Morgunblaðið - 28.08.1958, Síða 1
>
5jáífstœðisflokkurinn leggur til að ráð-
herrafundur Atlanfshafsbandalagsins
verði kallaður saman nú þegar
— vegna hcetfu á að friðhelgi íslenzks
landsvœðis verði ógnað
Bréf miðsfjómar Sjálfstæðisflokksins
frá 22. ágúst afhent utanríkisráðherra
MIÐSTJÓRN SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS hefur ritað utanríkis-
ráðherra íslands bréf, þar sem hún leggur til að ríkisstjórnin óski
þess að þegar í stað verði kvaddur saman ráðherrafundur Atlants-
hafsbandalagsins til þess að ræða og finna lausn á þeim vanda,
sem skapazt hefur við það, að íslendingar telja ógnað friðhelgi
landsvæðis, er þeir telja sig eiga rétt á. Vitnar miðstjórnin í bréfi
sinu í 4. grein stofnsamnings bandalagsins, þar sem gert er ráð
fyrir, að aðildarríkin hafi samráð sín á milli, hvenær sem eitthvert
þeirra telur friðhelgi landsvæðis einhvers aðila, pólitísku sjálf-
stæði eða öryggi, ógnað.
Bréf þetta var afhent Guðmundi 1. Guðmundssyni, utanríkis-
ráðherra, í gær. En föstudaginn 22. ágúst síðastliðinn höfðu þeir
Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson rætt málið í heild við ráð-
herrann og lesið bréfið upp fyrir honum. Varð þá að samkomulagi
milli þeirra, fyrir hönd miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins, og utan-
ríkisráðherra, að hann tæki til athugunar þá tillögu, sem í bréfinu
er fólgin og bréfið sjálft yrði sent honum eftir fáa daga.
Bréf miðstjórnarinnar til utanríkisráðherra fer hér á eftir
í heild:
22. ágúst 1958
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
lagði í bréfi sínu, dags. 7. ágúst
s.L, til forsætisráðherra, til, að
ríkisstjórnin birti greinargerð
um landhelgismálið og öll gögn
þess. Þetta gerði miðstjórnin í
þeirri von, að með þessu yrði
eytt margháttuðum missögnum
um málið, sem hættulegar eru
fyrir þá einingu þjóðarinnar, sem
allir segjast keppa eftir. Ríkis-
stjórnin hefur ekki enn svarað
bréfi miðstjórnarinnar og ekki
séð sér fært að verða við tillögu
hennar.
Fyrir þá, sem ekki njóta
trúnaðar ríkisstjórnarinnar, er
því mjög erfitt að átta sig á,
hvað raunverulega hefur
gerzt í málinu, og því fremur
sem mjög gagnstæðar yfirlýs-
ingar eru gefnar um það af
málssvörum sjálfrar stjórnar-
innar.
Augljóst er þó, að málið hefur
undanfarnar vikur verið til um-
ræðu meðal sérfræðinga innan
Atlantshafsbandalagsins, og er
nú í fréttum innlendra og er-
lendra blaða talað um „mála-
miðlunariausn", sem þar sé til
meðferðar. Eins og sakir standa,
virðist þó með öllu óvíst um lík-
ur fyrir samþykkt hennar.
Hins vegar er talað um, að
Bretar muni senda herskip til
hindrunar því, að íslenzk varð-
skip taki veiðiskip þeirra eftir
hinn 1. sept. n.k. á því svæði,
sem þá er ákveðið að komi til
viðbótar undir íslenzka fisk-
veiðilögsögu.
um málið á vegum Atlantshafs-
ráðsins, séu samkvæmt þessu
ákvæði.
Hægara að koma í veg fyrir
voðann
Ef ríkisstjórnin telur sig hafa
vissu fyrir því að geta afstýrt
vandræðum með þeirri málsmeð-
ferð, sem nú er á höfð, er auð-
vitað ekki nýrra úrræða þörf.
Ella verður að gæta þess, að inn-
an skamms kann þá atburði að
bera að höndum, sem tilætlunin
er einmitt að afstýra með fyrir-
greindu samningsákvæði. Hér er
áreiðanlega hægara að koma í
veg fyrir voðann en bæta úr hon-
um, ef hann skellur á.
Þess vegna beinir miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins því til
ríkisstjórnarinnar, að hún
neyti nú þegar ákvæðis 4.
gr. Norður-Atiantshafssamn-
ingsins og óski þess, að ráð-
herrafundur bandalagsins
verði kvaddur saman til að
ræða þennan vanda og finna
á honum lausn áður en í ó-
efni er komið.
