Morgunblaðið - 30.03.1958, Side 22
22
MORGVISBT.AÐIÐ
Sunnudagur 30. marz 1958
Kvikmyndaklúbbur
æskulýðsráðs
Austtirbæjarskóli: Prinsessan með gullna hárið.
Chaplin-mynd o. fl. kl. 4 og 5,30.
Trípolibíó: Hestaþjófarnir kl. 3.
Sérlega falleg
Rock-efni i telpupils
Poplin- og striga sumarkjólaefni
Jerseyskyrtubolir
og drengjamanchettskyrtur
- Mjólkurflutningar
Framh. af bls. 17
ast í Tungurnar í dag. Leiðin
þangað verður mokuð á morgun.
Og svo erum við komnir upp
að Húsatóftum, þar sem hinir
bílarnir bíða okkar. Það er geysi
lega stór skafl, sem við verðum
að „stinga" í gegnum rétt áður
en við komum að bílnum, og þar
er einn mjólkurbíll fastur. Síðar
.er hann dreginn út úr skaflinum
og í gang.
Skömmu síðar halda bílarnir
áfram upp Skeiðin, alls 9 í lest,
en við í snjóplógnum snúum til
baka. Þegar við erum komnir
langleiðina niður Skeiðaveginn,
mætum við vörubíl frá Vegagerð
inni og er Jón verkstjóri í hon-
um ásamt bílstjóra. Þeir eru með
kaffi handa Jónasi, sem skiptir
því bróðurlega á milli okk-
ar. Jón segir Jónasi, að hann
skuli næst fara niður á Eyrar-
bakkaveginn og hjálpa til við að
opna þann. Bílalestinni austan
Þjórsár hefur gengið vel og þeg-
ar við komum niður á vegamótin
kemur öll lestin, og við hleypum
henni framhjá áður en við förum
út á þjóðveginn. Þetta voru um
20 bílar.
Klukkan 6 síðdegis erum við
svo komnir á Selfoss og þar fer
ég úr bílnum, en Jónas býður mér
að fara með sér upp í Biskups-
tungur kl. 7 í fyrramálið. Það
góða boð þakkaði ég og kl. á
slaginu 7 var ég mættur í
Tryggvaskála í grárri morgun-
skímunni og hlýju veðri.
Þann dag sem var sunnudag-
urinn 16. marz, fórum við alla
leið upp að Geysi. Þá var annar
snjóplógur, sem fór í Laugardal-
inn og opnaði veginn að Laugar-
vatni. Aðrir vegir voru einnig
mokaðir þarna austur frá, og um
miðjan dag var komið á sæmilegt
vegasamband við allar þær sveit-
ir, sem til þurfti að ná vegna
mjólkurflutninganna.
Þessa tvo daga, sem unnið var
að snjómokstri var unnið vel og
án þess að kvartað væri
yfir erfiðleikunum. Þeir menn,
sem þarna eiga við snjómokstur
og óteijandi erfiðleika að etja,
eru starfi sínu svo vel vaxnir og
svo vel kunnir, að þeir veita sér
aldrei þann munað, að láta frá
LONDON, 28. marz (Reuter —
í dag gerðist það þrennt í einu
að Elísabet drottning sneri heim
úr Hollandsferð sinni, systir
hennar, Margrét prinsessa, flaug
til Þýzkalands til að kanna
brezkt herlið sem bækistöðvar
hefur á meginlandinu og Peter
Townsend ók til Somerset-héraðs
til að heimsækja móður sína.
Skömmu áður en Townsend
hvarf úr London gaf hann út
yfirlýsingu til blaðanna þar sem
hann sagði að ákvörðun Margrét-
ar prinsessu um að giftast hon-
um ekki væri óbreytt og óhagg-
anleg.
sér fara eitt einasta æðruorð um
þá erfiðleika sem að þeim steðja
á hverjum tíma. Þeir leggja nótt
við dag í vondum veðrum, snjó,
frosti og skafbyljum, allt til þess
að gegna skyldu sinni og það er
sama hve mikil vinnan er, og
hve erfið, hún er aldrei svo
mikil eða erfið, að þeir ekki
ljúki henni hvað sem á dynur.
Þetta eru mennirnir, sem tryggja
það, að börnin okkar fái sina
daglegu mjólk á hverju sem geng
ur hjá náttúruöflunum.
Við þökkum þessum mönnum
og viljum að þeir viti hve mikils
við metum störf þeirra við mjólk
urflutningana og allt það, sem að
þeim lýtur.
og fögnuðu íbúar bæjarins þeim
ákaft, en konungshjónin notuðu
tækifærið til að skoða fornfræg-
an kastala bæjarins. Síðan héldu
þau með járnbrautarlest beinustu
leið til Windsor. Þar munu þau
ganga fyrir Elísabetu ekkju-
drottningu og einnig mun Mar-
grét prinsessa bætast í hópinn
seinni hluta sunnudags, þegar
hún kemur heim frá Þýzkalandi.
