Morgunblaðið - 06.03.1958, Page 3

Morgunblaðið - 06.03.1958, Page 3
Fimmtudagur 6. marz 1958 MORCIJNBLAÐ1Ð 3 Mikið nauðsyniamál þjóðfélag- sins að sætta vinnu og fjármagn Hlutdeildar- og arðskiptifyrirkomulag i atvinnurekstri hugsanleg /e/ð til jbess Úr rœðu Sigurðar Bjarnasonar á Alþingi Sigurður Á FUNDI sameinaðs Alþingis í gær var rætt um tillögu til þingsályktunar um hlutdeild- ar- og arðskiptifyrirkomulag í atvinnurekstri íslendinga, sem flutt er af Sigurði Bjarna syni, Gunnari Thoroddsen og Magnúsi Jónssyni. Sigurður skýrði tillöguna í ræðu og sagði m. a.: Efni tillögunnar I þessari tillögu er lagt til, að Alþingi feli ríkisstjórninni að láta rannsaka og gera tillögur \ um, hvar og t mR % hvernig megi f|§§ bezt koma á | hlutdeildar- og | arðskiptifyrir- f komulagi í at- [ vinnurekstri ís- lendinga. Einn- ig er lagt til að athugað verði hvernig Alþingi og rikisstjórnin geti stuðlað að efl- ingu þessa fyrirkomulags. Um þetta undirbúningsstarf skal stjórnin hafa samráð við samtök atvinnurekenda og launþega og skila tillögum eins fljótt og unnt Sætta þarf f jármagn og vinnu Um það verður vart deilt með rökum, að eitt þýðingarmesta vandamál, sem nú er við að etja á vettvangi þjóðmálanna, er það, hvernig sætta megi fjár- magn og vinnu. Mikil átök hafa orðið á undanförnum áratugum milli atvinnurekenda og laun- þega. Er þess skemmst að minn- ast, að á síðasta ári voru háð lengstu verkföll, sem um getur hér á landi, og þúsundir manna áttu þá í hörðum vinnudeilum, er ríkið sjálft var mjög viðriðið. Afleiðingar slíkra átaka eru þær, að nú er ^efnahagsástandið hér á landi e.t.v. lakara en verið hefur um langt skeið áður, þó að þjóðin eigi mikilvirkari fram- leiðslutæki en nokkru sinni fyrr. Við, sem stöndum að þeirri þingsályktunartillögu, sem hér er til umræðu, lítum svo á, að nauðsyn beri til, að fundnar verði nýjar leiðir til að sætta fjármagn og vinnu og tryggja um leið, að þjóðin miði eyðslu sína og kröfur til lífsins gæða við það, sem raunverulega er mögulegt á hverjum tíma. Meginatriði fyrirkomulagsins Hlutdeildar- og arðskiptifyrir- komulagið er leið, sem bent hef- ur verið á í þessu sambandi. — Meginatriði hennar hafa verið dregin fram á þennan hátt: 1) verkamenn eða aðrir starfs- menn fái auk hinna föstu Lög um verkamanna búsíaði endur- skoðuð! Á FUNDI sameinaðs Alþingis í gær var rætt um fyrirspurn, sem Eggert Þorsleinsson beindi til Hannibals Valdimarssonar félags málaráðherra um það, hvað liði endurskoðun laganna um verka- mannabústaði. Eggert skýzði fyrirspurn sína. Sagði hann, að í greinargerð hús næðismálafrumvaips þess, sem Framh. á bls. 19. launa einhvern hluta í arði af rekstri fyrirtækjanna, 2) þeim gefist kostur á að safna arðhluta sínum, eða einhverjum hluta hans, og nota hann til að eignast hluta í fyrirtækjunum, 3) þeir fái hlutdeild í stjórn fyrirtækjanna. Má hugsa sér, að það verði annað hvort með því, að þeir eignist hlutafé og fái réttindi hlut- hafa, eða með því, að settar verði á fót stai'fsmannanefnd ir, til að hafa íhlutun um rekstur fyrirtækjanna. Þingsályktunartillaga þessi fjallar aðeins um athugun á þessu máli. Við leggjum ekki fram lagafrumvarp um að lögfesta þetta fyrirkomulag. Það er skoð- un okkar að hér verði samkomu- lag milli verkalýðs og vinnuveit- enda að koma til. Þess vegna leggjum við til að haft sé sam- ráð við fulltrúa frá þessum að- ilum þegar málið er undirbúið. Kjarna þess er, að verkamenn og vinnuveitendur öðlist skilning á því, að þeir. eiga sameiginiegra hagsmuna að gæta. Nútírna þjóð- félag hefur ekki efni á stórfelld um átökum milli þeirra, sagði Sigurður Bjarnason. Fyrst flutt 1937 Tillaga í þessa átt var fyrst flutt á Alþingi árið 1937 af Jó- hanni G. Möller og Thor Thors. Þá var skipuð nefnd í málið, en árangur varð ekki af starfi henn- ar. Málinu hefur verið hreyft síðar, en þó hefur ekki komið til neinna aðgerða á þessu sviði. Er það