Morgunblaðið - 23.04.1958, Síða 3

Morgunblaðið - 23.04.1958, Síða 3
0 Miðvikudagur 23. apríl 1958 MORGin\IJLAÐ1Ð Stjórnarfrumvarp um eftirlit með ríkisrekstrinum: Engin bótaðfrumvarpinu óbreyttu Sjálfstæðismenn bera fram breyting- artillögur STJÓRNARFRUMVARPH) um „ráðstafanir til að draga úr kostn aði við rekstur rikisins" var til 2. umr. á fundi neðri deildar Al- þingis í gær. Fyrir lá álit fjár- hagsnefndar deildarinnar. Meiri hluti nefndarinnar lagði til, að frumv. yrði samþykkt, en Sjálf- stæðismennirnir í nefndinni greiddu ekki atkvæði um málið. Báru þeir fram breytingartillög- ur, sem m.a. gera ráð fyrir, að Alþingi skuli kjósa 3 manna nefnd til að vinna að ráðstöfun- um til að draga úr kostnaði við rikisreksturinn og hafa hönd í bagga með skiptingu fjár, sem veitt er í einu lagi á fjárlögum til meiri háttar verka. Einar Olgeirsson skrifaði undir nefndarálitið með fyrirvara. Miklar umræður urðu á þingfund inum í gær, og verða nokkur helztu atriði þeirra rakin hér á eftir: Efni frumvarpsins Skúli Guðmundsson (fram sögum. nefndarinnar): Frum- varp þetta er stjórnafrumvarp og hefur áður verið samþykkt í efri deild. Meginefni þess er það, að 3 trúnaðarmenn: ráðuneytisstjór- inn í fjármáíaráðuneytinu, einn maður tilnefndur af fjárveitinga stafanir til að draga úr rekstrar- kostnaði ríkisins. Þá má skv. frumv. ekki fjölga starfsliði við ríkisstofnanir eða annars staðar í ríkisrekstrinum eða setja á fót nýja ríkisstofnun, nema leitað hafi verið tillagna trúnaðar- manna. Tillagna skal einnig leitað, áður en ráðizt er í að auka hús- næði, kaupa bifreið eða gera aðrar slíkar ráðstafanir. Tillög- urnar binda ekki ráðherra, en sé ekki eftir þeim farið, skal hann senda fjárveitinganefnd rök- studda greinargerð. Það er að vísu ekki unnt að fullyrða fyrirfram, hver árangur verður af ráðstöfunum þessum, en sjálfsagt tel ég að gera þessa tilraun. Fjárhagsnefnd hefur haft til meðferðar frumv. Jóns Pálmasonar um ráðstafanir gegn ofeyðslu. Hefur hún orðið sam- mála um afgreiðslu þess, þótt nefndarálitið liggi ekki enn fyrir prentað. Breytingatillögur Sjálfstæðismanna Jóhann Hafstein: Hér er verið að glíma við tvíþætt vandamál: 1) Auka þarf almennan sparn- að og auka hagkvæmni í ríkis- rekstrinum. 2) Sjá þarf til þess, að farið sé Hvorugt frumv. leysir hér all- an vanda, og það verður ekki heldur gert með því að samræma hugmyndirnar, sem í þeim koma. Þó höfum við Sjálfstæðismenn- irnir í fjárhagsnefnd reynt að gera það í breytingatill. okkar, þar sem við teljum, að það sé bezt eins og nú stendur á. Ríkisrekstur hér á landi hefur vaxið mikið, eftir því sem tímar hafa liðið, en vöxturinn hefur nefnd Alþingis til eins árs i senn og einn maður tilnefndur af ríkis-j eftir þeim fyrirmælum, sem Al- stjórninni í heild til jafnlangs i þingi hefur gefið með setningu tíma, skuli gera tillögur um ráð- I fjárlaga. Aðolhudiu Fulltrúaróðs Sjúlf- stæðisfélaganna í Árnessýslu LAUGARDAGINN 12. apríl sl. var aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Árnessýslu haldinn i Selfossbíói. Á fundin- um fóru fram venjuleg aðalfund- arstörf. Fundarstjóri var Einar Gestsson, bóndi á Hæli, og fund- arritari Ásgeir Eiríksson, kaupm., Stokkseyri. Formaður fulltrúaráðsins, Gunn- ar Sigurðsson bóndi í Seljatungu, gerði grein fyrir starfsemi full- trúaráðsms, en síðan var kosið í fulltrúaráðið til næsta aðalfund- ar. Eiga sæti í