Morgunblaðið - 22.08.1958, Side 13

Morgunblaðið - 22.08.1958, Side 13
Föstudagur 22. ágúst 1958 MORCVNBLAÐIÐ 13 Danfríður Brynjólfsdóttir frá Hólslandi — minning FYRIR 75 árum bjuggu að Gröf í Breiðuvík á Snæfellsnesi Brynj- ólfur hreppstjóri Daníelsson og kona hans Guðriður Þorsteins- dóttir. Þau voru af góðum bænda ættum snæfellskum og urðu í fremstu röð búenda sveitarinn- ar. Meðal barna þeirra var Dan- fríður, er fæddist 24. júní 1883. Sagt er, að hún hafi strax orðið eftirlæti foreldranna og mikiJ augasteinn föður síns, er lifði Guðríði um árabil. Árið 1902 30. okt. eru þau Brynjólfur og Guð- ríður bæði látin, en þá er gert brúðkaup þeirra Danfríðar og Kristjáns Pálssonar og bú þeirra reist að Grof. Við vitum það, sem munum Danfríði miðaldra, að þjóðsög- urnar um glæsileik hennar gjaf- vaxta áttu sér örugga stoð í veru leikanum, því að svo bar hún af öðrum konum, að í hópi þeirra horfðu menn jafnan íyrst og sið- ast til þess sætis, er hún skipaði, en þeir, sem þekktu Kristján með an hann var og hét skilja það, að hún kysi hann oér til sam- fylgdar, framar þeim, s->'n eldri voru og ríkari, þar sem hann var yfirlitsprúður og æskuteitur, kunnur að vaskleik og drengur góður. Fyrstu 11 búskaparárin sátu ungu hjónin lítt í kyrrsæti og undu ekki til lengdar búsetu á sömu ábýlisjörð fyrr en árið 19i3 er þau fluttu að Hólslandi í Eyja hreppi. Þar bjuggu þau síðan i hálfan fjórða áratug, en fyrir því verður minningin um búskap þeirra lengst tengd við hæoina neðan Hafursfells, þar sem útsýn er fegurst yfir til jökulsins hvita, er rís yfir bernskuslóðunum og strandarmnar bláu, þar sem ævi- kvöldinu lauk. Seytján urðu börn þeirra Dan- fríðar og Kristjáns. Tvö dóu í bernsku, ung stúlka hneig, tveir uppkomnir synir féllu í valinn, tólf eru á lífi, fimm dætur, sjö synir. Þau eru: Guðríður, Svafa, Aðalheiður, Kristín og Fanney, allar giftar og búsettar hér í Reykjavík, að undantekinni Að- alheiði, sem er húsfreyja norður í Hrútafirði; Brynjólfur, Guð- mundur, Kristjón, Kristján, Ing- ólfur, Skarphéðinn og Þórður, allir kvæntir og heimilisfastir hér í bæ, að Kristjóni undanteknum, sem býr að Bessastöðum. . Fyrir áratug fluttu þau Dan- fríður og Kristján til Reykjavík- ur, þar sem þau sátu síðan í skjóli barna sinna, lengst að Stóra-Seli við Holtsgötu. í vor er leið gerð- ist Danfríður svo ellimóð, að henni varð þörf vistar í sjúkra- húsi. Upp frá því naut hún á- gætrar hjúkrunar að Sólvangi við Hafnarfjörð, unz ævidagurinn varð allur 17. þ.m. f dag fer útför hennar fram frá kirkjunni í Fossvogi. Hér mun flest vera greint, sem mestu varðar í þeirri sögu Dan- fríðar, er síðar má lesa í skráð- um heimildum. Sú saga er frem- ur fábrotin hið ytra, enda lét Danfriður sig fremur varða það, er gerðist hið innra með fjöl- skyldu hennar en þar voru eykta- mörk vinnudags lítt færð til bókar. Þar — í hinu mikla stríði móðurinnar fyrir framtíð barn- anna — gerðist saga Danfríðar. Og það var löng saga. Ýmsum