Morgunblaðið - 22.08.1958, Page 9

Morgunblaðið - 22.08.1958, Page 9
Föstudagur 22. ágúst 1958 MORGVNBLAÐIÐ 9 Tilvera íslenzku þjóðarinnar er háð vernd- un fiskimiða hennar Sögulegt yfirlit um landhelgismálið MORGUNBLAÐINU barst í fyrra- Bretlandi. Nú hefur þessi útfærsla dag sögulegt yfirlit frá utanríkis- fengið viðurkenningu í reynd. ráðuneytinu um landhelgismál Islendinga. Er þetta bæklingur á ensku og fylgdi honum þýðing á íslenzku. Það er að sjálfsögðu góðra gjalda vert að fá slíkar skýr ingar á landheigismálinu og bar- áltu íslendinga fyrir verndun fis’ki miða sinna. En því miður kemur þessi enski bæklingur mikils til of seint. Honum hefði átt að dreifa út meðal blaða, fréltaslofnana og víða í nágrannalöndum okkar snemma í vor. Þá hefði verið ein- hver von um að gagn hefði orðið að honum. En hann er gefinn út nú, 10 dögum áður en hin nýja friðunarreglugerð á að taka gildi. Frekari útfærslu þörf 5) Þótt reynslán hafi sýnt, að útfærsla fiskveiðilandhelginnar 1952 hafi gert mikið gagn, hefur íslendingum samt alltaf verið ljóst, að hún var ekki fullnægj- andi og frekari útfærslu væri því þörf. Islendingar hafa hins vegar dregið frekari útfærslu vegna þess að þeir hafa beitt sér fyrir því á alþjóðlegum vettvangi, að sam- komulag næðist þar um víðáttu landhelginnar. Þannig áttu þeir frumkvæði að því á þingi S.Þ. 1949 að þjóðréttarnefnd S.Þ. var falið að rannsaka reglurnar um víð- Enda þótt þetta sögulega yfirlit og ! áttu landhelginnar, en henni ekki skýringar eigi fyrst og frems. er- ! aðeins faiið að rannsaka aðra indi til útlendinga, sem lítt þekkja ! þætti reglnanna á hafinu, eins og til Iandhelgismáls okkar, þykir Mbl. þó rétt að lesendur hess eigi kost á að kynnast þeim. — Fer það þess vegna hér á eflir: Landið verði byggilegt án fiskimiðanna 1) íslendingar eru ein mesta fiskveiðiþjóð í heimi. Landið er snautt af náttúruauðlindum. Mik- ið af nauðsynjum þjóðarinnar verð ur að kaupa frá öðrum löndum. Fiskur og sjávarafurðir verða að standa undir þessum : inkaup- um, enda eru sjávarafurðir um 97% af útflutningi íslendinga. — Það er staðreynd, sem enginn fær haggað, að án fiskimiðannc. um- hverfis Islands, myndi landið vart vera byggilegt. Verndun fiskimið- anna er viðfangsefni, sem tilvera þjóðarinnar er komin undir. 2) Þegar þetta cr haft í huga, er augljóst, að það var Islending- um vaxandi áhyggjuefni að fylgj ast með ofveiði þeirri, sem átti sér stað á íslandsmiðum á fyrri helm ingi þessarar aldar. Á tímabilinu mil'li heimsstyrjaldanna tveggja, stefndi ljóslega í þá átt, að al- gjör eyðilegging vofði yfir fisk- stofninum, ef ekki yrði rönd við reist. Afli, miðað við fyrirhöfn, fór síþverrandi með ári hverju, sem leið. Má nefna sem dæmi, að árið 1919 var dagsafli af ýsu rúm lega 21 vætt, en 1937 var hann kominn niður í 5 vættir. Ff miðað er við 100 togstundir, var ýsu- aflinn 243 vættir árið 1922, en 71 vætt árið 1937. Um ýmsar aðr- ar fisktegundir er svipað að segja. Áhrif verndarinnar 3) 1 heimsstyrjöldinni síðari féllu veiðar erlendra skipa við Is- land að mestu niður og fengu fisk stofnarnir þá nauðsynlega vernd. Áhi ifin komu brátt i ljós með vax- andi afla. Eftir styrjöldina hófu erlend skip veiðar við ísland að nýju og sáust þess brátt merki í minnkandi aflabrögðum. Þannig er það upplýst, að ýsuaflinn minnkaði úr 256 vættum árið 1949 niður í 169 vættir árið 1952, miðað við 100 togtíma brezkra togara á Islandsmiðum. Á sama tíma minnk aði aflinn á kola úr 56 vættum nið ur í 35 vættir, einnig miðað við 100 togtíma. 