Morgunblaðið - 03.01.1959, Síða 1

Morgunblaðið - 03.01.1959, Síða 1
20 siður 46. árgangur 1. tbl. — Laugardaginn 3. janúar 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsin* Rússar skjóta eldflaug til tunglsins Hún var á réttri braut, þegar síðast fréttist MOSKVU, 2. jan. — Sovét- ríkin skutu í kvöld á loft fyrstu tungleldflaug sinni. — Eldflaugin er margra þrepa og þegar síðast fréttist var hún á réttri leið til tungls- ins. Ef allt gengur að óskum, verður eldflaugin komin til tunglsins aðfaranótt sunnu- dags. Frá þessu var skýrt í Moskvu- útvarpinu seint í kvöld. Þá var eldflaugin komin 110 þús. km. frá jörðinni og var yfir suður- hluta Súmötru. Þá heyrðust greinileg hljóðmerki frá henni, sagði útvarpið. Útvarpið skýrði frá því, að eld- flaugin hefði strax komizt á rétta braut á leið sinni til tungls- ins. Fyrst fór hún yfir austur- hluta Sovétríkjanna, síðan yfir Havai og Kyrrahaf. Reuter skýrir frá því, að síð- asta þrep eldflaugarinnar vegi 1833,2 kíló með eldsneyti. AFP- fréttastofan skýrir frá því sam- kvæmt Tass-frétt, að fremsti hlut inn vegi 361,3 kiíó. í honum eru vísindatæki og er ‘upplýsingum þeirra jafnharðan komið til jarð- ar með þar til gerðum senditækj- um. Samkvæmt Moskvuútvarpinu er þetta „tunglskot" Rússa til heiðurs 21. flokksþingi kommún- istaflokksins. Á eldflauginni stendur „USSR 1959“. Merkileg samtöl Noel Baker í Moskvu LUNDUNUM, 12. jan. — Hinn þekkti brezki stjórnmálamaður Noel Baker, er nýkominn heim úr Rússlandsferð. Hann ræddi við Mikojan og Krusjoff í ferð- Sir Farndale er á móti löndunarbanni vegna íslenzku fiskflakanna Vill sýna sanngirni, eins og hann segir í FRÉTTASKEYTI frá Reuter í gær segir, að þá hafi togaraskipstjórar í Grimsby haldið skyndifund út af uppskipun á 600 tonnum af ís- lenzkum fiskflökum í Grims- by í sl. viku. Formaður tog- araskipstjórafélagsins sagði um þessa fiskflutninga, að þeir væru rýtingur í bak togarasjómanna. Félag tog- araskipstjóra væri að hug- leiða að senda brezka utan- 12 mílur í Panama SAMKVÆMT fregnum frá ame- rísku fréttastofunni AP, frá Panama 18. des., hefur forseti Panama, La Guardia, undirritað lög um 12 mílna landhelgi Panama, en þar hafði áður verið í gildi 3 mílna landhelgi, Bandaríkin fara með yfirstjórn Panamaskurðarins með sérstök- um samningi við Panama og í fréttinni er þess getið, að utan- ríkisráðuneytið í Washington hafi ekki, þennan fyrrgreinda dag, gefið út eina tilkynningu varðandi þessa ákvörðun Panama •tjórnar. Laugardagur 3. Janúar. Efni blaðsins m.a.: 8Bs. 6: Heiðarlegast að ganga beint framan að þjóðinni og segja hvað gera þarf. Ræða forsætis- ráðherra á gamlárskvöld. 8: Umferðin í höfuðborginni. Stutt samtal við Valgarð Briem, fram kvæmdastjóra umferðarnefnd- ar. — 10: Ritstjórnargreinin: — Ófögur saga. 100 ár er enginn aldur lengur. (Utan úr heimi). 