Morgunblaðið - 25.06.1958, Side 14

Morgunblaðið - 25.06.1958, Side 14
14 MOrtcr>\nr 4niÐ Aíiðvikudagur 25. júni 1958 Frá Vík í Mýrdal Sumarleyfisierð Ferðafélagsins í V.-Skaftofellssýslu Vinabœjamót í nœsta mánuði — Fundir Sjálf- stæðisflokksins Framh. af bls. 9 Nokkrar u»»ræður ut'ðu að framsöguræðum loknum. Til máls tóku Brynleifur Steingríms- son héraðslæknir, Kjartan L. Markússon bóndi, Ragnar Jóns- son verzlunarstjóri og loks Magn- ús Jónsson. — Fundurinn var fjölsóttur. Fundarstjóri var Sig- geir Björnsson. Fundur á Sauðárkróki Fundurinn á Sauðárkróki hófst kl 4 á sunnudag í samkomu húsinu í kaupstaðnum. Fundar- stjóri var Árni Þorbjörnsson, kennari, en frummælendur al- þingismennirnir Jón Sigurðsson á Reynistað og Jóhann Hafstein. Jón Sigurðsson ræddi aðallega um innanhéraðsmál. Vék hann m.a. að kosningabaráttunni fyr- ir hreppsnefndarkosningar þær, sem fram fara um næstu helgi, og sagði, að þar gætti nú póli- tiskra sjónarmiða í rikari mæli en áður. Væri það fyrir tiistuðl- an Framsóknarmanna. Jón Sig- urðsson vék í þessu sambandi m.a. að söguburði Framsóknar- manna, sem vakið hefur tölu- verða athygli í Skagafirði, og snýst um pólitískar bréfaskrift- ir, sem Sjálfstæðismenn eiga að hafa staðið að. Eru sögur þessar uppspuni frá rótum. Stjórnarfarið Jóhann Hafstein talaði um stjórnmálaviðhorfið og einkum um meinsemdir í hinu islenzka stjórnarfari. Taldi ræðumaður þær að miklu leyti undirrót ým- issa þeirra erfiðleika, sem nú er við að glíma í þjóðfélaginu. Nefndi hann dæmi um ástandið: Á Alþingi sitja nú 4 menn, sem mjög er um deilt, hvort þar hafi setzt með fullri heimild. I ríkisstjórninni eru tveir af 6 ráðherrum kommúnistar og þó hafði því verið hátíðlega lofað fyrir kosningar, að ekki skyldi með þeim unnið. Kjördæmaskipunin og kosn- ingalögin eru þannig, að Sjálf- | stæðismenn hafa 19 þingmenn á móti 17 þingmönnum Framsókn- ar. Miðað við kjörfylgi ættu Sjáfstæðismenn að hafa 50 þing- menn á móti 17 Framsóknarþing mönnum. Þingræði og lýðræði byggjast á þvi, að loforð séu efnd. — Núverandi ríkisstjórn gengur dyggilega á snið við gefin lofcrð og vinnur þvert gegn því, sem heitið hafði verið. Hót eru margar misfellur, sem leiðrétta þarf, sagði Jóhann Haf- stein. Með heilbrigðu stjórnar fari er vafalaust unnt að vinna aftur upp það, sem tapazt hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar. — Sú spurning er mjög áleitin í huga alls almennings, hvenær nú verandi ríkisstjórn muni fara frá. Um það vil ég engu spá, sagði ræðumaður, en lengur en til næstu kosninga mun hún alls ekki lifa, hvort sem þær verða fyrr eða síðar. Auk frummælenda töluðu þeir bæjarfulltrúarnir Guðjón Sig urðsson og Sigurður P. Jónsson svo og Hjálmar Theódórsson. verkamaður. Að lokum tók Jón Sigurðsson aftur til máls. Mikill áhugi ríkir meðal Sjálfstæðis- manna í Skagafirði. Hinn glæsi- legi kosningasigur á Sauðárkróki í síðustu bæjarstjóri.arkosning um hefur orðið flokksfólki hvatn ing til starfa,. enda biða þar í lcaupstaðnum og annars staðar í kjördæminu margvísleg verk- efni. UNDANFARIN ár hefur Ferða- félag íslands venjulega farið eina ferð um Vestur-Skaftafellssýslu. Ferðin tekur fjóra daga og er farið á laugardegi og komið til baka á þriðjudagskvöld. Lands- lag og gróður er mjög fjölbreytt í Vestur-Skaftafellssýslu. Þar skiptast á víðlend