Morgunblaðið - 30.03.1958, Síða 6

Morgunblaðið - 30.03.1958, Síða 6
6 M\>RGUlSBLAÐlb Sunnudagur 30. marz 1958 ^JJvenf)þúáln oe^ h temti Páskabaksturinn: og SUMAR húsmæður eru e. t. v. búnar að baka páskabaksturinn sinn, en kvennasíðan vildi koma með nokkrar ágætir uppskriftir, sem geymdar voru til páskanna. Eg fékk í húsi einu einhverja þá beztu tertu sem ég hef bragðað og fékk auðvitað uppskriftina. Ég hefði nú ekki þorað að birta hana, nema af því að hún var í öðru dagblaði núna fyrir skömmu. En þetta er ákaflega dýr kaka, en hún er líka góð eftir því: Möndluterta. 4 egg eru hræð vel með 100 gr. af sykri. Þá er 100 gr. af möndlum hökkuð í hakkavél (má líka í möndlukvöm, kakan verð- ur allt öðru vísi, en ákaflega góð þannig líka) ásamt 1 pk. af suðu súkkulaði. Það er síðan hrært saman við og bakaðir tveir botn ar í 15 mín, í 350° (F) heitum ofni. Botnarnir eru síðan lagðir saman með þeyttum rjóma á milli og þunnt skornum banana- sneiðum og síðan þeyttum rjóma ofan á. Appelsínukaka. 100—125 gr. smjörl. 200 gr sykur ,3 egg ' l tsk. lyftiduft 150 gr hveiti Vz dl. appelsínusafi rifinn börkur af einni appelsínu glerungur 2 di. flórsykur 2 matsk. appelsínusafi eða vatn Smjörl. er hrært með sykrin- um, eggin látin út í. Lyftiduftið og hveitið síðan sigtað saman við, ásamt safanum og rifna berk inum. Kökuna má baka annað hvort í hringformi eða í venju- legu háu tertuformi, í ca 45 mín. við 175° (C) (350° F). Glerungn- um er smurt á er kakan er orðin köld, en honum má fullt eins vel sleppa. Hnetubrauð. 3 bollar hveiti 4 tsk. lyftiduft 1 tsk. salt % boíli sykur 1 egg lVz bolli mjólk Vi bolli brætt smjörl. 1 bolli saxaðar hnetur. Deigið er hrært. Látið standa í 20 mín. í smurðu forminu. Bak- ast síðan í meðal heitum ofni í um það bil 1 klst. og 10 mín. eða þar til það er orðið Ijósbrúnt og stinnt viðkomu. Brauðið er bezt daginn eftir að það er bakað, borðað með smjöri. Smákökurnar. Og nú skulum við líta á nokkr- ar prýðisgóðar smákökur. Bessasfaðakökur. 500 gr. hveiti 500 gr. íslenzkt smjör 500 gr. rifinn toppasykur (sigtaður) 250 gr flórsykur egg, sykur og möndlur. Smjörið er brætt og látið storkna. Öll syrja skafin neðan úr. Hveiti og sykur sigtað sam- an og smjörið mulið saman við. Hnoðað vel. Flatt út ekki mjög þunnt og mótaðar litlar kringlótt ar kökur. Egg borið á miðjuna og grófum sykri og möndlum stráð ofan á. Látnar á smurða (með smjöri) plötu og bakaðar við mjög vægan hita. Kökurnar eiga að vera alveg ljósar þegar þær enr bakaðar. Aflangar smákökur. 1 kg. hveiti 1 kg. smjörl. 1 kg. sykur tæpur peli mjólk 1 sléttf. tsk. hjartarsalt 1 egg Deigið er hnoðað og má annað hvort renna því í gegnum hakka vélina og búa til aflangar kökur eða fletja það út og búa til kringl óttar kökur, sem síðan eru pensl aðar með eggi og mödlur látnar ofan á. Handhægt er að skipta deiginu til helminga og hafa báð- ar tegundirnar. Það finnur á- reiðanlega enginn að þær eru báð ar úr sama degin"’ 7 ,* ■ Sfti ’ ' í, . * ** . - 771;7 ' hl'V.V : t *-s líollarakökur. 200 gr. smjörl. 130 gr. flórsykur 50 gr. hakkað súkkulaði 1 eggjahvíta 225 gr. hveiti 4 matsk. hakkaðir valhnetu- kjarnar. Flórsykurinn er sigtaður og blandað saman við smjörl. Eggja hvítan, súkkulaðið og hnetu- kjarnarnarnir hrært saman við og loks hveitinu hrært saman við. Þá er deigið hnoðað saman og búnar til kúlur á stærð við valhnetur, sem þrýst er aðeins ofaná. Bakast við vægan hita í ca. 13 mínútur. Kókosmakrónur. 