Morgunblaðið - 26.02.1958, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.02.1958, Blaðsíða 1
20 síður 45 árgangur. 48. tbl. — Miðvikudagur 26. febrúar 1958. Prentsmiðja Morgunblaðsina Frá Varðarfundi i gær: út á við versnaði um 230 millj. auk 386 millj. Aðsfaðan kr. 1957- kr. lántöku á IV2 ári 20 vísitölustig sem stjórn- arliðið vill ekki tala um L.ANDSMÁL.AFÉLAGIÐ VÖRÐUR efndi til fundar í Sjálfstæðis- húsinu í gærkvöldi. Í upphafi fundarins las formaður félagsins, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, upp 57 inntökubeiðnir. Voru þær samþykktar, en síðan tók Bjarni Benediktsson ritstjóri til máls. Rakti hann með ljósum rökum og tölum þróun efnahagsmála þjóðarinnar á þeim tíma, er núverandi stjórn hefur setið að völd- um, og bar hana saman við það, er var í stjórnartíð Sjálfstæðis- manna. Bjarni sýndi fram á, að V-stjórninni hefur mistekizt að sjá þjóðinni fyrir nægum tekjum til að lifa af. Lífskjörin hafa versnað, vísitalan hefur raunverulega hækkað um 20 stig, erlend- ar skuldir hafa aukizt um 386 millj. eða meira en tvöfaldazt, og gjaldeyriseign og vörubirgðir minnkað á árinu 1957 einu sem neraur 230 millj. kr. Bjarni benti einnig á, að ríkisstjórnin reyndi af fremsta megni að leyna almenning því, hvernig komið er. — Hann lagði áherzlu á, að Sjálfstæðismenn hefðu, er þeir voru í rikisstjórn, unnið að því að bæta lífskjör þjóðarinnar. Andstæðingar ásaka þá nú fyrir „moldryk frjálslyndisgerninga“, 'en stefna Sjálfstæðisflokksins liefur orðið og mun enn verða þjóðinni farsælust. — Að ræðu Bjarna Benediktssonar lokinni töluðu alþingismennirnir Björn Ólafsson og Jón Pálmason. Sjálfstæðismenn í Reykjavík höfðu fjölmennt á fundinn og var ræðumönnum ágætlega tekið. Höfuð- atriðin úr ræðunum verða rakin hér á efiir, fyrst er ræða Bjarna Benediktssonar. „Frjálslyndis-gerningar" Um þessar mundir erum við Sjálfstæðismenn mjög ásakaðir fyrir „moldryk frjálslyndis-gern- inga“. Áður fyrri var ásökunin sú, að Sjálfstæðismenn væru íhalds- samir, á móti öllum framförum. Nú er hættan hin, að við erum of frjálslyndir í framkvæmdum: „Veltan skyldi sífellt aukin, sjálfsagt að láta vaða á snúðum, gæta hvergi hófs, gefa öllu og öllum lausan tauminn". „Þetta var, er og verður hin mesta óheillastefna fyrir allar vinnandi stéttir. Auður safnast í færri hendur, en alþýða manna ber skarðari hlut frá borði“. Á þennan veg lýsir Alþýðu- blaðið Sjálfstæðisstefnunni nú fyrir skömmu. Óumdeilt er, að Sjálfstæðis- menn hafi ráðið mestu um stefnu stjórnmálanna frá því 1939 þang- að til 1956. Er rétt, að afleiðingin hafi ver- ið sú, sem Alþýðublaðið segir? Um eignaskiptinguna gefur ■ fjöldi íbúðaeigenda í Reykjavík glögga hugmynd. Skv. síðustu skýrslum eru þeir 13943, þ. e. nær 14 þúsund, eða meira en fimmti hver íbúi, og hefur á þessu orðið gerbreyting frá því fyrir stríð. Jafnvel Einar Olgeirsson hefur fyrir fáum dögum viðurkennt hin algeru umskipti sem urðu á lífskjörum almennings á þess- um árum. Hann segir þau nú orðin með hinum beztu í heimi. Hvergi betri í Norðurálfu en e. t. v. hliðstæð því, sem er á Norð- urlöndum. Minningarnar um skort eymd- aráranna 1934—1939 eru svo brenndar inn í hug tugþúsunda íslendinga, að um þær þarf ekki að fjölyrða. 