Morgunblaðið - 19.12.1958, Qupperneq 23
Föstudagur 19. des. 1958
MORGUNIILAÐIÐ
23
Félagsbréf AB
ÚT ER KOMIÐ 10. hefti af Fé-
lagsbréfum Almenna bókafélags-
ins. Efni þess er að þessu sinni
sem hér segir: Eyjólfur Konráð
Jónsson: Ræða flutt 1. des. 1958,
um landhelgismálið o. fl. Andrés
Björnsson skrifar um Guðmund
G. Hagalín sextugan, Jón úr Vör
um hlutverk skáldsins og skyld-
ur þess. Þá er þar þýtt viðtal
við Vladimir Dudintsev, höfund
skáldsögunnar Ekki af einu sam-
an brauði, og þýddar greinar eftir
Friedrich Torberg (um Pasternak
og bókmenntaverðlaun Nóbels),
ungverska skáldið György Falu-
dy (um örlög Ungverjalands) og
Gordon Walker (ný fyrirmæli
varðandi rithöfundinn og fólkið í
Kína).
Ljóð eru í heftinu eftir Stefán
Hörð Grímsson (Hvíta tjaldið),
Hannes Pétursson (Kulið kem-
ur), Jóhann Garðar Jóhannsson
(Hugsað heim, vísnaflokkur),
Helga Kristinsson (Til Unnar),
Sigurð Jónsson frá Brún (Eins
konar skattskýrsla, stökur).
Þá eru í heftinu tvær sögur eft-
ir Ernest Hemingway í þýðingu
Þórðar Einarssonar, en þær eru
það eina, sem birzt hefur eftir
skáldið síðan hann fékk bók-
menntaverðlaun Nóbels 1956.
Halldór Þorsteinsson skrifar
um leikhús (Dagbók Önnu
Frank), en um bækur skrifa þeir
Jón Þorleifsson, Ragnar Jóhann-
esson, Þórður Einarsson og Ei-
ríkur Hreinn Finnbogason.
Ennfremur eru auglýstar í heft
inu næstu mánaðabækur útgáf-
unnar. Engin mánaðarbók kem-
ur út í jánúar, en febrúarbókin
verður Sögur af himnaföðurnum
eftir austurríska skáldið Rainer
Marie Rilke, í þýðingu Hannes-
ar Péturssonar, og marzbókin
Ferðin til stjarnanna vísinda-
skáldsaga eftir ókunnan höfund,
sem nefnir sig Inga Vítalin. —
Ýmislegt fleira er í heftinu.
Jólablað „Reykja-
ness“ komið út
BLAÐIÐ Reykjanes er nýlcomið
út, en útgefandi þess er fulltrúa-
ráð Sjálfstæðisfélaganna í Kefla
vík. — Á forsíðu er jólahugleið-
ing eftir séra Björn Jónsson. For-
ystugreinin nefnist „Hrunadansi
Framsóknar lokið“, en af öðru
efni blaðsins má t.d. nefna grein
um væntanlegan, steinsteyptan
veg til Keflavíkur, en Ólafur
Thors hefir sem kunnugt er flutt
um það tillögu á Alþingi, að lagð
ur verði steinsteyptur vegur frá
Hafnarfirði um Keflavík og Garð
allt til Sandgerðis. Er Ólafi
Thors þökkuð forysta hans í
þessu máli. — Þá er viðtal við
rafveitustjórann í Keflavík, Kára
Þórðarson, Helgi S. Jónsson
skrifar um ljóðabók Kristins Pét-
urssonar, „Teningum kastað“, og
eru tvö ljóð úr bókinni birt á
sömu síðu. — Síðan er „Annáll
Suðurnesja“, Íþréttasíða og þátt-
urinn „Geirfuglinn“, þar sem
fjallað er um ýmis bæjarmál.
„Rélæti Dana“ nefnist grein um
Grænlandsmálið eftir dr. Jón
Dúason, og loks skrifar Helgi S.
Jónsson greinina „Kirkjan okk-
ar“.
1 FRÉTT um þrjá nýja strætis-
vagna í blaðinu í gær, var það
ranghermt að Strætisvagnar
Reykjavíkur ættu auk nýju vagn
anna, sem teknir verða í notkun
fyrir jólin, þrjár óyfirbyggðar
grindur undir stóra vagna. Grind
urnar, sem til eru, eru aðeins
tvær.
Miðstöðvarkatlar
fyrirliggjandi.
= M/F =
Sími 24400.
Aðeins einn
í landhelgi
í GÆR var aðeins einn brezkur
togari að ólöglegum veiðum hér
við lánd. Togari þessi var að veið
um á verndarsvæðinu út af
Langanesi. Þarna voru ennfrem-
ur 2 brezkir togarar að veiðum
utan 12 sjómílna markanna .og
brezkt herskip.
