Morgunblaðið - 01.10.1958, Síða 23
Miðvikudagur 1. október 1958
MORCVNBLAÐIÐ
23
Strokufanginn geymdi járn-
sagarblöðin í skóm sínum
STROKUFANGINN úr „Steinin-
um“, sem blöðin sögðu frá í gær-
morgun, skýrði frá því við yfir-
heyrslu I gær hjá rannsóknar-
lögreglunni, að það hefði tekið
sig um það bil tvær klukkustund-
ir að saga rimlana í gluggum
fangaklefans í sundur. Til þess
notaði hann járnsagarblöð.
Strokufanginn Marteinn Olsen
var handtekinn 25. sept. síðastl.
Hafði hann því setið í „Steinin-
um“ á þriðja sólarhring er hann
brauzt þaðan út. Kvaðst fanginn
hafa stungið sagarblöðunum í
skóna sína. í þeim hafi hann farið
inn í fangaklefann, þeir hafi ekki
verið frá honum teknir og aldrei
leitað í þeim.
Strokufanginn Marteinn Olsen
skýrði síðan frá því að nokkru
áður en hann var handtekinn af
lögreglunni, hafi maður nokkur
haft orð á því við hann, að hann
myndi eiga yfir höfði sér hand-
töku, vegna spellvirkja er framin
voru á bæ einum í Mosfellssveit.
Þá hafi sér dottið í hug að kaupa
járnsagarblöð, til þess að vera
við öllu búinn, ef hann yrði færð-
ur í fangelsi, — og geta þá gripið
til sagarblaðanna og flúið úr prís-
undinni.
Um klukkan 10 á laugardags-
kvöldið kvaðst Marteinn hafa
tekið til óspilltra málanna við að
saga sundur rimlana fyrir gluggan
um og „hafi hann unnið af full-
um krafti í 2 klst.“, en þá komst
hann út um gluggann og út í
fangelsisgarðinn, sem er ekki
mannheldur.
Hann kvaðst hafa lagt leið sína
í leit að bíl inn í Vogahverfið
því þar væri götulýsingunni áfátt
og gott til slíkra fanga. Þar stal
hann líka fyrsta bílnum. Um nótt
ina svaf hann í kjallaranum að
Reykjum í Mosfellssveit. — Síðan
sagði Marteinn alla ferðasöguna,
sem var í senn alllöng og við-
burðarík. Þannig hafði hann
mætti vörubílstjóra einum aust-
ur við Sogsbrú, sem hafði heimt-
að að fá að vita hvort hann væri
þar á sínum eigin bíi. Kvaðst Mar
teinn háfa sagt manninum að
hann væri á lánsbíl, — það lét
vörubílstjórinn sér nægja, en
kvaðst spyrja vegna augl. um
bil sem stplið hafði verið. — Á
ökuferð sinni um Austursveitir,
þar sem hann kom allvíða við,
bar það við, að hann ók út af
Villingaholtsvegi, en tókst að
koma bílnum upp á veginn aftur
eftir að hafa farið heim á bæ
og fengið lánaða skóflu. Þá
kvaðst hann hafa misst bílinn út
af veginum skammt frá Minni-
Borg, er hann ætlaði að víkja
fyrir bíl sem hann hélt að væri
lögreglubíll. Hann afþakkaði að-
stoð mannanna i bílnum. Skammt
frá stóð nefnilega jarðýta og sem
önnur ökutæki lék hún í höndum
Marteins, sem kom henni í gang
og notaði hana til að ýta bílnum
upp á veginn aftur. Bíllinn varð
benzínlaus rétt á eftir. Þá var það
að hann stal vörubíl á Minni-Borg
og ók í honum að Búrfelli, þar
sem hann' stal jeppanum sem
mest var leitað að og m. a. úr
flugvél. Var hann á jeppanum er
hann ók út af Villingaholtsveg-
inum. Hann kvaðst hafa ekið
framhjá Litla-Hrauni og hitt þar
nokkrá fanga. — Á mánudaginn
borðaði hann á Selfossi og fór sér
í engu óðslega er hann ók það-
an áleiðis til Reykjavíkur. Við
Geitháls sveigði hann út af veg-
inum og ók upp að sumarbústað
við Hafravaín. Þar skildi hann
bílinn eftir, eftir að hafa reist
umhverfis hann nærtæka hlera,
en það gerði hann til þess að
bíllinn sæist ekki langt að.
Lokakaflann í flóttasögunni
þarf ekki að segja, því á mánu-
dagskvöldið, nokkru eftir að
hann hafði yfirgefið bílinn varð
vart við ferðir hans í Mosfells-
sveit og að Reykjum var Mar-
teinn handtekinn um klukkan 10
í fyrrakvöld, sem kunnugt er af
fréttum.
