Morgunblaðið - 22.08.1958, Side 6

Morgunblaðið - 22.08.1958, Side 6
6 MORCVNBLAÐIÐ Föstudagur 22. ágúst 1958 „Mátti ekki vera að því að syrgja Stutt samtal við Svein Þórðarson bankaféhirði, sextugan í DAG á sextugsafmæli Sveinn Þórðarson, aðalféhirðir í Búnað- arbanka íslands. Sveinn er þessa daga í sumarleyfi og var á förum vestur á Snæfellsnes, er blaðamaður frá Morgunblaðinu hitti hann að máli á heimili hans Túngötu 49, í tilefni afmælisins. Á sama blettinum Já, ég er Snæfellingur að upp- runa — sagði Sveinn.. Móðir mín, Ingibjörg Sveins- dóttir var ættuð úr Eyrarsveit og faðir minn, Þórður Þórðarson, úr 'Vtvs/. •} Og þér eruð lengi búinn að stunda bankastörf? Ja, það má segja, að ég hafi byrjað 11 ára gamall að stunda viðskiptastörf — sem sendisveinn hjá matvöruverzlun Tómasar Jónssonar, en 13 ára var ég, þeg- ar ég réðist til Obenhaupt, þýzks umboðssala hér í bæ, sem hafði gríðarmikla verzlun og var mjög þekktur í Reykjavík í þann tíð. Hjá honum var ég fyrst til vika en síðar sölumaður. Eftir fimm ára starf hjá Obenhaupt gerðist ég svo, — árið 1918, bók- .. .hefi alltaf verið innan um mikla peninga. Staðarsveit — svo að eiginlega er ég af „vondu fólki“ kominn! — Sjálfur er ég borinn og barn- fæddur Reykvíkingur, fæddur á Bræðraborgarstígnum og hefi verið svo til á sama blettinum síðan. þar sem ég bý núna, hérna á Túngötunni, lék ég mér sem drengur. haldari hjá Útflutningsnefndinni á Hverfisgötu 12. Ýmis störf Var það jafnvond nefnd og sú á Skólavörðustígnum? Verksvið þeirrar útflutnings- nefndar var nú töluvert ólíkt og öðru vísi tilkomið. En svoleiðis var, að í fyrra stríðinu var út- flutningur svo til eingöngu til Bretlands og var útflutnings- nefndin skipuð til að sjá um þau viðskipti, þeir trónuðu þar heið- ursmennirnir, Thor Jensen, Pét- ur frá Gautlöndum og Ólafur Benjamínsson, að ógleymdum skrifstofustj., Þórði Bjarna syni frá Reykhólum, sem ég mun ávallt minnast með hlýju, virð- ingu og þökk. Það var mikill af- bragðsmaður, og ég lærði mikið af honum. Yfirleitt var starfið þarna hjá útflutningsnefndinni allt mjög ánægjulegt, en ég vann þar í 2 ár. — Þá fór ég í Lands- bankann og vann í 20 ár að öllum venjulegum afgreiðslustörfum — endaði sem útibústjóri í Hafnar- firði, en á kreppuárunum var úti- búið lagt niður. í Landsbankan- um var ég sem sagt, þangað til mér var skákað yfir í Búnaðar- bankann, þar sem ég hefi gegnt starfi aðalféhirðis síðastliðin 18 ár. Alltaf lakari peningar Og mörg krónan búin að fara í gegnum hendur yðar? j Já, ég hefi yfirleitt alltaf verið ! innan um mikla peninga, fyrst hjá forríkum heildsala, síðan hjá Útflutningsnefnd — og svo hjá tveimur bönkum. — Ég hefi stundum sagt sem svo áð alltaf sé ég að taka við krónum og borga út krónur —_ og ávallt séu það lakari peningar, sem ég borga út, heldur en þeir, sem ég tók við. Það er nú svo — krónan okkar er orðin heldur lítill pen- ingur. Fyrstu mánaðarlaunin mín voru 10 krónur, þegar ég vann sem sendisveinn hjá Tómasi Jónssyni. Loftur (konunglegur ljósmyndari), sem var einum 5 árum eldri en ég vann um leið hjá Tómasi og hafði 20—25 krón- ur á mánuði. Það þóttu mér mikl ir peningar. Allir urðu ríkir Nú hefir æskufólkið meira milli handanna og getur veitt sér fleira af því sem hugurinn stend- ur til — og það er gott og blessað. Framh. á bls. 14 Sigurjón Danivalsson shrifar úr daglega lífínu Tíu ára hnáta í síld NÚ er síldarvertíðin að verða búin £g fólkið að byrja að tínast heim úr síldinni. Sennitega eru ekki margir eins ánægðir með sumarhýruna, eins og lítil vinkona mín frá Siglufirði, sem ég hi.tti hér í bænam fy.ir fáum dögum. Þetta er tíu ara hnáta, og hún saltaði í sumar að gamni sínu í 20 tunnur, þar af 8 tunnur á einum degi. Dagkaupið aennar þann daginn var kr. 200 .Hún sagði að það væri engmn vandi p.