Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 6
0 MORCU1VBLAÐ1Ð Miðvik'udagur 23. apríl 1958 Hulda Emilsdóttir, Baldur Hólmgeirsson, Guðbergur Ó. Guð- jónsson og Sigríöur Guðmundsdóttir í hlutverkum sinum í íyrri þætti. Revían „TuntfHÖ, tuntjlið taktu mitf” Höfundar: Guðmundur Sigúrðsson og Haraldur A. Sigurðsson Leikstjóri: Haraldur Á. Sigurðsson FRIVERZLUNARSVÆÐIÐ OG BREZKA SAMVELDIÐ BREZKA ríkisstjórnin á nú í nokkrum vandræðum í sam- bandi við stefnu sína í verzlun- armálum. Viðræðurnar innan Efnahagssamvinnustofnunar Evr- ópu um stofnun fríverzlunar- svæðis í Vestur-Evrópu ganga fremur hægt. Fyrir nokkru síð- an setti England fram þá ein- dregnu kröfu, að viðræðunum í París yrði lokið fyrir lok júlí- mánaðar. Látið var í það skína, að ef ekki næðist samkomulag fyrir þann tíma, mundi England telja sig laust allra mála og snúa sér að því að hnýta traustari verzlunarsambönd við samveldis- löndin. ★ En aðstaða Englands til þess að snúa sér í verzlunarlegu til- liti að samveldislöndunum, er ekki að öllu leyti eins einföld og virzt gæti. Innan samveldisland- anna eru nefnilega uppi háværar raddir um það, að útilokað sé, að þessi lönd standi sem viðskipta- leg eining og sé eðlilegast að hverju ríki sé frjálst að hafa þau verzlunarsambönd, sem því sjálfu þyki heppilegast vegna fram- leiðslu sinnar eða legu. Af hálfu Nýsjálendinga hefur jafnvel kom ið fram sú krafa að afnumdar séu með öllu þær tollaívilnanir, sem átt hafa sér stað í verzlun Breta við landið. En erfiðleikarnir á að ná sam- komulagi við löndin á megin- landi Evrópu um fríverzlunar- svæðið hafa þó styrkt þann hóp manna innan brezka stjórnar- flokksins, sem ennþá telur að hið eina rétta í verzlunarstefnu Eng- lands sé að leggja megináherzl- unina í samveldislöndin en ekki Evrópumarkaðinn. Sigur Diefen- bakers við kosningarnar í Kan- ada hefur ennfremur styrkt þenn- an hóp innan stjórnarflokksins og gert marga bjartsýnari um ár- angur af samveldisráðstefnunni, sem á að halda í Kanada í septembermánuði, samkvæmt kröfu Diefenbakers. En það sem fyrir Diefenbaker vakir er þó varla hið sama og það sem vakir fyrir þeim mönnum í London, sem trúa á verzlunina við sam- veldislöndin. Aðaltilgangur Dief- enbakers er að losa Kanada við efnahagsleg áhrif frá Bandaríkj- unum. Um það bil 60% af út- flutningi Kanada fer til Banda- ríkjanna og Bandaríkjamenn eiga miklar fúlgur hlutabréfa í næst- um öllum atvinnugreinum Kan- ada. Þá er þess að geta að ákvarð- anir Bandaríkjamanna um verð- lækkun á hveitibirgðum, höft á innflutningi hráolíu og tollahækk anir á málmum og fiski hafa snert efnahag Kanada mjög illa, en fjármál og efnahagsmál Kanada- manna eru mjög tengd hinum bandarísku og hafa verið um langt skeið. Diefenbaker hefur stungið upp á að Kanada flytji um 15% af þeirri verzlun, sem það hefir í Bandaríkjunum til Englands og að öðru leyti eftir nánari við- skiptasamböndum við önnur sam- bandsríki. En jafnframt því sem Kanadamenn vilja taka þessa stefnu, þá hafa þeir nú eftir kosningarnar hafið mikinn áróð- ur undir slagorðunum: „Kaupið fyrst og fremst kanadískar vör- ur“, „Veitið Kanadamönnum vinnu“, en þessi áróður er síður en svo til þess fallinn að auka innflutning á brezkum vörum og gæti komið hart niður á brezkum vefnaðarvöruútflytjendum. ★ Þá er að benda á kröfu Nýsjá- lendinga en þannig er málum háttað að nú njóta