þeim, er létu sig gruna eitthvað það, sem innra bjó með þessari kyrrlátu og ljúfu konu, þar sem hún bjó við þröngan kost með barnahópinn sinn mikla, hefir ef- laust komið til hugar, að heima- sætunni fögru frá Gröf myndi hafa þótt sinn hlutur fátæklegri í lífinu en vonir stóðu til í önd- verðu. Vera má, að einhvern tíma hafi það komið í hug Danfríðar, þegar þrengst var í búi, að óþarf- lega kröpp hefðu henni verið sköpuð kjör, en aldrei heyrðist þó neitt af hennar vörum í þá átt, aldrei var kvartað, ásakað, ekkert öfundarorð til þeirra, sem betur voru efnum búnir — en vitanlega voru þeir þó margir, því að annað var óhugsandi, þrátt fyrir ofurmannlegan dugnað og elju beirra hjónanna og ötula hjálp barnanna, strax er þau voru vaxin úr grasi. En einhvern veginn lukkaðist það þó, að bægja sárustu örbirgðinni frá bæjardyr- unum. Eflaust hefir stundum orð- ið að skammta naumt, þegar harðast var í ári, en ég heyrði aldrei talað um búsveltu í Hóls- landi, og á uppvaxtarárum mín- um var hungruðum strák það ærið tilhlökkunarefni lykkjunn- ar á leiðinni heim, að eiga von á veitingum Danfríðar. Mér er nærfærm hennar í þeim efnum mjög í barnsminni, kaffi- og köku sendingar á engjar nágrannanna, þurrir sokkar á votan fót, hlýr lófi á kalda kinn. Þannig deildi hún kjörum með öllum, skyldum Framh. á bls. 14 Ný íslenzk framleiðslo Fram/eitt úr is/enzkri ull Mjög áferðafaIlegt Lóast mjög litið Tvímælalaust þéttasta og bezta teppaefni, sem sézt hefir hér. Nýkomið glæsilegt úrval í einlitum. Athygli skal vakin á því, fyrir þá, sem eru að byggja, að óþarft er að dúkleggja undir teppin. — Klæðum horna á milli — fyllum ganga og stiga með aðeins viku fyrirvara. Glæsilegt úrval af útiendum teppum. Ullarteppi í mörgum stærðum og gerðum. — Einnig ullarhampsreppi í fjöl- breyttu úrvali. — Gangadregill 90 sm. breiður. Ný- tegund í hrosshársteppum í mörgum stærðum og ný- tízku mynztrum. Sendið okkur mál — Sendum gegn póstkröfu út um land. 5 herb. hæð við Víðimel til sölu. Stærð 135 ferm. Auk þess fylgir eitt herb. í risi. HARALDUR GUÐMUNDSSON löggildur fasteignasali, Hafnarstræti 15, símar 15415 og 15414 heima. Trésmíðavélar til sölu Til sölu eru trésmíðavélar. — Sem nýr sænskur þykktar hefill (heflar 60 cm breidd). Þýzk konbineruð trésmíða- vél, hefill, hjólsög, bandsög, borvél og fræsari. Enn- fremur blokkþvingur og fleira. Tilboðum sé skilað til undirritaðs fyrir 1. sept. n.k. sem veitir allar upplýsingar. Akranesi 20. ágúst 1958. ÁRNI ÁRNASON Skólabraut 27 — Sími 103. „Olcf English”QI||-B3iTE(frb- dræ-bræt) FIjótandi gljávax fallegt úrval m.a. undirkjólar og buxur. MjfiUIIUIllP Laugaveg 89. ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT KVEN-STRIGASKÓK með hæl margir litir KVEN-BOMSUR ýmsir litir BLÚNDUR og MILLIVERK dún og fiðurhelt LÉREFT 140 cm. | mislitt LÉREFT Teppi /, Aðolstræti 9, sími 14190 Leiðin liggur til okkar Lœkjcrbúðif LAUGARNESVEGt”

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.