Morgunblaðið - 23.04.1958, Page 2
2
MORCUNBT.4Ð1B
Miðvik'udagur 23. apríl 1958
Hátíðahöld úti og inni lyrir
börnin á vegum „Sumargjaiar
ti
FRÉTTAMENN áttu í gær viðtal
við formann Barnavinafélagsins
Sumargjafar, Pál S. Pálsson,
ásamt stjórn félagsins, en það er
nú að undirbúa hátíðahöld sum-
ardagsins fyrsta sem er á morg-
un. Félagið hefur um langt ára-
bil staðið fyrir hátíðahöldum
fyrir börnin þennan dag og mun
svo verða enn. Þennan dag verð-
ur bókin Sólskin seld á götum
bæjarins og kostar hún 15 kr.
Einnig blað félagsins sem heitir
„Sumardagurinn fyrsti“ og merki
þess. Blaðið og merkin kosta 5
krónur.
Það er 29. árgangur Sólskin
sem út kemur nú. Að þessu sinni
hefur Fóstruskóli Sumargjafar
séð um útgáfuna og er það í
fyrsta skipti. Aðalstjórn um út-
gáfu bókarinnar hefur haft Val-
borg Sigurðardóttir, en nemandi
skólans Þrúður Kristjánsdóttir,
hefur gert teikningar í hana og
einnig í blaðið „Sumardagurinn
fyrsti“.
Blaðið skýrir frá starfsemi fé-
lagsins og flytur einnig margvís-
legt efni. Forystugreinina hefur
Halldór Kiljan Laxness slrrifað
og heitir hún „Lóan“. Þá er í
blaðinu prentað lag og ljóð sem
heitir „Sumarkveðja til íslenzkra
barna“. Ljóðið er eftir Sigurð
Einarsson en lagið eftir Jón Þór-
arinsson. Félaginu barst einnlg
annað lag við sama ljóð, eftir
Sigfús Halldórsson, tileinkað
barnadeginum, og verður það gef
ið út sérprentað innan skarams.
Afhending merkja, bókarinnar
og blaðsins
Bókin „Sólskin" og blaðið,
verða afgreidd til sölu í dag, frá
íslenzk kona kynnir
sér hreinsun
málverka
KONA ein hér í bæ, frú Kristín
Guðmundsdóttir, húsvörður við
Bæjarbókasafnið, hefur að und-
anförnu aflað sér nokkurrar þekk
ingar á því, hvernig hreinsa skuli
gömul málverk. Fór hún m. a.
út til Kaupmannahafnar sl. sum
ar og fékk aðstöðu til að kynna
sér þessar aðferðir við eitt af
stærstu málverkasöfnum Dan-
merkur. Getur hún þó ekki sagt,
við hvaða safn þetta var, því að
yfirleitt þarf margra ára nám í
viðgerðum og viðhaldi á mál-
verkum, sem er líka miklu víð-
tækara en hreinsunin ein — en
af sérstakri góðvild safnstjórn-
enda, fékk frúin tækifæri til að
kynnast hreinsunaraðferðum á
um tvegja mánaða tímabili. sem
hún dvaldist erlendis.
Eins og öllum málverkaeigend
um er kunnugt, setjast óhreinindi
smám saman á olíumálverk, svo
þau verða æ dekkri með aldiin-
um. Einkum fer sígarettureykur
illa með þau. Hér á landi hefur
verið ö'rðugt að fá málverkin
hreinsuð á réttan hátt. Oft
reynir fólk jafnvel að þvo mál-
verk með sápuvatn, en slíkt hef-
ur hin skaðvænlegustu áhrif á
olíumálningu. Hreinsun málverka
er mikið vandaverk, því að gæta
verður þess að það séu aðeins
óhreinindin sem hverfa, en að
sjálft málverkið verði ekki fyrir
neinum skemmdum, sagði frúin.
Sýndi hún blaðamanni Mbl. eina
danska mynd, sem hún er nú
hálfnuð með að hreinsa fyrir
embættismann einn hér í bæn-
um. Þetta var landslagsmynd, af
skógarlundum, og var munurinn
svo mikill á því sem no fði verið
hreinsað og á hinu, sem ekki var
búið að hreinsa, að svo virtist,
sem annar helmingur myndar-
innar væri málaður að degi en
hinn að nóttu. Kvað frúin p&S
taka um fjóra daga að hreinsa
slíka mynd.
kl. 1 e.h. á eftirtöldum stöðum:
í skúr við Útvegsbankann, í
Grænuborg, Barónsborg, Steina-
hlíð, Brákarborg, Drafnarborg,
Vesturborg, Lauféisborg og and-
dyri Melaskólans.