Á verndarsvæðinu út af Seyðis
firði var hins vegar enginn brezk
ur togari að veiðum í dag. Þar
voru í morgun 2 brezk herskip,
en annað þeirra sigldi á brott í
dag. Ekki er kunnugt hvort vernd
arsvæði þetta hefur verið lagt
mður, en vitað er, að afli var
tregur á svæðinu síðustu dagana.
Vart hefur orðið við nokkra
belgíska togara að veiðum undan
farna daga út af Ingólfshöfða, en
skipin halda sig utan fiskveiði-
takmarkanna.
Annars staðar við landið eru
engir útlendir togarar að veiðum
nærri fiskveiðitakmörkunum.
Slökkviliðið gabb-
að með símhring-
ingu
UM kl. hálf tvö 1 fyrrinótt var
hringt á Slökkvistöðina og til-
kynnt að eldur væri uppi í Þórs-
kaffi. Þutu þrír brunabílar á
staðinn, en er þangað kom, kom í
ljós að um gabb var að ræða.
Sennilega hefur slökkviliðs-
menn þó grunað að ekki væri allt
með felldu, þegar hringt var, því
þeir héldu línunni. Kom í ljós
við athugun, að númerið 23333,
sem hringt var úr, var einmitt í
Þórskaffi. Enginn þar kannaðist
þó við að hafa hvatt slökkvi-
liðið á vettvang. Sími þessi mun
vera í veitingasalnum og greið-
ur aðgangur að honum, þannig að
hver sem er getur gengið að
honum, og ekki víst að því sé
veitt athygli.
Þess skal getið, að í salnum
voru menn undir áhrifum áfeng-
is, hvort sem þeir eiga hér sök
að máli eða einhver annar.
Skáldverkið um Kagnheiði Brynjólfs-
dóttur í Skálholti.
Eitt öndvegisskáldverk fslands. — Kjörbók allra
mæðra, kvenna og meyja þessa lands
„Skálholt"
eftir Guðmund Kamban
hrífandi ástarsaga, óumdeilt sagnfræðirit
frábært skáldverk
Öll fjögur bindin í tveimur bókum í fallegu bandi.
Helgafellsbók
Til jóla geta allir viðskiptamenn okkar gengið um
vöruafgreiðslurnar og valið sér nýja dýra bók, bæk-
ur fyrri ára, sem eru nú ódýrar eða málverkaprent-
anir.
CNCHtS, Helgafelli, Veghúsastíg 5—7
(sími 16837).
Þökkum hjartanlega öllum þeim mörgu er sýndu okk-
ur vináttu sína á gullbrúðkaupsdegi okkar 11. þ.m. með
heimsóknum, hlýjum handtökum, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur ævinlega og gefi ykkur gleðilega
komandi jólahátíð.
Ingunn Ólafsdóttir, Gísli G. Guðmundsson,
Ölduslóð 36, Hafnarfirði.
Til móður minnar
Úrval úr því bezta sem íslenzk skáld hafa ort til mæðra sinna og um þær. —
60 íslenzk skáld eiga kvæði í þessari fögru bók. —
þar af öll höfuðskáld þjóðarinnar.
Benedikt Gröndal Jóhannes úr Kötlum
Bjarni Thorarensen Jón Magnússon
Davíð Stefánsson Matthías Jochiumsson
Einar Benediktsson Sigurður Sigurðsson
Gestur Pálsson frá Arnarvatni
Guðmundur Friðjónsson Stefán frá Hvítadal
Guðmundur Guðmundsson Stephan G. Stephansson
Gunnar Gunnarsson Tómas Guðmundsson
Ilannes Hafstein Þorsteinn Gíslason
Jóhann Sigurjónsson Örn Arnarson.
Bundin í vandað alskinn
Leirbrennslan Clit
Óðinsgötu 13B
Keramik til jólagjafa
fjölbreytt úrval.
Kertastjakar — Ilmkertastjakar
Lokað
til kl. 4 í dag vegna jarðarfarar.
RAFGEYMAHLEÐSLAN, Síðumúla 21.
L o k a ð
í dag til kl. 2 e.h. vegna jarðarfarar.
Skrifstofa framfærslumála
Hafnarstræti 20.
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma
HALLDÓR KRISTJANSDÓTTIR
andaðist að heimili sínu Gilhaga við Breiðholtsveg
fimmtudaginn 18. þ.m.
Jón Guðmundsson,
dætur, tengdasynir og barnabörn.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður
og ömmu
BJARNEYJAR ELESEUSARDÓTTUR
Hofsvallagötu 16.
Börn, tengdasynir og barnabörn.