11: Fjallkonan hefir ríkulega bless- að sín börn og ætlast til nokk- urs af þeim. Áramótaávarp for- seta íslands. Æskulýðsleiðtogi verður yfir- maður öryggislögregiu. ■» 18: íþróttir. ríkisráðuneytinu mótmæli vegna þessara flutninga. Á fundinum í gær hvatti for- maður togarasambandsins brezka sjómenn til að vera sanngjarnir í þessu máli og fara að öllu með gát. Lesið var upp bréf á fund- inum frá Sir Farndale Phillips, þar sem hann benti á, að nauð- synlegt væri að sýna íslending- um sanngirni, ef það mætti verða til þess að þeir taki aftur upp vinsamleg samskipti við vestræn- ar þjóðir. í bréfinu sagði enn- fremur, að togarasambandið kynni vel að meta starf skip- stjórafélagsins í átökunum við ís land, þegar „áhafnir okkar verða fyrir mikilli harðneskju. . . vegna afstöðu íslenzkra stjórnarvalda". Síðao segir, að samt sem áður verði Bretar að reyna að fá ís- lendinga til að hafa vinsamleg viðskipti við vestrænar þjóðir. Af þeim sökum verðum við, ekki Framh. á bls. 2. inni og segir, að það sé skoðun sín, að vesturveldin eigi að leggja aftur fram afvopnunartillögur sínar frá 1954. Heldur hann, að Rússar muni nú fallast á kjarna þeirra. Þá segir Baker ennfremur, að Mikojan hafi skýrt sér frá því, að árlegur herkostnaður Rússa sé 93 milljarðar rúblna. Þessi tala hefur aldrei verið gefin upp. Þá segir Baker, að Mikojan hafi sagt, að innan sjö ára verði börn alin upp í skólum landsins frá sjö ára aldri, því sérmennt- aðir uppeldisfræðingar hefðu miklu betra vit á uppeldinu en ólærðir foreldrar. Engin elíimörk LUNDÚNUM, 2. jan. — Aden- auer, forsætisráðherra Vestur- Þýzkalands verður 83 ára á mánu dag. Hann er nú eins ern og hann var, þegar hann gerðist leiðtogi þýzku þjóðarinnar. Vinir hans segja, að engin ellimörk sjáist á gamla manninum, og hann sé þegar byrjaður að skipuleggja kosningarnar 1961. Talsmaður bandaríska hermála ráðuneytisins sagði undir mið- nætti, að Bandaríkjamenn hefðu vitað fyrirfram um „tunglskotið", en að öðru leyti vildi hann ekki veita frekari upplýsingar um það. Yfirmaður hins risastóra radíó- kíkis í Jodrell Bank í Englandi, Lovell prófessor, sagði í nótt, að ógerningur væri að fylgjast með ferðum eldflaugarinníf. — Hann sagðist vera hissa á þessu „tunglskoti“, því hofium hafi ver- ið sagt, þegar hann var á ferða- lagi í Rússlandi í ágúst sl., að Rússar hefðu ekki í hyggju að skjóta eldflaug til tunglsins. De Gaulle De Caulle rœddi við Mollet í gœr Jafnaðarmenn og kaþólskir ekki í nýrri stjórn? PARIS, 2. jan. — De Gaulle, for- sætisráðherra Frakklands, og Mollet, leiðtogi jafnaðarmanna, ræddust við í dag um væntanlega stjórnarmyndun, en ný stjórn verður mynduð í Frakklandi 8. þessa mánaðar, þegar de Gaulle tekur við forsetaembættinu. Mollet hefur ekkert viljað segja um þessar viðræður, en sennilegt þykir, að hann hafi rætt við for- sætisráðherrann um aðild jafn- aðarmanna að hinni nýju stjórn, sem líklegast verður undir for- sæti Michel Debre, sem 46 ára gamall og einn af helztu leiðtog- um Gaullista í Frakklandi. Jafn- aðarmenn hafa lagzt gegn fjár- lagafrumvarpinu, sem lagt hefur verið fram, af því að þeir eru þeirrar skoðunar, að álögurnar komi tiltölulega þyngra niður á Ný