Morgunblaðið - 07.08.1958, Page 16
VEÐRIÐ
N-kaldi, léttskýjað.
JMrogtiitMiifrifr
176. tbl. — Fimmtudagur 7. ágúst 1958
Eyjamenn gera hlé á hvalskurðinum
vegna þjóðhátíÖarinnar
— Er Mbl. frétti síðast í gær-
kvöldi frá grindhvalavöðunni í
Eyjum, sagði fréttaritari blaðs-
ins, að um 150 hvalir hefðu þeg-
ar verið skornir og gizkað væri
á, að um það bil jafnmargir
væru enn eftir í höfninni. —
Þeir hafi lónað þar á sama bletti
í allan dag í þéttum hnapp og
láti ekki á sig fá, þótt trillubátar
ösli inn í hópinn og tvístri þeim
nokkuð í bili. Væru engar líkur
til, að þeir hyggðu til flótta út úr
höfninni, þótt ekkert sé gert til
að hefta för þeirra. Sannleik-
urinn sé sá, að Eyjamenn hafi
allt annað að gera þessa dagana
en að snúast í hvaladrápi. Eftir
miðjan dag á morgun yrði fátt
um fólk til að sinna þessum hlut-
um, þar eð þjóðhátíðin fari í
hönd og krefjist að vanda mikils
undirbúnings.
Yrði sennilega gert hlé á hval-
skurðinum fram yfir helgi — og
yrði þá að ráðast hvort marsvín-
in hefðu þolinmæði og kurteisi
til að bíða á meðan Eyjamenn
dansa í Herjólfsdal!
Hvalirnir eru sumir allt að því
6 metrar að lengd — skrítnar
skepnur, segja Vestmannaeying-
ar, sem eru slíkri heimsókn óvan-
ir. En tveir til þrír Færeyingar
sem þar eru, munu hafa verið
hjálplegir við hvalskurðinn, en
þeir þekkja gerla hvað hér á við
frá heimalandi sínu. — Frysti-
hús Eyjamanna keppast nú við
að frysta hvalkjöt og spikið mun
brætt. — Frá fréttaritara.
Bifreiðaslys á þjóðveg-
inum utan við Akureyri
Tvœr fólksbifreiðir skullu saman
AKUREYRI, 6. ágúst — S. 1.
mánudagskvöld um 12 leytið varð
harður bifreiðaárekstur á þjóð-
veginum utan við bæinn Hof í
Arnarneshreppi. Mættust þar
tvær fólksbifreiðir, J-65 og L-418,
og skullu harkalega saman. I
bifreiðinni L-418 var auk öku-
manns ein stúlka, sem fótbrotn-
aði um ökla á hægra ‘fæti og
skarst auk þess á hendi en öku-
maðurinn slapp með skrámur.
í bifreiðinni J-65 voru auk
ökumanns ein kona í framsæti og
tveir karlmenn og ein stúlka aftur
í bílnum. Konan er sat frammi
i skarst á höfði og hlaut auk þess
meiðsli á höndum og fótum en
stúlkan er aftur í sat meiddist á
mjöðm. Karlmennirnir sem í bif-
reiðinni voru sluppu lítið meidd-
ir. Konurnar þrjár voru fluttar
í sjúkrahús. Var einni þeirra
leyft að fara heim, er gert hafði
verið að meiðslum hennar.
Á veginum, þar sem bifreið-
irnar mættust er dálítil hæð, þó
varla blindhæð. Segjast bílstjór-
arnir hvor um sig hafa blindazt
af ljósum hins, en dimmt var í
, 0 Biðskák
hjá Friðrik
í FYRSTU umferð á skákmótinu
í Portoroz vann Benkö Kanada-
manninn Fiister og Tal frá Rúss-
landi vann de Greiff frá Kólum-
bíu. Jafntefli gerðu Bent Larsen
og dr. Filip frá Tékkóslóvakíu;
Panno, Argentínu og Pachmann,
Tékkóslóvakíu og Fischer, USA
og Neykirch, Búlgaríu. Aðrar
skákir fóru í bið. í skeyti fiá
Ingvari Ásmundssyni segir, að
Friðrik hafi átt heldur betri
stöðu í viðureigninni við Ung-
verjann Szabo.
Líðan Björgvins
veðri er slysið varð, auk nætur-
húmsins. — Bifreiðirnar báðar
skemmdust mjög mikið, svo að
hæpið er talið, að viðgerð á þeim
borgi sig. —Magnús.
Sýning á verkum Muggs
Skáfamóf í Þjórsárdal
betri
AKRANESI, 6. ágúst. — Kona
Björgvins Jörgenssonar símaði
frá Kaupmannahöfn í gær
(þriðjudag) og sagði, að nú væri
líðan hans betri — væri verið að
flytja hann á aðra deild sjúkra-
hússins.
Heyrt hefi ég, að starfsmönn-
um sementsverksmiðjunnar hafi
verið bannað að ganga inn um
dyr pökkunarhússins á meðan
verið væri að steypa þar uppi.
Ljóst er, að nauðsyn ber til að
taka alvarlega boð og bann á
slíkum stöðum. — Oddur.
