Morgunblaðið - 23.04.1958, Qupperneq 1
20 síður
íslenzka sendinefndin ber fram
mótmœli við Wan prins
Mikið rætt um crð fresta jbví oð útkljá landhelgismálin,
en Hans G. Andersen telur frestun tilgangslausa
GENF, 22. apríl. — Einkaskeyti
til Mbl. frá Gunnari G. Schram.
EINS og skýrt var frá í fréttum
í gær ræddi Wan, forseti ráð
stefnunnar, í hádegisverði með
blaðamönnum m. a. um fiskveiði-
réttindi Breta á íslandsmiðum —
og skýra heimsblöðin frá því i
morgun. Ximes segir m. a.: Wan
prins svaraði fyrirspurnum og
sagði, að ísland og Bretland ættu
mörg sameiginleg hagsmunamál
— og hann héldi, að ef nægur
tími gæfist til viðræðna mundi
nást samkomulag með löndunum
um deiluna um fiskimiðin við
fsland. Kvaðst hann hlutlaus í
deilunni, en persónulega fyndist
sér, að Bretland hefði áunnið sér
sterka aðstöðu — eða réttindi,
eins og hann kvaðst heldur vilja
orða það. 1 lögum verðum við að
taka tillit til „unninnar aðstöðu '.
o—★—o
Ég hef átt tal við Hans G.
Andersen, formann íslenzku
sendinefndarinnar, og spurt hann
hvað hann segði um þessi um-
mæli forseta ráðstefnunnar.
— Ég var ekki viðstaddur,
þegar Wan prins lét orð þessi
falla. Að okkar áliti hefur
forsetinn farið algerlega út
fyrir sitt umboð og valdsvið
með ummælunum, því auðvit-
að er það ekki hans hlutverk
að kveða upp dóm í slíkum
málum. íslenzka sendinefndin
mun bera fram formleg mót-
mæli við forsetann sökum
þessara ummæli hans, sagði
Ilans.
til meðferðar. Á þann hátt yrði
komið í veg fyrir að þessari ráð-
stefnu lyki á sama veg og Haag-
ráðstefnunni 1930.
Wan prins nefndi þennan
möguleika í fyrsta sinn opinber-
lega í gær og lagði til, að t. d.
yrði fundum frestað um tvo mán-
uði — ríkisstjórnirnar athuguðu
málið og reyndu að semja á bak
við tjöldin.
Ég spurði Hans G. Andersen
álits á þessari ráðagerð, sem tví-
mælalaust er nú mjög höfð í
huga:
— Ég tel slíka frestun al-
gerlega tilgangslausa, sagði
hann. — Landhelgismálin
hafa nú verið svo lengi til
Bidaulf gafsf upp
- Pieven reynir
PARÍS 22. apríl. — Bidault hef-
ur nú gefizt upp við tilraun til
stjórnarmyndunar þar eð flokk-
ur hans, MRP-flokkurinn, hefur
samþykkt að styðja ekki stjórn
hans. Var samþykktin gerð á
fundi miðstjórnar og þingflokks
— þó með naumum meirihluta.
Stjórnarkreppan hefir nú staðið
í viku — og Bidault lét svo um
mælt í kvöld, að ný og öflug
stjórn myndi ekki mynduð í
Frakklandi fyrr en stefna hans
í málefnum N-Afríku nyti yf-
irgnæfandi fylgis. Kvað hann
nauðsyn að taka Alsírmálið föst-
um tökum — heiður Frakklands
umræðu hér í Genf, átta vik-
ur samfleytt, að það myndi
engu breyta að skjóta ákvörð-
un um þau á frest og sízt
verða til þess að auðvelda
samkomulagið.
I morgun hófst allshérjar-
fundurinn og voru tillögur land-
helgisnefndarinnar til umræðu.
Við fyrstu greinina lá fyrir breyt-
ingatillaga úrá Júgóslavíu þess
efnis að landgrunnið skuli teljast
100 mílur út frá strönd, og frá
Frakkl. till. þess efnis, að land-
grunn skyldi teljast út á 550
metra dýpi, en ekki 200 sem í
tillögum nefndarinnar. Báðar
voru felldar með miklum meiri-
hluta.
Greinin um skilgreiningu land-
grunnsins, sem samþykkt var
með nægilegum meirihluta var
á þá leið, að landgrunn skyldi
teljast út á 200 metra dýpi, eða
lengra út, ef strandríki getur
nýtt auðlindir í sjávarbotninum.
ísland greiddi atkvæði með þess-
ari grein. 57 ríki greiddu atkv.
með greininni, 11 á móti, en 12
sátu hjá.