brezkar vör- ur tollaívilnunar í Nýja-Sjálandi sem nemur minnst 20%, en sum- ir vöruflokkar svo sem bílar eru í tollflokki, sem er 35% lægri en gagnvart öðrum þjóðum. Nú krefjast hins vegar Nýsjálending ar þess að þessi tollaákvæði verði stórlega lækkuð, þannig að íviln- unin nemi aðeins 7,5% fyrir flest- ar hrávörur og kapitalvörur og 10% fyrir aðrar vörur. Ástæðan til þessarar kröfu Nýsjálendinga er sú, að verðlag á mörgum vörum þeirra, sér í lagi landbúnaðarvörum, hefir á síðasta ári lækkað mjög mikið og haft slæmar afleiðingar fyrir fram leiðendur og ill áhrif á viðskipta- jöfnuð landsins. Nýsjálendingar vilja nú lokka til sín kaupend- ur að útflutningsvörum landsins, sem hafa betri sölumöguleika en Nýsjálendingar. En Nýsjálending ar halda því fram, að Englend- ingar hafi ekki viljað láta und- an sanngjörnum kröfum um liðk- un í verzlunarmálunum af hálfu Englands og það sé þess vegna ekki að vænta þess, að Englend- ingar geti framvegis búið við betri tollakjör á nýsjálenzka markaðinum en aðrir. ★ Þó Englendingar hafi því sett fram þessa kröfu gagnvart Evr- ópuþjóðunum, að þær hafi kom- ið sér saman um fríverzlunar- svæðið fyrir lok júlímánaðar, þá er sú krafa ekki tekin mjög al- varlega vegna þess að allir sjá, að Bretar munu eiga í mjög mikl um erfiðleikum með að koma á nokkru fastari samstöðu við sam- veldislöndin en verið hefur. Á hinn bóginn blasir þó við, að fari svo að ekkert verði úr stofnun fríverzlunarsvæðisins þá getur svo skipazt að neyðin kenni Bret- landi og samveldislöndunum að koma sér betur saman en áður og að það gæti orðið til þess að spilla fyrir því í framtíðinni, að nánari verzlunarsamtök kom- ist á með meginlandsþjóðunum í Evrópu og Bretum, eins og vonir hafa þó staðið til að undanförnu. Strætisvagnaferðir í Kópavogi TRÆTISVAGNAFARÞEGI úr Vesturbænum (í Kópavogi), skrifar: Okkur, sem búum í Kópavogi, finnst, að fyrsta strætisvagna- ferð Kópavogsbílanna á sunnu- dögum sé með nokkuð einkenni- legum hætti. í ferðaáætlun er bara talað um, að vagninn fari frá Reykjavík kl. 10,10. Bílarnir hafa þó sínar bækistöðvar hér í Kópavogi, en þeim er ekki ekið um bæinn fyrst til að taka fólk til Reykjavíkur. Fyrsta ferðin þangað á sunnudagsmorgna er svo seint, að þeir, sem þurfa að fara í vinnu eða ætla í bæinn til að ná í rútubíla hafa ekkert gagn af. Þeir verða að komast í bæinn með miklum kostnaði, því að ekki búa allir við Hafnarfjarðarveg- inn, svo að þeir geti notað bílana frá Landleiðum. Þeir fara þó kl. 10 frá Hafnarfirði Ekki er til mikils mælzt, að bílarnir fari úr Kópavogi kl. 9 á sunnudagsmorgnum. Ekki borg um við svo lítið í strætisvagna- gjald, og barnafargjaldið er hærra í Kópavogi, en gjaldið fyr- ir fullorðna í Reykjavik, því að þar getur fólk farið fyrir eina kr. með því að kaupa kort. í Kópavogi borgar barnið kr. 1,25, — ég miða auðvitað við gjaldið í bæinn, því að það er þangað, sem fólkið á erindi á hverjum degi, Svo eru kvöldferðirnar afskap- HIN nýja revía þeirra Guðmund- ar Sigurðssonar og Haralds Á. Sigurðssonar, „Tunglið, tunglið taktu mig“, gengur nú í Sjálf- stæðishúsinu kvöld eftir kvöld fyrir þéttskipuðu húsi og við mikinn fögnuð og hlátur áhorf- enda. — Það er eðli allra revía að fjalla um það, sem efst er á baugi hverju sinni, bæði úti í hinni víðu veröld og heima fyr- ir og sýna menn og málefni í skoplegu Ijósi og með hæfilegri