Morgunblaðið - 31.12.1958, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.12.1958, Blaðsíða 10
o*± MUKUUiyBLAVlÐ Miðvik'udagur 31. des. 1958 Framferði Breta í algjörðri mótsögn við grundvalIarreglur og tilgang S.þ. Ræða Thor Thors sendiherra, flutt á allsherjaþingi Sameinuðu þjóðanna Thor Thors Herra forseti: Eins og okkur öllum er kunn- ugt tókst ekki á ráðstefnunnj í Genf, um réttarreglur á hafinu, að ná samkomulagi um víðáttu landhelgi og fiskveiðilögsögu. Það vantar grundvcllinn undir marg- ar þeirra mikiívægu ákvarðana, sem teknar voiu í Genf unz náðst hefur samkornulag um þessi hin þýðingarmestu atriði. íslenzka sendinefndin hafði tek ið þá stefnu frá upphafi allsherj- arþingsins um miðjan september, að þetta þing gæti og bæri að finna alþjóðiega lausn á þessurn málum, og að laganefnd þingsins hefði fullkominn rétt til þess og væri algjörlega hæf til þess að fjalla um þetta mál með það fyrir augum að leysa það réttlátlega. Utanríkisráðherra íslands skýrði þessa afstöðu ákveðið og augljóst í ræðu á allsherjarþing- inu hinn 25. september. Þegar það síðar kom í Ijós, að þessi lausn var ekki þóknanleg flestum sendinefndum hér og naut mjög lítils stuðnings, þá lítum við, að æskilegasta og líklegasta meðferð málsins væri sú, að vísa því til næsta allsherjarþings. Chile, E1 Salvador, Ecuador, Indland, Irac, Mexico og Venezuela, báru fram tillögu í þessa átt í laganefndinni. Við greiddum því atkvæði með þessari leið. Þegar við ákváðum að hafa þessa aðferð, þá byggð- um við þá ákvörðun á þeim grund velli að næsta allsherjarþing mundi gjörla rannsaka þetta mál sem forgangsmál á dagskránni og að efnishlið málsins yrði tekin til meðferðar á því þingi í laganefnd inni, og leitazt yrði við til hins ítrasta að ná samkomulagi þar og þá. Laganefndin hafnaði þess- ari málsmeðferð, en aðeins með eins atkvæðis mun. Það voru 37 atkvæði með þessari leið en 38 á móti. Laganefndin samþykkti síðan ályktun um að halda sér- staka ráðstefnu í þeim tilgangi að rannsaka nánar reglur um víð- áttu landhelgi og fiskveiðilög- sögu. Það virðist því svo, nú á þessari stundu, að við eigum í vændum nýja ráðstefnu í júlí eða ágúst í Genf. Afstaða íslenzku sendinefnd- arinnar hefur verið skýr og ein- beitt við alla meðferð þessa máls. Við höfum álitið og álítum enn, að laganefnd allsherjarþingsinssé líklegri til að ná sanngjarnri og ráttlátri lausn á þessu máli held- ur en sérstök ráðstefna, og það megi alveg sérstaklega vænta, að laganefndin sé réttlátlega samsett og að hún hafi meiri tilhneigingu en sérstök ráðstefna til að vernda réttindi strandríkja og alveg sér- staklega að gæta þessara mikii- vægustu hagsmuna ýmissa smá- ríkja. Þrátt fyrir þessi sjónarmið þá vildum við ekki gjörast því and- vígir, að ráðstefnan yrði kvödd saman, og það enda þótt að eins lítill meirihluti nefndarinnar hefði «kki viljað aðhyllast þá lausn, sem við töldum aðgengi- legasta. Það var þess vegna, sem við sátum hjá við atkvæðagreiðsl una um nýja ráðstefnu. Við vild- um ekki vísa frá þeirri tilraun til að ná lausn, þar sem við treyst um sanngirni og góðum ásetningi nær allra þeirra ríkja, sem mæltu með þessari leið. Nú í þessum svifum ber það til tíðinda, að ný breytingartillaga er lögð fyrir allsherjarþingið, og er þar lagt til, að ráðstefnan komi ekki saman fyrr en í marz eða apríl 1960. Flutningsmenn þessar- ar tillögu eru: Chile, Ecuador, E1 Salvador, Indland, Iraq, Mexi co og Venezuela. Það er að segja ríkin, sem báru fram þá lausn í laganefndinni, sem við viljum aðhyllast. Við erum auðvitað alveg