Morgunblaðið - 06.03.1958, Qupperneq 20
VEÐRIÐ
Norð'an gola og kaldi, léttskýjað.
Lundúnabréf
Sjá bls. 11.
55. tbl. — Fimmtudagur G. marz 1958.
Togarmn Júlí á leið til
lands með hálfsokkinn bát
UM miðnætti sl. nótt var togarinn
Júli frá Hafnarfirði vaentanlegur
til Akraness með Ólafsvíkurbát-
inn Fróða, sem hann hafði bjarg-
að út af Jökli í gærmorgun.
Fi'éttaritari Mbl. í Ólafsvík,
Bjarni Ólafsson, símaði blaðinu
í gær, að um miðnætti í fyrrinótt,
hefði skyndilega brostið á norð-
austan rok, en bátar Ólafsvíkur
voru þá að leggja línu sina út
af Jökli. Hafði Veðurstofan 2
klst. áður spáð sæmilegu veði’i,
svo að bátarnir fóru almennt að
leggja linur sínar upp úr kl. 10
um kvöidið. Veðrið herti fljót-
lega, svo að fárviðri var komið
um nóttina. Er vitað að margir
bátanna gátu ekki náð línu sinni,
og er óttazt að línutap kunni
að verða nokkurt.
Kallað á hjálp
TJm klukkan 7 í gærmorgun
var það, sem vélbáturinn
Fróði frá Ólafsvík, sem er 35
tonna bátur nýviðgerður og
með nýja vél, fékk á sig mik-
inn brotsjó, sem færði bátinn
í kaf og fyllti hann þvi sem
næst af sjó. En talstöðin bilaði
þó ckki og gat skipstjórinn
Guðlaugur Guðmundsson þeg
ar kallað á hjálp, og komu
nærstaddir bátar á vettvang.
Þegar þetta gerðist var fár-
viðri á þessum slóðum og sjó-
lag mjög slæmt.
Það kom þegar í ljós að mikill
leki hafði komið að Fróða. Hafði
botn bátsins rifnað við kjöl frá
stefni og aftur fyrir mitt
skip. Vélin stöðvaðist strax
á eftir og báturinn varð brátt
mjög síginn. Skipstjóra tókst að
komast niður í lúkarinn og að
rifunni þar frammi í, og tókst að
troða í hana dýnum úr kojum
skipverja. Eins og komið var fyrir
bát og skipverjum, var ekki um
annað að ræða en að hefja austur.
Var gripið til lóðastampanna. —
Ólafsvíkurbáturinn Víkingur
lagði upp að hinum nauðstadda
báti og stukku menn af Víking
yfir í Fróða til þess að hjálpa
við austurinn. Var ekki aðra að-
stoð hægt að veita, vegna veður-
ofsans.
Út af Jökli var togarinn Júlí
frá Hafnarfirði að veiðum. Vegna
þess hve alvarlega þótti horfa,
fyrir Fróða og mönr.um hans, var
veiðum hætt og sigldi togarinn
á vettvang til bjargar. Var hann
kominn um klukkan 11 til hjálp-
ar. Var strax tekin stefna á Akra
nes með bátinn, en hægt og síg-
andi miðaði ferðinni í gærdag,
enda löng sigling. Fróða var hald
ið á floti með því að menn
skiptust stöðugt á að ausa bátinn
og tóku skipsmenn af Júlí þátt í
því. Aldrei mátti neitt draga
úr austrinum, því svo mikill var
lekinn.
Hlutavella Hvatar
n.k. sunnudag
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIÐ Hvöt, heldur hlutaveltu
í Listamannaskálanum næstk.
sunnudag. Eru félagskonur og
aðrir velunnarar félagsins beðn-
ir að gefa muni á hlutaveltuna
og stuðla að því að hún vei-ði
sem glæsilegust á allan hátt. Þá
eru sömu aðilar einnig minntir á
að koma á hlutaveltuna á sunnu-
daginn og kaupa númer.
Allar upplýsingar í sambandi
við hlutaveltuna gefa eftirtald-
ar konur: Gróa Pétursdóttir,
Öldugötu 24, sími 14374; Helga
Marteinsdóttir, Marargötu 2,
sími 15192; Kristín Sigurðar-
dóttir, Bjarkargötu 14, sími 13607
og María Maack, Þingholtsstræti
25, sími 14015. — Þeir sem þess
óska, geta fengið munina sótta
heim til sín.
Húsið að Hæðargarði
54 brann í gærkveldi
Enginn slasaðist en innbúið brann að mestu
í GÆR varð mikill eldsvoði að
M. Rene Sergent framkvæmdastj. OEEC flutti í gær erindi um fríverzlunarsvæði Evrópu í hátíða-
sal Háskólans. Tók ljósm. Mbl. myndina við það tækifæri. Frásögn af fyrirlestrinum er á bls. 2.
