Morgunblaðið - 23.04.1958, Blaðsíða 4
4
MORCVWBLAÐIÐ
SlysavarSstofa Keykjavíkur I
Heilsuverndarstöðinni er ipin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R (fyrir vitjanir) er á sama stað,
frá kl. 18—8. — Sími 15030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki. Sími 11760.
Holts-apótek * og Garðsapótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4.
Hafnarf jarðar-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl.
9—16 og 19—21. Helgidaga kL 13—16
Næturlæknir er Kristján Jóhann-
esson.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga kl.
9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
I.O.O.F. 7 a 13942351/2 =
GSJ Messur
Fíladelfía, Keflavík: — Guðs-
þjónusta í dag kl. 8,30. — Arvid
Ohlsson talar.
Hjönaefni
Nýlega hafa opinberað trúiof-
un sína ungfrú Guðrún Sveinsdótt
ir frá Viðfirði og Jón Ámason,
skipstjóri frá Fáskrúðsfirði.
Laugardaginn 19. apríl opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Guð
laug Jóhannesdóttir, Blönduhlíð
22, og Már Karlsson, Stýrimanna
stíg 10. —
* A F M Æ Ll *
í dag er sextug Margrét Ey-
þórsdóttir, Kópavogshæli.
K5S Skipin
Eimskipafélag íslands h.f.: ——
Dettifoss er í Hamborg. Fjall-
foss fer frá Hul'l í dag til Leith
og Reykjavíkur. Goðafoss kom til
Reykjavíkur 18. þ.m. frá New
York. Gullfoss fór frá Leith í gær
morgun til Hamborgar og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss fer frá
Kaupmannahöfn í dag tiT Rvíkur.
Reykjafoss fór frá Fáskrúðsfirði
í gærmorgun til Vestmannaeyja,
Keflavíkur og Reykjavíkur. —
Tungufoss fór frá Akranesi í gær
dag til Hamborgar.
Skipaútgerð ríkisins: — Esja
er á Austfjörðum á suðurleið. —
Herðubreið er væntanleg til Rvík
ur árdegis í dag frá Austfjörðum.
Skjaldbreið fór frá Reykjavík í
'gær til Breiðafjarðarhafna. Þyr-
ill er á Vestfjörðum á norðurleið.
Skaftfellingur fór frá Reykjavík
í gær til Vestmannaeyja.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
fer í dag frá Reykjavík til Norð-
ur- og Austurlandshafna. Arnar-
fell fer væntanlega í dag frá
Ventspils áleiðis til Islands. Jök-
ulfell fer í dag frá Reykjavík til
Hornafjarðar og Austurlands-
hafna. Dísarfell losar á Norður-
landshöfnum. Litlafell er í olíu-
flutningum í Faxaflóa. Helgafell
væntanlegt til Rotterdam á morg-
un. Hamrafell er í Palermo.
Eimskipafélag Rvíkur h. f.: —
Katla er væntanleg til Kotka í
nótt. — Askja hefur væntanlega
farið frá Hamborg £ gær áleiðis
vil Hangö (Finnland).
Flugvélar
Loftleiðir li.f.: — Saga kom til
Reykjavíkur kl. 08,00 í morgun
frá New York. Fór til Stafangurs
Kaupmannahafnar og Hamborgr
ar kl. 09,30. — Edda er væntan-
leg til Reykjavíkur kl. 19,30 í dag
Suður við Þorfinnstjörn í Hljómskáiagarði, þar sem norðan-
endurnar eru í góðu yfirlæti, hafa verið sett upp tvö spjöld.
Þar getur að líta myndir af þeim 10 tegundum anda, sem á
tjörninni eru. Eru myndir af andahjónum máluð á spjöldin,
og stendur nafn við hverja „hjónamynd“. Eggert Guðmundsson
listmálari hefur gert spjöldin. Standa nú allir jafnt að vígi með
að þekkja andartegundirnar, en til þessa hefur það verið fá-
mennur hópur af öllum þeim mikla gestafjölda, sem þangað
kemur í lieimsókn, sem veit deili á öllum andartegundunum.