4) Þessar staðreyndir leiddu til þess, að Islendingar töldu sér áhjá kvæmilegt að gera sérstakar ráð- stafnir til verndar fiskstofninum, er afkoma þeirra byggist svo mjög á. í því skyni setti Alþingi sér- staka löggjöf árið 1948 um vís- indaiega friðun fiskimiða land- grunnsins. Á grundvelli þeirra laga var sett reglugerð árið 1952 um útfærslu fiskveiðilandhelginn- ar í 4 mílur, ásamt verulegri út- færslu á grunnlínum. Af hálfu nokkurra ríkisstjórna var þessari útfærslu mótmælt, m. a. á þeim grundvelli að einhliða útfærsla væri ólögmæt. Til þess að reyna að hnekkja henni, var sett lönd_ unarbann á íslenzkan togarafisk í upphaflega var lagt til. Á alls herjarþingunum 1953 og 1954 hafði Island forgöngu um að kor.a í veg fyrir, að verkefni nefndar- innar yrði takmarkað að nýju. Skýrsla þjóðréttarnefndarinnar var lögð fram sumarið 1956 og hafði hún m. a. komizt að þeirri niðurstöðu,. að alþjóðalög leyfðu ekki víðáttumeiri landhelgi en tólf mílur, en það þýðir vitanlega að einstök ríki hafi heimild til út- færslu innan þess takmarks. Island lagði áherzlu á, að tillögur nefnd- arinnar yrðu teknar til meðferðar og afgreiddar strax á þinginu 1956, þar sem Island gæti ekki beð ið lengi eftir ákvörðunum um þetta mál. Niðúrstaðan varð hins vegar sú, að ákveðið var að kalla saman sérstaka ráðstefnu um haf- réttarmálin í Genf vorið 1958. Is- land greiddi atkvæði gegn þeim fresti, þar sem það vildi fá mál- ið afgreitt strax. 2. Sum önnur ríki hafa jafn vel öllu meiri söguiegan rétt m Islendingar sjálfir til veiða á Islandsmiðum. 3. Útfærslu fiskveiðilandhelg innar er ekki þörf af friðunar- ástæðum, a. m. k. ekki eins víð- tækrar útfærslu og hér er um að ræða. 4. Útfærslan veldur ýmsum öðrum þjóðum miklu og tilfinn anlegu tjóni, ef hún nær fram að ganga. Fleiri mótbárur hafa komið fram, en þessar má telja helztar og algengastar og verður því vik- ið að þeim hér á eftir. Rétt þykir að það komi fram, að undantekningarlaust í öllum þeim mótmælum, sem fram hafa komið, hefur það verið viðurkennt: að Islendingar ættu aíkomu sína undir fiskveiðum og þeir hljóti því að láta sig verndun fiskstofns ins á íslandsmiðum miklu varða. Rétlurinn til einhliða útfærslu á landhelgiuni 9) Engir alþjóðlegir samningar eru til varðandi það, hvernig rík- in skuli ákveða landhelgi sína. — Hér verður því að fara eftir þeim venjum, er skapazt hafa. Næstum öll, ef ekki öll ríkin hafa ákveðið landhelgi sína með einhliða ákvörð Það verður því ekki sagt með BeðiS eftir úrslituni í Genf 6) Þær raddir voru almennar á Islandi, að ekki ætti að bíða fram yfir Genfarráðstefnuna með _rek- ari útfærslu fiskveiðilandhelginn- ar, heldur ákveða hana strax í samræmi við framangreinda nið_ urstöðu þ j óðréttarnef ndarinnar. Ríkisstjórnin taldi þó rétt að bíða ur í von um alþjóðlegt samkomulag; sem fullnægði þörfum Islands. — Niðurstaðan á Genfarráðstefnunni varð hins vegar sú, að ekki náð ist þar neitt endanlegt samkomu lag, en hins vegar leiddi ráðstefn an það ótvírætt í ljós, að hin svo- kallaða þriggja mílna landhelgi er fullkomlega úr sögunni, en tólf mílna fiskveiðilandhelgi lang- mestu fylgi að fagna meðal þjóð- anna. 7) Eftir Genfarráðstefnuna var með öllu óráðið, hvort