Frá kœrleiksheimili vinsfri samvinnunnar:
Kommúnistarkrefjastaðaðalefná-
hagsmálaráðunautv-stjórnarinnar
verði vikið frá starfi
Heiftarleg árás Þjóðviljans á Vilhjálm
Þár vegna ummæla um nauösyn
gengislækkunar
BLAÐ kommúnista, „Þjóðviljinn“, gerir í gær harkalega árás á
Vilhjálm Þór bankastjóra Seðlabankans fyrir skýrslu lians um
ástand íslcnzkra efnahagsmála. Telur hann ræðu bankastjórans
hafa verið „beint tilræði við yfirlýsta stefnu núvcrandi ríkisstjórn-
ar“. Segir kommúnistablaðið að „ef hliðstæður embættismaður í ná-
grannalandi hagaði sér á svipaðan hátt myndi hann umsvifalaust
verða að víkja úr starfi sínu“.
Hjálparhella og ráðunautur
Þetta segir „Þjóðviljinn" um
helzta trúnaðarmann og hjálpar-
hellu vinstri stjórnarinnar í efna-
hags- og lánsfjáröflunarmálum.
Reyndi bankastjórinn þó í ræðu
sinni að fegra ástandið í gjald-
eyrismálunum meira en efni
standa til. Þannig taldi hann að
gjaldeyrisaðstaðan hefði aðems
versnað um 79 millj. kr. á árinu
1957. Lætur hann þá undan fal'■
ast að geta þess, að útflutnings-
birgðir minnkuðu á árinu um 55
millj. kr. og gengið var á inn-
fluttar vörubirgðir, sem nam a
m. k. um 100 millj. kr. Gjaldeyr-
Hæðargarði 54. Brann þar að
miklu leyti íbúðarhús Stefáns
Bjarnasonar, verkfræðings. Litlu
tókst að bjarga út úr húsinu af
innbúi, aðeins nokkru úr eldhúsi.
Ekki varð slys á fólki.
Slökkviliðið var kvatt á stað-
inn klukkan rúmlega 9 í gær-
kvöldi. Var húsið þá alelda að
heita mátti. Slökkvistarfið gekk
þó fljótt og var búið aðráða niður
lögum eldsins upp úr klukkan 11
1 gærkvöldi.
Hús þetta var timburhús, ein
hæð.Gjöónýttist það í eldinum,
en féll ekki alveg. Var það upp-.
haflega byggt sem sumarbústað-
ur, en síðar var bætt við það.
Var það þess vegna talsvert stór
bygging.
Ekki var vitað nákvæmlega
hve mikið tjón hlauzt af eldinum
í gærkvöldi, er blaðið fór í
prentun, en slökkviliðsmenn voru
þá ekki komnir frá slökkvistarf-
inu. Vitað var þó að tjónið er
mikið.
Yafn hifavsifu Olafsfjarðar
minnkar mjög og hefir kólnað
Alvarlegt ástand — ástæður eru ókunnar
Ólafsfirði 5. marz.
AI.VARLEGT ástand er orðið hér
í bæiiuni, þar eð hitaveita bæjar-
ins er í ólagi, og ógerningur, vegna
snjóalaga, að ganga úr skugga uin
hvað það er sem þcssu veldur.
Fyrr í vetur tók lítilsháttar að
bera á því að hitaveituvatnið væri
minna og kaldara en það hefur
vei'ið, en það var rúnilega 40 stiga
heitt í húsum.
Vatnsskortur
Upp á síðkastið hefur þetta
ágerzt svo, að það er nú um hrein
an vatnsskort að ræða og vatnið
einnig 2—3 gráðum kaldara. Þá
hefur komizt loft :nn á gatnakei'fi
veitunnar og þaðan inn á kerfi
húsanna, svo daglega þarf að
hleypa lofti af. Vatn er þó í hverju
húsi ennþá, en dræmt. 1 flestum
húsum eru katlar og því aðstaða
til að kynda upp, en í öðrum hús-
um verður slíku ekki við komið
og verður þar að grípa til raf-
magnsofna.
