Morgunblaðið - 19.12.1958, Page 1

Morgunblaðið - 19.12.1958, Page 1
24 síður og Jóla-Lesbók 45. árgangur. 292. tbl. — Föstudagur 19. desember 1958 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sjálfstæbisflokkurinn markar v ibreisnarstefnu: Stöðvun verðhólgunnar fyrsta skrefið til jafnvœgisbúskapar og heilbrigðs afvinnulífs Nokkur lœkkun kaup- gjalds og afurðaverðs Óhjákvæmilegt að taka afleiðingum jhess oð jbjóbin hefur lifað um efni fram Ný kjordœmaskipun og kosningar hið tyrsta arútvegsins, og sú hækkun á vöruverði vegna kauphækk- ana í október, sem enn er ekki fram komin, myndi falla nið- ur eða varla nema meiru en 1 stigi. Til þess að halda vísi- tölunni í 185 stigum, yrði að auka niðurgreiðslur á vöru- verði, er næmi 10—12 stigum. Séu niðurgreiðslur ekki aukn- ar umfram þetta, ætti ekki að þurfa að hækka beina skatta og almenna tolla. Jafn- hliða þessum aðgerðum verð- ur þegar í stað að gera ýmsar iðju til þess að tryggja þjóð- inni góð og örugg lífskjör. 2. Stefnt verði að því að af- nema uppbótarkerfið, svo fljótt sem unnt er, með því að skrá eitt gengi á erlend- um gjaldeyri og gera útflutn- ingsatvinnuvegunum kleift að standa á eigin fótum án styrkja. Jafnframt verði lagður grundvöllur að frelsi í atvinnurekstri og viðskipt- um, svo að hægt sé að af- nema þau höft, sem nú eru á viðskiptum og fram- kvæmdum. 3. Strax og aðstæður leyfa, þarf að draga úr niðurgreiðslum, en í stað þess auka f jölskyldu bætur og lækka beina skatta. 4. Endurskoða þarf vísitölu- kerfið í heiid. 5. Taka þarf fjármál ríkisins til samstarf og samráð rikis- valdsins annars vegar og sam taka launþega og vinnuveit- enda hins vegar. Allar að- gerðir skulu stefna að því að tryggja gengi krónunnar, treysta kaupmátt launa og skapa jafnvægi og festu i efnahagsmálum, sem er for- senda þess, að éðlileg spari- fjármyndun eigi sér stað og á þeim grundvelli sé hægt að byggja vaxandi framkvæmd- ir, án þess að þurfa að reisa þjóðinni hurðarásum öxlmeð óhóflegum erlendum lántök- um. Kjarasamningar til lengri tíma. 10. Stefna ber að því, að kjara- samningar séu gerðir til lengri tíma en nú tíðkast og FLOKKSRAÐ Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í gær. Voru þar mættir á annað hundrað forystumenn flokksins úr öllum landshlutum. Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, gerði þar grein fyrir stjórnmálaviðhorfinu og drap á þær viðræður, sem átt hafa sér stað undanfarna daga um stjórnarmyndun. Urðu miklar umræður á fundinum og var að þeim loknum staðfest með samliljóða atkvæðum samþykkt þingflokksins þar sem mörkuð er stefna flokksins í stórum dráttum gagn- vart þeim vandamálum, sem við er að etja í efnahags- og stjórnmálum þjóðarinnar. Fer yfirlýsing flokksins í heild hér á eftir: Ólafur Thors flytur ræðu á fundi flokksráðs Sjálfstæðismanna í gær. Á myndinni eru talið frá vinstri: Frú Kristín L. Sigurðardóttir, frú Auður Auðuns, Bjarni Benediktsson, Ólafur Thors, Kjartan Jóhannsson og Magnús Jónsson. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Yfirlýsing Sjálfstæðisflokksins. Þegar formaður Sjálfstæðis- flokksins ákvað að verða við þeirri ósk forseta Islands að at- huga, hvort auðið væri að mynda meirihlutastjórn, setti hann með samþykki flokksins tvö megin- skilyrði fyrir aðild að ríkis- stjórn, og hafa síðan viðræður formanns flokksins og formanns þingflokksins við aðra flokka far- ið fram á þessum grundvelli. — Skilyrðin voru: 1. Að tafarlaust yrðu gerðar ráðstafanir til þess að stöðva verðbólguna. 2. Að lögfest yrði á þessu þingi sú breyting á kjördæmaskip- uninni, að tryggt sé, að Al- þingi verði skipað í slíku samræmi við þjóðarviljann, að festa í þjóðmálum geti náðst. Þar sem samkomulag hefir að sinni ekki náðst um myndun meirihlutastjórnar á þessum grundvelli, þykir flokknum tíma- bært að gera opinberlega nánari grein fyrir viðhorfi sínu í þessum tveimur málum. Ný og réttlát kjördæmaskipun í kjördæmamálinu er það skoð- un flokksins að velja beri þá leið, er senn tryggir hagsmuni strjálbýlisins og lýðræðislega skipan Alþingis. Hefir flokkur- inn því lagt fram sem umræðu- grundvöll þá tillögu, að landinu verði skipt í 7 kjördæmi utan Reykjavíkur og Reykjavík verði þrjú eða eitt kjördæmi. Þing- menn hvers kjördæmis utan Reykjavíkur verði 5—7, miðað við fólksfjölda kjördæmanna, en þingmenn Reykjavíkur 12—15, allir kosnir hlutfallskosningum. Lagt er til, að þingmönnum strjál býlisins verði ekki fækkað, og að sem jöfnust atkvæðatala sé að baki hvers þingmanns í strjál- býlinu, en mun fleiri atkvæði að baki hvers þingmanns