Morgunblaðið - 31.12.1958, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 31. des. 1958
MORGV1SBLAÐIÐ
27
TAFLA 2
Útflutningur eftir löndum
Jan.—nóv 1957 Jan.—nóv. 1958
Millj. kr. Millj. kr.
Danmörk 18.9 19.7
Noregur 11.7 15.1
Svíþjóð ,,,,,,,, 43.1 49.3
Bretland 78.5 T3.4
Frakkland ........ 9.1 8.1
Grikkland ........ 13.7 11.3
Holland ........ 11.2 17.6
Ítalía ........ 33.6 32.6
Portúgal 41.1 44.0
Vestur-Þýzkaland 74.5 100.7
Afríkulönd ■ ........ 63.0 30.0
Önnur E.P.U.-lönd .... 12.5 25.7
E.U.P.-lönd samtals 410.9 427.5
Dollaralönd samtals 86.8 130.2
Pólland 16.4 32.5
Sovétríkin 203.2 166.3
Tékkóslóvakía 50.9 63.1
Austur-Þýzkaland .... 40.4 67.4
Önnur Austur-Evrópulönd 2.8 2.9
Austur-Evrópulönd samtals 313.7 332.2
Finnland 49.4 28.9
Spánn 16.1 22.0
Brazilía ........ 20.5 16.7
ísrael 4.0 8.7
Önnur vöruskiptalönd samtals 90.0 76.3
Vöruskiptalönd samtals 403.7 408.5
Alls 901.4 966.2
Hlutfallsskipting útflutningsins
Jan.—nóv. 1957 Jan.—nóv. 1958
% %
45.6 44.2
9.6 13.5
34.8 34.4
10.0 7.9
100.0 100.00
TAFLA 3
Innflutningur eftir löndum
Jan.—nóv. 1957 Jan.—nóv. 1958
Millj. kr. Millj. kr.
Danmörk 58.2 77.2
Noregur 22.1 25.9
Svíþjóð 29.7 29.0
Belgía 16.1 15.9
Bretland 142.1 136.2
Frakkland 4.3 4.5
Holland 40.2 40.7
Ítalía 30.8 17.4
Vestur-Þýzkaland 92.0 115.8
Holl. Vestur-Indíur 12.1 13.7
Önnur E.P.U.-lönd 15.7 27.1
E.P.U.-lönd samtals 463.3 503.4
Dollaralönd samtals 175.8 187.3
Pólland 30.5 30.8
Sovétríkin 246.6 205.8
Tékkóslóvakía 65.1 101.0
Austur-Þýzkaland 46.8 44.9
Önnur Austur-Evrópulönd 3.6 4.6
Austur-Evrópulönd samtals 392.6 387.1
Finnland 51.9 63.2
Spánn 26.3 23.6
Brasilía 16.5 24.1
ísrael 5.4 4.7
Önnur vönuskiptalönd samtals 100.1 115.6
Vöruskiptalönd samtals 492.7 502.7
Alls 1131.8 1193.4
Hlutfallsskipting innflutningsins
Jan.—nóv. 1957 Jan.—nóv. 1958
% %
E.P.U.-lönd 40 9 42 2
Dollaralönd 15.5 15.7
Austur-Evrópulönd 34.7 32.4
önnur vöruskiptalönd 8.9 9.7
100.0 100.00
E.P.U.-lönd..........
Dollaralönd..........
Austur-Evrópulönd .,
Önnur vöruskiptalönd
Meðal kapitalvaranna munar
mest um aukinn innflutning á
skipum og ýmsum vélum og tækj
um, þar á meðal rafmagnstækj-
um til virkjananna.
Minnkun rekstrarvöruinnflutn-
ingsins er aðallega fólginn í
minnkuðum innflutningi á
brennsluolíu úr 140 í 106 millj.
kr., benzíni úr 49 í 34 millj. kr.
og kolum úr 17 í 12 millj. kr. Á
hinn bóginn eykst innflutningur
á ýmsum rekstrarvörum til út-
gerðar.
