Morgunblaðið - 30.03.1958, Síða 14
14
MORGVNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 30. marz 1958
Til sölu
Ný og rúmgóð 2ja herbergja kjallaraíbúð við
Kleppsveg.
Upplýsingar í síma 10305 sunnudag og mánudag.
3ja herbergja íbúð
Til sölu er 3ja herb. risíbúð í Hlíðunum. Hagkvæm
kaup, ef samið er strax. Allar nánari uppl. gefur
í síma milli kl. 10—12 og 5—7 í dag Hafsteinn
Baldvinsson héraðsdómslögmaður sími 19805.
Þýzkar
KVENBLÚSSUR
fjölbreytt úrval
GLUGGIIMN
Laugaveg 30
Starfsmannafélag ríkisstofnana
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Iðnó uppi mánudaginn 31. marz
1958 kl. 20.30.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál
2. Aðalfundarstörf skv. félagslögum
3. Önnur mál
Félagar fjölsækið fundinn réttstundis.
Félagsstjórnin.
Amerískir
NÆLONGALLAR
nýjar gerðir teknar upp í dag
Wwi
— Reykjav'ikurbréf
Framh. af bls. 13
að bregða okkur yfir til ykkar?“
Síðan segir í báðupi blöðunum:
„Hér virðist því ekki um ann-
an samkomulagsmöguleika að
ræða með kommúnistum og Sjálf
stæðisflokknum, en Sjálfstæðis-
flokkurinn geri kommúnistum
það til geðs að láta ameríska
herinn hverfa af landi brott gegn
því að kommúnistar geri Sjálf-
stæðisflokknum það til geðs, að
sætta sig við gengislækkun. Er
það kannski þetta, sem vakir fyr-
ir Morgunblaðinu?"
Hver var það, sem á sínum
tíma lofaði að láta ameríska her-
inn fara? Var það Sjálfstæðis-
flokkurinn? Nei, Framsóknar-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn
gerðu það. Að vísu báðir gegn
betri samvizku. Þeir tóku upp
stefnu kommúnista í varnarmál-
um til að fá þá með sér í ríkis-
stjórn. Þessi var hin raunveru-
lega orsök samþykktarinnar 28.
marz 1956. Það var Hermann
Jónasson, sem knúði ályktunina
fram. Hann gerði flokksmönnum
sínum og Alþýðuflokknum þá að
vísu ekki grein fyrir, hvað fyrir
honum vakti, en það kom glögg-
lega í ijós við stjórnarmyndun-
ina í júlí 1956. Tíminn hefur og
nú eftir á hælzt um yfir, að Her-
mann hafi aldrei tekið undir þær
heitstrengingar, sem m. a. Ey-
steinn Jónsson, Tíminn, Dagur og
Haraldur Guðmundsson gáfu um,
að aldrei skyldi unnið með komm
únistum. Hermann hafði þá var-
úð á vegna þess, að hann sjálfur
vissi ætíð að hverju hann stefndi
og lét hinum, sem hann mat
minna, eftir heitstrengingar, sem
hann var staðráðinn í að hafa að
engu.
Tilboð Hermanns?
Hermann Jónasson hefur oft á
þann hátt sem hann hefur lært
af kommúnistum, að ásaka eða
láta ásaka andstæðinga sína fyr-
ir það, sem hann sjálfur hefur
í hyggju. Þegar Alþýðublaðið og
Tíminn nú saka Sjálfstæðismenn
um fyrirætlanir í þá átt að vilja
koma fram gengislækkun gegn
því að reka ameríska herinn, þá
fer því ekki fjarri, að slíkt sé
að brjótast í huga Hermanns
Jónassonar. E. t. v. ber að skoða
þessi skrif Tímans sem tilboð
Hermanns til húsbænda komm-
únistanna hér. Tilboð, sem hann
hafi ekki treyst Lúðvik Jósefs-
syni, manni hins „takmarkaða
umboðs" til að koma óbjöguðu
áleiðis.
Eða eru forráðamenn Alþýðu-
blaðsins og Tímans virkilega svo
gersamlega horfnir frá loforðun-
um, er þeir gáfu 28. marz 1956
og aftur við stjórnarmyndunina,
að þeir telji að öllu tali um efndir
þeirra hljóti að vera stefnt gegn
sér á þann veg, að alls ekki komi
til greina að þeir sjálfir undir
nokkrum kringumstæðum fram-
kvæmi það, sem þeir þá lofuðu?
Vorkenndu
Hannibal
Þeir sem hlustað hafa á um-
ræðurnar á Alþingi undanfarið
um fjáröflun til íbúðarhúsabygg-
inga, hafa ekki komizt hjá því
að vorkenna félagsmálaráðherr-
anum, Hannibal Valdimarssyni.
