Morgunblaðið - 07.08.1958, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.08.1958, Blaðsíða 12
12 MORC, UNBLAÐIÐ Fimmtudagur 7. ágúst 1958 ÍVZIB VJOUCx ikÁLP*A<rA épVi* RICHARP MA>ON FIMMTI KAFLI. Tveim dögum síðar birtist Suzie í herbergisdyrum mínum á hinum ólíklegasta tíma, klukkan þrjú eftir hádegi. Hún var náföl og titrandi, og útlit hennar var einna iíkast því, að hún hefði heyrt dauðadóm kveðinn upp yfir sér. „Suzie! Hvað hefur komið fyrir?“ „Ekkert". Hún lézt vera að horfa á mál- verk, sem stóð upp við vegginn. „Hvenær gerðirðu þetta?“ spurði hún. „Þessa mynd? Fyrir nokkhum vikum“. Hún kinkaði kolli. Ég vissi, að hún hlaut að vera að koma frá hádegisstefnumótinu við Ben, og ég þóttist vita, hvað hefði komið fyrir. Ben hafði eflaust slitið sam- bandi þeirra. Ég hafði hálft í hvoru búizt við því. Því meira sem ég hafði hugsað um þessi hádegis- Hún horfði á strigann, sem var í málaragrindinni. „Hver er þetta?“ „Þú". Hún hneigði höfuðið lítillega. „Ég hitti Ben áðan“. „Einmitt það?“’ „Því er öilu lokið"'. verðarboð viðskiptavina Bens, þeim mun verr átti ég með að trúa á þau. mér hafði heldur ekki reynzt jafnauðvelt að trúa á spá dómana og Suzie. Ég vissi vart, hvað ég átti að segja. „Það hryggir mig að heyra það, þín vegna", sagði ég ráðaleys islega. „Spámanninum mínum hlýtur „Já, hann elskar mig enn. Hann sagði við mig: „Ég elska þig ákaf lega heitt, Suzie — ég hef aldrei elskað neina aðra konu svo heitt". Hún stóð þarna eins og steinrunn- in, náföl og hörkuleg á svip. — „Jæja, nú ætla ég að fara í bíó“. „í bíó? Suzie, vertu hérna kyrr og spjallaðu við mig — ég get náð í te handa okkur“. „Nei, ég vil fara í bíó. Það segja allir, að það sé mjög góð mynd á Roxy. Það er þekkt hljómmynd — hefur þú ekki heyrt talað um hana?“ „Ég held ekki“. „Það tala allir um þessa mynd — ég vil ekki missa af henrii". — Hún gekk út að dyrunum og gerði sér far um að líta svo út, sem ekk ert skipti hana neinu máli, nema þessi umrædda kvikmynd. að hafa skjátlazt. Ben sagði mér áðan: Suzie, við verðum að slíta sambandinu — af því að konan mín hefur komizt að öllu. Já, við verðum bara að slíta sambandinu vegna konu hans. — Hann elskar mig auðvitað enn“. Ég vissi, að hún mundi ekki trúa þessu sjálf, heldur sagði hún það til þess eins að bjarga sjálfsvirð- ingu sinni. Henni varð allt í einu ljóst, að rödd hennar skorti sann- færingarkraft, og bætti því við: „Má ég koma með þér, Suzie?" „Nei, ég fer ein. Ég held, að þú munir ekki hafa neitt gaman af þessari mynd“. Hún opnaði dyrn- ar, hikaði andartak en sagði síðan hljómlausri röddu. „Það eru -r.ra peningarnir, sem mér stendur ekki á sama um. Það er eina ástæð an fyrir því, að ég tek nærri mér, að hætta við Ben. Auðvitað hefði mér sárnað það mikið, ef hann væri hættur að elska mig — en hann hætti bara við mig vegna kon unnar sinnar. Þú trúir því — er ekki svo?“ „Auðvitað trúi ég því, Suzie“, skrökvaði ég. „Já, þú skalt ekki hafa áhyggj- ur af því, það var aðeins vegna konunnar. Hann elskar mig mjög mikið — það geturðu verið viss um“. Hún gekk út, teinrétt í baki, og dyrnar lokuðust að baki hennar. 2. Ben teygði úr fótleggjunum, krosslagði handleggina á magan- um og lét fara vel um sig í stóln- um á svölunum. „Auðvitað skipt- ir mestu máli í samskiptum karls og konu, að andlegur skyldleiki sé fyrir hendi. Líkamlega hliðin skipt ir ekki nokkru máli — ekki því allra minnsta". Hann leit snöggt á mig og sagði með umburðarlyndi í svipnum: „Já, þú getur brosað. Þú mátt brosa eins mikið og þú vilt, kunningi, það bítur ekkert á mig“. „Afsakaðu, mér varð ósjálfrátt hugsað til samtals okkar á Kit Kat fyrir nokkru sxðan. Þú virtist þá ekki alveg á sömu skoðun". „Það var tómur