, blaðið hefur svarið á reiðum höndum: það er sjonvarpið. Fólk vill heldur sitja heima og horfa þar á sjónvarpsdagskrána en að fara í bíó. Af þessum sökum hafa stærstu kvikmyndafélögin í Hollywood þurft að draga sam- an seglin og framleiða nú til- tölulega fáar myndir. Kvikmyndaframleiðendur hafa reynt að svara sjónvörpunum með því að koma á fót útibíóum, þar sem menn geta horft á kvik- myndirnar í bílum sínum. Nú eru um 4500 slík kvikmyndahús í Bandarikjunum og er reiknað með því, að um 75 millj. manna sæki þau í viku hverri. Skúli Jóhannsson kaupm. Minningarorð síðan að ryðga niður í kyrrð og ró. Járnaruslið er ekki það verð- mætt að það borgi sig að skrúfa það í sundur og selja sem brota- járn. Reiknað er með að um 40.000 bílum hafi verið fleygt sl. ár. Þetta er allhá tala í augum okkar fslendinga, en hlutfallslega lítil í hlutfalli við bílafjöldann i öllu landinu og miðað við það að hver og einn getur farið inn í bílabúð, lagt 50% af andvirði bílsins á borðið og ekið út nýj- um bil — að vísu með afborgun- arhugleiðingar í kollinum. 100.000 eftir nokkur ár Ef við segjum að hér sé um það bil ein milljón skrásettra bíla og hver endist í 10 ár, þá sér maður fljótlega að flökin verða 100.000 árlega innan. skamms. Hvað á að gera við þau? Hingað til hafa starfsmenn öskuhreinsunarinnar getað tekið við bílum þeim er lögreglan hef- ir „fundið“ á götunum og hafa verið til trafala fyrir umferð- ina — en nú er landrýmið einn- ig á þrotum þar. Með þessa bíla er farið sem hverja aðra hluti sem finnast, þ. e. a. s. réttur eig- andi getur sótt bílinn sinn inn- an sex mánaða. Annars eru þeir seldir, en forráðamenn ösku- hreinsunarinnar eru ánægðir ef þeir fá fyrir flutningskostnaðin- um. Yfirbyggingarmar erfiðastar Flestir selja flökin til þessara flakakaupmanna, sem varla greiða marga tugi króna fyrir þau. Kaupmennirnir koma sér svo upp miklu magni af vara- hlutum, sérstaklega í þá bíla, sem orðnir eru það gamlir að ekki er mögulegt að fá í þá varahluti lengur. Húsin standa svo eftir mikil fyrirferðar. Lausnin er sögð vera gríðarstór pressa á hjólum, sem aka mætti á milli „kirkju- garðanna" og pressa saman húsin og gera þau minni fyrirferðar. Um leið yrði flutningskostnaður- inn minni og þá borgaði sig að selja þetta sem brotajárn. — Fréttaritari. GEITHELLAR í Alftafirði í Suður-Múlasýslu hafa um langan tíma verið stórbýli. Jörðin er vel í sveit sett, og er þar landrými mikið og landkostir góðir. Rétt fyrir aldamótin síðustu keypti Einar Magnússon jörðina og hóf þar búskap. Einar var sonur Magnúsar ríka á Bragðavöllum. Mun Magnús hafa verið talinn með rikustu mönnum á Austur- landi og þó víða væri leitað. Um ríkidæmi Magnúsar hafa mynd- azt margar sagnir. Og eru sum- ar nokkuð þjóðsögukenndar. Skapast slík sagnfræði oft á ótrú- lega skömmum tíma um þá, sem ekki binda bagga sína sömu hnútum og samferðamenn. Kona Einars á Geithellum var Guð- finna Jóhannsdóttir. Var hún systir Bjargar móður Sigurðar Einarssonar í Odda á Fáskrúðs- firði og Einars Einarssonar út- gerðarmanns á Akureyri. Guð- finna var kvenskörungur hinn mesti. Byrjaði hún daginn snemma og gekk seint til rekkju Stjórnaði hún ekki aðeins mann- mörgu heimili innanhúss, heldur fylgdist hún með störfum hús bóndans og var samvinna þeirra og sambúð jafnan með ágætum. Guðfinna var burtkölluð á bezta aldri eða aðeins rúmlega 46 ára. Var hún mjög harmdauði öllum, sem til þekktu. Árið 1899 giftist Helga dóttir Guðfinnu og Einars írænda sín- um Jóhanni Jónssyni. Hófu þau búskap á Geithellum og bjuggu þar ávallt við mikla