sannfaerðir um það, að þessi tillaga er fram borin í góðum ásetningi og með þeirri röksemd, að þessi fr«stun eigi að fagna samþykki n*er allra þeirra ríkja, sem töldu að ráðstefna væri lík- legasta leiðin- í þessu máli til þess að ná allsherjar samkomulagi. Þar sem islenzka sendinefndin sat hjá við atkvæðagreiðsluna í laganefndinni um það megin- atriði, hvort kalla ætti saman ráð stefnu, þá erum við neyddir til þess að láta talsmenn ráðstefn- unnar sjálfa ráða því hvaða tími sé heppilegastur til að kalla ráð- stefnuna saman, og við verðum þess vegna einnig nú á allsherjar þinginu að sitja hjá við atkvæða- greiðsluna um þessa breytingartil lögu. Við eigum einskis annars útkosta. Leyfið mér, herra forseti, nú að skýra í fáum atriðum frá því hvers Island væntir af nýrri ráð- stefnu, og hvernig við lítum á þær aðstæður, sem nú ríkja, þeg- ar við hefjum undirbúning að nýrri ráðstefnu. Aðstæðurnar, sem nú ráða á þessu sviði eru að okkar áliti mjög þýðingarmiklar og þær geta jafnvel ráðið úrslit- um um það, hvort við óskum eða óskum ekki að taka þátt í hinni væntanlegu ráðstefnu. Eins og nú er orðið víða kunn- ugt, er fjárhagslíf íslands háð fisk veiðum meira en með nokkurri annarri þjóð í heiminum. Við eig- um nær engar aðrar auðlindir en fiskveiðarnar. 97% af verðmæti útflutnings okkar kemur þaðan og það fjármagn verðum við að nota til að greiða til annarra landa fyrir flestar lífsnauðsynjar okkar, sem við þurfum að flytja inn. Fiskimiðin við ísland eru okkar dýrmætustu auðæfi. Þau gefa okkur hið daglega brauð. Þaðan kemur fjármagnið til að veita okkur sæmilega lífsafkomu, og þaðan kemur afl þeirra hluta, sem gjörir þjóð okkar sjálfstæða menningarþjóð. Fiskimiðin eru þjóðlífi okkar mun þýðingar- meiri en kaffitrén eru fyrir Brazilíu, E1 Salvador og Colom- bíu, eða sykurekrurnar fyrir Kúba, sauðféð og nautpeningur- inn fyrir Uruguay og Argentínu, eða bifreiðaframleiðslan fyrir Detroit og olían fyrir Texas. Við verðum þess vegna með fyrir- hyggju og alúð að vernda og varð veita þessi auðæfi, þar sem fram- tíð þjóðarinnar er í veði. Herra forseti, það var orðið aug Ijóst mál, að það vofði yfir sú mikla hætta, að fiskistofninn eyddist og yrði uppurinn. Frá því í byrjun 20. aldarinnar hefir heil hersing erlendra togara, aðallega frá Bretlandi, skafið hafsbotninn á fiskimiðum okkar alveg upp að ströndum landsins með slíkri nærtækni, að algjör eyðilegging mátti vera fyrirsjáanleg. Það var því óhugsandi, að við gætum horft á þetta aðgerðarlausir. Frá því árið 1949 höfum við beitt allri okkar viðleitni að því, alls- staðar á viðeigandi alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal innan Sameinuðu þjóðanna, að fá kom- ið á hagkvæmum reglum til skyn samlegra takmarkana á nýtingu fiskimiða. En Sameinuðu þjóð- irnar hafa farið sér hægt í þessu efni. Eftir að Bretland mótmælti grunnlínum Norðmanna, og eftir að aðgjörðir Norðmanna höfðu hlotið staðfestingu hins alþjóð- lega dómstóls árið 1951, þegar Bretar töpuðu málinu fyrir dóm- stólnum, þá fórum við að dæmi Norðmanna árið 1952. Þetta lík- aði eigi öllum þjóðum alls kostar í upphafi, en aðeins ein, Bretland, sem við höfum aiia tíð átt hina vingjarnlegustu sambúð við og stóðum með og studdum í heims- styrjöldinni — aðeins þeir gripu til þess að beita gagnráðstöfunum til að reyna að knýja fram vilja sinn gegn þjóð vorri. Ráðamenn í Hull og Grimsby skelltu þá á banni gegn löndun á íslenzkum fiski um allt Bretland. Það hlýtur að -hafa verið markmið þeirra, mér þykir leitt að verða að segja það — að svelta okkur til hlýðni