ísland sat hins vegar hjá ásamt
5 öðrum ríkjum við atkvæða-
greiðslu um aðra grein, sem
fjallaði um réttindi strandríkja
— og samþykkt var af 59 ríkjum,
en 5 voru á móti. Efni hennar
var, að réttindi strandríkis skuli
ekki ná til fisksins í landgrunns-
hafinu, einungis ætti ríkið rétt
til málma, steina og annarra ó-
lífrænna efna á botni og undir
— og lífvera, sem hreyfðust ekki,
eða án þess að sleppa botni.
Wan prins
Sú grein var kjarni landgrunns
tillagnanna og málið er því til
lykta leitt.
EONDON og PARÍS 22. apríl. —
Enn heldur Ráðstjórnin fast við
fyrri ákvörðun sína um að ræða
ekki við fulltrúa Vesturveldanna
sameiginlega í Moskvu um undir
búning ríkisleiðtogafundar. Er
haft eftir áreiðanlegum heimild-
um, að Gromyko hafi krafizt
þess, að fulltrúar Póllands og
Tékkóslóvakíu fengju að setjast
að samningaborðinu og yrðu
metnir til fulls á við fulltrúa Bret
lands og Frakklands, ef undir-
búningur yrði ræddur á sameig-
inlegum fundum.
Jafnframt berast þær fregnir
frá París, að Moskvufréttaritari
Fréttir i stuttu máli
Djakarta 22. apríl. — í tilkynn-
ingu frá stjórnarhernum segir,
að hersveitir uppreisnarmanna á
Súmötru séu nú á flótta á öllum
vígstöðvum.
Briissell, 22. apríl. — Fullyrt er,
að innan skamms verði tilkynnt
trúlofun Baudouin konungs og
Mariu Theresiu prinsessu af
Bourbon.
Bonn, 22. apríl. — Adenauer sagði
í útvarpsviðtali í dag, að V-Þjóð-
verjar mundu ekki framleiða
kjarnorkuvopn. Samkv. samning-
um V-Þýzkalands við V-Evrópu-
bandalagið mættu Þjóðverjar
ekki framleiða slík vopn.
Valetta, 22. apríl. — Borge Oliver
hefur verið falið að mynda stjórn
á 'Möltu, enda þótt flokkur Min-
toffs, fráfarandi forsætisráðherra,
sem hefur yfirgnæfandi meiri-
hluta á þingi, hafi lýst því yfir,
að hann styðji enga stjórn, sem
ekki er í höndum flokksins. Ólga
er nú á Möltu — og hefur brezk-
um hermönnum verið sett út-
göngubann í höfuðborginni eftir
sólsetur.
Eondon, 22. apríl. — 70 þús. lög-
reglumanna í Englandi hafa kraf-
izt 10% launahækkunar.
kommúnistablaðsins L’Human-
ite, að Gromyko hafi stungið upp
á því, að utanríkisráðherrafund-
urinn yrði haldinn hið fyrsta.
Sagði fréttaritarinn, að tillaga
Ráðstjórnarinnar væri sú, að
þennan fund sæktu ráðherrar
Bandaríkjanna, Bretlands, Frakk
lands og Ítalíu af hálfu NATO-
landanna, en fulltrúar Ráðstjórn
arinnar, Póllands, Tékkóslóvak-
íu og Rúmeníu af hálfu komm-
unistaríkjanna. Þá yrði fulltrú-
um þriggja hlutlausra ríkja —
Indlands, Svíþjóðar og Júgóslav-
íu — boðið til fundarins. Það
fylgdi og fregninni, að fundurinn
yrði haldinn í Genf.
Pólveijai og Tékkai læði undii
búning líkisleiðtogalundai!
Eftir að bandaríska tillagan
var felld á laugardagskvöldið,
hafa menn almennt verið mjög
uggandi um að svo mundi fara
að ráðstefnan næði engu sam-
komulagi um vídd landhelginn-
ar, einkum vegna hins tilskilda
meirihlutafylgis við samþykktir.
Fyrir nokkrum dögum átti ég
tal við fulltrúa tveggja brezku
samveldislandanna — og nefndu
þeir þann möguleika að fresta
að taka nokkra ákvörðun um
landhelgina. Síðar bæri að at-
huga hvort ekki væri heppilegt
að boða til annarrar ráðstefnu,
sem eingöngu hefði landhelgina
væri í veði.
Gekk Bidalut á fund Coty for-
seta og tjáði houum ákvörðun
sína.
Síðar í kvöld bárust fregnir
þess efnis, að Coty hefði falið
Pleven, fyrrum forsætisráð-
herra, að mynda stjórn. Er hann
leiðtogi lítils róttæks flokks. Tal-
ið er , að íhaldsmenn muni
styðja hann svo og róttækir.
Ekki er óliklegt talið, að hann
geti fengið stuðning einhvers
hluta jafnaðarmanna.
