Morgunblaðið - 28.10.1958, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 28.10.1958, Qupperneq 13
Þriðjudaerur 28. okt. 1958 MORCUNBLAÐIlt 13 Barbro Hjort og Eva Dahlbeck í sænsku myndinni „Undur Iífsins“. KV I K MY N D I R •:• ♦ Fimm merkar kvikmyndir „List um landið" Kynning á myndlist, skáldlist og tónlist KVIKMYNDAHÚSIN munu nú vera búin að skipuleggja vetrar- dagskrána eitthvað fram í tím- ann. Hafnarfjarðarbíó á von á nokkrum myndum, sem hafa hlotið viðurkenningu, þar sem þær hafa verið sýndar. Af þeim myndum, sem kvik- myndahúsið mun sýna fyrri hluta vetrar, er sænska myndin „Nára livet“ sennilega einna eft- irtektarverðust. Komið hefur til mála að kalla hana á íslenzku „Undur lífsins“ og er það rétt- nefni, því hún fjallar fyrst og fremst um það stórkostlega und- ur, þegar mannvera fæðist í þenn an heim. Um þetta efni er farið viðkvæmum listamannshöndum og það umskapað í myndir, sem segja meira en orð. Kvikmyndin segir frá fjórum konum á Karol- ínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Þrjár þeirra eru verðandi mæð- ur. Ingrid Thulin leikur Cecile, sem kennir ástleysi sínu um að hún fær ekki að fæða barn sitt í þennan heim. Eva Dahlbeck er hin lífsglaða Stína, sem bíður fagnandi eftir litla „prinsinum" sínum, og Bibi Anderson leikur Hjördísi, óreyndu unglingsstúlk- una, sem er alltof ung til að rísa undir því að verða ógift móðir. Fjórða konan er hjúkrunarkonan í deildinni, leikin af Barbro Hjort. Allar leysa þessar leik- konur hlutverk sín svo vel af hendi, að dómnefndin á kvik- myniiahátíðinni í Cannes skipti á milli þeirra verðlaununum fyr- ir beztan leik í kvenhlutverki ár- ið 1958. Myndin í heild hlaut einnig verðlaun, en kvikmyndastjórinn Ingmar Bergman sækir nú verð- laun á kvikmyndahátíðir með hverri nýrri .mynd sinni. Hann er tvímælalaust einhver bezti listamaður í stétt kvikmynda- stjóra, sem nú eru uppi. Hefur áður verið sagt frá honum í þess um dálkum. Eitt af því sem merkilegt má teljast við þessa mynd, er að ekki er notuð nein tónlist til að auka áhrifin, en þau eru svo sterk að maður saknar þess *ekki. Kvikmyndahandritið gerði Ulla Isakson, en hver ný bók frá henni er talinn bók- menntaviðburður í Svíþjóð. í haust tók Hafnarfjarðarbíó aftur upp sýningar á einföldu, elskulegu helgimyndinni um litla munaðarlausa drenginn Marcellino, sem fékk að lifa það kraftaverk að sjá móður sína á himnum. Nú á bíóið von á tveim- ur myndum, gerðum af sama kvikmyndastjóra, Ladislao Vajda og í annarri leikur Pablito Calvo sá sami sem lék Marcellino. — Myndin fjallar um gamlan svíð- ing, sem verður að hundi, en losnar í myndarlok úr álögunum fyrir ást lítils drengs. Verður fróðlegt að vita hvort þeim Vajda og Calvo tekst eins vel upp í annað sinn. Ekki ætti það að skemma, að enski leikarinn Pet- er Ustinov leikur svíðinginn, er breytist í hund. Kvikmyndastjórinn Ladislao Vajda er að verða allkunnur hér á landi fyrir myndir sínar, og er þvi ekki úr vegi að gera ofur- litla grein fyrir honum. Að þjóð- erni er hann ungversk-spánskur, fæddur í Búdapest árið 1906. Fyrir valatíma nazistanna skrif- aði hann kvikmyndahandrit í Þýzkalandi og eru sumar af þeim myndum enn vel kunnar. Árið 1935 byrjaði hann jafnframt að setja á svið og fluttist land úr landi, þar til hann hafnaði á Spáni. Hann var búinn að gera margar myndir, þegar hann loks varð skyndilega heimsfrægur — fyrir Marcellino. Auk myndar- innar um hundinn og litla dreng- inn, sem að ofan er nefnd, er væntanleg önnur af myndum Vajda. Það er mynd um ræningja og bardaga og þykir Vajda fara talsvert öðrum höndum um þetta útþvælda efni en flestir aðrir. Hefur