(Ljósmynd: P. Thomsen)
frá London og Glasgow. Fer til
New York kl. 21,00.
J§|Aheit&samskot
Hallgrímskirkja í Saurbæ, afh.
Mbl.: — F G kr. 50,00.
133 Félagsstörf
Kvenfélag Lágafellssóknar held
ur bazar að Hlégarði, sunnudag-
inn 27. apríl kl. 3,30.
Kvenfélag Bústaðasóknar. —
Fundur í Háagerðisskóla (kjall-
aranum), föstudaginn 25. þ. m.,
kl. 8,30.
Ymislegt
Orð hfsins: — Því að Drottinn
er réttlátur og hefur mætur á
réttlætisverkum, hinir hrein-
skilnu fá að líta auglit hans. —
(Sálm. 11, 7).
★
Bókmenntafélagið. — Árbækur
þess fyrir síðastliðið ár eru nú
fullprentaðar og geta þeir félags-
menn, er þess óska, tekið þær í
prentsmiðjunni Leiftri, áður en
þær verða bornar út. Árstillagið
sama og síðasta ár, og greiðist við
móttöku ársbókanna.
Vistfólk á Reykjalundi þakkar
karlakómum Svönum á Akranesi
HEIÐA
151. Maímánuður er genginn í garð. Sól-
m skín, og það hlýnar í lofti. Heiða er
aftur komin upp í fjöllin. Hún situr í
mjúku grasinu fyrir framan kofann og
horfir á falleg fiðrildi fljúga fram hjá.
Skordýrin suða allt í kringum hana, og
Heiðu finnst, að suðið hljómi eins og söng-
ur: Uppi í fjöllunum, uppi í fjöllunum.
Heiðu sækir svefn, og hún dregur
ýsur. Allt í einu heyrir hún nýtt suðhljóð.
Afi er að saga. Að hverju skyldi hann vera
að vinna? Heiða stekkur á fætur. Hún
verður að fara og athuga, hvað afi er að
fást við. Afi hefur ekki setið auðum hönd-
um. Hann hefur smíðað af kappi.
IWyndasaga fyrir börn
152. „Ó, eru þeir handa Klöru og
ömmu“, segir Heiða, þegar hún sér stól-
ana, sem afi hefur smíðað. „En það verður
að. vera til einn stóll í viðbót, eða heldur
þú ekki, að ungfrú Rottenmeier komi
með?“ segir Heiða, og það vottar fyrir
áhyggjusvip á andliti hennar. „Það veit ég
ekki“, svarar afi. „En komi hún, getur hún
fengið baklausan stól“. Heiða hristir hóf-
uðið. „Ég held, að hún muni ekki vilja
setjast á hann“. „Þá bjóðum við nenni sóf-
ann með græna áklæðinu", svarar afi oe
bendir á grasið. Heiða er hugsandi á svip,
ungfrúin yrði áreiðanlega hrædd við skor-
dýrin í grasinu og ef til vill Tíka við
fiðrildin.
153. „Húrra, bréf frá Klöru“, hrópar
Heiða. Hún les bréfið upphátt í flýti:
„Kæra Heiða. Við höfum þegar pakkað
allt niður og förum nú til Ragaz. Þar á ég
að vera undir læknishendi í sex vikur, og
síðan komum við til þín. Læknirinn hefur
komið til mín á hverjum degi, og í hvert
sinn hefur hann sagt: „Uppi í fjöllunum
verða menn hraustir og heilbrigðir". Við
eigum að búa í þorpinu, og þegar veðrið
er gott, á að bera mig upp eftir til þín.
Vonandi sjáumst við innan skamms. Þín
einlæg Klara“. Heiða er utan við sig af
gleði yfir þessari írétt Loksins ætlar að
verða af því, að Klara komi að heimsækja
hana.
FERDIMAND
Vafasamur árangur
Miðvikudagur 23. apríl 1958
kærlega fyrir góða skemmtun,
sunnudaginn 20. apríl.