við sig. En þessir menn þekkja lítið til sjálfstæðis og þolgæðis íslenzku þjóðarinnar. En margir hlutir fara á annan veg en ætlað er í þessum heimi. Bann Breta snerist okkur til góðs, þar sem við fundum og jukum nýja mark- aði með öðrum þjóðum, sem reyndust okkur vinsamlegar og Bretar neyddust til þess að falla frá löndunarbanninU eftir þýðing arlausar tilraunir í 4 ár. Eftir að það kom í ljós, að ráð- stefnan í Genf gat ekki náð sam- komulagi um víðáttu landhelgi né um fiskveiðilögsögu, vorum við að nýju neyddir til að færa út fiskveiðilögsöguna. Við höfðum tilkynnt það fyrir löngu, að það væri ætlun okkar að færa út fisk- veiðitakmörkin upp að 12 mílum. Þetta gjörðum vjð að nýju heyrin kunnugt í Genf, en samt sem áður biðum við með að framkvæma þessa ákvörðun fram til 1. sept- ember, svo að okkur gæfist tæki- færi til að skýra fyrir öðrum þjóð um hverja nauðsyn bar til þess að grípa til þessara ráðstafana, og þess vegna áttum við miklar og langar viðræður við ýmsar aðrar þjóðir um þetta efni, en ekkert samkomulag virtist hugsanlegt. Nokkrar þjóðir hafa mótmælt þessum aðgjörðum okkar. Okkur er sagt það, að 12 mílna takmörk- in eigi sér ekkj stoð í alþjóðarétti. Við því viljum við þá svara, að það gildi engin alþjóðalög um víðáttu landhelgi né um réttindi strandríkis. Það er nú almennt viðurkennt, að 3ja mílna reglan er dauður bókstafur í skjalasafni alþjóðáréttarins. — Samkvæmt skýrslu þjóðréttarsérfræðingaeru nú þegar meira en 30 þjóðir, sem hafa ákveðið landhelgi sína frá 3 til 12 mílum. Hin alþjóðlega laganefnd Sameinuðu þjóðanna sagði svo í skýrslu sinni frá 25. október 1956 „Alþjóðalög leyfa ekki útfærslu landhelgi út fyrir 12 mílur.“ Á ráðstefnunni í Genf óx þeirri stefnu stöðugt fylgi að ákveða 12 mílna fiskveiðilögsögu. Ég verð að leyfa mér að leggja áherzlu á það hér, að ísland hefir aðeins fært út fiskveiðilögsöguna, en ekki landhelgi, en það er mál, sem hefir miklu víðtækari þýð- ingu og frekari afleiðingar. Á ráðstefnunni í Genf höfðu 36 þjóðir greitt atkvæði með tillögu frá Kanada þess efnis, að sérhver þjóð skuli hafa eiuhliða fiskveiði- réttindi innan 12 mílna. Og 45 þjóðir greiddu atkvæði með til- lögu, sem Bandaríkin báru fram um 6 mílna landhelgi og 6 mílna fiskveiðilögsögu til viðbótar. Enda þótt það hafi verið óað- gengilegar takmarkanir á rétti strandríkis samkvæmt tillögu Bandaríkjanna, þá var það samt sem áður grundvallarreglan um 12 mílna fiskveiðilögsögu, sem Bandaríkin gjörðu að tillögu sinni. Hinar 45 sendinefndir, sem greiddu atkvæði með 12 mílna grundvallarreglunni voru full- trúar fyrir geysilegum meiri- hluta mannkynsins. Þessar stað- reyndir ættu glögglega og nægi- lega að sanna það, að 12 mílna fiskveiðireglan er ekkert, sem af ósanngirni var fundið upp af ís- landi. Með þeim röksemdum, sem ég hefi nú fram borið staðhæfum við, að þessi ákvörðun okkar brýt ur ekki i bág við alþjóðlegan rétt, enda eru þessar reglur sam- þykktar og framkvæmdar af fjöl- mörgum þjóðum. Þá er sagt við okkur: Þið meg- ið ekki gjöra þetta upp á ykkar eindæmi, en ég spyr af hverju? Ef 30 þjóðir hafa fram til dagsins í dag gjört þetta sama upp á sitt eindæmi. Hvernig er þá hægt að ætlást til þess, að við einir ætt- um að bíða eftir allsherjar sam- komulagi. Ég sagði áðan, að nokkrar þjóðir hefðu mótmælt þessum aðgjörðum okkar. Allar lögðu þær fram mótmælin á diplomatískan og kurteisan hátt, sem sæmir viðskiptum milli þjóða, sem virða sjálfstæði hverr- ar annarrar. Allar nema ein. Að- eins ein — Bretar aftur — lítil- lækkuðu sig með framferði, sem brýtur í bág við stofnskrá Sam- einuðu þjóðanna. Eitt af grund- vallaratriðum sáttmála vors er að finna í 2. grein, 4. lið, þar sem segir: „Öll ríki S.