því 56 menn og auk þess stjórn félags ungra Sjálfstæðismanna í sýslunni. Þá fór fram kjör stjórnar, og var Gunnar Sigurðsson endurkjörinn formaður, en aðrir í stjórninni eru: Einar Pálsson, bankastjóri, Selfossi; Grímur Ögmundsson, bóndi, Reykjum; séra Sigurður Pálsson, sóknarprestur, Selfossi; Ólafur Steinsson, garðyrkjubóndi, Hveragerði; Sigmundur Sigurðs- son, bóndi, Syðra-Langholti, og Oddgeir Ottesen, sveitastjóri, Hveragerði. — Varastjórn: Séra Gunnar Jóhannesson, Skarði; dr. Sveinn Þórðarson, Laugarvatni, og séra Sveinbjörn Sveinbjörns- son, Hruna. Þá voru kosnir fulltrúa á 13. landsfund Sjálfstæðisflokksins fyrir þá hreppa, þar sem flokks- félög starfa ekki, en flokksfélög- in velja fulltrúa fyrir sitt starfs- svæði og hafa sum þegar lokið fulltrúakjör. Að þessu loknu hófust umræð- ur um væntanlegar búnaðarþings kosningar, og hafði Sigmundur Sigurðsson, búnaðarþingsfulltrúi, framsögu. Urðu miklar umræður um málið, og var að lokum sam- þykkt tillaga um kosningu fimm manna nefndar, er hafi það verk- efni, að gangast fyrir undirbún- ingi búnaðarþingskosninganna. Eftir kaffihlé, er gjört var á fundinum, flutti Magnús Jónsson, framkv.stj. Sjálfstæðisflokksins, ræðu um stjórnmálaviðhorfið og horfurnar í efnahagsmálum. Var ræða Magnúsar hin skilmerkileg- asta og þótti fundarmönnum þar margt fróðlegt fram koma. Að ræðunni lokinni voru rædd ýmis mál, er fram komu, og urðu t.d. miklar umræður um héraðs- mál. Þessir fundarmenn tóku til máls: Gunnar Sigurðsson; Jón Gunnlaugsson; Einar Gestsson; Vigfús Einarsson; Jón Pálsson; Erlendur Jóhannsson; Gunnar Jóhannesson; Pétur Guðmunds- son; Skúli B. Ágústsson; Ingi- leifur Jónsson, og Sigurbjörn Ein arsson. verið óskipulegur, og er þess vafa laust þörf að rannsaka ýmslegt, er hann varðar. Efni breytingatillagna þeirra, sem við Ólafur Björnsson höfum borið fram, er þetta: Tekið verði skýrt fram, við hvaða ríkisstarfsemi er átt í frumv. Komið hefur fram, að stjórnin ætlazt til, að það taki til þess rekstrar, sem á fjárlögum greinir. Deila má um, hversu heppilegt það er, en við höfum þó lagt til, að skýrt ákvæði þar að lútandi verði tekið í lögin. Þá leggjum við til, að breytt verði skipan nefndar þeirrar, sem hafi með höndum eftirlit skv. frumvarpinu. Þykir okkur óeðli- legt, að nefndin verði skipuð trúnaðarmönnum stjórnarliðsins á hverjum tíma, eins og lagt er til með frumv. Á það sérstaklega illa við, ef nenfdinni verður falið að hafa hemil á umframgreiðsl- um. Því höfum við lagt til, að kosin verði á Alþingi 3 manna nefnd sem skal einkum leggja áherzlu á eftirfarandi: — að gera tillögur um og stuðla að því á annan hátt, að tekin séu upp hagfelldari vinnubrögð í rík- isstofnunum til að spara manna- hald og annan rekstrarkostnað. — að hafa eftirlit með því, að rikisfé sé ekki eytt umfram það, sem í fjárlögum er ákveðið og óhjákvæmilegt reynist. Ber að leita umsagnar nefndarinnar um Framh. á bls. 19 STAKSTEIIVAR Neyðaróp vir.stari stjórnarinnar Þórður Guðmundsson skipsíjóri.g> Akraborg var veðurteppt aðeins einn dag á árinu Þórður skipstjóri hefur flutt 300,000 farþega Undanfarna mánuði hefur ís- lenzkt fólk verið vitni að meirl j upplausn, úrræðaleysi og sundur- þykkju meðal stjórnenda lands- ins en nokkru sinni fyrr. Stjórn- arflokkarnir hafa borið hver aðra herfilegustu brigzlum. Kommún- istar hafa sagt Alþýðuflokkinn og Framsókn sitja á svikráðum