Gæta verður varúðar að draga
ályktanir um notkun þessara
vara og reyndar líka neyzluvar-
anna af innflutningstölunum.
Breytingar á birgðum í landinu
geta skipt miklu máli. Miklar
birgðir voru t.d. fyrir hendi af
olíu og benzíni í ársbyrjun, en
litlar eins og stendur. Notkun
á olíu mun hafa verið töluvert
meiri á þessu ári en í fyrra.
Nidurlag
Á árinu, sem er að líða, hefur
margt gerzt á sviði efnahagsmál-
anna, sem miklu máli skiptir
-
■;
íííSg¥í;íS:W:W:¥:ö
mhw«
Uppskipun í Reykjavíkurhöfn
fyrir utanríkisverzlun og gjald-
eyrismál landsins.
í maí voru sett ný lög um út-
flutningssjóð, sem leystu af hólmi
uppbótakerfið, sem gilt hafði frá
desember 1956. Þetta uppbóta-
kerfi fól í sér 23 mismunandi
gengi á erlendum gjaldeyri, að
því er útflutninginn snerti og 20,
að því er innflutninginn snerti.
Uppbæturnar voru misjafnar,
eftir þvi hver var talin þörf hinna
einstöku útflutningsgreina. Þær
voru mismunandi eftir tegundum
fiskjar, hvort hann var veiddur
á bát eða togara, hvar hann var
veiddur og hvenær. Ýmsar at-
vinnugreinar, sem erlends gjald-
eyris öfluðu eða hefðu getað afl-
að, nutu engra uppbóta. Kerfið
stuðlaði þannig að því að halda
uppi óhagkvæmum rekstri á ýms
um sviðum og gerði atvinngrein-
um mjög mishátt undir höfði,
Gjöldin lögðust einnig mjög mis-
jafnlega á innfluttar vörur.
Lægst voru þau á rekstrarvörum
sjávarútvegs og landbúnaðar og
„nauðsynjavörum“ (vísitöluvör-
um), en hæst á þeim vörum, sem
ónauðsynlegar eru taldar.
Með þessu móti skapaðist mik-
ið misræmi milli verðs erlendr-
ar og innlendrar vöru og þjón-.
ustu og milli erlendra vara inn-
byrðis, þar sem innkaupsverðið
í erlendum gjaldeyri réði litlu
um hið endanlega verð. Á mörg-
um sviðum var þannig ýtt und-
ir óeðlilega notkun erlends gjald
eyris, og átti það sinn þátt í
gjaldeyrisskortinum.
Tilgangur hinna nýju laga um
útflutningssjóð var að bæta
rekstrarafkomu útflutningsat-
vinnuveganna, rétta við fjárhag
útflutningssjóðs og ríkissjóðs og
draga úr misræminu í verðmynd-
uninni og jafna aðstöðu atvinnu-
greinanna.
Enn er þó eftir nokkur aðstöðu
munur, þar sem bótaflokkarnir
eru þrír, og verður að sjálfsögðu
áfram, þar til hver eining erlends
gjaldeyris, sem aflað er, gefur
sömu krónutölu.
Að því er innflutninginn snert-
ir er enn mikið verðmisræmi,
þar sem hinn erlendi gjaldeyrir
er mjög misdýr eftir því um
hvaða vöru er að ræða. Með þessu
móti er stuðlað að mikilli gjald-
eyriseyðslu í sumar vörur, en
dregið óeðlilega úr sölu annarra.
Útflutningssjóður mun nú vera
orðinn skuldlaus, en í því sam-
bandi verður að hafa í huga að
tekjuöflun hans byggist að miklu
leyti á innflutningi fyrir lánsfé,
en hann var meiri á þessu ári
en gera má ráð fyrir í náinni
framtíð. Hin nýju lög miðuðu
heldur ekki að því að bæta gjald-
eyrisaðstöðuna, en þess er brýn
þörf til þess að losa megi um
innflutnings- og gjaldeyrishöftin
og skapa öryggi og festu í at-
vinnulífið.