Lýsir miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins sig fúsa til samstarfs
við ríkisstjórnina um undirbún-
ing og málsmeðferð á slíkum
fundi, ef til kemur.
F. h. miðstjórnar
Sjálfstæðisflokksins
Óiafur Thors.
Hammarskjöld
kominn til Amman
AMMAN, 27. ágúst — Reuter —
í dag kom aðalritari SÞ, Dag
Hammarskjöld til Amman, og
mun hann nú hefjast handa um
að koma á varanlegum friði í
Miðjarðarhafslöndum, eins og
gert var ráð fyrir í samþykkt-
inni, sem gerð var samhljóða á
aukaþingi Allsherjarþingsins. —
Síðar í dag ræddi Hammarskjöld
við ráðherra úr stjórn Jórdaníu
og heimsótti Hussein Jórdaníu-
konung.
Hammarskjöld mun að öllum
líkindum dveljast í Jórdaníu til
laugardags, en þá fer hann flug-
leiðis til Genf til að opna alþjóða
ráðstefnu um friðsamlega nýt-
ingu kjarnorkunnar.
Allir íslendingar einhuga
Ástæðan fyrir þeim tiltektum an
er sú, að ríkisstjórn Bretlands og
raunar fleiri ríkisstjórnir vé-
fengja og mótmæla rétti íslands
til að færa lögsögu sína á þenn-
an veg út. ísland telur sig aftur
á móti eiga þennan rétt, og eru
allir íslendingar einhuga í því
efni. Hér er upp komin deila um
efni alþjóðalaga, og ef ekki verð-
ur við gert, eru allar líkur til, að
af því leiði það ástand, að ísland
telji ógnað friðhelgi landssvæðis,
sem það telur sig eiga rétt til.
En skapist slíkt ástand hjá ein-
hverju aðildarríki Norður-
Atlantshafsbandalagsins, segir
svo í 4. gr. stofnsamnings þess:
„Aðilar munu hafa samráð
sín á milli, hvenær sem ein-
hver þeirra telur friðhelgi
landssvæðis einhvers aðila,
pólitísku sjálfstæði eða öryggi
ógnað“.
Þetta ákvæði á auðvitað
ekki aðeins við, ef ógnunin
kemur frá aðila utan banda-
lagsins, heldur því fremur, ef
hún verður vegna ágreinings
sjálfra aðila bandalagsins.
Að skoðun miðstjórnar Sjálf-
stæðisflokksins ber íslenzku rikis
stjórninni því í senn skylda og
réttur til að kalla bandamenn
sína til þess samráðs, sem í 4.
gr. Norður-Atlantshafssamnings
er boðið, en ekki verður talið
eftir því, sem enn er fram komið,
að þær viðræður, sem verið hafa
TAIPEI, 27. ágúst — Reuter Mikil
sprenging varð í verksmiðju í
Chiayi á Suður-Formósu í dag —
23 menn fórust, 13 særðust og
12 manna er saknað.
Brezk-íslenzk rmbiun-
artillaga lögð fram?
ÓSLÓ, 27. ágúst. — NTB. — Lögð
hefir verið fram í deilunni um
fiskveiðilögsöguna brezk-íslenzk
málamiðlunartillaga, sem full
ástæða er til að ætla, að ríki, sem
hagsmuna eiga að gæta í þessu
efni, muni telja ákjósanlega.
Norska stjórnin ræddi í dag
brezk-íslenzku tillöguna á fundi
í Ósló. Engin tilkynning hefir
Norstad hershöfðingi
Norsfad kemur óvœnf í
heimsókn til Aþenu
AÞENU, 27. ágúst — NTB-AFP
— Yfrimaður Atlantshafsbanda-
lagsins, Norstad hershöfðingi,
kom í dag óvænt til Aþenu
ásamt fjölskyldu sinni og nokkr-
um mönnum úr starfsliði hers-
höfðingjans í aðalbækistöðvun-
um í París. Stjórnmálafréttarit-
arar í Aþenu telja víst, að til-
gangurinn með för hans sé sá að
reyna að telja grísku stjórnina á
að milda stefnu sína í Kýpurmál-
inu, svo að hægt verði að afstýra
alvarlegum vandræðum í sam-
Macraillon ræðir fiskveiðilðg-
sögnna við róðberra sína
Viðræðurnar i Paris faokast áleiðis
Samkvæmt góðum heimildum
snérust viðræðurnar í dag um
möguleika á því að fá Breta og
önnur lönd til að virða 12 mílna
fiskveiðilögsögu við ísland gegn
því, að veitt verði leyfi til að
veiða ákveðið aflamagn milli
fjögra og tólf mílna markanna.