Heitavatnsuppspretturnar fyxir
hitaveitu bæjarins eru á Garðs-
dal um 4 km. ieið héðan frá bæn-
um. Þar er nú allt á kafi í fönn
og engin aðstaða meðan svo er til
þess að rannsaka hvað veldur
þessu vatnsleysi. —
1 yengstu lög vonumst við til
þess að um bilun sé að i'æða, því
væri um að ræða eitthvert jarð-
rask á uppspi'ettusvæðinu sjálfu,
getur orðið erfiðara við að eiga
að bæta úr þessu. — J. Á.
isástandið vermaði þannig um
230 millj. kr. á árinu 1957, en
ekki um 79 millj. kr., eins og
Vilhjálmur Þór sagði. En þar að
auki viðurkenndi bankastjórinn
að erlend lán hefðu á íiessu sama
ári hækkað um 226 rnillj. kr
Loks er vitað að föst erlend lán
hafa á fyrstu þremur misserum
vinstri stjórnarinnar hækkað sam
tals um 384 millj. kr.
Það er mjög miður farið, að
opinber starfsmaður, eins og
bankastjóri Seðlabankans.
skuli í skýrslu frammi fyrir
alþjóð gera tilraun til þess að
fara með villandi tölur og
blekkja þar með almenning.
En um það gerðist Vilhjálmur
Þór sekur í fyrrgreindri ræðu
sinni.
Heiftarefni kommúnista
Astæða er til þess að ræða
nokkru nánar árás kommúnista
á bjargvætt vinstri stjórnarinnar
í lánamálum og aðalsérfræðing
hennar í efnahagsmálum.
Kommúnistablaðið segir, að
Vilhjálmur Þór hafi ráðist
harkalega gegn efnahagskerfi
því, sem fslendingar búa nú við,
mælti á næsta ódulinn hátt með
stórfelldri gengislækkun og taldi
nauðsynlegt að skerða lífskjör
landsmanna".
Enn segir „Þjóðviljinn":
„Það mun vera algert eins-
dæmi að aðalbankastjóri þjóðar
haldi áróðursræðu fyrir gengis-
lækkun. Slíkir menn eiga einmitt
að líta á það sem eitt aðalverx-
efni sitt að tryggja verðgildi
krónunnar og gæta hagsmuna
þess fólks, sem trúir bönkunum
fyrir sparifé sínu“.
„Verður aldrei framkvæmd
af núverandi stjórn“
únistablaðsins á aðalráðunaut
vinstri stjórnarinnar í efnahags-
málum kemst það að orði á þessa
leið:
„Það má vel vera að Vilhjálm-
ur Þór sé sannfæi'ður um gago-
semi gengislækkunar (og hún
yrði gagnleg fyrir Samband í<-
lenzkra samvinnufélaga sem fyr-
irtæki og fyrir Kókakólaverk-
smiðjuna). Hitt veit hann fullvtl
að gengislækkun verður aldrei
framkvæmd af núverandi stjórn.
Þvert á móti beitti Alþýðubanda-
lagið sér fyrir myndun núver-
andi stjórnar til þess að koma
í veg fyrir gengislækkun".
Verður Vilhjálmi sagt upp?
Ekki verður annað séð af
þessum ummælum kommún-
istablaðsins en að vinstri
stjórnin neyðist til þess að fá
sér annan ráðunaut í efna-
hagsmálum þótt væntanlega
verði ekki gengið svo langt að
segja Villijálmi Þór upp
bankastjórastöðu hans eins og
„Þjóðviljinn“ telur að gera
eigi „umsvifalaust“?!
En minna má kommúnista á
það, aö það eru þeir sjálfir,
sém búið hafa til hina háu
bankastjórastöðu Vilhjálms
Þórs í nýjum banka. En sú
fórn var víst ekki of stór, því
í leiðinni voru Einari Olgeirs-
syni og nokkrum fleiri leið-
togum vinstri stjórnarinnar
trygg'ðar bankastjórastöður og
hálaunuð bankaráðs- og nefnd
arstörf.
Minnir á aðfarir cinvaldskonunga
og keisara
Annars minnir þessi tillaga
kommúnista um að reka aðal-
efnahagsmálaráðunaut vinstri
stjórnarinnar frá störfum nokkuð
á aðfarir einvaldskonunga og keis
ara á fyrri tímum. Þeir létu taka
hershöfðingja sína af lífi ef þeir
stóðu sig illa í stríði, töpuðu
mikilvægum orrustum eða sögðu
þeim ill tíðindi.
Vinstri stjórnin hefur gefizt
upp á að finna „nýjar leiðir“ og
„varanleg úrræði“ til lausnar
vanda efnahagsmálanna eins og
hún hafði lofað þjóðinni. — Þá
leggja kommúnistar til að her-
foringja stjórnarinnar í leitinni
að lánum og „varanlegurrv,úrræð-
um“ verði vikið frá störfum. Er
ekki ólíklegt að Vilhjálmi Þór
vii'ðist laun heimsins vera var\-
Undir lok árásargreinar kommþakklæti!