20 vísitölustig, sem þagað er um En hefur þá lífsafkoma almenn ings batnað frá þvi, að V-stjórn- in tók við? Frh. á bls. 18. Flóðahælla í Frakklandl 5 m háir skaflar í Englandi LONDON, 25. febr. — Samgöngu erfiðleikar voru mjög miklir í vestanverðri Evrópu í dag vegna snjókomu, slyddu og vatnavaxta á ýmsum stöðum. í Belgíu, Frakk landi og V-Þýzkalandi er talin mikil hætta á stórflóðum — og þegar hafa vatnavextir váldið miklu tjóni á mannvirkjum og samgönguleiðum. í Austurríki og Sviss vex snjóflóðahættan stöð- ugt — og í hæstu fjallahéruðum hleður snjónum niður. Mikið neyðarástand ríkti í París og ná grenni hennar í dag Signa flóði á nokkrum stöðum yfir bakka sína og fólk var í óða önn að byggja flóðgarða umhverfis hús sín í úthverfunum. I einum smá- bæ skammt frá París urðu bæj- arbúar að sigla í báti um göturn- ar — og fjöldi fólks var bjargað úr umflotnum húsum. Svipaða sögu er að segja frá Belgíu og V-Þýzkalandi. Ár og fljót hafa bólgnað upp í Bretlandi skall á fárviðri í nótt með snjókomu og frosti. Er þetta versti og mesti bylur, sem komið hefur þar í landi síðan 1947. Samgöngur liggja víða niðri með öllu og margir bæir og þorp eru af þeim sökum ein- angruð. Þó er verra, að símalínur hafa rofnað á mörgum stöðum — og eru nokkrir bæir með öllu sambandslausir við umheiminn. Víða eru snjóskaflarnir 5 metra háir s> —• i ■ Þá stæðum við ber- skjaldaðir - segir I' j Norslad HAMBORG, 25. febrúar. — Norstad, yfirherforingi At- lantsliafsbandalagsins, lét sv« umniælt í dag, að lýðræðis- þjóðirnar mundu standa ber- skjaldaðar, ef gengið yrði að tillögu Pólverja um „afvopn- að“ svæði í Mið-Evrópu. —• Hann sagði og, að V-Þjóðverj- um væri nauðsyn að vopna her sinn kjarnorkuvopnum. Tilgangslaust væri að búa hann gömlum og úreltum vopnum — slíkur her væri Bjarni Benediktsson lítils megnugur. EavDzki kerinn keld- ur heim 1 Irá Súdan Shýrir eðii ogr upp- bygrgjingu aiheimsins Mikill sigur BUENOS AIRES 25. febrúar. — Vinstri radikalar undir forystu Frondizi unnu mikinn sigur í kosningunum í Argcntinu. Flokk urinn hlaut yfir 4 millj. atkv. af 8,5, sem greidd voru. Iilaut hann meirihluta í öllum kjör- dæmum og tryggði sér þar mcð tvo þriðju liluta þingsæta. GOTTINGEN 25. febrúar. — Snjallasti náttúruvisindamaður Þjóðverja, Nobelsverðlaunahaf- inn prófessor Werner Heisenberg, gerði í dag grein fyrir síðustu rannsóknum sínum og uppgötv- unum. Virðist ástæða til að ætla, að innan tíðar leiði þær í ljós skýringar á öllum eðlisfræði- legum fyrirbrigðum. í fyrirlestri í háskólanum í Göttingen setti Heisenberg fram líkingu eða „for múlu“, sem hann hefur leitazt við að sanna ásamt samstarfs- mönnum sínum. Þessi líking mun skýra byggingu heimsins, ef svo mætti segja — ef Heisenberg tekst að fullsanna hana. Hann hefur í mörg ár unnið að þessu verkefni — og segja vísindamenn, að leyndardómurinn um kjarn- ann og kjarnorkusprenginguna sé barnaleikur í samanburði við þetta. Þessi nýi visdómur mun í rauninni skýra allt — ljós, hita, rafstraum, þyngdaraflið