I DAG (fimmtudag) hefst Félags
mót Skátafélags Reykjavíkur í
Þjórsárdal. Þátttakendur eru
hátt á annað hundrað skátar, og
eru flestir þeirra frá Reykjavík,
en auk þess eru nokkrir frá
Keflavík og Akranesi. Um 50 er-
lendir skátar verða á mótinu og
eru þeir frá Bandaríkjunum,
Englandí og Þýzkalandi.
Mótstjóri er Páll H. Pálsson, en
tjaldbúðastjóri Ágúst Þorsteins-
son. Auk þeirra sjá þessir skáta-
foringjar um stjórn mótsins:
Magnús Stephensen, Sævar Krist
björnsson, Bjarni Ansnes og Þórð
ur M. Adólfsson, auk aðstoðar-
foringja.
Á mótinu matreiða skátarnir
sjálfir allan mat og æfa ýmsar
skátaíþróttir, svo sem hjálp í við-
lögum, ratvísi, merkjasendingar
o. fl. Auk þess munu þeir ganga
á Dímon og Hestafjallshnjúk. Þar
að auki munu þeir fara fótgang-
andi að Hjálp, Þjófafossum, Tröll
konuhlaupi, Stöng og Háafossi.
Á laugardaginn kemur verður
þeim skátum á Suðurlandi, sem
geta komið því við, boðið að heim
sækja tjaldbúðir skátanna. Um
kvöldið verður mjög fjölmennur
varðeldur í Skriðufellsskógi.
Á sunnudagsmorguninn verður
haldin útiguðsþjónusta og verður
það jafnframt minningarguðs-
þjónusta um skátahöfðingjan,
Helga Tómasson. Séra Hannes
Guðmundsson, sóknarprestur að
Fellsmúla, prédikar. Eftir há-
degi verða sýningar á ýms-
um skátaíþróttum og munu
erlendu skátarnir sýna þar
ýmislegt fáséð, hver frá sínu
landi. Um kvöldið verður svo
varðeldur.
Mótinu verður slitið miðviku-
daginn 13. ágúst, en þá fara skát-
arnir í þriggja daga ferð á Kjöl
með viðkomu hjá Hvítárvatni og
Hveravöllum. Á heimleiðinni
munu þeir dvelja stund hjá skát-
unum á skátaskólanum að Úlf-
ljótsvatni. Og heim koma þeir
svo úr þessari ferð á föstudags-
kvöld.
Áætlunarferðir í Þjórsárdalinn
verða föstudagskvöld, laugardag
(þrisvar) og á sunnudagsinorgun.
Farseðlar verða seldir í Skáta-
búðinni við Snorrabraut.
Mótinu mun sVo ljúka sunnu-
daginn 17. ágúst með „skátadegi"
í Tívolí. Verða þar ýmsar skáta-
sýningar allan daginn, en um
kvöldið halda skátarnir þar varð-
eld.
í GÆR kl. 5 voru afhentar í Boga
sal Þjóðminjasafnsins 46 myndir
eftir Guðmund Thorsteinsson
málara, en þær hefur danski list-
málarinn próf. Elof Risebye nú
gefið listasafninu í Reykjavík.
Um leið var opnuð sýning á þess
um verkum, sem nú eru nýkom-'
in hingað til lands.
Helgi Sæmundsson, formaður
Menntamálaráðs, flutti ávarp og
afhenti Selmu Jónsdóttur list-
fræðingi, forstöðukonu listasafns
ins, gjafabréf hins danska próÞ
essors, (sjá efri myndina). í því
er gert ráð fyrir að myndirnar
verði hengdar upp í Listasafni
ríkisins til frambúðar.
Þá talaði Júlíana Sveinsdóttir
listmálari, en hún er fulltrúi
próf. Risebyes í sambandi við
þessa sýningu, (sjá neðri mynd-
ina).
Sýningin verður opin almenn-
ingi frá kl. 1—10 alla daga næsta
hálfa mánuðinn.
Hreindýraveiðar í Múla-
sýslum að hefjast
Heimilað að veiða allt að 600 dýr í ár
Líiil síld -
Sama óveðrið
Á þriðjudag komu eftirtalin
skip með síld í söltun til Rauf-
arhafnar: Arnfirðingur 450 tn.,
Reynir 250, Dux 150, Sjöstjarn-
an 100, Sæbjörg 550, Gjafar 230,
Hamar 250, Þorleifur Rögnvalds-
son 350, Gylfi, Rauðuvík, 200,
Stefán Arnason 100, Hannes
Hafstein 300, Faxaborg 300,
Hólmkell 100 og Stella 300.
— Einar.
FRÉTTARITARI blaðsins á Rauf
arhöfn símaði í gærkvöldi, að
ekki væri vitað um neina síld-
veiði sl. sólarhring og veður væri
við það sama.
I LÖGBIRTINGI, sem út kom
s. 1. laugardag, er birt reglugerð
um hreindýraveiðar í Múlasýsl-
um árið 1958. Er heimilað að
veiða allt að 600 dýrum í ár og
skal veiðin fara fram á tíma-
bilinu frá 1. ágúst til 20. sept.