graslendi, vina- legt og hlýlegt skógarkjarr, eyði- sandar og fannhvítar jökulbung- ur svo eitthvað sé nefnt. Fyrsta daginn er venjulega far- ið til Víkur í Mýrdal. Á þeirri leið er margt að sjá og er farið rólega yfir. í Fljótshlíð er venju- lega stanzað og skoðuð gróðrar- stöðin að Tumastöðum og í Múla- koti, síðan haldið austur yfir aurana og framhjá Dimon. Und- ir Eyjafjöllum eru margir fagrir staðir, svo sem Gljúfrabúi, Selja- landsfoss og Skógafoss. Þegar kemur austur fyrir Jökulsá á Félagslíi Farfuglar, ferðamenn. — Farfugl ar ráðgera gönguferð á Heklu um næstu helgi. Skrifstofan er opin að Lindai'götu 50 í kvöld og föstu- dagskvöld kl. 8.30—10. Sími 15937. Undirbúnin6'skvöld undix blóma kynninguna verður á skxúfstofunni í kvöld kl. 8.30. Miðsumarmót 3. fl. B á K.R.-vell- inum, miðvikudaginn 25. júní Kl. 21.00 Fram—Víkingur.' Dóm- ari: Páll Guðnason. Miðsumarsmót 2. fl. B á K.R.-.„ vellinum, miðvikudaginn 25. júni. Kl. 20.00 Valur—Fram Dómari: Baldur Þórðarson, — Mótanefnd- in. Skíðadeild K.R. Áiúðandi fundur í kvöld kl. 8.30 í félagsheimili.iu. Þar verða teknar ákvarðanir um hyggingu skíðalyftunnar, svo og rætt um framhald sjálfboðaliðs- vinnunnar við skálann. Þess er vænst að allir vii'kir félagar deildarinnar rnæti á fundi þessum. — Bygginganefnd og stjórn skíðadeildar K. R. Samkomur Almennar jamkomur. Boðun f ígnaðarerindisins riörgsniíð 12, Reykjavík, í kvölc miðvikudagskvöld kl. 8.__ Kristniboðshúsið Betanía Laufásveg 13. — Almenn sam- koma í kvöld kl. 8.30. — Sr. Sigui'jón Þ. Árnason talar. Allir velkomnir. Sólheimasandi er komið í Vestur- Skaftafellssýslu. í björtu veðri er fjallasýn af sandinum mjög fög- ur. Aður en haldið er til Vík- ur er ekið suður á Dyrhólaey, en það er syðsti hluti Islands. í eynni verpir mikill fjöldi af fugli, svo sem fýll, lundi og kría. Nálægt Dyrhóley er allstór hellir sem Loftshellir heitir, þangað er auð- velt að komast og úr hellinum sést vel yfir Dyrhóley, Dyrhóla- ós og Reynisfjall. Annan daginn er farið frá Vík að Kirkjubæjarklaustri. Á þeirri leið er margt merkilegt og fagurt að sjá. Á miðjum Mýrdalssandi er Hafursey, einstakt fjall, en í suðri rís Hjörleifshöfði upp úr Mýrdalssandi. Þegar komið er austur yfir sandinn er farið yfir Hólmsá, og er þá komið í Skaft- ártungu. Skaftártunga er fögur og hlýleg sveit og er þar tals- vert skógarkjarr. Þegar farið er að fjallabaki er komið fram í byggð í Skaftártungu. Austan við Eldvatn tekur Skaft áreldahraun við og er vegurinn í gegnum það um 20 km. langur. Þegar hrauninu sleppir er komið í Landbrotið. Skaftá skilur að Landbrot og Síðu, en að Kirkju- bæjarklaustri á Síðu er ferðinni heitið þann dag. Þar er gott gisti- hús og ýmsir merkisstaðir sem ferðamenn hafa gaman af að sjá. Skammt austan við bæinn er sér- kennileg stuðlabergsmyndun, sem kirkjugóif heitir. Síðan er fögur sveit og í góðu skyggni sést vel til öræfajökuls. Á þriðja degi er venjulega farið að Núpsstað í Fljótshverfi, en það er það lengsta sem hægt er að komast í bíl. Frá Núpsstað er gengið austur í hlíðar Lómagnúps, en í góðu skyggni sér austur yfir Skeiðarársand. Þenna dag er venjulega farið um Landbrot og Útsíðuna, en þó fer það eftir veðri hvorn daginn það er gert. Á fjórða degi er haldið heim á leið og þá komið við á Bergþórs- hvoli. NK. laugardag hefjast tvær fyrstu