Engin opinber tilkynning hefir
þó verið gefin út um viðræðurn-
ar, og þátttakendur í viðræðun-
um segja aðeins, að málið þokist
áieiðis.
PARÍS og Lundúnum, 27. ágúst.
— NTB. — Reuter. — Brezki for-
sætisráðherrann Harold Macmill-
kallaði í dag á sinn fund
nokkra ráðherra til að ræða
ákvörfhm ísiendinga um að færa
fiskveiðilögsögu sína úr 4 út í 12
mílur 1. sept. n.k.
Jafnframt héldu áfram viðræð-
ur í París milli sérfræðinga
þeirra Atlantshafsrikja, sem
teija sig eiga hagsmuna að gæta
í sambandi við fiskveiðilögsög-
una, í þeim tilgangi að leysa
deiluna með málamiðlun.
starfi Atlantshafsbandalagsrikja
á Miðjarðarhafi.
Haft er eftir góðum heimildum,
að ríkisstjórnir aðildarríkjanna í
Atlantshafsbandalaginu hafi
miklar áhyggjur af síversnandi
sambúð Grikklands og annarra
bandalagsríkja, einkum Tyrk-
lands, vegna Kýpurdeilunnar. —
Greinilegur vottur um þetta er,
að grískir liðsforingjar í stöðv-
um Atlantshafsbandalagsins í
Smyrna í Tyrklandi hafa verið
kallaðir heim. Fréttaritarar vest-
rænna blaða telja því einsýnt, að
Norstad hafi verið falið að reyna
að samræma sjónarmið Grikkja,
Tyrkja og Breta í Kýpurdeilunni.
verið gefin út um afstöðu stjórn-
arinnar, en talið er, að norska
stjórnin muni fallast á, að við-
ræðum verði »haldið áfram á
grundvelli þessarar tillögu.
MOSKVU, 27. ágúst. — NTB. —
AFP. — Málgagn sovézka varnar
málaráðuneytisins, Sovetskij
Flot, gagnrýnir í dag Breta harð-
iega fyrir afstöðu þeirra í deil-
unni um fiskveiðilögsöguna. Seg-
ir blaðið, að Bretar séu í þann
veginn að fremja níðingsverk á
litlu landi, og því hafi ísiending-
ar cnn einu sinni fengið tilefni til
að endurskoða afstöðu sína til At-
lantshafsbandalagsins. Bendir
blaðið jafnframt á, að öll sovézk
skip hafi fengið skipun um að
virða hina nýju fiskveiðilögsögu
íslands.
□-
AMMAN, 27. ágúst — Reuter —
Fréttaritara nokkrum frá AP var
í dag skipað að fara þegar síð-
degis í dag frá Jórdaníu. Tals-
maður Jórdaníustjórnar sagði í
dag, að fréttaritarinn hefði verið
beðinn að fara úr landi vegna
greinar, sem fréttaritarinn hefði
skrifað um Hussein Jórdaníu-
konung.
Rússar ítreka að nýja tisk-
veiðilögsagan verði virt
Blaðinu barst í gær eftirfar-
andi frá rússneska sendiráð-
inu:
HINN 16. júlí afhenti íslenzka
sendiráðið í Moskvu utanríkis-
málaráðuneyti Ráðstjórnarríkj-
anna orðsendingu, og fylgdi þar
með hin nýja reglugerð um víkk
un íslenzku fiskveiðilandhelginn-
ar úr 4 sjómílum í 12. Reglugerð
þessi á að ganga í gildi hinn 1.
september 1958.
Orðsendingu þessari hefur
utanríkismálaráðuneyti Ráð-
stjórnarríkjanna svarað með því
að tilkynna íslenzka sendiráðinu,
að fyrrnefnd reglugerð hafi verið
lögð fyrir hlutaðeigandi stjórn-
arvöld Ráðstjórnarríkjanna og að
fiskveiðitækj um þar í landi, sem
stunda fiskveiðar á miðum um-
hverfis ísland, hafi verið send
fyrirmæli um að virða í einu og
öliu hina nýju fiskveiðilandhelgi
íslands. (Pravda 24. 8. 1958).
v