bölvaður þvætt ingur í mér þá! Ég býst við, að um eins konar endurhvarf til unglingsáranna hafi verið að ræða. Ég var eins og krakki, sem hefur eignazt nýtt leikfang. En ég held ég sjái ekki eftir þessari reynslu minni — hún hefur án efa verið nauðsynlegt stig á þroska- brautinni". Hann var hátíðlegri í bragði og sjálfsánægðari en nokkru sinni fyrr. ,,0g þú verður að viðurkenna, að framkoma Liz hefur verið til fyrirmyndar í þessu máli — mjög til fyrirmynd- ar“. Hann hafði hringt til mín, fáum mínútum eftir að Suzie fór út úr herberginu og spurt, hvort hann mætti heimsækja mig. Honum fannst hann verða að gefa mér skýringu á, hvernig komið væri. Það kom brátt í ljós, að það var satt, að Elizabeth vissi nú um sam- skipti þeirra Suzie, þar sem hann hafði sagt henni það sjálfur kvöldið áður. Hann hafði ekki sagt það í því skyni að gera játn. ingu fyrir henni, heldur hafði hann dembt bví á hana í rifrildi til þess að særa hana. Það kom í ljós, að hjúskaparsælan, sem hann hafði lýst fyrir mér á Kit Kat hafði orðið ærið skammvinn, og deilur hófust von bráðar á ný. Ein slík deila hafði staðið kvöldið áður, og hafði hún hafizt að lokinni síðdegisdrykkju heima hjá þeim. Ben hafði verið allmjög undir áhrifum áfengis og hafði því svarað særandi ummæl- um Elizabeth með því beittasta vopni, sem hann hafði yfir að ráða. Hann hafði sagt henni frá fundum þeirra Suzie um hádegis- bilið dag hvern. 1 fyrstu hafði Elizabeth ekki fengizt til að trúa honum. Síðan hafði hún náfölnað og haldið upp í svefnherbergi sitt, án þess að segja nokkuð frekar. Stundai'- fjórðungi síðar heyrði hann, að hún ók burt i bifreiðinni. Hann hafði bætt á sig einu glasi af viský og tautað fyrir munni sér. „Það er gott að vera laus við hana“. En er hún var ekki komin aftur um miðnætti, fór hann að verða áhyggjufullur. Iðrunin fór einnig að gera vai't við sig. Hann hafði ekki gert annað næsta klukkutímann en hringja t:! kunn ingjanna og spyrja um hana, án þess að verða nokkurs vísari. Allt í einu minntist hann þess, að hún hafði eitt sinn sagt, er þau gengu eftir klettabrún hinum megin a eyjunni, að hér væri tilvalinn stað ur til þess að fremja sjálfsmorð, ef á þyrfti að halda. Hann varð gripinn skelfingu, hringdi í leigu- bifreið og lét aka sér til klettanna. Þar leitaði hann næstu tvo tíma, en án árangurs. Hann hafði kom- ið heim um dögun, og þar sem hús- ið var enn mannlaust og þess sá- ust engin merki, að hún hefði komið heim, hafði hann farið á allar lögreglustöðvarnar til að spyrja um hana. Hann hafði ekki komið heim úr þeim leiðangri, fyrr en um hálf níu leytið, öryænting- arfullur og iðrandi — en þá var það Elizabeth, sem tók á móti hon- um í dyrunum. „Komdu sæll, elskan", hafði hún sagt, og sama brosið lék um and- lit hennar og venjulega, þegar hann kom heim úr vinnu. Allt í einu hafði hún séð hvernig hann var til reika og hrópað upp yfir sig: „Hamingjan góða, hvað hef- urðu verið að gera?“ Hún hafði dvalið um nóttina hjá hjónum úr vinahópi þeirra, sem samkvæmt ósk hennar höfðu neitað allri vitneskju um hana, er Ben hringdi þangað. Þau höfðu orðið skelfingu lostin, er þau heyrðu um það áfall, sem hún hafði orðið fyrir, og þau höfðu boðið henni svefnlyf, áður en þau gengu til náða. En hún hafði hafn að þeim. Hún hafði óbeit á öllu slíku — það bar vott um skap- gerðarveilu. „Og satt að segja hef ég aldrei sofið betur", sagði hún hressilega. „Hérna er dálítið, sem ég ætla að sýna þér“. Hún rétti honum 6 ha. LOFTKÆLD Bátavél með niðurfærslugír 2:1 til sölu af lager. — Snún- ingshraði 1800. Stefnisrör og skrúfa fylgir. Uppl. aðalskrifstofu Vélar & Skip h.f. Hafnarhvoli. — Sími 18140. pappírsörk. „Þetta eru úrslitakost ir mínir1. Úrslitakostirnir