ádeilu. — Hér hefur það einnig verið gert. Meginefni þessarar revíu eru vitanlega geimferðirn- ar, með Sputnikum og Könnuð- um (Explorers) og svo stjórn- málalífið og helztu stjórnmála- garparnir hér heima. — Af nógu er að taka, enda hefur „tragi- komik“ stjórnmálanna íslenzku sjaldan eða aldrei verið meiri en nú, á þessum síðustu og verstu tímum. Yfirleitt hafa þó lega leiðinlegar hjá okkur. Þá er Vesturbær látinn fara í Austur bæ og öfugt. Maður, sem býr í Vesturbænum, fær þá í rauninni ekki ferð nema á klukkutíma fresti, því að það tekur svo lang- an tíma að keyra um Austurbæ- inn, að menn komast ekkert fyrr heim með því að fara með Aust- urbæjarbílnum en með því að bíða í hálftima niðri í bæ til að taka sinn rétta bíl. Hverfin verða að geta haft sinn bílinn hvort, og fá verður sérstakan bíl í þess- ar leiðindahringferðir. Það eru helmingi fleiri viðkomustaðir í Austurbænum og óþolandi að þurfa að sitja í strætó, meðan þeir eru allir þræddir. Hvers vegna eru tenór- söngvarar orðnir ísienzk „útflutningsvara"? ¥ MORGUNBLAÐINU hafa að undanförnu birzt frásagnir af landa okkar, Magnúsi Jónssyni söngvara, og ágætri túlkun hans á erfiðu hlutverki í Farandsöngv urum Verdis í Konunglega leik- húsinu í Kaupmannahöfn. Vel- vakanda hefur borizt enn eitt viðtal við Magnús, og birtist það í Kaupmannahafnarblaðinu Dag- ens Nyheder á sunnudaginn. Við- talið er alllangt, og er þess ekki kostur að birta hér nema nokkur atriði úr því. Blaðamaðurinn og Magnús ræða um íslenzku söngv- arana við Konunglega leikhúsið, Stefán íslandi og Einar Kristjáns höfundar revíunnar tekið á þess- um málum með græskulausu gamni, og stillt ádeilunni mjög í hóf. Hefði því mátt ætla, að jafnvel þeir stjórnmálamenn eða flokkar, sem mest koma þarna við sögu, gætu tekið því, sem sagt er með góðlátlegu brosi, en önnur hefur þó raunin orðið á. Hefur eitt af stjórnarblöðunum kvartað tvisvar undan meðferð- inni á „sínum mönnum“ í reví- unni og jafnvel komizt að þeirri „vísindalegu" niðurstöðu að 97% af ádeilunni sé beint að vinstri flokkunum. En með hverjum hætti sú útkoma hefur fengizt, skal ósagt látið. Hins vegar bend- ir þessi viðkvæmni blaðsins ótvírætt til þess að margt af því sem sagt er í revíunni hafi ekki misst marks og er það vissulega viðurkenning, sem höfundarnir mega vel við una. Fyrri þáttur revíunnar fer son. Síðan spyr blaðamaðurinn: — Hvers vegna eru tenórar orðnir íslenzk „útflutningsvara"? — Ætli það standi ekki í sam- bandi við loftslagið hjá okkur! — Og líkamsburði íslendmga? — Kannske. Það þarf líka skrokk í þetta! En flestir íslend- ingar leggja einnig sálina í verk sín. — Sunguð þér óskahlutverk yðar í II trovatore? — Nei, eiginlega ekki. Það er í Bohéme, og ég hef sungið það heima í Reykjavík. En e. t. v. er röddin að þróast svolítið frá hinu lyriska og verða meira drama- tísk. Það er eins og hún sé dá- lítið breiðari núna. — Hve lengi er tenórsöngvari í framför? — Ég hugsa að það sé þar til hann er 35 ára. — Og hve lengi getur hann sungið? — Það er svo misjafnt. Ég hugsa, að allir tenórar geti sungið þar til þeir eru 55— 60 ára. Það er að segja, ef menn gæta radd- arinnar. — Hvernig gera þeir það? — Með því að gæta sjálfra sín, sofa nóg. — Og reykja ekki? — Ég veit ekki, hvaða þýðingu tóbakið hefur. Sjálfur reyki ég aðeins svolitla tóbakspípu ein- staka sinnum — og vindil ef ég hef borðað