eða hvenær yrði aftur reynt að ná alþjóðlegu samkomulagi um þessi mál, eða hvort slík tilraun myndi heppn- ast betur en Genfarráðstefnan, ef til kæmi. Islendingar gátu hins veg ar ekki lengur dregið að færa út fiskveiðilandhelgina, ef ekki átti að stofna fiskveiðum þeirra í al- gera tvísýnu. Af þeim ástæðum var því sú ákvörðun tekin í maí- mánuði s.l. að færa út fiskveiði- landhelgina í samræmi við álit þjóðréttarnefndarinnar o/ niður- stöður Genfarráðstefnunnar. Hinn 30. júní s. 1. var því gefin út reglu gerð um útfærslú fiskveiðilandhelg innar í 12 mílur. Reglugerð þessi tekur gildi 1. september 1958. neinum rétti, að Islendingar hafi brotið alþjóðalög eða venjur með einhliða útfærslu fiskveiðiland- helginnar, heldur hefur ísland þar þvert á móti fylgt ríkjandi venjum. 1 mótmælum þeim, sem ríkisstjórn íslands hafa borizt, eru líka hvergi nefnd ákveðin dæmi um lög eða venjur, sem þessi ákvörðun íslands brjóti gegn. Hitt er svo annað mál, að réttur ríkis til einhliða útfærslu hlýtur að vera háður vissum takmörkunum. Hér á eftir skal vikið að því, að íslendingar hafa með umræddri ákvörðun sinni ekki farið yfii' þessi takmörk. is not uniform *s regards the delimitation of the territorial sea ‘, og „that international law does not permit an extension of the territorial sea beyond twelve miles“. 1 þessari niðurstöðu nefnd arinnar felst viðurkenning þess, að ríki hafa rétt til að færa land- helgina út í a. m. k. 12 mílur. 3ja mílna reglan ú" sögunni 13) Á hafréttarráðstefnunni, sem haldin var í Genf á síðastl. vori, kom það í ljós, að þriggja mílna landhelgin er endanlega úr sögunni og það svo fullkomlega, að helztu talsmenn hennar, Bret- ar, buðuc il að fylgja 6 mílna landhelgi til samkomulags iftir að þeim var ljóst, hve mikið fylgi var með enn frekari útfærslu landhelginnar. Alls komu fram 13 tillögur varðandi víðáttu landheig innar, en engin þeirra náði til- skildum meirihluta, þ. e. tveimur þriðju greiddra atkvæða. Tillaga Kanada um 12 mílna fiskveiðiland helgi fékk meirihluta greiddra at kvæða og kom það fram bæði þann ig og á annan hátt, að 12 mílna fiskveiðilandhelgi átti miklu fylgi að fagna. Jafnvel margar þær þjóðir, sem nú hafa mótmælt út færslu fiskveiðilandhelginnar, þar á meðal Bretar, greiddu atkvæði með tillögu þess efnis, að strand- ríki, sem ekki hefði orðið fyrir erlendum ágangi á fiskimiðum sín um innan 12 mílna frá grunnlínu, mætti ákveða þá víðáttu fiskveiði- landhelginnar (bandaríska tillag- an). Að réttu lagi, ætti ríki, sem hefur orðið fyrir erlendum ágangi á fiskimiðum sínum, þó miklu frem ur að hafa þennan rétt. Það er ekkert annað en einn angi ureltrar nýlendustefnu að ætla þeim ríkj- um, sem þannig er ástatt um, minni rétt en öðrum, og l'ó alveg sérstaklega, þegar svo stendur á, að afkoma þeirra byggist alveg á fiskveiðum. friðunar mótmælum, sem Erlenil mótmæli 8) Af hálfu ýmissa erlendra að- ila, einkum togaraeigenaa, hefur hinni nýju reglugerð um fiskveiði- landhelgina verið mótmælt. Þá hafa nokkrar ríkisstjórnir lagt fram formleg mótmæli. 1 þessum mótmælum hafa þessar mótbárur helzt komið fram: 1. Island hefur ekki rétt sam kvæmt alþjóðalögum til þess ið færa út fiskveiðilandhelgina einhliða. Engin alþjóðalög til 10) Engin alþjóðalög eða venj- eru til um ákveðna víðáttu landhelginnar. Landhelgi ein- stakra ríkja er því mjög mismun- andi eða 3 mílur, 4 mílur, 6 míl ur og 12 mílur, og í einstökum tilfellum hafa strandríki ákveðið sér viss réttindi utan við það svæði. 