Morgunblaðið - 19.12.1958, Síða 24
VEÐRIÐ
Norðan og norðaustan stinings-
kaldi, Iéttskýjað. — Frost 4 stig.
292. tbl. — Föstudagur 19. desember 1958
Emil Jónssyni falið að
reyna stjóraarmyndun
• BLAÐINU barst í gaerkvöldi
, eftirfarandi frétt frá skrif-
, stofu forseta íslands:
■' Forseti íslands hefir í dag
farið þess á leit við fprseta
sameinaðs Alþingis, Emil
Jónsson, að hann geri tilraun
til myndunar þingræðis-
stjórnar. — Emil Jónsson hef-
ir beðið um stuttan frest til
þess að svara þessum tilmæl-
um.
Bœrinn hafi áfram húsa-
fryggingarnar í sínum
höndum og iðgjöldin
verði lœkkuð
Frá umræðum i
bæjarstjórn i gær
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær komu til umræðu trygging-
ar bæjarins. Borgarstjóri ræddi
um að þetta mál hefði verið í
athugun nú að undanförnu og
álitið væri, ,að rétt sé að bærinn
hafi tryggingarnar í sínum hönd-
um, eins og verið hefur en kaupi
sér síðan endurtryggingar, svo
sem venjulegt er. Borizt hafa ým-
is tilboð út af tryggingunum og
voru þau opnuð þ. 8. þ.m. og borg
arritara og borgarlögmanni hefur
verið falið að athuga nánar þessi
tilboð og gera tillögur í því sam-
bandi. í sambandi við trygging-
arnar hefur safnazt nokkur trygg
ingarsjóður og kemur til álita í
þessu sambandi, hvernig eigi að
verja honum. Borgarstjóri lagði
fram í þessu sambandi svohljóð-
andi tillögu:
„Bæjarstjórnin heimilar bæjar-
ráði að taka ákvörðun um ráð-
stöfun brunatrygginga á húseign-
um í bænum, samkv. tilboðum,
sem voru opnuð 8. þ. m., þ. á. m.
að breyta iðgjaldatöxtum til lækk
unar“.
Borgarstjóri tók fram, að þeg-
ar álitsgerð hinna tilkvöddu
manna lægi fyrir, þá yrði hún
lögð fyrir bæjarráð og það tæki
svo ákvörðun um hvað gera
skyldi. Hér væri «m að ræða
heimild frá bæjarstjórninni til
þess að bæjarráð taki endanlega
ákvörðun um það, hvernig með
þessi mál skuli fara. Borgarstjóri
tók fram, að þessi heimild næði
fyrst og fremst til þess að taka
ákvörðun um þau tilboð, sem
opnuð voru auk ákvörðunar um
þá lækkun iðgjaldataxta. Hugs-
unin er sú, að verja tryggingar-
sjóði til þess að lækka iðgjalda-
taxtana, eftir því sem mögulegt
er, auk þess sem ýmsar tillögur
og uppástungur hafa komið fram
um það, hvernig verja skuli fé
úr sjóðnum til þess að efla bruna-
varnir í bænum, en um það hef-
ur ekki verið tekin endanleg á-
kvörðun.
Tillaga borgarstjóra var sam-
þykkt eftir stuttar umræður.
mm
Það fór allt befur en áhorfðist
NÆRSTADDIR gátu hvorki
hreyft legg né lið, er þeir sáu
hvar stór flutningabíll frá Coca
Cola- verksmiðjunum rann mann
laus af stað niður Skólavörðu-
stíginn í gærdag, laust fyrir
klukkan 1,30. — En hann fór til
allrar hamingju ekki lengt.