100 gr. kókosmjöl 150 gr. sykur 3 eggjahvítur 1 matsk. smjör vanilla. Deigið er hrært saman í potti yfir vatnsbaði (vægum hita) þar til kominn er á það ittur Þá eru búnar til kökur með tesk. á méi- aða plötu og siðan bakaðar við vægan hita. Cg svo að iokum mjög góð kleirluuppskrift: Kleinur. 750 gr. hveiti 125 gr smjörl. 250 gr. sykur 2 egg kardernommur (ríflega) ca. 1 pelí mjólk 4 tslí. lyftiduft. Deigið er hnoðað vel saman, búnar til kleinur sem steiktar eru í meðal heitri plöntufeiti. i 1 A HIN árlega skákkeppni milli Austur- og Vesturbæjar fór fram í Sjómannaskólanum sunnudag- inn 23. marz. Fyrirliðar voru þeir Baldur Möller fyrir vestanmenn og Friðrik Ólafsson fyrir austan- menn. Liðssafnaður var mikill fyrir keppnina, og hugðust báðir aðilar mæta með sínu bezta liði, en þó urðu heimtur austanrnanna öllu betri, því sigurmn féll þeim í skaut 12:3, enda vantaði í hóp vestanmanna þá Guðm. Pálma- son, Guðm. S. Guðmundsson, Guð mund Ágústsson og Eggert Gilf- er, sem allir voru forfallaðir. Eigi að síður var keppnin hörð, og skemmtileg, og t. d. má nefna skákir þeirra Ingvars og Stefáns, Benónýs og ’Sveins og Gunnars Gunnarssonar og Jóns Pálssonar. Allar voru þessar skákir tefldar djarflega, og skemmtu áhorfend- ur sér prýðilega við að fylgjast með gangi þeirra. Mér finnst vel til fallið að láta skák fyrirlið- anna fylgja með þessu rabbi mínu. Friðrik náði betri stöðu í byrj uninni og eftir að Baldur fylgdi hægfara liðskipunarkerfi á kóngsvæng út í yztu æsar, náði Friðrik þungri sókn á drottning- arvæng, sem hann útfærði mjög laglega og gafst Baldur upp eftir 31. leik Friðriks. Austurbær — Vesturbær Hvítt: Friðrik Ólafsson. Svart: Baldur Möller. Spánski leikurinn. 1. e4, e5; 2. Kf3, Rc6; 3. Bb5, a6; 4. Ba4, d6; Steinitz afbrigðið, sem Capablanca o. fl. hafa álitið traustasta svarið gegn spánska leiknum. Baldur fetar dyggilega í fótspor Steinitz, og forðast að veikja peðastöðu sína á drottn- ingarvæng, en tekst ekki að sama skapi vel að ná sókn kóngs- megin. 5. c3 Mun nákvæmara en 5. 0-0, sem gefur svörtum færi á að jafna stöðuna með 5. — Bg4. 5. — Rd7; 6. d4, Be7; 7. 0-0, Bf6; Óneitanlega þunglamalegur leik- ur. Vænlegra til árangurs er 7. — Rf6; Kecskemeser-afbrigðið. 8. Rd2, O-O; 9. Hel, De8 og svartur hefur trausta stöðu, en öllu þrengri. 8. Be3, h6; Svartur fylgir ákveðnu markmiði, sem reynist honum illa. Betra var 8. — Rge7; 9. d5, Rce7; 10. c4, g5; Sennilega var bezta leiðin hér 10. — Bxa4; 11. Dxa4|, Dd7; 12. A) Dc2, Bg5!; 13. Bxg5, hxgð; 14. Rxg5, Dg4; 15. Rf3, Rg6; og svartur virðist hafa sóknarmögu- leika fyrir peðið. Betra er senni- lega 12.B)Dxd7, Kxd7; 13. c5, Rg6 14. Rc3. Rg8-e7; 15. b4, svartur hefur létt á stöðu sinni, þó hann hafi ekki jafnað hana. 11. c5!, Rg6; 12. Rc3, R8e7; 13. Rd2, 0-0; 14. Bxd7, Dxd7; 15. Rc4, Rc8; Hvítur hótaði 16. cxd6, cxd6; 17. Rb6. 16. Hcl, Be7; 17. b4, Kg7? Leikur, sem kostar svart skipta- mun siðar í skákinni. Eini mögu- leikinn á að frelsa stöðuna var 17. — f5; 18. Ra4, Bd8; 19. Ra5 17. — f5; 18. Ra4, Bd8; 19. Ra5 ABCDEFGH ■T*< A #.W mfk U 7 m iái i •ölg W%- a : ■ ’ * ■ ■ i m iS á B n w' - w' n W/. m. ABCDEFGH 19. — c6(?) Leiðir til taps í nokkrum leikum, en óhætt virð- ist að fullyrða að ekki finnst vörn fyrir svartan. 