von okkar flutnings- manna, að nú fari betur en áður, enda miðar tillagan að því, að leysa eitt hið mikilvægasta mál, sem nú er við að glíma í þjóð félaginu. Að ræðu Sigurðar lokinni var umræðunni frestað og málinu vísað til allsherjarnefndar. Ookmenntavika á vegum Máls og mennlngar Ný bók efiir Jón HeEgason um handritin Á NÆSTUNNI koma út tvær nýj ar félagsbækur Máls og mezining- ar: Handritaspjall eftir Jón Helga son prófessor og sjálfsævisaga rúmenska skáldsins Zaharia Stancu. Bók Jóns Helgasonar fjallar um örlög íslenzkra hand- rita og er jafnframt lýsing á þeim. I tilefni af útkomu þessarar bókar hefur Mál og menning boðið Jóni Helgasyni heim til íslands. Bók Zaharia Stancu er sjálfsævisaga í skáldsöguformi. Hún er fyrsta rúmenska bókin, sem þýdd er á íslenzku. Þýðinguna hefur gert Halldór Stefánsson. Þess má geta, að Stancu hefur vez'ið jafnað við Gorkí. Þá hefur Mál og menning ákveðið að efna til Bókmennta- viku frá 7.—12. þ. m. Hún hefst með því, að Sverrir Kristjánsson flytur fyrirlestur um Baldvin Veizlugesfir komusf við iilan leik heim m hlófi Búfénaður beið heima málþola og kýr ómjólkaðar HÉRAÐI, 3. marz—Hér í sveit- inni hafa verið haldin þorrablót í hartnær hálfa öld, á hverjum vetri. Að þessu sinni var þorra- blótið haldið s. 1. laugardag, illu heilli, því veður þótti ekki ein- sýnt á sjálfan bóndadaginn. Lentu þorrablótsgestir í hinum mestu erfiðleikum við að komast heim- leiðis úr hófinu, því veður spillt- ist meðan setið var undir borð- Ekki lagðar árar í bát Þetta er í eina skiptið sem illa hefur tekizt til um þoi'rablót hér. Ekki mun þetta óhapp þó draga kjark úr fólki og mun hiklaust verða haldið þorrablót á kom andi vetri. —G. H. Einarsson og Þórbergur Þórðar- son les upp úr óprentaðri bók. Þessi kynning verður í Tjarnar- kaffi á föstudagskvöld nk. Á sunnudag flytur Jón Helgason fyriz'lestur um íslenzk handrit í British Museum, á mánudag segir Halldór Kiljan Laxness frá ferð sinni til Bandaríkjanna og Austur landa og á miðvikudag verður kvöldvaka á Hótel Boz-g. Þar lesa upp úr verkum sínum skáld- in Guðmundur Böðvarsson, Jó- hannes úr Kötlum; Halldór Stef- ánsson, Hannes Sigfússon, Jónas Árnason og Thor Vilhjálmsson og Baldvin Halldórsson les ljóð eftir Snorra Hjartarson. Kristinn Halls son »yngur einsöng. Botvinnik vann í fyrstu umferð MOSKVU. — í fyrradag hófst þriða einvígi þeirra Botvinniks og Smyslovs um heimsmeistara tignina í skák. En eins og kunn- ugt er vann sá síðarneíndi keppn ina í apríl í fyrra, en þá hafði Botvinnik verið heimsmeistari allt síðan árið 1948. Árið 1954 tefldu þeir einnig um titilinn og 'kildu þá jafnir, hlutu 12 vinn. inga hvor, svo að Botvinnik varð þá áfram heimsmeistari. Fyrstu skák þeii’ra Botvinniks og Smyslovs að þessu sinni lauk með sigri hins fyrrnefnda. — NTB. V«4 rnætt m hófsins Blótið var haldið í samkomu- húsinu við Rauðalæk og var það vel sótt, því veður var allgott um daginn og vegir sæmilega fær ir bílum, en þar sem erfiðara var vegna færðar, voru veizlu- gestir fluttir á snjóbíl. Settist fólk síðan að veizlumatnum og var setið fjórar stundir undir borðum og fóru fram á meðan ýnzis ágæt skemmtiatriði, söngur, ræður og fleira, milli þess sem snætt var gott hangikjöt og púns og öl teygað með. Skall á meö blindbyl Um nóttina gekk á nzeð blind- byl og rak niður snjó mikinn. Veðrið hélzt enn er birta tók og menn urðu að komast heim, því skepnur biðu málþola heima og kýr ómjólkaðar. Lögðu því allir af stað heimleiðis. Tók það suma 8 klukkustundir að komast til heimila sinna og voru þess dæmi, að kýrnar biðu ómjólkaðar þann tíma. Bock hljómleiboi í Austur- bæjurbíói í kvöld ANNAÐ kvöld verða haldnir rock-hljómleikar í Austurbæjar- bíói, og konza þar fram margir beztu rock-skemmtikraftar borg- arinnar. Þrjár hljómsveitir leika á tón- leikunum: K. K.-sextettinn, Kvart ett Gunnai's Erlendssonar og ný Bumbuslagari KK-sextettsins 8 manna rock-hljóinsveit. M. a. mun Þórir Roff leika á trommur í hljómsveitinni. K. K.