við verkalýðinn með gengislækk unaráform. Framsókn og kratar hafa hins vegar sagt að „stöðvun- arleið“ kommúnista hafi gengið sér til húðar og muni ekki stöðva verðbólguna heldur allan heilbrigðan atvinnurekstur í landinu. Loks hefur Alþýðuflokk urinn lýst því yfir að sú stefna sem vinstri stjórnin hefur fylgt í efnahagsmálum síðan hún kom til valda hljóta að leiða til ríkis- gjaldþrots ef vel fiskist eða gras spretta verði góð á komandi sumri. Þegar þannig er komið rekur vinstri stjórnin upp neyðaróp og krefst þess að Sjálfstæðismenn leggi henni ráð til þess að sigrast á þeim vandræðum, sem stjórn- arstefnan hefur leitt yfir íslenzk- an almenning og atvinnulíf. BORGARNESI, 22. apríl: — Á aðalfundi Skallagríms hf., en það félag á farþega- og vöruflutninga skipið Akraborg. kom fram að á síðasta ári hafði skipið orðið að halda kyrru fyrir í höfn vegna veðurs einn einasta dag. Far- þegar, sem með skipinu ferðuð- ust voru alls 41,102. Akraborg var í ferðum 351 dag á árinu og kom við 970 sinnum á Akranesi og 252 sinnum í Borg arnesi. Voru Akranesfarþegar 32,316, en Borgarnesfarþegar ^6264. Þá var skipið í skemmti- siglingum nokkrum sinnum, full- skipað. Þá daga, sem skipið ekki var í förum, voru stórhátíðisdag- ar eða skipið þurfti að fara í slipp til botnhreinsunar og eftir lits. Akraborg flutti alls um 2000 tonn af vörum og voru þær að lang- „Saratöb um vestræna samvinnu" stoínuð i Reykjavík EINS og skýrt var frá í frétt- um ekki alls fyrir löngu, hefur um nokkurt skeið verið í undir- búningi stofnun íslenzkrar deld- ar í „Atlantic Treaty Associ- ation“ (A.T.A.), en það eru al- þjóðasamtök áhugamanna um At lantshafsbandalagið. Eru hlið- stæð félög starfandi í langlestum NATO-ríkjum. Undirbúningsnefndin boðaði til stofnfundar í Þjóðleikhúskjallar- anum á laugardaginn, og var þar endanlega gengið frá stofnun íslenzku deildarinnar, sem hefur hlotið nafnið „Samtök um vest- ræna samvinnu" (S.V.S.). Eru samtökin opin öllum þeim, sem styðja Atlantshafsbandalagið í orði og verki og stuðla vilja að aukinni samvinnu vestrænna þjóða á öllum sviðum ekki sízt í menningarmálum. Á stofnfundinum á laugardag- inn var dr. Jóhannes Nordal fundarstjóri. Formaður undir- búningsnefndar, Pétur Benedikts son bankastjóri, gerði í upphafi grein fyrir eðli og tilgangi sam- takanna og benti á nokkur verk- efni sem nú lægju fyrir þeim. Samtökin eiga t. d. aðild að al- þjóðlegri samkeppni um ritsmíð- ar, bæði blaðagreinar og skáld- verk, og verða veitt sérstök ís- lenzk verðlaun í báðum flokk- um. Þá skýrði Pétur Benedikts- son frá því að næsta verkefni samtakanna væri að gangast fyr- ir fyrirlestrum tveggja brezkra þingmanna, sem kæmu til íslands í vikunni og mun þeir tala á veg- um samtakanna í fyrstu kennslu- stofu Háskólans kl. 6 á föstudags- kvöld. Að ræðu formanrvs lokinni voru lesin upp drög að lögum fyrir samtökin, sem undirbnún- ingsnefndin hafði gengið frá, og voru þau samþykkt. Því næst var gengið til stjórnarkosningar. Pétur Benediktsson var einróma kjörinn formaður, en í stjórninni eiga ennfremur sæti Þórarinn Þórarinsson ritstjóri, Sigurður A. Magmússon blaðamaður, Lúðvík Gizurarson stud. jur., Ásgeir Pét- ursson fulltrúi, Kristján Bene- diktsson kennari og Sigvaldi Hálmarsson fréttastjóri. Formað- urinn sagði nokkur orð í fundar- lok og sleit síðan stofnfundinum. mestu leyti til Borgarness, en áburðarflutningar