20. dxc6, bxc6; 21. cxd6, Bxa5; ‘22. bxaa, Dxd6; 23. Bc5, De6; Nú kemur sér illa að hafa leikið 17. — Kg7; 24. Bxf8t, Kxf8; 25. Db3, Dxb3; 26. axb3, Rce7; 27. RbS, Had8; 28. Hfdl, Hd4; 29. Rd7f, ltg7; 30. Hxd4, exd4; 31. Rc5. og svart- ur gafst upp. IRJóh. Stjörnubíó sýnir nu enn ítölsku kvikmyndina „Stúlkan viö fljótið” með Sophiu Loren í aðalhlutverki. Er hún nú sýnd vegna f jölda áskorana. Um tölur ff-AÐ mun hafa verið Benjamin karlinn Disraeli, sem sagði, að til væri þrenns konar lygi: lygi, haugalygi og skýrslur. Vei- vakanda varð á að minn- ast þessara orða, þegar hann var að hugsa um umræðuna, sem íram fór á Alþingi á fimmtudag- inn og fjallaði um húsnæðismál- in, en frá henni var sagt í Morg- unblaðinu í fyrradag. Þar var verið að deila um lánveitingar til íbúða, en þrng- heimi gekk ilia að koma sér sam- an um, hverjar þær hefðu verið og var í því sambandi óspart vitn að í tölur. Félagsmálaráðherra kom mjög við sögu í þessum um- ræðum, en hann hefir áður átt í erfiðleikum með að fá fólk tii að trúa því, að hann dragi íram þær töiur, sem raunverulega skipta máli. Velvakandi ætlar ekki að fara að lýsa því að ráði, hvað deilunum olli á fimmtudaginn, en þá var á einum og sama þing- íundi deilt um eftirfarandi: 1) Opinberar lánveitingar til íbúðabyggmga að undanförnu. 2) Sparifjármyndunina. Nýrega haia einnig staðið hlið- stæöar deilur á Alþingi um 3) Upphæð umframgreiðslna ríkissjóðs. 4) Niðurgreiðslur á vöruverði 5) Greiðslur úr útflutnings- sjóði — og sjálfsagt fleira, þótt Velvakandi minnist þess ekki í svirts"” Það kann að þykja undarlegt, að deilt skuli vera um staðreynd- ir, sem ætti að vera unnt að sannprófa. En sannleikurinn er þó auðvitað sá, að það getur verið nokkuð djúpt á sannleik- anum. Stundum er e. t. v. erfitt að fá svör við ákveðnum spurn- ingum, en miklu oítar er erfitt að vita, að hverju á að spyrja. Og sé um flókin atriði að ræða, sein fólk gefur sér ekki almennt tíma til að setja sig fullkomlega inn í, er auðvelt verk að halda tölum fram, sem e. t. v. sýna eitthvað, — en alls ekki það, sem máli skiptir. Það virðist vafa- laust, að almenningur þarf að vera vel á verði á þessu sviði og láta menn ekki komast upp með alls kyns slúður. eins og t. d. hann Hannibal okkar hefur reynt að gera að undaniörnu. Sterkt aimenningsátit, sem fordæmir viilandi skýrsiugeröir, er bezta leiðin til að kveða ósómann nið- ur. Það er nóg af skýrsium, sem geinar eru, sem eru svo hrópleg langavitleysa, að allir sjá í gegn- um þær, ef þær eru lesnar með athygli. Menn þurfa því ekki að haía neínar áhyggjur af því, að nauðsynlegt sé að allir setjist niður og læri skýrslugerðarvís- indi og bókfærslu. til að geta orðið hlutgengir í þjóðverðinum gegn blekkjandi skýrslum. „Erum við réttlaus? 4RLEGA kostar ríkið og bæjar- félög stórum fjárhæðum til löggæzlu. Þær fjárveitingar munu ekki vera gagnrýndar af skattþegnum þjóðfélagsins, — þeir munu yfirleitt telja því fé varið til verndar einstaklingnum, heimilum og félagssamtökum. Þegar svo slíkir atburðir geta gerzt, að löggæziumaður er ófor- varandis sleginn niður þar sem hann er að gæta laga og réttar, og honum misþyrmt eins og drukkinn maður frekast áorkað í sínum fítensanda, fáum við óbreyttir borgarar að heyra um svo óhugnanlegt athæfi og þjóð- hættulegt sem pro forma inngang að því, sem ættu að kallast frétt- ir: nafni og mynd af brotamann- inum. Það hefur verið talað um, að nauðsyn beri til að birta nöfn þeirra níðinga eða hvað sem á að kalla þessa menn, en krafan er — og ég leyfi mér að bera hana fram — að með nöfnum aí- brotamannanna, sem valda and- legum og líkamlegum meiðslum á samborgurum sínum, verði dag blöðunum afhent í hverju ein- stöku tilfelli mynd af viðkom- andi manni. Nafnið hefur sem sé lítið að segja til varnaðar, en ásýnd afbrotamannsins mun að jafnaði ekki gleymast, en verða öllu öðru frekar til að friðsamir borgarar gætu forðast samneytá við þá, sem nú virðast njót* hlífðar meira en ég og sennilega fleiri geta skilið. Aðalbjörn Arngrímsson.*'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.