Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 23. apríl 1958
MORCUlSBLAÐtÐ
57
Geir S. Geirsson, kveðja
ÞEIR sem guðirnir elska deyja
ungir. En hvers eigum við að
gjalda, sem eftir lifum?
Samkvæmt almanakinu er vor
og dagurinn lengist, en í hjörtum
vorum er myrkur, og hugur okk-
ar sem bjarg. Það er ekki sem
sólin hækki á lofti, og allt verði
mildara. Tún og engi grænki, og
lauf skrýði skóg, fuglalífið* á
voru landi lifni við.
Þetta finnum við ekki þegar
við stöndum á móti sláttumann-
inum mikla, dauðanum.
1 einum skára falla fjórir
af okkar efnilegustu sonum, þetta
ljáfar verður aldrei endurgrætt.
Þið eruð farnir til fyrirheitna
landsins, þangað sem við förum
öll fyrr eða síðar.
Þar fórst þú, okkar bezti- vinur.
Treginn er mikill, Geir minn,
og að sjá þig hverfa bak við hið
mikla tjald þessa lífsleiksviðs, er
nokkuð sem við getum ekki sætt
okkur við.
Samverustundir okkar voru
ekki margar miðað við eilífðina,
þó voru þær það dýrmætasta sem
við höfum átt. Þú tókst þátt í
gleði okkar og sorg, og varst
skilningsgóður og vel viðræðan-
legur um vandamál okkar, sem
nú sýnast hismi eitt á móti því
sem nú hefur skeð.
Kæri vinur, að sjá á bak þér er
hryggilegt, en okkur er kennt að
tíminn lækni og græði öll sár,
hver sem þau eru. Er það satt?
Við eigúm eftir að komast að því.
Trú þín á allt það sem gott var
og hreint, er nokkuð sem við get-
um tekið okkur til eftirbreytni,
og látið okkur að kenningu verða.
Lífið, þetta sem við lifum í dag,
hvers virði er það? Er það undir-
búningur undir annað líf? Ef svo
er, þá varst þú vel undirbúinn
og samfundir okkar verða
ánægjulegir.
Það, sem við ekki sjáum og
getum þreifað á, eru hlutir sem
allir, sem nú syrgja, geta ekki
sætt sig við.
Við hjónin þökkum þér, vinur,
fyrir samverustundirnar sem við
áttum með þér. Sorgin er mikil,
en það léttir byrðina, þegar mað-
ur veit um fleiri, sem taka
þátt í sorginni.
Djúpivogur allur er sem rothöggi
lostinn. Þú varst einn í fremstu
röð hinna efnilegustu sveina
þaðan, og þó víðar væri leitað.
Afi þinn og amma, frændur og
vinir, lúta höfði til jarðar. Móðir
þín, fósturfaðir, og bróðir þinn,
standa ein, þó nú hafi þau fundið
anda vináttublæ að sér, allra
þinna vina sem eftir eru, sem í
sinni sorg geta litlu miðlað.
Geir minn, þú trúðir á annað
líf. Við eigum von á þér þegar
okkar tjald fellur.
Vertu vort leiðarljós um ókom-
inn tíma. Katrín og Helgi.
„í anda byllingar-
innar" gegn
spörfuglum
PEKING 19. apríl. — Stjórnar-
völdin í Peking hafa kvatt út all-
an her í borginni og nágrenni
hennar — og skorað á almenh-
ing að slást í hóp hermanna í bar
áttunni gegn spörfuglum — en
mikil hætta er á að þeir eti upp
allt sæði á ökrunum. Tugþúsudir
hermanna, verkamanna, mennta
manna og barna taka þátt í bar-
áttunni — og vopnin eru hin
ólíkustu — allt frá byssum til
eldhúsáhalda, svo sem steikar-
panna og grautarsleifa.
Málgögn kommúnista hvetja
fólk óspart til þess að taka þátt
í eyðingarstríðinu — „við verð-
um að halda áfram allt til enda
— í anda byltingarinnar“, segja
þau.
UNGTEMPLARAR, sem vilja tryggja sér aðgang að
Skemmtikvöld
ungtemplara
í Góðtemplarahúsinu á Sumardaginn fyrsta, er ráð-
lagt að tryggja sér miða í Góðtemplarahúsinu í dag
klukkan 6—7 vegna takmarkaðs húsrýmis.
U ndirbúningsnefndin.
Réttingamenn
Tveir menn vanir bílaréttingum óskast strax.
Upplýsingar í
Skodaverkstæðinu
við Kringlumýrarveg, sími 32881
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 77., 78 og 79. tölubl. Lögbirtingar-
blaðsins 1957 á lóðarspildu úr landi Akra og Nýja
Sæbóls á Seltjarnarnesi er eign Eggerts Hvanndals
fer fram föstudaginn 25. þ.m. kl. 14 sd. á lóðinni
sjálfri.
Sýslumaðurínn f
Gullbringu- og Kjósarsýslu.
I. O. G. T. Ungtemplarar! Miðar að skemmtikvöldinu í Góðtemplarahúsinu á sumardag- inn fyrsta verða afgreiddir í hús- inu á miðvikudag kl. 6—7 og á Sumardaginn fyrsta kl. 3,30—4.30 Undirbúningshefndin. 1 íbúðarhæð í Hlíðunum til sölu. Á hæðinni, sem er 130 ferm. eru 2 tveggja herbergja íbúðir með sameiginlegri forstofu. íbúðirnar eru í góðu standi. Bílskúr fylgir. Allar nánari upplýsingar gefur. Eignasalan Ingólfsstræti 9B
St. Einingin nr. 14. Fundur í kvöld kl. 8.15. Vígsla nýliða og embættismanna. Eftir fund spiluð félagsvist. Verðlaun. Félagar mætið vel og stundvís- lega. — Æt.
Félagar ungmennastúknanna! Miðar að skemmtikvöldinu í Góðtemplarahúsinu á Sumardag- inn fyrsta verða afgreiddir í GT- húsinu í kvöld kl. 6—7 og á morg un kl. 3,30—4,30. Undirbúningsnefndin.
Ford—Model 1956 Station-vagn Sedan 8, sjálfskiptur, nýkominn tii landsins, er til sölu ef viðunandi boð fæst. Til sýnis á afgreiðslu Eimskip við Borgartún kl. 2—4 í dag. Tilb. sendist til Jóns Arinbjörnssonar, Sörlaskjóli 88, fyrir kl. 12 á morgun (fimmtudag).
Minervafundur í kvöld. Vetur kvaddur. Erindi: Þorsteinn Árnason. o.fl. — Sumri fagnað. Kaffi, leikir og dans. Mætið öll. — Æt.
Kaupf élagsst jórastarf ið
við Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Hólmavík, er laust til umsóknar. Umsóknir ásamt
meðmælum og upplýsingum um fyrri störf sendist fyrir 15. maí n.k. til formanns
félagsins, Jóns Sigurðssonar, Stóra-Fjarðarhorni eða til Kristleifs Jónssonar, Sam-
bandi ísl. samvinnufélaga, sem gefa allar nánari upplýsingar.
Stjórn Kaupfélags Steingrímsfjarðar.