Morgunblaðið - 25.06.1958, Síða 15

Morgunblaðið - 25.06.1958, Síða 15
Miðvik'udagur 25. júní 1958 Moncrxnr 4Ð1Ð 15 Svíar og „Brassar" í úrslit Sviar unnu Þjóðverja 3:1 Brasilíumenn unnu Frakka 5:2 SVÍAR eru nenn dagsins í knattspyrnufréttum heimsins t dag. I>eir sígruðu heimsmeist- arana frá Þýzkalandi með 3:1 og lenda í úrslitaleik ,við Brasilíu í Stokkhólmi á sunnudaginn um heimsmeistaratitilinn og bikar- inn. Sviþjóð — Þýzkaland Ullivi-völlurinn var þétt set- inn og enginn sér eftir þeirri stund eða þeim tíma er sá Sví- þjóð sigra heimsmeistarana með 3:1. Það var dásamlegt veður og á pöllunum þar sem 52 þús. manns sátu, ætlaði allt að ærast er Gunnar Gren og Kurre Hamr- in skoruðu 2. og 3. mark Svía, en staðan í hálfleik var 1:1. Það var erfið raun fyrir Þjóð- verja að sætta sig við að ung- verski dómarinn vísaði Jusko- wisk át af vellinum á 13. mín. síðari hálfleiks. Léku Þjóðverjar 10 eftir það og hafði það að sjálf- sögðu sitt að segja. Fyrstu 20 mín. leiksins áttu Svíar frumkvæðið í leiknum alveg eins og í leiknum við Rússa. Á þessum leikkafla urðu þó ekki skoruð mörk, en Hamr- in, Skoglund og Simonsen kom- ust í mjög góð færi, en Herken- rath markverði tókst að bjarga meistaralega. Þegar Svíar sóttu sem fast- ast kom þýzkt markt á óvænt. Seeler komst upp í að því er virt ist hættulítið upphlaup, og tókst að gefa til Schafer sem skoraði. Þýzkaland átti mörg upphlaup eftir það, en skotin fóru fram hjá marki. Hamrin og Skoglund áttu og tækifæri og Skoglund var einn fyrir opnu marki á 33. mín. en mistókst. Örskömmu síðar bætti hann fyrir með því að afgreiða góða sendingu frá Liedholm rakleitt í netið með vinstri fæti. Þjóðverjar „áttu“ byrjun síð- ari hálfleiks og sóttu fast unz Juskowiak v. bakverði var vísað úr leik. Fauk í hann er Hamrin hafði leikið á hann, og sparkaði hann í Hamrin og var rekinn út af. Þjóðverjar urðu að endur- skipuleggja liðið og misstu sjálfs traust og smám saman náði heimalandið meiri og meiri tök um á leiknum þrátt fyrir frá- bæra vörn Þjóðverja. Bæði lið náðu góðum marktækifærum og leikurinn var engan veginn af- gerður. Á 36. mín skoraði Gunnar Gren með þrumuskoti eftir sam vinnu við Hamrin og Skoglund. Rétt fyrir lok leiksins sýndi Hamrin á kantinum tilþrif sem fáir hafa séð. Lék hann á tvo varnarleikmenn og skoraði úr þröngu horni fast við stöngina. SIGUR Brasilíumanna yfir Frökkum varð auðveldari en bu- izt hafði verið við. Staðan var 2:1 í hálfleik og leik lyktaði með 5:2. Allan mátt dró úr franska liðinu eftir að Jonquet mið- vörður meiddist í fyrri hálfleik. Og Frakkland mátti sín einskis í öðrum hálfleik er hann haltraði um völlinn sem vinstri útherji. Rasundavöllurinn var ekki set- inn nema að % hlutum og athygli manna beindist helzt að upplýs- ingatöflunni, þar sem fylgjast mátti með gangi leiksins í Gauta- borg milli Svía og Þjóðverja. Frakkar léku nú í íyrsta sinn í undanúrslitum heimsmeistara- keppninnar, en Brasilíumenn hafa þrívegis áður