Sjálfstæðismenn hafa undir for-
ystu Jóhanns Hafsteins með
skýrum rökum rakið ólika
frammistöðu stjórna Ólafs
Thors og Hermanns Jónassonar
í húsbyggingarmálunum. Töl-
urnar tala þar ótvíræðu máli.
í sama stað kemur hvernig sam-
anburðinn er gerður, aðeins ef
réttar tölur eru viðhafðar, þá
sést, að stjórn Ólafs vann stór.
virki en stjórn Hermanns, með
Hannibal fyrir handlangara, stóð
sig ver en jafnvel .íörðustu gagn-
rýnendur höfðu gert ráð fyrir.
Hannibal reyndi að rétta hlut
sinn með því að telja með út-
hlutun ársins 1957 þau lán, sem
veitt hafa verið á árinu 1958 og
af tekjustofnum þess árs. Öll
var þessi frammistaða með þeim
hætti, að erfitt er að trúa fyrir
þá, sem ekki heyrðu.
Vorkenning í Hannibals garð
má ekki minnka heldur aukast
vegna auðsærrar sjálfsánægju
hans, sem var þá mest, þegar
hlutur hans var verstur.
Vinna
Hreingerningar
Vanir menn. Fijót og gót
vinna. — Sími 23039. — ALLI.
Félagslíf
Knattspyrnufélagið Valur.
Skemmtifundur fyrir 3. ft,
verður í félagsheimilinu n. k.
þriðjudag kl. 8.30. Mörg skemmti.
atriði og rætt verður um sum-
arstarfið. — Fjölmennið.
Unglingaleiðtogl.
Knattspyrnufél. Fram.
Munið knattspyrnuæfingamur
fyrir yngri flokka félagsins á
Framvellinum á sunnudag.
5. flokkur kl. 1.30
4. flokkur kl. 2.30
3. flokkur kl. 3.30
— Nefndin.
★ Stúdentafélag Reykjavíkur
Kvöldvaka
að Hótel Borg miðvikudaginn 2. apríl.
Skemmtiatriðiaftrðj555e
Dansað tii kl. 2.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
SÍMI 17985
Aðgm. frá kl. 8.
Gömlu donsornir í kvöld
Bezta harmónikuhijómsveitin í bænum
Hljómsveit JÓNATANS ÓLAFSSONAR
Austurstræti 12.
Söngvari Sigurður Ólafsson
Metsöluplötur
SKAFTA ÓLAFSSOHR komnar
3. sending
ALLT Á FLOTI
Mikið var gaman
að þvL
Ef að mamma vissi
það.
Syngjum hátt og
dönsum.
Fást í
Hljóðfæraverzlunum.
NÓMI ÞORBERGSSON stjórnar dansinum
Tilboð oskast
í nokkrar íólksbifreiðir, jeppa, strætisvagn yfirbyggða
vörubifreið og litla kranbifreið er verða til sýnis að Skúla-
túni 4, mánudaginn 31. þ.m. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer í tilboði.
Sölunefn varnarliðseigna.
ORÐSENDIIMG
til félagsmanna í Byggingafélagi Alþýðu í Hafnarfirði.
Félagið hefur í hyggju að byggja tíu íbúðir. Félagsmenn
sem hug haía á að eignast íbúðir þessar leiti upplýsinga
hjá formanni félagsins. Tjarnarbraut 5 eða gjaldkera fé-
lagsins. Sunnuveg 7 mánudag, þriðjudag eða miðvikudag
n.k. milli kl. 5—7 síödegis.
Stjórnin.
I. O. G. T.
VÍKINGUR
Fundur annað kvöld, mánudag,
í GT-húsinu kl. 8.30. Á fundin.
um flytur Felix Ólafsson kristni.
boði, erindi um starfsemi ís-
lenzka kristniboðsins í Konso í
Eþíópíu (Abbeseníu) og sýnir
litskuggamyndir. — Allir tempi-
arar velkomnir,Æ.T.
Barnastúkan Jólagjöf nr. 107.
Fundur fellur niður 1 dag.
Næsti fundur 13. apríl. — Ath.:
Barnaskemmtun ungtemplara í
dag. — Gæzlumaður.
St. Framtíðin nr. 173.
Fundur annað kvöld kl. 8.30.
— Kosning embættismanna. —
Kvikmyndasýning.
BARNASKEMMTUN
í GT-húsinu kl. 2 í dag. Til
skemmtunar: Leikrit, skrautsýn-
ing, gítarleikur o. fl. — Aðgöngu-
miðasala í húsinu í dag frá kl. 1.
Unglingareglan.
Þingstúka Reykjavíkur
Þeir sem áhuga hefðu á því a8
kynnast starfsemi Góðtemplara-
reglunnar í bænum og hinna
ýmsu deilda hennar, snúi sór til
upplýsinga-stöðvar Þingstúkunn-
ar, Veltusundi 3, opin 5—7 e.h.