1 Evrópu hafa ríkin mjög mismunandi landheigi, eða Bret- land 3 mílur, Svíþjóð og Noregur 4 mílui', Grikkland, Italía og Spánn 6 •mílur, Sovétríkin og Júgóslavía 12 mílur. Á allsherjar- þingi S.Þ. 1956 var það upplýst, að aðeins 25% þeirra strand- ríkja, sem væru aðilar að S.Þ., hefðu þriggja mílna landhelgi. Öll hin, eða 75 % þeirra strandríkja, sem þá voru í S.Þ., höfðu breið- ari landhelgi en þjár r k;.. 11) Að minnsta kosti sum þau ríki, sem hafa mótmælt útfærslu íslenzku fiskveiðilandhelginnar í 12 mílur, hafa í reynd viðurkennt 12 mílna landhelgi annarra ríkja. Þannig hefur t. d. Bretland sam- ið við Sovétríkin um að brezk skip megi veiða á vissum svæðum á Hvítahafi, sem eru innan hinnar yfirlýstu 12 mílna landheigi Sovétríkjanna. Með þessu hefur Bretland raunverulega viðurkennt 12 mílna landheigi Sovétríkjanna, enda umræddur samningur óþarf- ur að öðrum kosti. Nauðsyn aukinnar 16) I ýmsum borizt hafa vegna- útfærslu fisk- veiðilandhelgi Island, er því haldið fram, að ekki hafi verið þörf út- færslunnar vegna aukinnar frið- unar. I raun og veru hefur þessu verið svarað að miklu leyti hér að framan, þar sem bent hefur verið reynsluna á tímabilinu milli heimsstyrjaldanna og eins eftir síðari heimsstyrjöldina, þangað til útfærslan 1952 kom til sögunnar. Þótt sú útfærsla kæmi að miklu gagni, var öll ástæða til að ætla að hún væri ekki fullnægjandi. Skal hér á eftir fátt eitt nefnt, er olli ótta Islendinga í því sambandi. 17) Fyrstu árin eftir útfærsl- una 1952, fór fiskafli Islendinga vaxandi, þegar síld er undanskil- in, og náði hámarki 1955. Árið 1955 nam allur fiskafli íslendinga, (síld undanskilin), 355,359 smál., árið 1956 343.231 smál. og árið 1957 318.832 smál. Hér er um verulega rýrnun að ræða, þrátt fyrir það þótt skipastóllinn hafi farið stækkandi á þessum tíma, veiðarfærum og veiðitækni farið fram og úthaldstími skipa lengst, t. d. var hann til jafnaðar talsvert lengri 1957 en 1955 vegna verk- falla og stöðvana, er urðu i síðar- nefndu árinu. Þótt ekki verði al- gerlega fullyrt, að þessi aflarýrn- un reki allar rætur til rányrkju á fiskimiðunum og fiskþurrðar af völdum hennar, hlýtur það að þykja skiljanlegt og -ðlilegt, að þetta hafi valdið Islendingum áhyggjum, svo mjög sem þeir eru háðir fiskveiðunum, og það ýtt undir þá að draga ekki auknar friðunai'i'áðstafanir á langinn, eft ir fyrri reynslu í þessu efni, sem áður hefur verið bent á. 14) Fleiri rök mætti færa fram, sem bæði beint og óbeint styðja lögmæti þeirra ákvörðunar íslend inga að færa út fiskveiðilandhelg ina í tólf míiur, miðað jafnt við ráðandi venjur og ríkjandi álit í heiminum. Það sem hér er talið, nægir hins vegar til að sýna eftir- farandi: 1 fyrsta lagi það, að ein- hliða útfærsla er í samræmi við ríkjandi reglur og venjur, og í öðru lagi það, að útfærsla í 12 mílur er innan þeirra takmarka, er hinn einhliða réttur nær til, sbr. álit þjóðréttarnefndarinnar og 12 mílna landhelgi margra ríkja. Frumkvæði íslands 12) Eins og áður er rakið, átti ísland frumkvæði að því, að þjóð- réttarnefnd Sameinuðu þjóðanna var falið að athuga reglur um víð- áttu landhelginnar jafnhliða því, sem hún athugaði aðrar reglur hafréttarins. Þjóðréttarnefndin komst að þeirri niðurstöðu (sjá álit hennar dagsett 25. október 1956) „that international practise „Sögulegur“ réttur útlendinga á íslandsniiðuin 15) Rétt er að víkja nokkrum orðum að þeim fullyrðingum, að útlendingar eigi sögulegan rétt til fiskveiða innan tólf mílna fisk- veiðilandhelgi Islands, en á þenn- an „rétt“ er m. a. lögð mikil áherzla í ályktun Haagfundarins, sem haldinn var af togaraeigend- um frá nokkrum löndum í Vestur- Evrópu. Þessari fullyrðingu verður bezt svarað með því að rifja upp hver landhelgi Islands hefur verið liðnum öldum. Á árunum 1631— ’62 voru útleíidingum bannaðar fiskveiðar a. m. k. 24 míl_ ur frá ströndinni og á þeim tíma voru allir flóar og firðir einnig lokaðir fyrir fiskveiðum erlendra ríkja. Frá 1662-—1859 var fjar- lægðin 16 mílur. Á síðari hluta 19. aldar var takmörkunum hins vegar slælega fylgt fram af hálfu danskra stjórnvalda, en Island var þá dönsk nýlenda. Árið 1901 gerðu svo dönsk stjórnvöld sérstakan samning við Bretland um land- helgi Islands gegn mótmælum Is- lendinga og gilti hann til 1951, en þá höfðu íslendingar notfært sér réttinn til að segja honum upp. Sé hinn sögulegi réttur einn lagð ur til grundvallar samkvæmt fram ansögðu, gætu Islendingar gr til- kall til enn víðáttumeiri fiskveiði- landhelgi en þeir hafa nú sam- kvæmt hinni nýju reglugerð frá 30. júní þ. á. Aukning fiskiflotans 18) Kunnugt er um, að sumar þær þjóðir, sem hafa stundað fisk veiðar á Islandsmiðum, auka nú mjög fiskveiðiflota sinn. Sama gera einnig ýmsar aðrar þjóðir, sem ekki hafa stundað þar veið- ar áður, en mjög líklept er að sæki þangað, þegar þær hafa aukið fiskveiðiflota sinn. Þá er kunnara en frá þurfi að segja, að veiðitækn inni fleygir fram með ári hverju. Ef ekkert hefði verið aðgert, fólst í öllu þessu mikil hætta á stór- aukinni rányrkju á Islandsmiðum með þeim afleiðingum, að fisk- stofninn gengi til þuri'ðar og helztu stoðinnl þannig kippt und- an afkomu íslenzku þjóðarinnar. Eftir þessu gútu Islendingar ekki beðið aðgerðalaust og ættu allir sanngjarnir menn að geta sett sig í spor þeirra í þeim efnum. 19) Sú skoðun hefur komið fram, að íslendingar stefni ekki að friðun með útfærslu fiskveiði- landhelginnar, þar sem þeir hafi £ hyggju að leyfa togurum sínum að stunda veiðar á vissum svæð- um innan hennar. Þessi skoðun er að sjálfsögðu ekki rétt. Það er vitanlega allt annað, að 40 togarar stundi veiðar á vissum svæðum og vissum tíma innan fiskveiðiland- helgislinunnar, en að mörg hundr- uð togara hafi ótakmarkaðan að- gang til veiða þar. Auk þess geta Islendingar líka hvenær sem er bannað togurum sínum að veiða inr.an fiskveiðilandhelginnar, ef það þykir nauðsynlegt. 20) Þá hefur sú skoðun komið fram, að Islendingar eigi að hugsa minna um sjávarútveginn og varð veizlu fiskstofnsins en þe;r gera nú, en koma í staðinn upp stóriðju í landi, byggðri-á virkjun vatns- aflsins. Það er vissulega rétt, að íslendingum er bað mikil nauðsyn að auka fjölbreytni atvinnuvega sinna. Að þeim málum e: ’íka unn ið. En jafnvel þótt allt gengi þar að óskum, munu Islendingar samt eftir sem áður þurfa að styðjast við öflugan og vaxandi sjáiarút- veg, svo að þetta breytir ekki nauð syn þeirrar ákvörðunar að vernda fiskstofninn. Islendingar mega ekki slaka neitt á því að standa vel vörð um fiskimið sín og vernd un fiskstofnsins þar. Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.