ð raða síldunum á botninn i tunnunni, maður pyriti bara að hala sig upp á barminn og vega þar salt á maganum á meðan. Vinur hennar, sem er 7 ára og heldur smávaxinn að auki, hafði ekki einu sinni stungizt á höfuðið ofan i tunnuna við þá iðju. Börnin kynnast atvinnuvegunum MEÐAN ég var að spjaila við litlu síldarstúlkuna, varð mér hugsað um það hversu mik- ils virði það er fyrir íslendinga að fá að kynnast atvinnuvegum þjóðarinnar strax á unga aldri. Varla er til það kaups’aðaharn, sem ekki hefur verið í Svæit og þekkir hin daglegu störf sveita- fólksins, og i siávarþorpunum eru strákarnir orðmr kunnugir bátum og fiski strax og þeir fara að vaxa úr grasi. Sjálfsagt eigum við þetta mest að þakka því, að bæir eru allir iiilir hér á landi og að kraxkar og ungiingar hafa langt sumartrí úr skóianum. í flestum oágrannalöndum okk ar er þessu annan veg farið. Sum- arfríin í skólunum eru of stutt til að það taki þvt að fara í vinnu, enda varla nokkra vinnu að fá um svo stuttan tíma. í Engiar.di er fríið t. d. aðems 5 vikúr. í þeim löndum tíðkast það þvi ekki að skólanemendur vinni á sumrin. Lítið variS í að vera menntamaður IÞESSU sambandi dettur mér í hug stúlka, sem hjáipað, til á heimili amerískrar konu uti í Frakklandi. Hún var að kvarta við húsmóður sína um hversu ömurlegt það væri, að foreldrar hennar hefðu ekki efni á að kosta hina vel gefnu bræður henn ar í skóla. Ameríska konan svar- aði því til, að foreldrar sínir væru heldur ekki efnaðn, en bræður sínir hefðu sjálfir létt undir, einn með þvi að vinna á ísbar allar hetgar meðan hann (var í skóla, annar með þvi að | vakna klukkutíma fyrr og I kveikja upp í miðstöðinni i skól- j anum og .... þá greip sú franska j fram í og sagði: — Að kyr da mið ' stöð, nei. þá er lítið varið í að vera menntamaður. Stúlkan hefur sjálfsagt ekki talað þarna fyrir munrr arlra Frakka, en ég eíast um að slíkur hugsunarháttur sé til hér hjá okkur. Löng eða stutt frí ÞÓ ég sé þeirrar skoðunar að löng frí séu heppileg og að börn og unglingar læri meira af því að kynnast hii; msu störf um, sem þau vinna, en sitja allan tímann á skólabekkn- um, þá hefur það líka sína ókosti. Ef við á annað borð lærum eitt- hvað í skólanum, þá hljótum við óhjákvæmilega að missa við það hve hvert skólaár er stutt. Auk þess læra skólabörnin strax á unga aldri að bruðla með pen- inga. þar sem þeim reynist svo auðvelf að afla þeirra á stuttum tíma. En það er önnur saga. Flugur í flöskum ÉR kom maður nokkur og hafði með sér óopnaða flösku með engiferöli I flösku þessari var ekki aðeins em beldur heil halarófa af dauðum ilugum. Kvaðst maðurinn nafa keypt sér nokkrar ölflóskur norður á Ak- ureyri, þegar nann var þar á ferð, og auk þess sem í þessari flösku var, hafði hann fundið fiski- flugu í einni pilsnerflöskunni. Hvað var í hinum veit hann ekki, því hann hvolfdi því í sig í bíln- um í rökkrinu. Vonandi er þetta alveg einsdæmi, en annað eins og þetta á auðvitað alls ekki að geta komið fyrir. In memoriam í DAG fer fram jarðarför Sig- urjóns Danívalssonar fram- kvæmdastjóra Náttúrulækninga- félags íslands. En með því hafði hann afkastað miklu og góðu starfi í þágu félags vors fyrst og fremst, en einnig í þágu almenn- rar heilbrigðisræktunar. Vér sem að þessum félagsskap stöndum, höfum orðið fyrir því mótlæti að missa sterkustu stoð félags vors, þar sem þessi ágæti og fórnfúsi félagi vor var. Það starf sem hann vann var með þeim ágætum að telja má að sé vandfyllt, og er því mikil eftirsjá að þessum ágæta starfsmanni og vini, það vita allir sem kynnzt hafa þessu félagsstaríi voru að það er til þess stofnað að rækta heilbrigði, í stað þess að berjast við sjúk- dómseinkenni. í þessu starfi var Sigurjón oss ó- metanlegur liðsmaður. Komu þar fram hinir ágætu hæfileikar hans lipurð og