sumarleyfisferðirnar, sem Ferðaskrifstofa Páls Arasonar efnir til í sumar, en þær" verða alls 25 talsins. Er hér um að ræða 14 daga hringferð um (s- land og 8 daga ferð um Norður- og Austurland. I þessum ferðum verður ferðazt í lofti, á láði og legi, með flugvélum, bílum, hest- um og skipum. Átta daga ferðin um Norður- og Austurland hefst sem fyx'r segir nk. laugardag frá Reykja- vík. Verður farið á fyrsta degi til Hveravalla og gist þar. Síðan liggur leiðin áfram Kjalveg um Skagafjörð, Glaumbæ, Hóla og til Akureyrar. Þaðan til Mývatns og austur að Egilsstöðum. Frá Egilsstöðum niður á Seyðisfjörð, en siðan í Hallormsstaðaskóg og Öflug sfarfsemi Norrœna félagsins NORRÆNA FÉLAGIÐ vinnur nú að undirbúningi vinabæjamóts, sem halda á hér á landi í næsta mánuði. Von er á um 100 gestum frá hinrum Norðurlöndunum og munu þeir dveljast hér á landi um 10 daga skeið. Verður hóp- urinn fyrst allur í Reykjavík, en síðan fara gestirnir til vinabæja heimaborga sinna. Norræna félagið annast auk þessa fyrirgreiðslu í sambandi við skiptiheimsókn kennara í ágústmánuði. 15 íslenzkir kenn- arar fá að þessu sinni ókeypis dvöl í Danmörku. Aðalfundur Norræna félagsins var haldinn fyrir skömmu. í skýrslu framkvæmdastjóra kom fram, að á s. 1. ári hafði félagið milligöngu um skólavist fyrir 54 íslenzka unglinga og fengu 46 þeirra ókeypis, skólavist og uppi- hald í 6 mánuði. Fjöldi ungling- anná er nær helmingi meiri en nokkru sinni fyrr. Haldin voru- vinabæjamót á Akranesi og Siglufirði og 17 unglingar fóru í vinabæjaferð til Danmerkur. Félagsdeildum fjölg- aði um rúmlega helming á árinu. Voru þær 19 í lok starfsársins auk aðalfélagsins í Reykjavík. Alls eru nú rösklega 2000 manns í Norræna félaginu og hefur félögum fjölgað um 500 á árinu. Þess er og að geta, að sögunefnd félagsins starfaði eins og undan- U M síðastliðin mánaðamót til- kynntu Ölgerðin Egill Skalla- grímsson og Sanitas félagssam- tökum kaupmanna og öðrum, er dreifingu á framleiðslu verk- smiðjanna önnuðust, að fram- leiðsla verksmiðjanna, öl og gos- drykkir, yrði aðeins seld gegn staðgreiðslu frá 1. júní að telja, en fyrir þann tíma höfðu nokkur lánsviðskipti xnilli kaupmanna og verksmiðjanna átt sér stað. Aug- lýsing' í samræmi við þetta var birt, frá Ölgerðinni Agli Skalla- grímssyni, í blöðum og útvarpi. Ástæðan til þessa var sú, að verksmiðjurnar þurfa nú að greiða um 50% af verksmiðju- verði öls og gosdrykkja í fram- leiðslutoll og söluskatt, auk allra annarra opinberra gjalda, en verksmiðjurnar bera auðvitað dvalizt þar daglangt. Á áttunda degi verður flogið til Reykjavík- ur. — Fjórtán daga ferðin liggur um sömu leið og 8 daga ferðin. Att- unda daginn verður svo ekið yfir Breiðdalsheiði til Berufjarðar og gist þar. Farið verður með bát til Papeyjar og þaðan til Djupa- vogs, en síðan ekið til Hornafjarð ar. Tíunda daginn verður dvalizt í Hoi'nafirði og umhverfið skoð- að, en daginn eftir ekið um Suð- ursveit til Reynivalla. Þaðan haldið vestur á Breiðamerkur- sand og skilið við bílana við Jökulsá og fólkið ferjað yfir ana. Þaðan haldið áfram að Skafta- felli í öræfum. Þrettánda dagmn verður farið í Bæjarstaðaskóg og siðasta daginn flogið frá Fagur- hólsmýri til Reykjavíkur. frásagnir í kennslubókum um sámskipti norrænu þjóðanna. Hliðstæð könnun hefur átt sér stað á kennslubókum í landafræði og