Merki dagsins verða afgreidd á
sömu stöðum eftir kl. 4 í dag
og merkin, blaðið og bókin einnig
á morgun frá kl. 9 fyrir hádegi
á sömu stöðum. Merkin má þó
ekki selja á götunum fyrr en á
morgun. Eru foreldrar beðnir að
klæða börn sín vel áður en þau
hefja söluna.
Svo sem að venju, verða mikil
hátíðahöld í bænum í tilefni dags
ins, fyrir börnin. Þá verða einnig
inniskemmtanir fyrir yngri og
eldri börn í kvikmyndahúsum og
samkomuhúsum bæjarins. Verð-
ur dagskráin sem hér segir:
KL. 12.45 hefjast skrúðgöngur
barna frá Austurbæjarskólanum
og Melaskólanum að Lækjartorgi.
Leika lúðrasveitir fyrir. Skrúð-
göngurnar nema staðar í Lækjar
götu kl. 1,30 pg þar flytur form.
Sumargjafar Páll S. Pálsson
ávarp, lúðrasveit leikur sumar-
lög, skemmtiþáttur verður flutt-
ur og almennur söngur með und
irleik lúðrasveitar.
Fyrir yngri börnin hefjast
kvikmyndasýningar í Nýja-,
Gamla- og Stjörnubíói kl. 1,30.
Aðrar barnaskemmtanir eru í
Góðtemplarahúsinu kl. 1.45, þar
sem börn úr Melaskólanum ann-
ast skemmtiariðin ásamt yngri
nemendum Tónlistarskólans og
nemum í dansskóla Rigmor Han-
son.
í Iðnó kl. 2, þar sem Fóstra fél.
faglærðra kvenna á heimilum
'Sumargjafar annast skemmtun-
ina. Er hún ætluð börnum 2—7
ára.
Hafnarslarfsmaður
fólbrofnar í Magna
SÍÐDEGIS í fyrradag varð slys
hér í Reykjavíkurhöfn. Starfs-
maður hafnarinnar, Sverrir Ax-
elsson, Nökkvavogi 33, vélstjóri
á hafnsögubáti, fótbrotnaði mjög
illa. —
Sverrir var að fara með mæli-
tæki um borð í dráttarbátinn
Magna, en hann lá utan á Goða-
fossi. Var Sverrir efst í stiga sem
lá niður með hlið Goðafoss og
niður í Magna, er hann allt í
einu missti fótanna og féll aftur
yfir sig. Svo hátt var fallið,
sennilega einir 5 metrar, að
Sverrir snerist heilhring í loft-
inu, og er hann kom niður á
þilfar Magna, kom hann á báða
fætur. Við fallið hælbrotnaði
hann á báðum fótum og hlaut
ýmsar aðrar skrámur. Liggur
Sverrir nú í hinu slæma fót-
broti vestur á Landakotsspítala.
Samkoirta
Breiðfirðingafél.
É kvoid
f Austurbæjarbíói kl. 3, þar
sem börn úr Austurbæjarskóla
(9 ára) annast skemmtiatriði auk
nema í Tónlistarskólanum.
í Trípólíbíói kl. 3, þar sem
lúðrasveit drengjaleikur ogbrúðu
leikhúsið sýnir m. a.
í Iðnó kl. 4, þar sem yngri
nemar Tónlistarskólans skemmta
auk nema í Austurbæjarskólan-
um.
Leiksýning verður kl. 8 í Iðnó
og sýnd Draugalestiw. — Kvik-
myndasýningar verða kl. 5 í Nýja
bíói, kl. 5 og 9 í Gamla bíói,
kl. 5 og 9 í Hafnarbíói, kl. 5 og
9 í Stjörnuubíói og kl. 5 og 9 í
Austurbæjarbíói. — Dansleikur
verður í Alþýðuhúsinu um
kvöldið.
Aðgöngumiðar að barnaskemmt-
ununum og kvikmyndasýning-
um yngri barna í Nýja bíói, Gamla
bíói og Stjörnubíói verða seldir í
Listamannaskálanum frá kl. 5—
7 síðasta vetrardag (í dág). —
Aðgöngumiðar að barnaskemmt-
unum kosta kr. 10 og að kvik-
myndasýningum yngri barna kr.
8,00.
Vildu ekki frekari
umræður
BREIÐFIRÐINGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík gengst fyrir fjöl-
breyttri skemmtisamkomu í
Breiðfirðingabúð að kvöldi síð-
asta vetrardags hinn 23. apríl. —
Félagið vinnur að ýmisskonar
menningarmálum í sambandi við
breiðfirzkar byggðir. Eitt aðal-
áhugamál þess nú er að efla björg
unarskútusjóð Breiðfirðinga, og
mun allur ágóði af skemmtun
þessari lagður í þann sjóð. Sömu
leiðis gjafir er félagsmenn eða
aðrir áhugamenn í þessum mál-
um vildu leggja fram þennan
dag. Ákveðið er að helga þessu
málefni framvegis það sem unnt
yrði að gera til fjársöfnunar hinn
síðasta vetrardag.