myndin hlotið góða dóma. Hún gerist í háfjöllum Spánar og eru leikendur að sjálfsögðu spánskir, að undanskildu ítalska kvennagullinu Rossano Brazzi, sem við þekkjum vel úr sykur- sætum rómantískum myndum. Þá á Hafnarfjarðarbíó von á þýzkri mynd, sem nefnist „Lækn iskona“. Titilhlutverkið er í hönd um Maríu Schell, svissnesku leikkonunnar, sem við íslending- ar þekkjum bezt úr tveimur stór myndum: „Síðasta brúin“ og „Gervaise", sem sýnd er um þess ar mundir í öðru kvikmynda- húsi. María Schell er talin ein- hver bezta kvikmyndaleikkona Evrópu. Hún er fædd í Vínar- borg árið 1926, byrjaði að leika á leiksviði 1944 og skömmu seinna kom hún fram á hvíta tjaldinu. Síðan hefur hún leikið í fjölmörgum kvikmyndum, og eru þær nýjustu „Líf“ eftir sögu Maupassants og „Karamazov- bræðurnir“ eftir sögu Dostojevs kis. Myndin „Lækniskona" fjall ar um tvo lækna og konu annars þeirra. Læknishjónin eiga and- lega veiklað barn og lætur faðir- inn sér til hugar koma að leysa það frá þessu vesæla lífi með einni sprautu. Hinn læknirinn lítur öðrum augum á málið og að sjálfsögðu móðirin. Meðleik- arar Maríu Schell í þessari mynd eru Ivan Desny og Wilhelm Borc hert. Þá er ótalin fimmta myndin, og er hún vafalaust ekki þeirra lökust. Það er pólsk mynd, er hlaut verðlaun sem bezt gerða María Schell myndin á kvikmyndahátíðinni i Cannes 1957. Kvikmyndin er byggð á sögu eftir Jeezy Stefan Stawinski og segir frá hetjulegri en vonlausri baráttu pólskra upp reisnarmanna gegn ofurefli Þjóð verja í Varsjá árið 1944, og ó- hugnanlegum flótta nokkurra þeirra sem eftir lifa gegnum skolpleiðslur borgarinnar. Mynd in þykir listavel gerð og stór- kostleg, en er sögð svo óhugnan- leg að hún gleymist áhorfendum seint. Þetta eru merkustu myndirnar sem Hafnarfjarðarbíó ætlar að bjóða okkur upp á fyrri hluta vetrar. STEFÁN PÉTURSSON, hdl., Málflutningsskrifstofa. Laugavegi 7 — Síini 14416 Heima 13533. Sigurgeir Sigurjónsson hæsta réttarlöjxniaður Aðalstræti 8. — Simi 11043. MENNTAMÁLARÁÐ íslands og I Ríkisútvarpið hafa ákveðið að reka í sameiningu starfsemi sem hlotið hefur heitið: „List um landið". Tilgangurinn er sá, að senda hvers konar lifandi list sem víðast út um bæi og sveitir, skáldlist, tónlist og myndlist. Með löggjöf frá síðasthðnu ári um Menningarsjóð og Mennta- málaráð voru tekjur þeirra slofn- ana auknar og þeim fengin ýrnis ný verkefni á sviði menningar- mála. Meðal þeirra verkefna var stuðningur við flutning góðrar listar víðs vegar um land. Al- menningur utan Reykjávíkur á þess ekki mikinn kost að njóta listflutnings, og á það einkum við um íbúa dreifbýlisins. Víða eru þó komin upp myndarleg félags- heimili, sem hentug eru til list- flutnings. Starfskraftar islenzkra listamanna eru eigi nýttir nema að litlu leyti. Þá skortir beinlínis verkefni. Æskilegasti stuðningur- inn við þá er í því fólginn að bæta starfsskilyrði þeirra. Nú hefur verið ákveðið, að Menningarsjóður verji árlega nokkru fé til stuðnings listflutn- ingi í landinu. Verður tilhögun væntanlega með tvennum hætti: I fyrsta lagi: farnar verða ferðir um ýmsa landshluta að frum- kvæði Menntamálaráðs og Ríkis- útvarpsins, flutti'r tónleikar, lesið úr íslenzkum bókmenntum og málverkasýningar haldnar. í öðru lagi: Menningarsjóður mun eftir föngum styrkja menningarfélög víðs vegar um land, er þau vilja efna til hljómleikahalds, bók- mennta- eða myndlistarkynning- ar. Mun brátt gerð nánari grein fyrir reglum þeim, sem þar um verða látnar gilda. Kirkjutónleikar Sú samvinna Ríkisútvarpsins og Menntamálaráðs um listkynn- ingu, sem hleypt hefur verið af stokkunum undir nafninu „L.st um landið", hófst