rausn. Jó- hann var búmaður hinn mesti og hvers manns hugljúfi. Hann var mjög stórhuga og hafði margt hjúa eins og Guðmundur ríki á Möðruvöllum. íbúðarhús mikið byggði hann á jörðinni. Bar það mjög af öðrum byggingum, er þá tíðkuðust bæði í Álftafirði og næstu sveitum. Húsmóðirin á Geithellum virtist í mörgu bera svipmót nöfnu sinnar á Grund i Eyjafirði, þó að hún þyrfti aldrei að skilja eins við gesti sína. þvi að frá Geithellum fóru flestir ríkari en þeir komu. Jóhann dó úr lungnabólgu 1916. Voru þá börnin flest á barnsaldri. Og hafði þeim hjónum orðið 8 barna auðið. Þrjú þeirra dóu í æsku. En Sigríður mesta ágætisstúlka, sem var fædd 1904, dó á Vifis- stöðum 1932. — Einar og Þor- finnur rækta og fegra óðal feðra sinna á Geithellum. Jón vinnur í trésmiðjunni „Víði“ í Reykja. vík. Hann er búsettur í Kópavogi. En yngstur stystkinanna var 'Skúli kaupmaður í Reykjavík. Hann var fæddur 28. maí 1910, en andaðist eftir stutta legu 8 f.m. Þegar ég frétti lát þessa frænda míns, þá kom mér í hug þetta erindi, sem móðurbróðir okkar beggja Sigurður Malmquist orti um móður sína Játna: „Þegar öss rutt höfum bj argræðisbrautir, búið oss framtíð lífsþrautir, komnir á gæfunnar sem hæst hretviðri dauðans þá oftast er næst“. og unnið himin í uppvexti sínum vandist Skúli allri algengri vinnu ems og hún gerist bezt á góðu sveita- heimili, og er fátt betur þrosk- andi. Ekki virðist hann hafa haft hug á langri skólaveru. Við vega- gerð og brúarsmíði vann hann hins vegar flest sín- unglingsár. Höiðliogleg gjöi HINN 31. jan. sl. færði ungíru Sigriður Pétursdóttir líknarsjóði Hallgrímskirkju í Reykjavík að gjöf kr. 10.000.00. Gjöf þessi er gefin til minningar um Gisla Bjarnason trésmiðameistara, eri hann var fæddur 31. jan. 1878 (fyrir 80 árum). Þessi ágæca gjöf gerir sjóðnum fært að taka til starfa um næstu áramót, sam- kvæmt skipulagsskrá. — Stjórn líknarsjóðsins færir gefandanum innilegar þakkir fyrir þessa ágætu gjöf. F. h. stjórnar líknarsjóðs Hallgrímskirkju í Reykjavík Gísli Jónaso. ;i. Kynntist hann þó mönnum og ó- líkum landshlutum víða um land. Hefur sú kynning og hin fjöl- breyttu vinnubrögð verið honum ekki minni lærdómur en öðrum, sem aldrei drepa hendi sinni í kalt vatn, margra ára skólaseta. Enda var hann víð vel heima. Nokkru eftir 1930 byrjar Skúli a verðbréfasölu í Reykjavík. Stundar hann þá atvinnu um hríð. Síðar gerist hann sölumaður og hafa ýmiss konar verzlunarstörf verið hans aðalatvinna. Þótti hann jafnan ötull í starfi sínu. Skúli átti því láni að fagna að öðlast ágætan lífsförunaut. Kvæntist hann Kristínu Sigurðar dóttur frá Iiólakoti í Hofshreppi í Skagafirði. Hafa fáar konur verið mörgum sínum meira. Þau eignuðust einn son Sigurð Jó- hann. Kristín og Skúli áttu fallegt heimili á Laugarteigi 21 í Reykja vík. Og þótt góð heimili vitni fremur um handbragð húsmóður- innar en um störf bóndans, þá má þó fljótt sjá, ef einhver þátt- ur er vanræktur. En hér bar allt vott um þá snyrtimennsku, sem sést aðeins, þar sem samstilltar hendur stefna að sama marki. Og innan þessara vébanda munu fleiri hafa fundið en nánustu vinir og frændur, þegar gest- urinn var leiddur til sætis og húsmóðirin bar fram dýr veizlu- föng, að hér var gott aí vera. Samræður urðu litríkar, allt við- mót og öll háttvísi húsbóndans bar þess vott, að hann hafði alizt upp á mannmörgu og gestrisnu heimili. Kunni hann ekki síður að fagna gestum sínum en vera gestur annarra. Alls staðar var hann hrókur alls fagnaðar og- eftirsóttur þar sem góðir vinir mætast. Er því víst, að sá hringur nær langt þar