áreiðanleiki, sem skap- aði honum mikla tiltrú. Hann fann vanalega einhver ráð þegar allir voru ráðþrota, fyrir það er þó félag vort komið svo langt, að hér dvelja nú nærfellt 70 gestir og hamingjan hefir verið svo hlið holl að flestir fá einhvern bata og sumir ótrúlega mikinn. Vér getum þakkað þetta að miklu leyti vorum ágæta framkvæmda- stjóra. Vér syrgjum þennan ágæta vin vorn og starfsmann, og spyrjum. Hvar er svo ágsetan mann að finna sem tekið gæti við hans starfi? En umfram allt þökk um við Guði fyrir að hafa gefið oss svo ágætan mann. Ég vissi ekki annað en Sigurjón Danívals- son væri í bezta lagi hraustur. Hann notaði hverja helgi til að ganga á skíðum í háfjöllum, oft í stórhríð um hávetur, en ég hef nú heyrt að hann hafi fyrir all mörgum árum fengið veilu fyrir hjartað. En nú hné hann niður fyrirvaralaust. Þetta kom oss vin um hans og samstarfsmönnum mjög á óvart. Eitt sinn var félag vort illa statt og horfði óvænlega um framtíð þess Ég leitaði þá ráða til snillingsins Grétars Fells, vin- ar míns. Hann benti mér á Sigur- jón Danívalsson, þetta ráð brást mér ekki, þessi ágæti vinur tók föstum tökum á vorum málum og 1 reisti við fjárhag félagsins. Bygging var hafin og nú hefir félagið starfað í fuil þrjú ár. Ég efast ekki um að slíkum manni sem Sigúrjóni Danívalssyni er ætlaður starfi í æðra heimi, mér þykir heldur ekki ólíklegt að hann horfi til vor, sem nú stönd- um við starfið hér. Nú er þessi 1 ágæti og trúi þjónn fallinn fyrir sverði þess, sem hefir valdið. Vér * þökkum góðum Guði fyrir að hafa gefið oss þennan ágæta mann, sem unnið hefir fyrir vel- ferð og hjálp handa hinum mörgu sem hér hafa komið. Það hefir komið til mála vor á meðal að koma upp dálítilli kapellu eða guðshúsi, sem helgað verði minn- ingu þessa ágæta félaga vors, þar sem hægt væri að hafa guðs- þjónustu á hverjum sunnudegi og hátíðum, og væri innangengt í hana úr sjálfu hælinu, svo þang- að væri hægt fyrir alla að kom- ast. En til þess þarf fé og ennþá eigum við mikið starf óunnið. En margar hendur vinna létt verk, þetta þyrfti ekki að vera tilfinn- anlegt ef margir sem hlýhug bera til þessa félags vors létu eitt- hvað í þessu skyni af hendi. Jónas Kristjánsson, læknir. SIGURJÓN Danivalsson, — dá- inn. Þessi sorgarfregn barst um Heilsuhæli Náttúrulækningafé- lagsins og féll sem þung úthafs- alda yfir heimilið. Hin snögga breyting var svo óvænt og skyndileg. Sigurjón, sem þennan dag, eins og venjulega, hafði ver- ið hress og glaður og umgengizt hælisgesti með sínu ljúfa og létta viðmóti, var allt í emu kvaddur burtu frá þýðingar- miklu starfi, er hann hafði svo brennandi áhuga á og hafði helgað starfskrafta sína. Sigur- jón var ekki aðeins framkvæmda stjóri Heilsuhælisins, heldur hinn áhugasami hugsjónarmaður um framgang og þróun þeirrar stefnu, enda náinn vinur og ein- lægur samstarfsmaður hins aldna brautryðjanda, Jónasar Kristjánssonar, læknis, sem nú sá hilla undir áframhaldandi framfarir í samvinnu við hmn framsýna framkvæmdastjóra og ágæta lækni hælisins. Við, sem nú á þessum mikil- vægu tímamótum í starfi hælis- ins, dveljumst þar og skiljum hversu stórt skarð hefur verið höggvið í áhugamannahóp þess og þó sérstaklega hvað varðar hina daglegu forsjá hælisins, óskum þess nú, að það skarð, sem enn stendur autt eftir Sigur- jón Danivalsson, megi takast að skipa aftur jafnágætum manni og að ævarandi blessun hvíli yf- ir starfi Heilsuhælisins, svo að hingað megi í framtíðinni sækja bæði heilsubót og heilsuvernd. Það er einnig örugg trú braut- ryðjendanna. Sigurjóns er minnzt hér með hljóðri þökk. Við hælissjúkling- ar vottum ástvinum Sigurjóns djúpa samúð og þá ekki sízt vini hans, Jónasi Kristjánssyni. Heilsuhæli N.L.F.Í., 22. ágúst ’58. Ilælissjúklingar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.