eitthvað sérstaklega gott. ' fram á stjórnarskrifstofu I Reykjavík og stendur þar mikið til, því að von er þar á nýjum ráðherra. — Það verður heldur enginn fyrir vonbrigðum þegar hann birtist ásamt konu sinni og einkadóttir, enda er maðurinn engin smásmíði (Haraldur Á, Sigurðsson) og ber hið tilkomu- mikla nafn Mörundur Kálfdán- arson. Þá er kona hans, Tannveig Gísladóttir (Steinunn Bjarnadótt ir) enginn eftirbátur maka síns, kjarnyrt og aðsópsmikil sem hún er. Og dóttir þeirra, Jónína Þor- björg (Hanna Bjarnadóttir) sannar regluna að fé er jafnan fóstri líkt. Þessi nýi ráðherra á að annast nýlendumálin og er því ekkert eðlilegra en að flug- stjórarnir á Explorer og Spútnik 3. bjóði honum og fjölskyldu hans í ferð með sér til tunglsins. — Og þar gerist síðari þáttur revíunnar. — Þar býður æðsti- bróðirinn Plánetus (Lárus Ingólfs son) hina „góðu gesti“ velkomna og er þeim tekið með söng og fögrum dansi mánameyjanna. Spyrjast mánabúar almæltra tíð- inda frá jörðinni og gefur ráð- herrann góð og greið svör eink- um um stjórnmálalífið á íslandi og helztu forustumennina. — Kehnir þar margra grasa. — Fell- ur mjög vel á með gestunum og mánabúum, en of langt mál yrði að rekja þau viðskipti frekar. Revía þessi er að mörgu leyti skemmtileg, meginefnið „aktuelt" og margir snjallir „brandarar“ fjúka þar óspart. Það er alltaf jafngaman að sjá Harald Á. Sigurðsson á svið- inu og leikur og gervi Steinunn- ar Bjarnadóttur er hvort tveggja bráðskemmtilegt. Baldur Hólm- geirsson, er leikur stjórnarráðs- fullrúann í fyrra þætti og Venus Vagn í tunglinu, fer prýðilega með hlutverk sín og syngur vel og skemmtilega. Þá er og eftir- herma Karls Guðmundssonar nú sem áður bráðsnjöll. — Dans- ana hefur Snjólaug Eiríksdóttir samið og æft og hefur henni tekizt það mjög vel. Hanna Bjarnadóttir hefur ágæta söng- rödd, sem hún beitir af kunn- áttu, og „dúett“ þeirra Sigríðar Guðmundsdóttur og Huldu Emils dóttur er einkar góður. — Þá er Frh. á bls. 19. Henfur fermingargjöf UM þetta leyti árs leita margir að hentugum gjöfum handa ungu fólki. Börnin eru að fermast og þeim eru gefnar gjafir í tilefni af þessum tímamótum. Ferming- argjafir þurfa að vera snotrar og helzt líka gagnlegar, og þær mega ekki vera svo dýrar, að til- finnanlegt verði fyrir gefandann. Um þetta leyti árs er líka að vora. Sólin hækkar á lofti og veðrið hlýnar, og ungir og gamlir njóta þess að vera úti. Jörðin grænkar, og skammt er þangað til að fyrstu blómin springa út. Það eru tímamót í ríki gróðurs- ins. En hver eru þessi grænu grös og þessi allavega litu blóm, sem alls staðar gleðja augu vegfar- andans? Hvað skyldu þau heita og hvernig er hægt að þekkja þau í sundur? — Þetta er allt hægt að sjá í bókinni, Flóru íslands, eftir Stefán Stefánsson. Flóra íslands er hin ákjósan- legasta fermingargjöf. Enga bók er hentugra að hafa með út í sveitina á sumrin, hvort sem er til lengri eða skemmri dvalar. Og engin dægrastytting er holl- ari og betri fyrir ungt fólk á frídögum sínum en að taka Flóru íslands með sér út í hagann, út úr skarkala bæjanna og borg- anna, og kynnast af eigin rauu gróðurríki Islands. Vinir og vandamenn þeirra unglinga, sem eru á fermingar- aldri, ættu því að athuga, hvort rétta gjöfin sé ekki einmitt Flóra íslands. Hið íslenzka náttúrufræðifélag shrifar úr daglega lífinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.