Bíllinn var á horni Bergstaða-
strætis og Skólavörðustígs, og
bílstjórinn að reka erindi í Coca
Reknetjabátar veiddu vel
en fóru ekki affur á sjó
AKRANESI, 18. des. •— Ekki
dregur úr sildargengdinni,
þó hann auki frostið. í dag fengu
17 bátar hér 2600 tunnur, og er
það rúmlega 150 tunnur á bát til
jafnaðar. Aflahæstir voru þessir
þrír: Svanur með 240 tunnur, Sig
urfari með 232 og Sigrún með
222 tunnur. Bátarnir voru mikið
klakaðir, er þeir komu að, og úti
á miðunum var 5 vindstiga norð
Skálholt" i nýrri útgáfu
//
1 DAG kemur út hjá Helgafelli
hið mikla ritverk Guðmundar
Kamban um Ragnheiði Brynjólfs
dóttur. Nær aldarfjórðungur er
Guðmundur Kamban
liðinn síðan bókin kom hér út í
fjórum bindum og vakti meiri
athygli en dæmi er um sagn-
fræðilega skáldsögu áður, enda
byggð á öruggum heimildum um
dramatískasta ástarævintýri sögu
okkar.
Guðm. Kamban hefði átt 70
ára afmæli á þessu ári ef hann
hefði lifað.
an þræsingur. Engir bátar fóru
út á veiðar í dag. — Oddur.
★
GRINDAVÍK, 18. des. — 7 bátar
komu inn í dag mð 803 tunnur.
Hæstur var Þorbjörn með 222
tunnur.
★
KEFLAVÍK, 18. des. — 26 Kefla
víkurbátar komu inn í dag með
góðan afla, samtals 2800 tunnur.
Hæstir voru Guðfinnur með 210
tunnur, og Vísir með 180. Þeir
fara ekki aftur á sjó í kvöld.
Cola-útsölu þar, er bíllinn rann
af stað. — Hann fór á hægri ferð
út í umferðina, skáhallt yfir göt-
una. Þar varð á vegi hans lítill
Fiat sendiferðabíll, sem tókst upp
að framan er dekkin lentu afan
á honum, og snerist við höggið
og nam staðar með framendann
beint út í götuna. Óverulegar
skemmdir urðu á litla bílnum við
þetta. — En ferðalag hins mann-
lausa Coca Cola-bíls var ekki á
enda. Með hægu skriði rann
hann upp á gangstéttina, og í átt
ina að skartgripaverzlun Korne-
líusar Jónssonar á neðanverðum
Skólavörðustígnum.
Vegfarendur, sem horfðu á,
töldu víst að bíllinn myndi fara
í gegnum sýningargluggana. —
En þetta fór allt á annan veg.
Bíllinn skreið niður með fram-
hlið skartgripaverzlunarinnar,
snerti gluggakistuna, án þess
einu sinni að sprengja rúðurnar
í gluggunum. Sagt er að fólkið,
sem inni í búðinni var, hafi stirn
að upp sem snöggvast, er það sá
hvaða hætta var á ferðinni. En
þegar bíllinn var fyrir miðjum
dyrum búðarinnar var hann
stöðvaður. Hafði skjótráður veg-
farandi stokkið upp í bílinn og
stöðvað hann.
Þegar hættan var liðin hjá
sagði einn þeirra, er verið höfðu
sjónarvottar að öllum saman:
Það er nærrí því yfirnáttúrulegt
hve vel þetta hefur farið, því
ég bjóst við að verða áhorfandi
að stórskemmdum á húsum og
jafnvel manntjóni.
Vísitalan
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að út vísitölu framfærslukostnað
ar í Reykjavík hinn 1. desember
s.l. og reyndist hún vera 220 stig,
eða einu stigi hærri en 1. nóv.
Skíði á sjúkraflugvelina
og fyrsti snjórinn komu
jafnsnemma
FYRIR um 10 dögum komu hing
að frá Bandaríkjunum skíði á
sjúkraflugvél Norðle'ndinga, og
sama dag byrjaði að snjóa norðan
lands. Stóðst það á endum, að
þegar litlu flugvellirnir, sem lítið
eða ekkert er rutt af, fóru að
lokast, þá voru skíðin komin und-
ir flugvélina.