og kjarnorkuna. Einstein hafði unn- ið að þessum rannsóknum í 30 ár áður en hann skýrði frá ár- angrinum. Sagði Heisenberg, að hann hefði fært sér margt í nyt af því, sem Kínverjarnir tveir, er hlutu Nobelsverðlaunin í haust, höfðu leitt fram í dags- ljósið. Innrásin í Súdan ,,uppspuni heimsvalda- — segir Nasser sinna KARTÚM og DAMASKUS, 25. febr. — Skýrt var frá því í höf- uðborg Súdans í dag, að egypzki herinn, sem hafði komið sér upp bækistöðvum 125 km. sunnan við landamæri Egyptalands og Súdans — í Nílardalnum, hefði verið fluttur norður á bóginn — inn í Egyptaland. Hefðu súdansk ar hersveitir fylgt hernum eftir til þess að ganga úr skugga um að hann færi allur úr landi. Það var félagsmálaráðherrann súdanski, sem gaf þessar upplýs- ingar. Skýrði hann og svo frá, að Saud, konungur Saudi Arabíu hefði boðizt til þess að reyna að koma á sættum með Egyptum og Súdönum. Nasser kom í óvænta heim- sókn til Damaskus og fögnuðu þúsundir Sýrlendinga honum. í ræðu, sem Nasser flutti við það tækifæri sagði hann m.a., að það væri hreinn uppspuni, að Egypt- ar hefðu gert innrás í Súdan, heimsvaldasinnar hefðu komið sögum þessu má kreik. Þeir reyndu nú allt, sem þeir gætu til þess að etja Egyptum og Súdön- um saman. Þetta mætti ekki takast — Súdan og Egypta- land mundu standa sem eitt í baráttunni gegn heimsvaldasinn- unum. Flugstjórinn liggur fyrir dauðanum MÚNCHEN, 25. febr. — Flug- stjórinn af brezku flugvélinni, sem fórst með liðsmenn Man- chester United, er nú mjög þungt haldinn að því er læknar hahs í Míinchen skýrðu frá í dag. Var hann fluttur í sjúkrahús ásamt öðrum, er slösuðust í slysinu — og voru læknar vongóðir um að bjarga mætti lífi hans. Nú eru þær vonir orðnar mjög veik- ar — liggur flugstjórinn nú fyr- ir dauðanum. Víkkun landhelginnar vekur ugg hjá Bretum GENF 25. febrúar. Einkaskeyti til Mbl. Frá Reuter. — Alþjóða- Landhelgisráðstefnan kom sam- an til fundar í dag og var fyrst tekin til umræðu tillaga Yemen um að bjóða ríkjum utan sam- taka S.Þ. að senda áheyrnarfull- trúa á ráðstefnuna. Hér er m. a. um að ræða Kína, A-Þýzkaland, N-Kóreu, og N-Vietanam. Lagð- ist indverski fulltrúinn gegn til- lögunni og sagði, að alllierjar- þingið hefði á síðasta ári sam- þykkt að bjóða til ráðstefnunnar cingöngu aðildarrikjum samtak- anna. Af fulltrúum 85 þjóðar, er ráðstefnuna sitja, greiddu 62 atkv. gegn tillögu Yemen, en 12 voru henni mcðmæltir. kommúnista- ríkin 11 sátu lrjá. ★ Bretar móti 12 mílna helgi Á fundi með blaðamönnum síð degis í dag skýrði brezki fulltrú inn Manninghambuller svo frá, að Bretar mundu leggjast gegn öllum tilraunum til þess að færa þriggja sjómílna landhelgina út í 12 mílur. Kvað hann slíka breytingu landhelginnar mundu verða til þess, að afli brezkra fiskiskipa á fjarlægum miðum mundi minnka um 40%. Mikilvægustu miðin kvað Bret- inn vera við norðanvert Atlants haf, Noreg, ísland, Færeyjar, Grænland, Nýja-Sjáland og Nova Scotia. Ef 12 mílna landhelgi yrði lögleidd á þessum slóðum yrði fengsælustu miðunum lolcað fyrir Bretum — og slíkt mundi hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.