Við yfirheyrslur hefur Mar-
teinn með öllu neitað að hafa
framið spellvirkin í Mosfellssveit
inni, en aftur viðurkennt bíl-
þjófnað hjá Sölufélagi garðyrkju
manna, en á þeim bíl ók hann
upp að kaupfélaginu við Brúar-
land og stal þar sælgæti 6g
sígarettum.
ísl. málari nofar hér
óþekktar málningarvörur
Fjölþœtt og fróðleg sýn-
ing á vegum /Eskulýðs-
ráðsins
Vetrastarfsemi ráðsins er a& hefjast
ÆSKULYÐSRAÐ Reykjavíkur
er nú að hefja vetrarstarfsemi
sína. Hefst hún með fjölbreyttri
sýningu er stendur yfir í Lista-
mannaskálanum frá 3.—14. okt.
Helgi Hermann Eiríksson, formað
ur Æskulýðsráðsins, séra Bragi
Friðriksson, framkvæmdastjóri
þess og Jón Pálsson, sem er í
framkvæmdanefnd sýningarinn-
ar, áttu fund með fréttamönnum
í gær og skýrðu þeim frá einstök
um atriðum sýningarinnar.
Á sýningunni eru m.a. átta mis-
munandi gerðir herbergia og hef-
ur hópur ungUnga útDÚið hvert
heibergi með aðstoð húsgagna-
Bandarísk hókasýning,
opnuð hér n.k. laugardag
1 STÓRUM salarkynnum í austur
bænum störfuðu um síðustu helgi
um 10 manns að því að flokka
um 15 þús. amerískar bækur í
meira en 20 bókaflokka. Fólk
þetta var um það bil að ljúka
undirbúnirgi að ameriskri bóka-
sýningu, undirbúningi, sem stað-
ið hefir í meira en ár.
Sýningín verður opnuð n.k.
laugardag. Þetta verður stærsta
bókasýning, sem haidin hefir ver-
ið hér á landi, sýndir verða um
það bil 2500 bókatitlar.
Fjögur bóksölufyrirtæki hér í
ReyKjavík standa að þessari sýn-
ingu. Eru það Bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar, Bókabúðin
Norðri, Bækur og ritföng og
Bókaverzlun ísafoldar.
Bækurnar sem verða á sýning-
unni hafa að nokkru leyti verið
valdar af amerískum sérfraeðing
um, sem vanir eru að halda bóka-
sýningar víða um heim. En að
nokkru leyti hafa bækurnar ver-
ið valdar af isienzkum bóksölum
og fóru tveir þeirra, Kristján
Oddsson og Grímur Gíslason til
Ameríku í júni sl. í þeim erindum
að velja bækurnar og ræða við
ÍIÖRÐUR ÓLAFSSOIN
niáiflulningsskrifstofa.
Löggiltur dómtúlkur og skjal-
þý .andi í ensku. — Austurstrajti
14. — Sími 10332.
ameríska bókaútgefendur. Meðal
ameriskra gesta við opnun bóka-
sýningarinnar á laugardaginn
verður forseti ameríska bókút-
gefendafélagsins , Mr. Curtis G.
Benjamin, sem jafnframt er for-
stjóri stærsta bókaútgefendafé-
lagsins í Amerísku, Mc Graw-Hill
félagsins.
Sýningin verður haldin í nýj-
um stórum og glæsiiegum salar-
kynnum &ð Laugavegi 18, eign
verzlunarinnar Liverpool.
Hörður Ágústsson, listmá’ari,
hefir gert teikningar að bókasýn-
ingunni og hefir undanfarnar vik
ur unnið að því að ganga frá sýn-
iugarskápum og grindum. Til
marks um hve stór þessi sýning
er má geta þess að aðeins einn
bókafiokkurinn, af rúmlega 20,
tæknibókaflokkurinn, greinist í
15 undirfiokka.
arkitekts. Eru hergergi þessi gerð
eins smekklega úr garði og föng
eru á, prýdd munum, setn ungl-
ingarnir hafa smíðað sjálfir eða
valið. Þá verður kynnt tómstunda
iðja á sýningunni. Verður sýndur
efniviður, sem fáa*legur er hér og
hvað gera má úr hojium. Þá verða
sýndir hálfunnir og fullunnir
munir og erlendir murdr, sém
hentugir eru sem fyrirmyndir.
Þá verður handíðadeild á sýn-
ingunni. Verða þar sýndar nýjar
tegundir efnis á hverjum degi.
Einnig verða gefnar allar upplýs-
ingar um tómstundaiðju, sem
Æskulýðsráðinu er kunnugt um.