Lögin ákváðu syo til almenna
kaupgjaldshækkun um 5% frá
1. júní sl., en svipuð hækkun
hefði orðið frá 1. september
vegna vísitöluhækkunnar. Af
þessum ástæðum voru hin álögðu
gjöld að sjálfsögðu hærri en ella
hefði þurft.
Ráðstafanirnar hvíldu á þeirri
forsendu, að ekki yrði frekari
kaupgjaldshækkun, hvorki grunn
kaups- né vísitöluhækkun, en sú
forsenda hefur brugðizt, eins og
kunnugt er. Grunnkaup hefur
hækkað um 5—6% hjá iðnaðar-
mönnum og verzlunarfólki og um
9’/2 % hjá verkamönnum, og frá
1. þ.m. kom til framkvæmda
9.2% kauphækkun samkvæmt
vísitölu.
Að öllu óbreyttu verður að
hækka verulega útflutningsbæt-
ur og um leið innflutnings- og
yfirfærslugjöld. Það leiðir af sér
hækkun á vöruverði, sem síðan
veldur kauphækkunum og verð-
hækkunum á víxl.
Hin nauðsynlegu skilyrði fyr-
ir því, að efnahagsráðstafanirnar
næðu settu marki, voru ekki fyr-
ir hendi. Jafnvægisleysið í pen-
ingamálunum hefur valdið einna
mestu í því efni. Fjárfesting á
vegum hins opinbera hefur um
langt skeið verið meiri en eðli-
leg fjáröflun hefur leyft og bank-
arnir hafa aukið útlán sín langt
fram yfir þau mörk, sem eðli-
leg aukning innlána og eigin fjár
setur. Útlán til opinberra fjár-
festingarframkvæmda og rekstr-
arlán til landbúnaðarins vega
einna mest í þessum efnum.
Peningaþenslan úr þessum átti-
um hefur orsakað spennu á vinnu
markaðinum, dregið vinnuafl frá
útflutningsframleiðslunni og
stuðlað að aukinni gjaldeyrisnotk
un. Meðan ekki er tekið fyrir
verðbólgumyndun úr þessum upp
sprettum er lítil von þess, að
kaupgjald geti haldizt í eðlileg-
um skorðum.
Verðbólgan mun nú halda svo
að segja sjálfkrafa áfram með
miklum hraða og koma öllu at-
vinnulífi úr skorðum, ef það
dregst lengi að gera raunhæfar
ráðstafanir í þessum málum. Því
lengri tími sem líður, því erfið-
ari verða vandamálin viðfangs,
og er því brýn nauðsyn, að það
verði gert svo fljótt sem verða
H eimamyndatökur
Hversvegna ei að fá Ijósmyndarann heim, þegar hann
útvegar myndirnar eins góðar og á stofu. Barnið er
líka eðlilegast sé myndin tekin heima.
Skólaspjöld, hópar, samkvæmi, afmælismyndir
á ekta lit, brúðkaup og skírnir.
Fljót afgreiðsla. — Góð vinna.
Gleðilegt ár og þökk fyrir liðnu árin.
Stjörnuljósmyndir
Framnesveg 29, sími 23414,
Elias Hannesson.
IVeta og línuspil
Neta og línuspil af Þingeyrargerð
til sölu. —
Fiskiðjan hf.
sími 34, Vestmannaeyjum.
Skátafélögin í Reykjavík
efna til jólatrésfagnaðar dagana 2., 3. og 4. janúar
kl. 3. — Aðgöngumiðasala á gamlársdag í Skáta-
heimilinu kl. 1,30—3 e.h.
Skátafélögin.