verið meðal 4 beztu liða í keppninni um Juies- Rimet bikarinn. Valur-Hafnarfjörður 6:3 ANNAR leikur íslandsmótsins í knattspyrnu fór fram í fyrra- kvöld og mættust Valsmenn og Áttu bæði lið hlut að máli, en tveir Vaismenn gengu eirina narð ast fram. Hafði dómarinn nog að Halníirðingar. Leik lyktaði með j gera, ekki aðeins við að fiaula 6:3 Val í vil eftir harðan leik. Jaín var leikurinn og komu aldrei i ljós neinir þeir yfirburð- ir Valsmanna sem réttlætt geta 3 marka mun í leiknum, en gæfu muninn fyrir Val gerði léleg aft- heldur og að gefa áminningar. Lndaöi svo að einum Valsmanna var vikið úr leik —- ekki vegna grófs brots heldur vegna, að þvi er bezt varð séð, móðgandi um- mæla við dómara. Slíkt er jafn- asta vörn hjá Hafnfirðingum á ' vel verra en brot sem mönnum stórum köflum leiksins og ekki sízt það, hve hinn ungi Karl Jónsson var miður marki Hafnarfjarðar. verður á í hita leiks. Síðari hálfleik lyktaði með 2:2. sin í : Albert skoraði mjög faiiegt mark Mörkin 1 frá vítateig og Björn Charies hjá honum komu ekki úr skot- I skoraði þriðja mark Hafnarfjarð um (nema eitt), heldur varð ar °S síðasta mark leiksins. Inn Brasilíumenn tóku forystu þegar. Miðjutríó þeirra Didi, Vava og Pele sem manna bezt hafa unnið að sigrum Brasilíu, léku inn í vörn Frakka, þaðan sem gefið var til baka til hægri framvarðar. Hann sendi fallega til Vava, sem var óvaldaður og skoraði örugglega 1:0 eftir 1 mín. leiks. Frakkar gáfu sig ekki og á 7. min. brauzt Piantoni i gegnum vörnina og gaf til Fontaine sem skaut — en framhjá. Tveim mín. síðar fékk hann sendingu frá Kopa, lék upp, lokkaði markvörð „Brassanna" eins og þeir eru kallaðir í Svíþjóð, fram, lék á hann og gekk með knöttinn í mannlaust markið. Fontaine átti skot skömmu síðar en yfir. Brasilía svaraði með mörgum hættulegum upphlaupum, en Frakkar áttu einnig færi og leik- urinn var skemmtilega jafn unz Brasilía skoraði annað mark sitt á 39. mín. Það var Didi sem skor aði með langskoti. 4 mín. fyrir hlé meiddist Jonquet og léku Frakkar 10 til hlés og hann haltr aði síðari hálfleik til að „vera með“ en liðið var án máttar hans í vörn og Brasilíumenn tóku leik inn æ meir í sínar hendur. Á 7. mín skoraði Pele. Veifað hafði verið á rangstæðu en dómarinn viðurkenndi markið þó að ýmsir hefðu hætt leik. Pele skoraði aftur á 18. mín. Á 30. mín. æpti fólkið af fögn uði yfir fréttinni um 2:1 stöðu fyrir Svia í Gautaborg og á með an skoraði Pele 5 mark Brasilíu. Frakkar áttu nokkur upphlaup af og til og áttu skot. En allt kom fyrir ekki, unz Piantoni tókst að fegra úrslitatöluna með nýju marki. ShíSamói þrátt fyrir síldarannir SIGLUFIRÐI, 23. júní — Þrátt fyrir síldarannir gáfu skiðamenn sér tíma til að sjá um hið svo- kallaða Skarðsmót, sem hér er háð á hverju sumri. Keppendur voru frá Reykjavík, Akureyri, Isafirði og Siglufirði. Keppnm fór fram í Siglufjarðarskarði sl. laugardag og sunnudag í bezta veðri. Keppt var í svigi og stór svigi svo og tvíkeppni i