Morgunblaðið - 24.12.1958, Qupperneq 3
Miðvikudagur 24. des. 1958
MORCUNBLAÐIÐ
27
cjit&ópjcilfcimci
En það bar til á þeim dögum, að það boð gekk út frá keisaranum
Augusto, að heimurinn allur skyldi skattskrifast. Og þessi skattur
hófst fyrst upp hjá Cyrino, sem þá var landstjórnari í Syria.
Og allir fóru að tjá sig, hver til sinnar borgar.
Þá fór og Joseph af Galilea úr borginni Nadareth upp í Judeam
til Davíðs borgar, sú er kallast Betlehem, af því að hann var af
húsi og kyni Davíðs, að hann tjáði sig þar meður Maríu sinni
festarkonu óléttri.
En það gjörðist, þá þau voru þar, að þeir dagar fullnuðust, er
hún skyldi fæða. Og hún fæddi sinn frumgetinn son og vafði
hann í reifum og lagði hann niður í jötuna, því að hún fékk
ekkert annað rúm í herberginu.
Og fjárhirðar voru þar í sama byggðarlagi um grandana við
fjárhúsin, sem varðveittu og vöktu yfir hjörð sinni. Og sjá —
að engill drottins stóð hjá þeim, og Guðs birta ljómaði í kringum
þá. Og þeir urðu af miklum ótta hræddir. Og engilhnn sagði
til þeirra: „Eigi skuluð þér hræðast, — sjáið — því að ég boða
yður mikinn fögnuð, þann er skér öllum lýð.
Því í dag er yður lausnarinn fæddur, sá að er Kristur drottin
í borg Davíðs. Og hafið það til merkis: þér munuð finna barnið
í reifum vafið og lagt vera í jötuna. „Og jafnskjótt þá var þar
hjá englinum mikill fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu
Guð og sögðu: „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu
og mönnum góðvilji".
(Nýjatestamenti Odds Gottskálkssonar 1540)