með tónleika- ferð um Suð-Vesturland þar sem flutt var kirkjutónlist. Kcmu þar fram listamennirnir dr. Páll Is- ólfsson, Björn Ólafsson fiðluleik- ari og Guðmundur Jónsson söngv ari. Myndlistarsýning Nú um helgina verður opnuð í Vestmannaeyjum myndlistar- sýning á vegum fyrrgreindra að- ila. Verða þar sýnd 20 málverk úr Listasafni ríkisins eftir jafn- marga listamenn. Eru þar verk eftir ýmsa hina kunnustu málara okkar, allt frá Þórarni B. Þor- lákssyni, Ásgrími, Kjarval og Jóni 'Stefánssyni til hinna yngri manna. Við opnun sýningarinnar á sunnudagskvöld mun Björn Th. Björnsson listfræðingur fiytja fyrirlestur um íslenzka myndlist og sýna skuggamyndir. Svo er ráð fyrir gert, að sýn- ingin í Vestmannaeyjum verði upphaf slíkra myndlistarsýninga víðs vegar um land. Óperu- og tónleikaferð um Austurland Þá er að hefjast óperu- og tón- leikaferð um Austurland, með viðkomu í Vestmannaeyjum. Efn ÖRN CLAUSEN heraðsdómslögmaður ÍVlalf'ulningsskriistofa. Bankastræti 12 — Sim: 15499 ALLT Í RAFKERFIÐ Bilaraftækjaverzlun Halldórs Ólafssonar Rauðarárstig 20 — Simi 14775 Þorvaidur Ari Arason, hdt. LÖOMANNSSKKIFSTOKA Skólavöröuattg 38 */«» Pát! /Ó/l. Xlpr/tIf.uo», fk J POsttl 621 0».or *»«/« aj <1 a. * isskrá er á þessa leið: Kristinn Hallsson syngur eincöng með undirleik Fritz Weisshappel. Strengjakvartett leikur „Lítið næturljóð“ eftir Mozart. Flutt verður óperan „La serva padr- ona“ (Ráðskonuríki) eftir Pergo- lesi. Flytjendur: Þuríður Páis- dóttir, Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson. Stjórnandi: Fritz Weisshappel. Fyrirhugaðir sýningarstaðir eru þessir: Vestmannaeyjar 27. og 28. október, Fáskrúðsfjörður 30. október, Reyðarfjörður 31. október, Eskifjörður 1. nóvem- þer, Norðfjörður 2. nóvember, Seyðisfjörður 3. nóvember, Eiðar 4. nóvember og Hornafjörður 6. nóvember. Þá mun Jakob Thor- arensen lesa upp úr eigin ljóð- um. Bókmennta- og tónleikakynning á Norðurlandi Um 10. nóvember er ráðgert að hafin verði ferð um Eyjafjarðar- og Þingeyjarsýslur, og verða þar einkum kynntar bókmenntir, en jafnframt flutt tóniist. Munu skáld og rithöfundar lesa úr verkum sínum og söngvari syngja einsöng. Verður nánar skýrt frá för þessari síðar. Þótt fleiri ferðir hafi ekki verið ákveðnar enn, hafa þeir aðilar, sem að listkynningunni standa, fullan hug á að halda áfram því starfi, sem nú er hafið. Munu þeir landshlutar, sem ekki gefst tóm til að sækja heim að þessu sinni, verða látnir sitja fyrir, þeg- ar framhald- verður á listkynn- ingu, en það verður væntanlega síðar í vetur og næsta vor. áukið viðskiptin. — Auglýsið í Morgunblaðinv Si mi 2-24-80 Keflavík - Nágrenni Nýjar vörur daglega. — Lita- bækur, dúkku-Lísu-bækur. — Gluggatjaldaefni í fallegu úr- vali. Barna-náttföt, dívanteppi. Nýjar vörur daglega. Verzl. Sigríðar Skúladóttur Túngötu 12. íbúðarhœð - Ytri-NjarQvík Til sölu er efri hæð í nýlegu steinhúsi, 3 herbergi og eldhús á bezta stað í Ytri-Njarðvík. Laus til íbúðar. Bílskúr fylg- ir. Up; ’. gefur: EIGNASALAN Keflavík. — Sími 49. VINNA Ungur maður, er unnið hefur við skrifstofustörf, sölu- mennsku, útkeyrslu og margt fleira, óskar eftir vinnu allan daginn eða eftir samkomulagi. Tilb. merkt: „Reglusamur — 7104“, sendist afgr. blaðsins, fyrir miðvikudagskvöld. j Kynning Rólynd stúlka með húsmæðra- skólamenntun, óskar að kynn- ast regiumanni 35—45 ára, sem á góða íbúð. Fullri þag- Bir ' ' u neitið. Tilb. með upp- lýsingum, leggist inn á afgr. blaðsin- ;'yrir 31. þ.m., merkt: „Skamm legi — 7107“. Peter Ustinov og Pablito litli Calvo í spánskri mynd, sem gerð er af Ladislao Vajda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.