þ. eiga í alþjóð- legum viðskiptum sínum að forð- ast að hóta valdbeitingu eða beita valdi gegn landfræðilegum yfir- ráðum og pólitísku sjálfstæði annars ríkis“. Það er freklegt brot á sáttmála hinna Sameinuðu þjóða, er hin konunglegu brezku herskip miða fallbyssum sínum á okkur litlu varðskip í landhelgi vorri við íslandsstrendur, og það er gjört í algjörðri mótsögn við grundvallarreglur og tilgang sátt málans, mótsögn við þær hug- sjónir, sem við heyrum svo oft hátíðlega haldið á loft í ræðum okkar hér. Ef brezku herskipin eru komin upp að íslandsströnd um til þess að halda uppi al- þjóðarétti og reglum á úthafinu, eins og þeir sjálfir segja, þá vil ég spyrja, hvers vegna senda Bretar ekki konunglegan flota sinn inn fyrir 12 mílna takmörk in við strendur Rússlands? Eða yfirleitt inn fyrir landhelgis- mörk sérhverra hinna 30 þjóða, sem komið hafa á frá 3—12 mílna landhelgi? Er það svo, að nú- verandi ríkisstjórn Bretlands hafi tVenns konar mælikvarða varðandi framkomu sína í alþjóð- legum viðskiptum, einn fyrir stórveldin og önnur lönd, sem brezka Ijónið óttast að einhverju leyti, en annan fyrir hinar smæstu þjóðir, þaðan, sem það væntir engrar mótspyrnu. Satt er það, að við höfum engin vopn til að gæta réttar okkar. Við get- um ekki rekið flota Henn- ar hátignar á brott úr okkar land helgi. En það er innan hennar, já, jafnvel innan hinna viður- kenndu og óumdeilanlegu 3ja mílna takmarka, sem herskip þeirra miða byssum sínum á sjó- mennina á varðskipum okkar, sem eru að framkvæma lagalegan rétt og leitast við að halda uppi lögregluvaldi gegn sökudólgum, sem eru staðnir að afbrotum. í sambandi við þennan tvö- falda mælikvarða, má ég leyfa mér að minna allsherjarþingið á það, sem hinn virðulegi utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, Mr. Dulles, varaði alla, sem hlut eiga að máli við í ræðu, sem hann flutti hér í Allsherjarþinginu hinn 18. september sl. Þar sagði utanríkisráðherrann orðrétt: „Samkvæmt þessu er engin sam- ræmd regla um hollustu við sátt- mála okkar eða framkvæmd. Það eru tveir mismunandi mælikvarð ar fyrir framkomu ríkja. Banda- ríkin álíta, að þessi tvöfaldi mæli kvarði sé ósamræmanlegur grundvallartilgangi Sameinuðu þjóðanna, og að hann sé ógnun við stofnun okkar, og við verðum að beita okkur gegn þessu.“ Þetta voru orð utanríkisráðherra Bandaríkj anna. Það hefir verið minnzt á, að þessi deila eigi að leggjast fyrir hinn Alþjóðlega dómstól, en ég spyr, herra forseti, er það ekki alveg einstætt og fáheyrt réttar- far að miða byssu á mann og bjóða honum um leið að leggja málið fyrir dómstól. Þetta brezka ævintýri er orð- ið grátbroslegt. Brezkir togarar hafa fyrirskipanir um að fiska innan landhelgi okkar. Fyrst var þeim fyrirskipað að vera þar í 3 daga, en núna sleppa þeir með 2 daga, hvort sem nokkur veiði er eða ekki. Hin broslega hlið málsins skemmtir mönnum víða um heim. En frá okkar sjónar- miði er þetta hryggilegt. Herskip in hafa í hótunum við landhelg- isgæzlu okkar og sjómenn. En samt sem áður kennum við í brjósti um Bretana. Það er okk- ur ekkert gleðiefni að sjá fyrr- verandi vini okkar vera leidda á slíkar villigötur af þröngsýnum og síngjörnum ráðunautum og að þeir skuli þess vegna verða sér til athlægis hjá andstæðing- um þeirra. Það er einnig, að þessi hernaður, ef nota má svo alvarlegt orð um svo gáleysis- Frh. á bls. 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.