í þétt- býlinu. Stöðvun verðbólgunnar má ekkl dragast. Við athugun á þeim gögnum um efnahagsmálin, sem flokkur- inn fékk í hendur fyrir rúmri viku fyrir milligöngu forseta ís- lands, er staðfest, að ástandið í þessum efnum er svo alvarlegt, að ráðstöfunum til stöðvunar sí- vaxandi verðbólgu má með engu móti skjóta á frest. Það er ótví- rætt, að þjóðin notar meiri fjár- muni en hún aflar og verður að taka afleiðingunum af því til þess að tryggja efnahagslegt ör- yggi sitt í framtíðinni. Flokkurinn hefir lagt áherzlu á að finna þau úrræðij er þrauta- minnst væru fyrir almenning, en væru þó um leið líklegust til þess að stöðva vöxt verðbólgunnar. Er það mat flokksins, að eftir- greindar ráðstafanir samrýmist bezt þessu tvíþætta markmiði: Lækkun kaupgjalds og verðlags Launþegar afsali sér 6% af grunnkaupi sínu og verð land- búnaðarvara breytist vegna hliðstæðrar lækkunar á kaupi bóndans og öðrum vinnutil- kostnaði við landbúnaðarfram leiðsluna. Þó verði grunnlaun engrar stéttar lægri en þau voru, þegar efnahagsráðstaf- anir ríkisstjórnarinnar tóku gildi á sl. sumri. Yrði sú leið farin að lækka vísitöluuppbót- ina, sem þessu nemur, myndi sú ráðstöfun ekki hafa áhrif á verð landbúnaðarvara fyrr en næsta haust, en lækkun grunnkaups leiðir þegar í stað af sér lækkun landbúnaðar- vara. Er því lækkun grunn- kaupsins mun líklegri til árangurs en skerðing vísitölu- uppbóta. Við þetta myndi vísitala lækka um 6—7 stig. Gera mætti þá ráð fyrir ó- breyttum uppbótum til sjáv- aðrar ráðstafanir, svo sem í bankamálum og fjárfestingar- málum, til þess að forðast verðbólgumyndun úr þeim áttum. Aðeins fyrsta skrefið Ráðstafanir þessar til stöðvun- ar verðbólgunnar eru aðeins fyrsta skrefið til jafnvægisbú- skapar og heilbrigðrar þróunar í atvinnulífi þjóðarinnar. En til þess að koma á jafnvægi í þjóð- arbúskapnum er þörf fjölþættra ráðstafana, og telur flokkurinn óhjákvæmilegt, að þjóðin fái, svo fljótt, sem við verður komið, í almennum kosningum að meta aðgerðir stjórnarflokkanna að undanförnu og tillögur allra flokka til lausnar þessu mikla vandamáli. Mun Sjálfstæðisflokk urinn þá gera þjóðinni grein fyr- ir viðhorfi sínu og úrræðum í einstökum atriðum, en hér skulu þegar tilgreind nokkur atriði, sem flokkurinn telur miklu máli skipta til þess að koma á jafn- vægisbúskap: Aukning framleiðslunnar 1. Auka þarf framleiðslu þjóð- arinnar, eigi aðeins með efl- ingu núverandi atvinnuvega heldur einnig með því að nýta betur náttúruauðlindir landsins og byggja upp stór- gagngerðrar endurskoðunar með það fyrir augum að ýtr- asta sparnaðar sé gætt og út- gjöldum ríkissjóðs haldið inn an hæfilegra marka. Endurskoðun skattalaga. 6. Framkvæma þarf heildar- endurskoðun á tolla- og skattakerfinu í því skyni að koma í veg fyrir, að skatta- álögur hindri eðlilega upp- byggingu atvinnuveganna, tryggja jafnrétti skattgreið- enda, örva menn til starfa og útflutningsframleiðsiuna og gera kerfið einfaldara og ó- dýrara í framkvæmd. 7. Sett verði ný og heilsteypt löggjöf um Seðlabanka ís- lands, er tryggi örugga yfir- stjórn peningamála. Banka- löggjöfin sé að öðru leyti endurskoðuð og samræmd. 8. Sett verði löggjöf um atvinnu aukningarsjóð, er hafi það hlutverk að veita aðstoð til atvinnuaukningar á þeim stöðum, þar sem við atvinnu- leysi er að stríða, en fram- leiðsluskilyrði góð, þannig að stuðlað verði að jafnvægi í byggð landsins. Samstarf ríkisvalds og samtaka verkalýðs og vinnuveitenda. 9. Rík áherzla sé lögð á náið koma þarf upp samvinnu- stofnun launþega, vinnuveit- enda og ríkisvaldsins, er fylgist með afkomu atvinnu- veganna og afli sem gleggstra upplýsinga um alla þætti efnahagslifsins til afnota við samninga um kaup og kjör. 11. Gera þarf víðtækar ráðstaf- anir til þess að tryggja út- flutningsframleiðslunni inn- lent vinnuafl og þannig sporna gegn eyðslu á erlend- um gjaldeyri í kaupgreiðslur til útlendinga. ★-------------------------★ Föstudagur 19. desember. Efnl blaðsins er m.a. : Bls. 2: Erlendar fréttir. Yfirvofandi stöðvun fiskiflotans til umræðu í bæjarstjórn í gær. — 3: Frá starfi barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna. — 6: Tillaga Sjálfstæðismanna um eflingu landhelgisgæzlunnar fær góðar undirtektir. (Frá Al- Þingi). — 8: Bókaþáttur (s-a-m). — 12: Ritstjórnargreinin: Viðreisnar- stefnan mörkuð. Austur-þýzkur prófessor lýsir akademísku ófrelsi í Austur- Þýzkalandi. (Utan úr heimi). — 13: Spjallað við menningarfulltrúa bandaríska sendiráðsins. ★--------------------------★

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.