Aðalstjórn félagsins skipa nú
Árelíus Níelsson, formaður, Al-
fons Oddsson gjaldkeri og Erling
-ur Hansson ritari.
NEW YORK, 22. apríl. — Full-
trúi Ráðstjórnarinnar í öryggis-
ráðinu dró í gærkvöldi til baka
ákæruna á hendur Bandaríkjun-
um um að flugvélar þeirra flygju
með kjarnorkusprengjur í áttina
að landamærum Rússlands, er
öryggisráðið hafði gert Rússum
ljóst, að það mundi vísa á bug
tillögu þeirra um að ráðið skor-
aði á Bandaríkin að hætta slík-
um ógnunum við Rússland. —
Vildu Rússar þá ekki frekari um-
ræður um málið.
Bílar fari ekki um
Almannagjá
LÖGÐ hefur verið fram á AI-
þingi þingsályktunartillaga um
að fela Þingvallanefnd að láta
hætta allri bílaumferð um veg-
inn eftir Almannagjá og leggja
nýjan bílveg, er eigi liggi gegn
um gjána.
í greinargerð segir m. a.:
Það er brýn nauðsyn að láta
hætta allri bílaumferð gegnum
Almannagjá, ef sá staður á að
vera raunverulega friðlýstur. Nú
er svo komið, að illverandi er
fyrir fólk í gjánni sakir bílaum-
ferðar og þess ryks og ókyrrðar,
sem af umferðinni stafar. Og ekki
er ólíklegt, að umferð hinna
þungu farartækja, sem sífellt
verða fyrirferðarmeiri, valdi auk
inni hættu á hruni úr gjárbarm-
inum, — og með tímanum gref-
ur rykið, sem upp er þyrlað, búða
rústirnar, ef þannig er haldið
áfram.
Almannagjá á að vera friðaður
reitur, þar sem menn fara um fót
gangandi, þar sem blóm og grös
fá að vaxa í næði og þar sem fólk
getur verið í friði við minjarnar
um forna tíma og sérkennilega
náttúrufegurð staðarins. Frekar
mætti prýða gjána villtum blóm-
um, án þess að fara samt að búa
þar til nokkra blómareiti, í stað
þess að ausa hana svo ryki sem
nú er gert með bílaumferðinni.
Auðvelt er að tryggja betri
samgöngur en nú eru í gegnum
Almannagjá með vegarlagningu
til Valhallar af vegum þeim, sem
nú liggja niður frá þjóðveginum
fyrir neðan Kárastaði.
Flutningsmenn tillögunnar eru
Einar Olgeirsson, Eggert Þor-
steinsson, Sigurður Ó. Ólafsson,
Ágúst Þorvaldsson, Sveinbjörn
Högnason, Bjarni Benediktsson,
Jóhann Jósefsson, Finnbogi R.
j Valdimarsson og Friðjón Skarp-
1 héðinsson.
S.I. laugardagskvöld var Róbert Arnfinnssyni fyrstum íslenzkra
leikara afhent peningaupphæð, kr. 8,000 úr Menningarsjóði Þjóð-
leikhússins. Er upphæðin ætluð til utanfarar leikarans. Mynd-
in er frá afhendingunni.
Fréttabréf úr Skagafirði:
Karlakórinn Heimir 30 óra
ÞANN 28. marz s.l. minntist
Karlakórinn Heimir í Skagafirði
30 ára afmælis síns með hófi í
samkomuhúsinu Bitröst á Sauðár
króki. Var þar margt manna
saman komið. Jón Björnsson
bóndi og söngstjóri á Hafsteins-
stöðum flutti aðalræðuna og
rakti sögu félagsins. Fleiri ræð-
ur voru fluttar þar á meðal flutti
Sigurður Sigurðsson sýslumaður
kórnum þakkir frá sýslubúum
fyrir störf hans. Þá var sýnd
kvikmynd. Á milli sungu einsöng
Steinbjörn Jónsson Hafsteins-
stöðum og Árni Kristjánsson
Hofi. Þar næst var kórsöngur
Karlakórsins Heimis. Hófst hann
með því að kórinn söng afmælis-
ljóð er Gunnar bóndi Einarsson
á Bergskála hafði ort til kórsins
undir nýju lagi eftir söngstjórann
Jón- Björnsson. Að lokum var stig
inn dans. Hófið fór virðulega
fram og var til ánægju þeim er
það sátu.
Stofnfundur Heimis var hald-
inn að Húsey í Vallhólmi 2. des.
1927 með 10 þátttakendum. —
Þetta var þó ekki fyrsta söng-
félagið í sveitum Skagafjarðar.