Utonþingsstjóin í Finnlandi
HELSINGFORS, 22. apríl. — Sam^
kvæmt yfirlýsingu, er Kekkonen
Finnlandsforseti gaf út í dag,
verður Finnlandi stjórnað af em-
bættismannastjórn fram til kosn-
inganna í sumar. Fyrr í dag
ræddi forsetinn við fulltrúa jafn-
aðarmanna og bændaflokksins.
Áður hafði hann rætt við Hiltun-
en, forseta þingsins, — og að
þeim viðræðum loknum varð
ljóst, að ekki eru tök á að mynda
stjórn, sem hefði meirihlutafylgi
þingsins. Síðar í dag hóf Kekk-
onen viðræður við ýmsa máls-
metandi rnenn með það fyrir aug-
um að myntla utanþingsstjórn
hið fyrsta.
Tító enn
gasgnrýndur
Enn réðist Ráðstjórnin harka-
lega á Tító í dag. Samkv. frétt-
um Moskvuúívarpsins var hann
gagnrýndur í Pravda og í for-
sæti miðstjórnar kommúnista-
flokksins, sem kom saman í til-
efni 88. afmælisdags Lenins. Var
gagnrýnin þess efnis, að ef Júgó-
slavar breyttu ekki um stefnu
yrði afleiðingin sú, að sambandið
milli „sósíalisku“ landanna og
Júgóslaviu mundi versna veru-
lega.
Tito sagðist hvergi mundu
hopa fyrir Moskvuvaldinu
Rússneski sendiherrann þóttist klappa
LUBLJANA, Júgóslavíu, 22. apríl. — í ræðu sinni á flokksþingi
júgóslavneska konimúnistaflokksins í dag lagði Tító einræðisherra
aherzlu á ósveigjanleik sinn við Moskvuvaldið — en fór jafnframt
iofsamlegum orðum um utanríkismálastefnu Ráðstjórnarinnar —
og kvað Júgóslava reiðubúna til þess að hafa vinsamleg samskipti
við Rússa. Fundarsalurinn var þéttskipaður, 1800 fulltrúar voru
mættir til fundar, en flokksþing hefir ekki verið haldið síðan
arið 1952. —
Tító fordæmdi harðlega
„skammsýni og heimskulega
hegðun" þeirra manna, sem
væru formælendur þess að
Júgóslavía yrði aftur seld und-
ir vald höfðingjanna í Kreml.
Kvað hann hér vera um að
ræða „ákveðna félaga" í A-
Evrópu, en tilhneigingar
þeirra væru skaðlegar og
kæmu í veg fyrir eðlilega þró-
un samskipta Júgóslavíu og
hinna kommúnistaríkjanna.
En Tító lét þess getið, að „mis-
skilningur“ hefði verið leiðréttur
við samræður þeirra Krúsjeffs í
Rúmeníu í ágústmánuði sl. — og
nú ríkti meiri skilningur í sam-
skiptum þessara tveggja ríkja.
Ummæli Títós eru vafalaust
svar við árásum þeim, er hann
hefur orðið fyrir í málgögnum
Ráðstjórnarinnar að undanförnu
— og ákvörðun kommúnistaríkj-
anna að senda enga fulltrúa til
þess að sitja fund júgóslavneska
kommúnistaflokksins. Stjórnmála
fregnritarar telja Tító hafa ver-
ið mun mildari í orðavali en búizt
var við, því að foringjar júgó-
slavneskra kommúnista séu allt
annað en mildir í garð Rússa og
kommúnistaforingja lepprikjanna
fyrir að hafa hundsað boð Títós
um að fulltrúar þeirra mættu
sitja flokksfundinn.
------★-------
Almennt er talið, að Tító hafi
í ræðu sinni gert örvæntingar-
fulla tilraun til þess að koma
í veg fyrir að í odd skærist enn
með honum og forystunni í
Kreml.
-----★-------
Tító kvaðst harma, að hinir
„ákveðnu félagar“ í A-Evrópu-
löndunum sýndu Júgóslövum enn
Vantraust — og ekki væri hægt
að neita því, að þeir kynnu ekki
skil á'innanlandsþróuninni í Júgó
slavíu. Þessir menn héldu áfram
áróðri sinum í þá átt, að Júgó-
slavía gengi í hinar sameiginlegu
„herbúðir" í Kreml. En þessir
„félagar" teldu, að með alþjóða-
kommúnismanum bæri einungis
að stefna að „herbúðunum" en
ekki að sósíaliskum heimi . . . .
Alþjóðakommúnismanum væri
ekki hægt að deila í „herbúðirn-
ar“ og deildir utan þeirra, því
að hann er alheimslegur, sagði
Tító.
---—★--------
Þá hóf Tító að hrósa utanríkis-
málastefnu Ráðstjórnarinnar og
sagði hana áhrifamikla og til þess
fallna að draga úr viðsjánum.
Framhald á bls. 18.