Konungsfjölskyldan hyggst
dveljast um mánaðartíma í
Windsor kastala. Munu blaða-
menn vart geta fylgzt með því
þar, hvort Townsend er boðið til
kastalans.
Margrét heldur áfram að
hryggbrjóta Townsend
I
Er nokkuð sem jafnast á við undrabónið
DRI - BRITE??
(frbr. dræ-bræt)
Það þoliir vatn
og aurbleytu.
Takið bara rakan
klút — og þerrið af
— og sjá —
Gljáinn helzt
Allir œttu því oð nota
DRI - BRITE GLJÁVAX
Elisabet og Filippus maður
hennar stigu á land við Dover
ðridgekeppni
á Patreksiirði
PATAREKSFIRÐI, 27. marz. —
í samkomuhúsinu Skjaldborg á
Patreksfirði hefur undanfarið
staðið yfir firmakeppni í bridge
á vegum Taflfélags Patreks-
fjarðar. í keppninni tóku þátt
16 firmu á Patreksfirði og var
spiluð tvímenningskeppni í 3 um
ferðum. Keppnisstjóri var Snorri
Gunnlaugsson.
Efstu firmun voru: 1) Hrað-
frystihús Patreksfjarðar h.f.:
372V2 stig (Þorvaldur Ó. Thor-
oddsen og Ólafur G. Ólafsson).
2) Vei-zlun Ásmundar B. Oisen:
371% stig (Ari Kx-istinsson og
Árni Gunnar Þorsteinsson). 3)
Verzlun Magnúsar B. Oisen: 350
stig (Hannes Finnbogason og
Steingx-ímur Sigfússon).
—Karl.
Nýkomið
Nýkomið
Bast lampar. Ný form — Nýir litir.
Litib i gluggana um helgina
Hringfloutrosent lampar i eldhiis
Draglampar í borðstofur og eldhús
Strouvélar Paruoll Ezy-Press
Philips rafmagnsrakvélar
Væntanlegt i næstu viku
Progress ryksugur og bónvélar
Beurer straujárn (2 teg.)
Vesturgötu 2 — Sími 24330
PARÍS, 28. marz (Reuter) —
Franska stórblaðið Paris Soir,
staðhæfir í dag, að Peter Towns-
end geri sér enn vonir um að
kvænast Margréti. Telur það að
hann hafi átt upptökin að fundi
þeirra í vikunni. Margrét prins-
essa hafi hins vegar hrint honum
frá sér og jafnvel hryggbrotið
hann endanlega.
— Draugalestin
Frh. af bls. 15
standa á fótunum, og var það
ekki hennar sök, heldur höfund-
arins, þó að hún yrði með óeðli-
legum hraða dauðadrukkin, svo
að því var likast sem hún hefði
tekið inn eitur, það er að segja
þríkrossað eitur.
Tveir misindismenn koma
einnig hér við sögu, þeir Herbert
Price og John Sterling, sem þeir
léku Árni Jónsson og Gunnar
Magnússon. Voru það ekki viða-
mikil hiutverk, en vel af hendi
leyst. Tvo lögreglumenn, Jackson
og Smith, léku þeir Hannes Sig-
urgeirsson og Skúli Magnússon.
Voru það minnstu hlutverkin, en
samvizkusamlega leikin. Annars
var Hannes hvíslari, en brá sér
frá augnablik til að leika.
Leiktjöldin hafði Magnús Páls-
son teiknað af mikilli vandvirkni,
og var það honum og Höskuldi
Bjöi-nssyni að þakka, hve eðlileg
umgerð þau voru um atbui'ði
sjónleiksins. Andlitsförðun, sem
Sigríður Michelsen hafði annazt,
var í bezta lagi. Leiksviðsstjóri
var Jón Guðmundsson.
Að öllu samanlögðu veiður
ekki annað séð en sýning þessi
hafi orðið Leikfélagi Hveragerðis
til sóma, og á félagið lof skilið
fyrir óbilandi áhuga og fórnfúst
stai'f í þágu leiklistarinnar. En sú
er höfuðdygð þessa félags, að
þar leggja sig allir fram undan-
tekningarlaust til að gera sitt
bezta, enda mundi ekki án þess
nást svo góður árangur sem raun
er á. Leikfélagið mun nú næstu
vikurnar ferðast um nágranna-
héruðin með sýningu sína, og má
fullyrða að engan þarf að iðra,
þó að hann verji til þess einni
kvöldstund og ef til vill einhverri
fyrirhöfn að sjá Draugalestina,
því að bæði er atburðarásin mjög
spennandi og góður leikur sýnd-
ur á sviðinu.
Hveragerði, 24. marz 1958
Helgi Sveinsson.