sögu. I stjórn Norræna félagsins eru: Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, formaður, Vilhjálmur Þ. Gísla- son, útvarpsstjóri, varaform., frú Arnheiður Jónsdóttir, námsstjóri, Páll Isólfsson tónskáld, Sigurður Magnússon blaðafulltrúi, Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur og Thorolf Smith fréttamaður. Fram kvæmdastjóri er Magnús Gísla- son námsstjóri. Ný „lína" MOSKVU, 23. júní — NTB-Reut- er — í fregnum frá Tassfrétta- stofunni í kvöld segir, að sovézk- ir forráðamenn hafi kallað áróð- urssérfræðinga flokksins saman til fundar í Moskvu. Munu þeir eiga að skapa nýja „línu“ innan flokksins og fjalla um sósíalisk vandamál í uppbyggingu komm- únismans. Varaforseti sovézku vísindaakademíunnar setti þing- ið. — PARÍS, 23. júní — Reuter — D, Gaulle, forsætisráðherra, sat ’ dag fund með Spaak, fram- kvæmdastjóra Atlantshafsbanda- lagsins. Er þetta túlkað svo. að de Gaulle vilji styrkja aðstóðu Frakka í Atlantshafsbandalaginu. Á ráðuneytisfundi í dag var fjail- að um breytingar á stjói'nskipun- arlögunum. M. a. var rætt um völd franska forsetans, sem nú eru mjög takmörkuð. Sagt er. að fulla ábyrgð á greiðslu skatta þessara. Viðbrögð nokkurra káup- manna, við þessu breytta sólu- fyrirkomulagi, urðu þau, svo sem kunnugt er að þeir fengu sam- þykkt í félagssamtökum sínum að sett yrði sölubann á fram-. leiðslu verksmiðjanna í verzlun- um félagsmanna. — Mikill meiri- hluti kaupmanna hafði þó fyrir þann tima greitt vöruna við mót- töku. Var ekki einasta sett sölubann á sölu öls og gosdrykkja frá verk- smiðjunum, heldur einnig sölu á annarri framleiðslu Sanitas, alls konar efnagerðarvöru, sem þó var boðin til sölu með óbreytt- um söluskilmálum. Verksmiðjurnar vilja geta þess, að fyrir nokkrum árum ákváðu kaupmenn sjálfir að selja vöru sína einungis gegn staðgreiðslu til neytenda, og enginn virðist hafa haft neitt við það að athuga. Þegar Coca-Cola hóf fram- leiðslu sína hér á landi fyrir nokkrum árum seldi verksmiðjan framleiðslu sína aðeins gegn stað- greiðslu til kaupmanna, og gerir enn þann dag í dag, og virðist það alveg átölulaust af hálfu kaupmanna, og ekki sett á Coca- Cola neitt sölubann, hvorki fyrr né síðar. — Enda er það svo að framleiðsla öls og gosdrykkja er fljótseld vara, sem kaupmenn að jafnaði þurfa ekki að liggja með nema stuttan tíma. Hvergi erlendis er óss kunnugt að fram- leiðsla öls og gosdrykkja sé seld á annan hátt an gegn stað- greiðslu, annað er fyrir löngu talið úrelt fyrirkomulag. Að lokum viljum vér taka fram almenningi til leiðbeining- ar, að verksmiðjurnar eru starf- ræktar eins og verið hefur og vér erum reiðubúnir að selja fram- leiðslu vora gegn staðgreiðslu. Hf. ölgerðin Egill Skallagrímsson, Sanitas hf. íbúð við Hringbraut Höfum til sölu íbúð við Hringbraut, sem er 3 herbergi, eldhús, bað og forstofur á hæð og 1 herbergi í risi. Hitaveita. Fasteigna & Verðbréfasalan, Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314. Púll Aroson efnir til tveggja sumarieyfisferða n. k. langardag Ýmsir fegurstu sfaðir landsins skoðaðir farin ár, en slíkar nefndir vinna að því að samræma sem mest de Gaulle vilji efla völd hans. GREINARGERÐ frá Qlgerðinni Egill Skallagrímsson cg Sanitas, vegna sölubanns kaupmanna o. fl. á framleiðslu fyrirtœkjanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.