þangað námu um 1000 tonnum. Þórður Guðmundsson hefur sem kunnugt er verið með Akra borg, en hann var þar áður skip stjóri á Laxfossi. Hinn 14. júlí sl. hafði Þórður alls flutt á milli á þessum tveim skipum 300,000 manns! í stjórn Skallagríms hf., eiga sæti Sverrir Gíslason, Hvammi, Þórður Pálmason kaupfélagsstj. Borgarnesi, Hálfdán Sveinsson, Akranesi og Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar. Áfmælisrif skóg- rækfarinnar með enskri viðbóf RITIÐ, sem út var gefið á 50 ára afmæli skógræktarinnar „Lög um skógrækt 50 ára“, í nóvember- mánuði sl. hefur nú komið út 1 nýrri útgáfu. Nokkuð af upplag- inu er með enskri þýðingu. Þessi enski útdráttur um skógrækt hér á landi, heitir: „Icelandic fores- try Legislation, 50 years anni- versary", í þessum enska kafla er og einn kafli sem ekki er í hinum íslenzka og sá fjallar um almenn skilyrði til skógræktar hér á landi. Með þessu mun hafa vakað fyrir Hákoni Bjarnasyni skógræktarstjóra, að slá tvær flugur í einu höggi: Segja á ensku frá hálfrar aldar skóg- græðslu í landinu og svo þeim skilyrðum, sem eru til skógrækt- ar, en skógrækt ríkisins berst jafnan mikill fjöldi fyrirspurna um skógræktarmálin hér hjá okk ur, erlendis frá. Útgáfa þessi verður til sölu í skrifstofu félagsins að Grettis- götu 8, bókabúð Lárusar Blöndal og nokkrum bókabúðum öðrum. Hjörut Halldórsson sá um þýð- ingu hins enska viðbótarkafla Lögðu fram viðreisn- artillögur Sjálfstæð-liinenn hafa aldrei hikaö við að beita sér fyrir þeim ráðstöfunum, sem þjóðarhagur hefur krafizt þegar þeir báru á- byrgð á stjórn landsins. Haustið 1949 þegar hafta og styrkjastefna hafði skapað öngþveiti í efna- hagsmálum okkar mynduðu Sjálfstæðismenn minnihluta- stjórn, sem lét færustu hagfræð- inga þjóðarinnar undirbúa víð- tækar viðreisnarráðstafanir. Með framkvæmd þeirra tókst að skapa jafnvægi í .efnahagsmálum landsmanna og halda uppi stór- felldri uppbyggingu um 6 ára skeið. Kommúnistum tókst að spilla árangri þessara ráðstafana með skemmdarstarfsemi sinni. Fram- sókn og Alþýðuflokkurinn töldu þá rétt að verðlauna skemmdar- verkamennina með því að taka þá í ríkisstjórn. Sú stjórn hefur setið í tæp tvö ár. En hún hefur ekki getað leyst neinn vanda. Hermann hefur ekki getað staðið við stóru orðin um „nýjar Ieiðir“ og „varanleg úrræði“ til lausnar efnahagsvandamálunum. Sendinefndin hefur unnið ágætt starf SI. sunnudag var m.a. komlat að orði á þessa leið í Reykjavík- urbréfi Mbl.: I „Ef islenzkir valdamenn hefðu eytt broti af þeirri orku, sem farið hefur í öflun samskotalán- anna, til að útskýra þýðingu fisk- veiöilandhelginnar fyrir sam- starfsþjóðum okkar í Atlants- hafsbandalaginu þá væri aðstaða okkar styrkari“. Þessi ummæli leggur Timinn þannig út, að Mbl. sé með þcim að deila á sendinefnd íslands í Genf fyrir að þeir „hafi ekki sinnt hlutverki sínu nógu vel“. Svona bágt er hugarástand Tímamanna nú. Nei, Mbl. var sannarlega ekki að deila á sendi nefnd íslands í Genf með fyrr- greindum ummælum. Hún hefur unnið landhelgis- og friðunar- málunum stórkostlegt gagn með ritsins, sem þannig er alls 87 bls. skynsamlegum málflutningi á Er ritið hið eigulegasta, fallegt að öllum frágangi og prentun og Genfarráðstefnunni og utan henn ar. Hið sama verður ekki sagt fjöldi prýðilegra mynda er í rit- ' um suma ráðherra vinstri stjórn- inu. 1 arinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.