Blaðið átti 1 gær tal við
Tryggva Helgason, flugmann, en
hann og Jóhann bróðir hans eru
eigendur sjúkraflugvéiarinnar,
ásamt Rauða kross deild Akureyr
ar og Slysavarnadeild kvenna á
Akureyri. Flýgur Jóhann sjúkra-
fiugvélinr.L
Sagði Tryggvi, að búið væri að
reyna skíðin og hefðu þau reynzt
ágætlega. Nú væri alls staðar
hægt að lenda, því meiri snjór
þeim mun betra.
Sagði hann að skíðunum mætti
lyfta með vökvaútbúnaði og
nota hjólin, þegar það ætti við.
Flugvélin, sem var keypt í
haust, hefur þegar komið að góðu
gagni. A.m.k. tvisvar hefur með
hennar aðstoð verið hægt að
koma sjúklingum á sjúkrahús á
síðustu stundu. Auk þess hefur
hún verið notuð talsvert til far-
þegaflutninga o.fl. Það á vafa-
laust eftir að koma enn betur í
ljós, þegar bílvegir fara að lokast
og samgöngur á landi að tepp-
ast, hversu mikið gagn er að
slikri flugvél fyrir Norðlend-
inga.
Jóla-Lesbók
Morgunblaðsins
fylgir blaðinu i dag
JÓLA-LESBÓKIN er 48 blaðsíð-
ur og er efni hennar þetta:
Sálarfriður — heimsfriður, jóla
hugvekja eftir séra Bjarna
Sigurðsson á Mosfelli.
Hurðin hvarf af skólabrúnni,
jólasaga úr Reykjavík fyr-
ir einni öld.
Sættin, kvæði eftir Árna G.
Eylands.
Jól á Fjóni. Frásögn eftir Ólaf
Gunnarsson sálfræðing.
Sveinn Björnsson forseti, kvæði
og mynd.
Listakona í sveit, eftir Á.Ó.
Jólasnjór, smásaga eftir Frið-
jón Stefánsson.
Þeir háðú stríðið við fár og
frost. Úr endurminningum
landpóstanna.
Ljóskerið, jólasaga eftir Selmu
Lagerlöf. (Einar Guð-
mundsson þýddi).
Þjóðvakningarmaðurinn Jónas
Hallgrímsson, eftir próf.
dr. Rich. Beck.
Jólatré. Ýmislegt um uppruna
þeirra o. fl.
Myndhöggvarinn Harro Magn-
ussen var af islenzku bergi
brotinn.
Jólaljósin. Frásagnir sex rit-
höfunda.
Listin að spá í spil.
Skóarinn í Betlehem, sem verzl
ar með biblíuhandrit.
Jólaföt — Jólaköttur.
Stjörnunöfn.
Jólaheit í svartadauða 1402.
Aldaskiptaspá.
Ljóð eru eftir Dóttur jarðar,
Hörð Þórhallsson, P. H. A.,
og Kjartan Ólafsson.
Smágreinar: Dropinn myndar
dýrlegt listaverk (með
mynd), Jólamessur fyrir
einni öld, Saga lífsins, Lær-
ið að skilja, Molar, Barna-
hjal.
Hugþrautir margskonar: Þanka
brot, Bridgeþrautir, Skák-
þraut, Þekkirðu borgina
þína? (verðlaunakeppni)
og Verðlaunamyndagáta.
Mynd af dómkirkjunni nýju í
Skálholti er á forsíðu.
Það óhapp vildi til, þegar 663.
bls. var sett inn í „form“, að sæta
skipti urðu á 1. og 3. dálki. Verð-
ur því að biðja lesendur að byrja
á aftasta dálki, lesa svo miðdálk-
inn og enda á fremsta dálki. Með
því er samhengið óslitið. — 1
sömu grein er af misminni farið
rangt með nafn bóndans á Herj-
ólfsstöðum. Hann heitir Hannes,
en ekki Helgi og eru lesendur
vinsamlega beðnir að leiðrétta
það.