-sextetti*n mun leika fjöldamörg vinsælustu rock-lög- in og syngja söngvarar hljóm- sveitarinnar með, þau Ragnar Bjaz'nason og Þórunn Árnadóttir. Fleiri söngvarar koma fram, m.a. Óli Ágústsson, Edda Bernharðs og Johnny Boy, og mun K. K. annast undirleik við söng þeirra. Kvartett Gunnars Ez'lendssonar leikur og mun Gunnar syngja nokkur lög. Þá verður danssýning, og dansa Lóa og Sæmi og leikur K. K. undir. Það eru IV-bekkingar Verzlun arskólans, sem gangast fyrir þess um hljómleikum, sem því miður mun ekki hægt að endurtaka. Þeir sem eiga frátekna nziða að skemmtun þessari, skal bent á, að nálgast þá fyrir kl. 8 í kvöld, því fullvíst þykir að færri munu komast en vilja. TAKSTEIMR Gylfi fjarverar di Eins og kunnugt er, fer tónn i hljóðfærum mjög eftir því, hver á þau leikur. Svipað kemur fram í sambandi við skrif Alþýðublaðs ins, því þau virðast frá degi tii dags fara mjög eftir þvi hver „nær eyra“ ritstjórans á hverjum tíma, hvaða flokksforingi það er, sem leikur þar á „hljóðfærið" hveru sinni. Alþýðublaðið hefur annan dag- inn birt greinar fullar af skæt- ingi í garð Sjálfstæðismanna, sem vinna með þeim innan verkalýðs- félaganna, jafnframt því, sem varazt er að koma nálægt þvi, hversu hraklega Framsókn hefur leikið Alþýðuflokkinn. En hinn daginn er svo allt annar tónn í „hljóðfærinu.“ I gær er t. d. forustugrein Al- þýðublaðsins mögnuð ádeila á samspil kommúnista og Fram- sóknar í samtökum launþega. Nú segir Alþýðublaðið, að Fram- sóknarflokkurinn sé „korninn út á hættulega braut, þegar hann hafnar samstarfi við Alþýðu- flokkinn til að styðja verkalýðs- leiðtoga á borð við Björn Bjarna- son“. Nú er vitað, að Gylfi Þ. Gíslason var einn allra eindregn- asti talsmaður þess innan Al- þýðuflokksins að flokkurinn ryfi samstarf andstæðinga kommún- ista við kosningarnar i verka- lýðsfélögunum og gengi þar til leiks með kommúnistum og Fram sókn. Eftir forustugrein Alþýðu- blaösins í gær að dæma hefur Gylfi sýnilega verið víðs fjarri, þegar greinin var skrifuð. Ef til vill er skýringin sú, að Gylfi var einmitt í gær mjög önnum kafinn við að taka á móti for- stjóra Efnahagssamvinnunefndar Evrópu, sem kom hingað' með flugvél og hefur því að þessu sinni ekki haft færi á að gefa hljóðfæri Alþýðublaðsins hinn rétta tón. Álit Tímans á Alþýðufl. Tíminn reynir á þriðjudag að breiða yfir samstarf Framsóknar við kommúnista innan verkalýðs- félaganna. Segir þar m. a. að „stefna Framsóknarflokksins í verkalýðsfélögunum hefur jafnan verið sú að vinna þar gegn öflum, sem eru þar ábyrgðarminnst á hvérjum tíma“. Eftir þessu að dæma telur Tíminn að Alþýðu- flokksmenn og Sálfstæðismenn og aðrir lýðræðissinnar, sem nú standa saman við kosningar í verkalýðsfélögunum séu þau „öfl“, sem þar séu „ábyrgðar- minnst“ en kommúnistarnir. sem Framsókn hefur gert bandalag við, séu þeir einu sem sýni ábyrgð arlilfinningu! Þetta er ekki ófróðleg yfirlýsing. Sérstaklega hlýtur hún að vera lærdómsrík fyrir Alþýðuflokkinn, sem á framtíð sína undir því að halda áhrifum innan samtaka launþcg- anna. Það má vera glámskyggn Alþýðuflokksmaður, sem ekki sér nú glögglega hvert Framsókn stefnir. Eyðilegging Alþýðuflokks ins og aukin völd kommúnista á hans kostnað er það, sem forustu- lið Franzsóknar stefnir að. Þeir mega vera sterkir! I sömu forustugrein segir Tím- inn, að hann telji það hættulegt ef „Sjálfstæðisflokkurinn verður óeðlilega sterkur í verkalýðssam- tökunum". Ekki er útskýrt hvað við ' er átt með ummælunum „óeðlilcga sterkur“ en Ijóst er að flokkur, sem hefur fylgi 40—50% allra kjósenda, hlýtur að eiga stórmikil itök innan hins fjölmenna hóps launþega í land- inu. Hins vegar víkur Timinn ekki að því, að nokkuð sé við það að atliuga, að kommúnistar ráði þessum samtökum enda stefnir Framsókn að því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.