★
Cliarles Darvin hefur sagt: —
„Ekkert stríð hefur orsakað eins
mikla eymd, kvöl og dauða og
áfengisneyzlan“. — Umdæmis-
stúkan.
Læknar fjarverandi:
Kristjana Helgadóttir verður
fjarverandi óákveðinn tíma. Stað-
gengill er Jón Hj. Gunnlaugsson,
Hverfisgötu 50.
Ólafur Jóhannsson fjarverandi
frá 8. þ.m. til 19. ma£. Staðgengill
Kjartan R. Guðmundsson.
Sveinn Pétursson, fjarverandi
til mánaðamóta. — Staðgengill:
Krisfcján Sveinsson.
Þórður Þórðarson, fjarverandi
8/4—15/5. — Staðgengill: Tómas
A. Jónasson, Hverfisgötu 50. —
Víðtalstimi kl. 1—2. Sími: 15730.
Söfn
Náttúrugripasafnið: — Opið k
sunnudögum kl. 13,30—-15 þriðju-
dogum og fimmtudögum kl. 14—15
Listasafn Einars Jónssonar, Hnit
björgum er opið kl. 1,30—3,30 á
sunnudögum og miðvikudögum.
Þjóðminjasafnið er opið sunnu-
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu
daga og Iaugardaga kl. 1-—3.
Listasafn ríkisins. Opið þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga
kl. 1—3 og sunnudaga kl. 1—4.
Lítill afli
Dalvíkurbáta
DALVÍK, 19. apríl. Hagstæð
tíð hefur verið hér undanfarið
til lands og sjávar. Landlegur
hafa engar orðið vegna veðurs,
en þó róið sé að staðaldri með
línu og net, hafa aflabrögðin
fram til þessa verið með fádæm-
um léleg, og suma daga ördeyða.
Það jafnvel þó beitt hafi verið
nýrri loðnu.
Það er fyrst nú hina síðustu
daga að eitthvað virðist hafa
lifnað yfir veiðinni á djúpmiðun
um. Hingað komu í gær og fyrra
dag togbátarnir Snæfell með 40
lestir og Júlíus Björnsson með
20 lestir. Fór fiskurinn til sölt-
unar og frystingar. Þá fékk
Hannes Hafstein 5—6 lestir. Er
það mesti fali, sem fengizt hef-
ur á línu. Beitt var loðnu, en hún.
fæst aðeins stöku sinnum á Akur
eyrarpolli og oftast mjög lítið
magn. Má búast við beituskorti
á næstunni.
Þótt veðrátta hafi verið frem-
ur mild hér um slóðir og snjór
sigið mikið, er en* samfelld
jökulbreiða yfir öllu milli fjalls
og fjöru og fénaður víðast hvar
enn á fullri gjöf. —SPJ.
r
Islenzkur bóndi
heiðraður
ÍSLENDINGURINN Eðvald Bóas
son bóndi í Nittedal nálægt Osló
hlaut nýlega heiðursviðurkenn-
ingu norska bændafélagsins —
Noregs bondelag fyrir frábær
störf í þágu bændasamtakanna.
Formaðurinn í Akershús Bonde-
lag afhenti Eðvald heiðursskjal-
ið í afmælishófi sem bændafélag-
ið £ Nittedal og Hakadal efndi
til, í tilefni af 75 ára afmæli fé-
lagsins.
Eðvald Bóasson er bóndasonur
frá Stuðlum í Reyðarfirði — einn
af hinum kunnu Stuðla-systkin-
um. Hann fór ungur til Noregs
ihaustið 1913 (við urðum þá sam-
ferða) og hefir dvalizt hér síðan.
Hann lauk búfræðikandídats-
námi í Ási, var um skeið búnað-
arráðunautur í Valdres, en hefir
nú lengi búið búi sínu í Nittedal.
Hann hefir ritað bók um sauð-
fjárrækt og var fyrir hana sæmd-
ur verðlaunum frá Selskapet for
Noregs vil.
Eðvald er mörgum íslending-
um að góðu kunnur frá ferðum
þeirra í Noregi.
Jaðri 16. apr. ,58.
Á. G. E.