sem þeir, sem þekktu hann bezt og höfðu af honum nánust kynni, sjá nú opið skarð og vandfyllt. Aðalsteinn Gíslason. Á sævaislóðum og iandleiðum EG var að ryðja borð og stóla, láta bækur, sem þar höfðu hrúg- azt upp, í skápa mína. Þá var mér litið á bókarkjöl og las: Óskar Jónsson: Á sævarslóðum og landleiðum. Ég greip bókina og tók að blaða í henni, settist síðan og las lengi vel, og haL'ði ég þó lesið l.ana áður Og skaut þá allt í einu upp í huga mér: „Nú hefur þú setið mörg kvöld og skrifað um hinar og þessar bækur í Eimreiðina. Hví skrifar pú ekki nokkur orð um þessa, sem ber þér boð um bernsku- og æskudaga í Dýrafirði og Arnar- firði og lætur þér svífa fyrir sjónir Barða og Nesdal, Fjalla- skaga og Skagahlíðar, Svalvoga- hlíð og Bjargafjörur, Lokin- hamra, Álftamýri, Hlaðsbót og Hrafnseyri — og bre^ður upp myndum af gömlum kunningjum þínum?“ Og það er stundum ekki ýkja- langt hjá mér ennþá milli hug- svifa og aðgerða. . . . Óskar Jónsson, sem löngu er þjóðkunnur fyrir störf sín á opinberum vettvangi og reynzt hefur mjög farsæll athafna- og kaupsýslumaður, var — þá er við vorum saman á skútu yngstir skiphafnar, þegar orðinn feng- sæll atorkumaður við fiskidrátt og drjúgur verkmaður að hverju, sem hann gekk. En hann var og bókhneigður og gat um fleira tal- að en þorsk og veður, og í fyrra kom hann ýmsum á óvart með því að senda frá sér þessa mynd- arlegu bók. í bókinni er fyrst sagt frá bernskuheimili hans á Fjallar skaga, sem nú er í eyði, en áður þótti hin lífvænlegasta bújörð og var lengi mesta verstöð allt frá Deid að Blakki. Eru frásagnir Óskars frá þessum tíma bæði fróð legar og hugnanlegar. Þá segir hann frá fyrstu sjómennsku sinni á bátum og skútum og síðan for- mennsku á árabátum í Nesdal og Hlaðsbót, og man ég þá tíð, að mikið orð fór af sjósókn og aflabrögðum Óskars og þeirra félaga. Þá eru frásagnir um fisk- veiðar á stærri skipum, íslenzk- um og færeyskum, en síðan taka við sögur af ferðalögum um byggðir og óbyggðir Islands og um fjarlæg lönd, meðal annars Rússland Stalins og Pólland. Hefur Óskar verið athugull á ferðum sínum, drepur á sitthvað sem við kemur menningu þjóð- anna og sögu, og iðulega segir hann frá skoplegum atvikum. — Þriðji kaflinn fjallar um störf Óskars í síldarútvegsnefnd, ný- byggingarráði, viðskiptanefnd og fjárhagsráði. Er frásögn hans um þessi störf fróðleg og vitnar um víðsýni hans og réttdæmi, sýnir og glögglega viðhorf manna við þessum stofnunum. Loks eru sög- ur um dularfull fyrirbrigði, og kemur þar upp úr dúrnum, að þessi gáfaði og raunsæi maður viðskipta- og athafnalífs telur sig sannfróðan um slíkar furður. __ Þarna segir frá undralækningu, sem varð fyrir tilstilli frú Mar- grétar frá Öxnafelli, huldukind- um og samskiptum huldufólks við mennska menn, mjög göml- um draug, sem gerðist fyrir sakir ættrækni íhlutunarsamur um gerðir Óskars, hávaða og gaura- gangi af völdum drukknaðra manna og loks frá svipum, sem sýndu sig í fyllsta meinleysi. Bók Óskars er rituð á góðu máli, frásögnin laus við allt óþarft og ósmekklegt skrúð og vitnar um, að höfundur segir að eins það, sem hann veit sannast og réttast. Og yfir henni er blær þjóðhollustu, hleypidómaleysis og þrátt fyrir allt trú á það, að „vagninn“ líði þó eitthvað í átt- ina. Nokkrar myndir prýða bókina, en því miður engar frá bernsku- og æskustöðvum Óskars, þar sem lítið skipbrotsmannaskýli þrum- ir nú eitt yfir tóftarbrotum, sem eru hinar einu minjar athafna- sams og oft glaðværs mannlífs. Guðmumlur Gíslason Hagalín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.