Fyrirrennari þess var Bændakór-
Suiuarfagnaði
frestað
FORMAÐUR Stúdentafélags
Reykjavíkur hefur beðið blaðið
að geta þess að sumarfagnaði
stúdenta hafi verið frestað til 31.
þessa mánaðar og verður hann
haldinn að Hótel Borg.
Með góðan afla
af Grænlandsmiðum
PATREKSFIRÐI, 22. apríl. —
j Eftir tólf daga útivist er togar-
inn Gylfi væntanlegur inn í dag
vestan af Grænlandsmiðum, með
ágætan afla, 360—380 tonn, þar
af er um 160 tonn af stórþorskí,
en hitt er karfi.
Togarinn landar þorskinum á
Ísafirði og þaðan verður hann
fluttur til vinnslu hjá Einari Guð
finnssyni útgcrðarmanni í Bol-
ungarvík. Karfinn verður allur
tekinn hér til vinnslu. Vegna
fólkseklu er ekki hægt að taka
meiri fisk til vinnslu hér, því að
um vikulokin er væntanlegur í
kjölfar Gylfa, togarinn Ólafur
Jóhannesson, einnig af Græn-
landsmiðum, og mun hann vera
með svipað aflamagn.
Hér er rigning og suðvestan
stormur í dag. Vegir hafa nú ver-
ið ruddir norður til Tálknafjarð-
ar og inn á Strönd, yfir Kleifar-
heiðina. Vegir eru illfærir vegna
j aurbleytu. — Karl.
inn stofnaður í janúar 1917 af 9
bændum og bændasonum, úrvals
söngmönnum er voru dreifðir um
nokkra hreppa “sýslunnar. Bænda
kórinn starfaði á árunum
1917—1925, en hætti þá störfum,
höfðu þá dauðsföll og búferla-
flutningar höggvið tilfinnanleg
skörð í raðir söngflokksins.
Minningin um Bændakórinn og
hrifningin af söng hans lifir enn
í hugum eldra fólks í Skagafirði.
stofnun Heimis voru gamlir fé-
Stofnendur og hvatamenn að
stofnun Heimis voru gajnlir fé-
lagar úr Bændakórnum, og ungir
og upprennandi bændur og
bændasynir. Félagið hefir nú
starfað óslitið í 30 ár. Er það út
af fyrir sig þrekvirki að halda
uppi tímafrekum söngæfingum
í öll þessi ár, þar sem þátttak-
endur hafa oft verið búsettir í
5—6 hreppum sýslunnar. Flestir
eru bændur, sem ekki hafa ann-
an tíma aflögu til söngæfinga en
kvöldin og fyrri hluta nætur,
eftir að þeir hafa lokið bústörf-
um á heimilum sínum. Svefntím-
inn verður því stuttur þær næt-
ur er söngæfingar fara fram.
Söngstjóri Heimis nær allt
þetta tímabil hefir verið og er
enn Jón Björnsson bóndi á Haf-
steinsstöðum, sem hefir rækt
þetta starf af einstökum áhuga
og fórnfýsi.
Vert er áð geta þess að þrátt
fyrir erfiðar aðstæður sem greint
hefir verið frá, hafa þrír af stofn-
endum Heimis verið starfandi
félagsmenn öll þessi ár, þeir
Björn Ólafsson bóndi Kristhóli,
Halldór Benediktsson bóndi
Fjalli, og söngstjórinn Jón
Björnsson.
Á þessum 30 árum hefir Heim-
ir haldið samtals 114 opinberar
söngskemmtanir innan héraðs og
utan. Auk þess hefir kórinn
sungið á hérðassamkomum og
við fjölmörg önnur tækifæri í
héraðinu. Heimir hefir á þessum
þremur áratugum unnið merki-
legt menningarstarf í sveitum
Skagafjarðar. Hann hefir með
söng sínum oft átt sinn þátt í
að móta mannfundi í héraðinu
og gera þá hátíðlegri en ella hefði
orðið, auk ánægjunnar sem
söngur Heimis hefir veitt fjölda
manna, öll þessi ár.
Frá Alþingi
Á FUNDI sameinaðs þings kl
1,30 í dag eru fjárlögin fyrir 195í
á dagskrá svo og þessar fyrir
spurnir: Gjaldeyrisafkoma. Hæl
Náttúrulækningafélagsins. Bisk
upsstóll í Skálholti. Félagslegt ör
yggi. Atómvísindastofnun Norð
urlanda. Jafnlaunanéfnd. Söng
kennsla. Skipakaup frá Noregi
Óþurrkalán. Brotajárn. Heymjöl
verksmiðja. Glímukennsla. Flóa
báturinn Baldur. Vegakerfi i
, Þingvöllum