Þessi liður sýningarinnar er
sýnikennsla og jafnframt kynn-
ing á möguleikum til tómstunda-
iðju.
Að lokum verður kynning á
áhugaefnum unga fólksins og er
það veigamesti þáttur sýningar-
innar. Er það kynning á fatnaði,
snyrtingu og almennri umgengni
og sýnt bæði það sem betur og
verr má fara. Þá hefur Félag á-
hugaljósmyndara kynningu á
ljósmyndaiðju og Félag frímerkja
safnara kynnir frímerki. Þor-
steinn Einarsson o. fl. kynna
heilsurækt og íþróttir og Guð-
mundur Jónsson kynnir tónlist.
Stefán Jónsson og Sigurður A.
Magnússon kynna bækur og Frið
rik Ólafsson kynnir tafl. Björn
Th. Björnsson kynnir list, Skóg-
rækt ríkisins kynnir skógrækt og
gróður og Ferðafélag íslands
kynnir ferðalög og útilíf. Þá hef-
ur Félag húsgagnaarkitekta dag-
skrá um híbýlaprýði og Æskulýðs
ráðið hefur skemmtikvöld, þar
sem fluttir verða þættir úr félags
lífi nokkurra æskulýðsfélaga. —
Auk þess verða sýndar margar
kvikmyndir. Sýningin verður op-
in frá kl. 14—18,30 og 20—22,30
alla dagana.
5 herb. ibúð
Höfum til sölu nýlega 5 herb. íbúð á 1. hæð í sambýlis-
húsi við Kleppsveg. Svalir móti suðri. Tvöfalt gler í
gluggum. Harðviðarhurðir. Allar nánari uppl. gefur
lifééteöaöwi*
Ingólfsstræti 9B — Sími 19540.
Opið alla daga frá kl. 9 7.
f GÆR bauð Bjarni Tómasson,
málari, blaðamönnum að skoða
húsnæði á Laugarnesvegi 100,
sem hann hefur málað með vest-
ur-þýzkum málningarvörum, lítt
eða óþekktum hér á landi. En
Bjarni hefur dvalizt í eitt ár í
Þýzkalandi, við að kynna sér
slíkt. Aðalkost þessarar aðferðar
taldi hann þann, að ekki þyrfti að
fínpússa undir og þannig sparað-
ist vinna.
Beint á grAfmúraða veggi ber
hann sérstakt efni, grunnar síðan
með hér óþekktu olíusparsli og
málar loks tvær yfirferðir af
vatnsmálningu. Einnig sagði hann
að ljúka mætti verkinu með einni
yfirferð af olíumálningu. Með
þessari aðferð þyrfti aðeins þrjár
yfirferðir með þrem mismunandi
efnum á grófpússaðan vegg, svo
að hann yrði sléttur og áferðar-
fallegur.
Á glugga notar Bjarni högghelt
lakk, en Vestur-Þjóðverjar munu
framleiða um 30 tegundir af
lakki. Einnig sýndi hann blaða-
mönnum þýzkan farvaherði, sem
herðir hvers konar olíu og lakk
og mun óþekktur hér.
Áferð á veggjunum var eftir
þessa meðferð mjög falleg og
einnig gljáinn á gluggakörmun-
um.
simanumer
okkar er
2-24-80
Hjartans þakkir til allra, er minntust mín með heim-
sóknum, gjöfum og skeytum á fimmtugsafmæli mínu
þann 23. september s.l.
Geir G. Bachmann.
Félag íslenzkra hljómlisiarmanna
Kjör fuiitrún ú 26. þing
Alþýðusambunds ísluuds
Tillögum um einn fultrúa og einn til vára ásamt skrif-
legum meðmælum 12 fullgildra félagsmanna skal skilað
til formanns félagsins, Framnesveg 28, eða í pósthólf
1338 Reykjavík fyrir kl. 7 e.h. fimmtudaginn 2. okt. n.k.
og er þá framboðsfrestur útrunninn.
KJÖRSTJÓRN.
Lðknð í dag
vegna jarðarfarar
KRISTJÁNS R. HANSSONAR forstjóra.
Gólfteppugerðin hi.
Lokað í dag
frá kl. 10,30 til 14,30 vegna jarðarfarar
KRISTJANS R. HANSSONAR forstjóra.
SjékBæði og fatnaður
Varðarhúsinu.
GUÐBJÖRG SÆMUNDSDÓTTIR
húsfrú í Svignaskarði,
lézt að heimili sínu 29. þ.m.
Vandamenn.
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
SIGRÍÐUR ANDERSDÓTTIR
Grettisgötu 36,
lézt í Landakotsspítala 30. september.
Jón Jónsson,
Jón Jónsson, börn, tengdabörn og fóstursonur.