fyrr- nefndum greinum. Sigurvegari í stórsvigi varð Jóhann Vilbergs- son, Siglufirði, en í svigi og tví- keppninni sigraði Hjálmar Stef- ánsson, Akureyri. Að keppni lok- inni afhenti Jónas Ásgeirsson, formaður skíðafélagsins hér, verð laun til sigurvegara og þakkaði aðkomumönnum komuna. — Stefán. Búizt við kartöfium 7. júií n.k. EKKI hefur Grænmetissalan tal- ið neina ástæðu til þess að gera almenningi grein fyrir því vand- ræðaástandi sem hér ríkir vegna kartöfluskortsins. Er það út af fyrir sig ekki ný bóla þegar um er að ræða opinbera aðila. En kartöfluskorturinn er það alvar- legt mál, að almenningur hefur i bréfum og með símtölum spurzt fyrir um það hjá Mbl. hvenær vænta mégi úrlausnar. Mbl. frétti það í gærkvöldi að nú myndi vera von á um 400 lest- um af hollenzkum kartöflum 7. júlí næstkomandi — Iðnaðarbankinn Frh. af bls. 2 það sem í þeirra valdi stendur til þess að bankinn fái sparifé til á- vöxtunar með það fyrir augum eða í þeirri von að honum verði ekki meinað að lána það út til iðnaðarins, þess atvinnuvegar, sem honum fyrst og fremst er ætlað að þjóna. Ég vil því enda mál mitt með því að þakka bankaráðsmönnum og bankastjóra ágæta samvinnu á sl. starfsári og starfsfólki bank- ans gott starf og óska bankanum og öllum aðstandendum hans og öllum viðskiptavinum biessuaar á komandi tímum. hann að sækja í netið knetti, er skallaðir voru eða reknir oftast líkast tilviljun áð markinu. Það var úr hinum ólíklegustu upp- hlaupum sem Valsmenn fengu mörk. á milli skoruðu Björgvin og Gunnar Gunnarsson sitt markið hvor fyrir Val, Björgvin með lag legu og allföstu skoti en hitt var ódýrt mjög. Mér finnst ástæða til að ætla Þegar leikið hafði verið í 28 i að Hafnfirðingar hefðu í þessum mín. stóðu leikar 4:0 fyrir Val. leik leikið eins vel og gegn Akra Skoruðu mörkin Matthías Gests nesi. ef þeir hefðu ekki verið son og Gunnlaugur 2 hvor. Oll mörkin fengu þeir ódýrt og ef ekki hefði farið saman hjá Hafn- firðingum götóttur leikur varn- arinnar og lélegur leikur mark- varðar hefði mjög verið tvísýnt um úrslit þessa leiks. Mínútu eftir að stóð 4:0 skor- uðu Hafnfirðingar. Sigurjón skallaði inn sendingu frá Albert. Þannig lyktaði hálfleik. Síðari hálfleikur hófst með 10 mín. látlausri sókn Hafnarfjarð- ar, sem þó ekki gaf mark. Síðan jafnaðist leikurinn og það sem verra var harkan óx. Var ljótt að sjá stundum hvernig knöttur- inn gleymdist en maðurinn, and- stæðingurinn, varð aðalatriðið. teknir öðrum tökum. Sýnilegt var að Valsmenn lögðu mikið upp úr að gæta Alberts sem von er, en það varð fljótlega gert með því móti að tilgangurinn helgaði meðalið, og þá hófst harkan, sem bæði lið áttu sök á eftir það. Leikurinn var því á köflum ekki eins og knattspyrnu kappleikur á að vera. Og það er fullkomin ástæða til að staldra við að spyrja: Hvert er stefnt? Það á aldrei að sjást að það sé aðalatriðið að gæta þess að mót- herji geti ekki spyrnt og hætta að hugsa um að reyna að leika sjálfur. Sumir kalla