sem voru skráð ir á bréfsefni vinkonunnar, að loknum værum nætursvefni, gáfu skýx-t til kynna þau skilyrði, sem hann varð að uppfylla, ætti hún að búa með honum lengur. Meðal annars var algert bann við heim- sóknum á Kit Kat eftir vinnutíma og jafnframt krafðist hún þess, að hann sliti samstundis öllu sam_ bandi við Suzie. En að einu leyti hafði hún komið til móts við hann. Henni var nú orðið Ijóst, að and- úð hennar á siglingum hans lýsti mikilli skammsýni og hafði án efa átt sinn þátt í því víxlspori hans að leggja sig niður við kínverska stelpu. Þess vegna hafði hún ákveð ið að leyfa honum að taka upp aft ur siglingar á laugardögum. „Já, það er alveg sérstakt", sagði Ben. „Það er ekki nokkur vafi á, að Liz hefur komið sérlega vel fram. Ég efast um, að ein af hundrað hefði getað tekið því á þennan hátt. Ja, það er óhætt að segja meira — ekki ein af þús- und“. Ég þagði. Að mínum dómi hefði það spáð betur fyrir framtíð þeirra, hefði Elizabeth ekki hegð- að sér alveg eins óaðfinnánlega og raun var á. Sjálfsánægjan skein úr svip Ben, er hann hélt áfram: „Þetta hefur markað tímamót í hjóna- bandi okkar —• á því er ekki minnsti vafi. Við erum bæði reynslunni ríkari. Okkur mun áreiðanlega takast að styrkja hjónaband okkar — á grundvelli félagsskapar og vináttu. Vitanlega er mér ljóst, að þetta hefur bitn- að mjög illa á Suzie. En mér er sama, þótt ég segi þér það — ég var að hugsa um að slíta samband inu, hvort sem var“. „Já, mér virtist áhugi þinn vera tekinn að minnka", sagði ég. „Já, gamli vin, við skulum horf ast í augu við þá staðreynd, að samband sem þetta er dauðadæmt frá byrjun — þar sem aldrei er um nein andleg tengsl að ræða. Ég tek fram, að ég er ekki að áfell ast Suzie. Með tilliti til atvinnu hennar og uppeldis, er hún óvenju vel gerð stúlka. Það er ekki henn- ar sök, að hún fór aldrei í skóla —• er ólæs og óskrifandi. En við eigum ekkert sameiginlegt — get- um ekki talað um neitt". „Við höfum alltaf nóg að tala um“, sagði ég. SHlltvarpiö Fimtudagur 7. ágúst: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Á frívaktinni", sjó- mannaþáttur (Guðrún Erlendsdótt ir). 15,00 Miðdegisútvarp. 19,30 Tónleikar: Harmonikulög (plöt- ur). 20,30 Erindi: Prestafélag Is- lands 40 ára (Séra Jón Þorvarðs- son). 20,55 Tónleikar (plötur). — 21,15 Upplestur: Gísli Halldórs- son leikari les ljóð eftir Snorra Hjartarson. 21,30 Einsöngur (plötur). 21,45 Upplestur: „Menn irnir álykta", smásaga eftir Guð- laugu Benediktsdóttur (Sigurlaug Árnadóttir). 22,10 Kvöldsagan: „Næturvörður“ eftir John Dick- son Cai-r; XVII (Sveinn Skorri Höskuldsson). 22,30 Lög af léttara tagi: „Big Ben“ banjóhljómsveit- in leikur (plötur). — 23,00 Dag- skrárlok. Föstudagur 8. ágú-t: OKAV, MEN...X'LL SHOW VOU WHERE _ WE BESIN/ , WHAT IN BLAZES HAS HAPRENED DOWN . THERE?/ K RIGHT HERE ^ 18 WHERE OUR SURVEV CUTS ACROSS THE LINE... WAIT L A MINUTE // jg •1) „Jæja, piltar, nú skal églbyrja." sýna ykkur hvar við eigum að I er að við förum yfir landamerk- 2) „Hérna er það sem ráðgertj in. Bíðið andartak!" Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 19.30 Tónleikar: Létt lög (plötur). 20.30 Erindi: Það sem Grímur Thomsen skrifaði II. C. Andersen (Martin Larsen lektor). — 20,55 íslenzk tónlist: Tónverk eftir Þór- arin Jónsson (plötur). 21,30 Ut- varpssagan: „Sunnufell" eftir Peter Freuchen; XXI (Sverrir Kristjánsson sagnfræðirigur). — 22,00 Fréttir, íþróttaspjall og veðurfregnir. 22,15 Kvöldsagan: „Næturvörður" eftir John Dickson Carr; XVIII (Sveinn Skorri Hö- skuldsson). 22,35 Frægir hljóm- 13) „Hvað í veröldinni hefur j sveitarstjórar (plötur). — 23,10 komið fyrir þarna niðurfrá?" Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.