Þó getur ráðuneytið leyft veið-
ar síðar á árinu, ef ekki hefur
tekizt að fella tiltekinn fjölda
dýra á aðalveiðitímabilinu, enda
mæli eftirlitsmaður hreindýr-
anna með lengingu veiðitímans.
Eins og undanfarin sumur
skiptast leyfin milli hreppa í
Múlasýslum og er þá einkum
Harðindalega horfir á
Ströndum
Taðan hrakin —
Óveður hamlar
veiðum
GJÖGRI, 6. ágúst. — Sláttur
byrjaði hér um slóðir eftir miðj-
an júlí og fengu þeir, sem fyrst
byrjuðu góðan þurrk á það litla,
sem búið var að slá, áður en tíð-
in spilltist. Spretta er víðast
hvar afar léleg.
S.l. hálfan mánuð má heita, að
hér hafi verið stöðugar rigning-
ar og kuldi og um síðustu helgi
snjóaði niður í miðjar hlíðar.
Taðan liggur heiðgul og hrakin
á túnunum. Þó að stytti upp dag
og dag og er illmögulegt að
aka heyinu í súrheystóftir
vegna bleytu á túnum. — Má
segja, að allt sé á floti hér alls
staðar.
Um 20. júlí var komin síld í
Húnaflóa og auglýsti Djúpavík
h.f. eftir fólki og bauð því kosta-
kjör. 300 tunnur síldar bárust til
Djúpavíkur dagana 22.—23. júlí
og s.l. sunnudag kom Barði með
24 tn. Var síldin bæði stór og
feit. Sjómenn segja nóga síld í
Húnaflóa en norðangarðurinn
hamlar öllum veiðum. Er síldar-
fólkinu á Djúpavík farið að
dauðleiðast aðgerðarleysið. —
Fiskveiði hefir verið afar treg að
undanförnu, svo að segja má, að
hér horfi harðindalega um flest
þessa stundina.
Ágætlega gengur stækkun og
viðgerð á Gjögur-bryggju. Verk-
stjórinn Sölvi Friðriksson vinn-
ur af einstökum dugnaði,
hvernig sem viðrar og leysir í
rauninni fjórfalt starf af hendi:
hann kafar, sprengir hefir verk-
stjórn með höndum og sér um
allar útborganir til verkamann-
anna.
Að sögn hreppstjórans átti að
gera miklar vegaframkvæmdir
hér í sumar en ekki bólar enn á
þeim framkvæmdum og ekki er
byrjað að mæla fyrir hinum til-
vonandi vegi. Vegamálastjóri
hafði lofað oddvita að senda
mann strax í vor til þeirra mæl-
inga en sá mælingamaður hefir
ekki sézt enn í Árneshreppi.
— Regína.
tekið tillit til þess ágangs, sem
hrepparnir verða fyrir af völdum
hreindýranna. Fljótsdalshreppur
fær leyfi fyrir 150 dýrum, Jökul-
dalshreppur 130, Fellahreppur 80
og Tunguhreppur 70. Aðrir hrepp
ar eru með fyrri leyfi. Þá getur
ráðuneytið einnig veitt veiði-
félögum leyfi til að fella hrein-
dýr, gegn ákveðnu gjaldi fyrir
hvert dýr.
Hreindýraveiðarnar fara fram
undir umsjá hreindýraeftirlits-
manns og mega ekki aðrir stunda
þær, en þeir, sem hann samþykk-
ir. Hann verður einnig að sam-
þykkja þau vopn sem notuð eru
til veiðanna. Skulu hreindýra-
skyttur fá skriflegt leyfi frá eft-
irlitsmannmum og jafnan sýna
það, ef krafizt er.
Hreindýraeftirlitsmaður skal
gæta þess vandlega, að leyfa
ekki að veiða hreindýrin, þar
sem þau eru að nema ný lönd
og talið er æskilegt að þau hag-
venjist, heldur á aðalstöðvum
hjarðarinnar, þar sem heppilegt
þykir að bægja þeim frá. Þá
ber honum einnig að sjá svo til,
eftir því sem unnt er ,að felld
séu þau dýr, sem minnstur skaði
er að fyrir vöxt og viðgang hjarð-
arinnar.
Brot gegn þessum reglum varða
allt að tíu þúsund króna sekt.
★
Tíðindamaður Mbl. átti tal við
hreindýraeftirlitsmanninn Egil
Gunnarsson á Egilsstöðum, í gær
og spurði hann hvenær veiðarn-
ar mundu hefjast. Sagði Egill,
að hreindýraskyttur mundu
leggja upp strax og veður batn-
aði, en undanfarið hefur verið
leiðindatíð á Austurlandi. Hrein-
dýrin halda sig nú mikið úti á
Fljótsdalsheiði milli Fljótsdals
og Jökuldals og er því ekki mjög
langt að fara, ef veiðiveður gef-
ur. í fyrra hófust hreindýraveið-
ar nokkru seinna en nú og þá
veiddust ekki nema rúm 200 dýr.