það taktik. En það er þá léleg taktik, sem ekki á að heiðra. — A. St. Síldveiðiskip missa báta í FYRRINÖTT misstu þrjú síld- veiðiskip nótabáta sina er þau voru á leið til lands af miðunum með síld, en sem kunnugt er af fréttum var ekkert veiðiveður á miðunum á mánudagskvöldið. Var þar bræla og mikill sjógang- ur. Það var Víðir II. úr Garði er missti bát sinn þannig, að borð sprakk í honum og sökk bátur- inn. Nótina hafði skipstjórinn látið taka upp úr bátnum og lá hún ofan á síldinni. Annar bát- urinn sem missti nótabátinn var Hrönn úr Sandgerði og sá þriðji var Viktoría RE, sem nú er gerð út frá Þorlákshöfn, en nótin var í nótabátnum og sökk hún með bátnum. Síldarnót kostar nú á annað hundrað þúsund krónur og nótabátar 50—80 þús. kr. Þess má geta, að Víðir II. mun fá nýjan nótabát á Siglufirði. Mínar beztu þakkir til allra er sýndu mér vinsemd á áttrseoisafmælinu. Kærar kveðjur til ykkar allra. Finnbjörn Hermannsson, Isafirði. Þökkum innilega, ættingjum félögum, og vinum fyrir heimsóknir, gjafir, blóm og skeyti á gullbrúökaupsdegi okkar. Margrét Guðmundsdótlir, Kristján Sveinsson. Innilegar þakkir flyt ég öllum þeim sem auðsýndu mér vinarhug og höfðingsskap með gjöfum, heimsóknum og heillaskeytum á 50 ára afmæli mínu. Guðmundur Árnason Neðri-Fitjum. Útför föður míns STEINGRÍMS STEINGRlMSSONAR frá Sölfhóli, fer fram fimmtudaginn 26. þ.m. kl. 2 e.h. frá Dómkirkjunni. — Athöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd aðstandenda. Steingrímur Steingrímsson. Jarðarför GUÐRlÐAR EINARSDÖTTUR fyrrverandi ljósmóður frá Horni í Arnarfirði fer fram föstudaginn 27. þ.m. og hefst með húskveðju að heimili hennar Garðastræti 8 kl. 10,15 árdegis. Athöfnin í Dómkirkjunni hefst kl. 11 og verður útvarpað. Kransar og blóm afþökkuð, en þess óskað að þeir, sem minnast vilja hinnar látnu, láti Barnaspítalasjéð Hrings- ins njóta þess. Vandamenn. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför MAGNlllLDAR GUDMUNDSDoTTUR frá Hvanneyri. Sérstakar þakkir sendum við frú Svövu Þórhallsdótt- ir og Guðmundi Jónssyni skólastjóra og frú Fyrir mína hönd og annarra skildmenna. Kristín Þ. Guðinundsdóttir. mmmmmmmmemnmmmmmmmmmmmmmmmnmmi i ui m mmnHmmmmBmmmmemamanmmamammummmmmmmmmmamrnmm Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför GUDRÚNAR ASMUNDSDÖTTUR frá Gunnarshólma. Aðstandendur. Þakka hjartanlega sýnda samúð og vinarhug við and- lát og útför móður minnar ÞÓRUNNAR HANSDÖTTUR Bryndís Einarsdóttir Birnir. Innilegar þakkir íærura við öllum nær og fjær fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför GUÐBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR Árnagerði, Fáskrúðsfirði. Stefán Stefánsson og börn hinnar látnu. Þökkum hjartanlega alla samúð og vinarhug við hið sviplega fráfall sonar okkar föður míns og bróður ARNE HREIÐARS JÓNSSONAR Anna Kristensen, Jón Gíslason, Anna Jóna Árnadóttir, Sigurður Jónsson, Gísli Steinar Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.