stjórn í Fœreyjum KAUPMANNAHÖFN, 2. jan. — Færeyskir jafnaðarmenn hefja í dag viðræður við fulltrúa Sam- bandsflokksins og Sjálfstýri- flokksins um myndun nýrrar landstjórnar í Færeyjum. Ef stjórnarmyndun tekst, er gert ráð fyrir því, að Peter Mohr Dam verði fyrsti jafnaðarmaðurinn, sem verður lögmaður í Færeyj- um. Hinar löngu samningavið- ræður Dams við fulltrúa Þjóð- veldisflokksins og Fólkaflokksins urðu árangurslausar. verkamönnum en öðrum þjóðfé- lagsþegnum. Þeir hafa því lýst því yfir, að þeir taki ekki sæti í stjórninni og hefur de Gaulla vaf alaust hvatt Mollet í dag til aS breyta þeirri ákvörðun. Ekki er heldur gert ráð fyrir, að Kaþólski miðflokkurinn taki þátt í hinni nýju stjórn, einnig vegna andstöðu við fjárlagafrum varpið. Málverkafalsarar OSLÓ, 2. jan. — IlúsgagnasmlS- ur nokkur í Noregi hefur verlS tekinn höndum fyrir málverka-. falsanir. Hann seldi tvö málverk, sem hann sagði, að væru eftlr Munch. Fékk hann 39 þúsund kr. fyrir þau. Smiðurinn málaði sjálf ur bæði málverkin. Nú hefur norskur útgcrðar- maður keypt annað málverktf fyrir 45 þúsund krónur. Kona húsgagnasmiðsins heftw einnig verið handtekin fyrir af taka þátt í sölunni. Herstjórnin í Jakarta hefur ttl- kynnt, að flugvélar hennar hafl gert margar loftárásir á stöðvwr uppreisnarmanna á Norður C«l*- bes að undanförnu. Enn einn einræðisseggurinn hrökklast frá völdum »1 Oas Uppreisnarmenn á Kúbu báru sigur- orð af stjórnarhernum i gærdag HAVANA, 2. jan. — Fréttamenn segja í kvöld, að Fidel Castro, uppreisnarforingi, og menn hans hafi gengið með fullnaðarsigur af hólmi í viðureigninni við stjórnarher Bat- ista einvaldsherra. Eins og kunnugt er, flýði einvaldurinn i gær til Dominikanska lýðveldisins og lét völdin í hendur herforingjaklíku. Dominikanska lýðveldið er nú eina harð- svíraða einræðislandið í Suður-Ameríku. Undanfarið hefur hverjum einvaldinum á fætur öðrum verið steypt af stóli í Suður-Ameríkuríkjum. Náðu flugvellinum Snemma í morgun höfðu vopn- aðar sveitir uppreisnarmanna náð á sitt vald öllum hernaðar- lega mikilvægum stöðum í Hav- ana, höfuðborg Kúbu. Nú vinna uppreisnarmenn að því að koma á kyrrð og ró í borginni, en þar voru miklar óspektir í gær. Upp- reisnarmenn hafa einnig náð á sitt vald flugvellinum í Havana og mörgum flugvélum og hafa nú sumar þeirra verið sendar til að sækja pólitíska flóttamenn, sem urðu að flýja land vegn* skoðana sinna í stjórnartíð Bat- ista. Þess má þó geta, að ekki hefur verið gefin út opinber yfirlýsinf þess efnis, að stjórnarherinn hafl gefizt upp, en fréttamenn benda á, að uppreisnarmenn hafi á valdi sínu mest alla eyjuna. Diplomatar Uppreisnarmenn hafa nú þegar gert ráðstafanir til þess að taka í sínar hendur utanríkismál lands ins og þegar siðast fréttist höfðu fylgismenn uppreisnarmanna f kúbanska sendiráðinu í New York lagt það undir sig. 1 sambandi við Castro Herforingjaklíkan, sem tók vifi stjórnartaumunum, þegar Batist* forseti flýði land, var leyst upp snemma í dag og í hennar stað var Ramon Barquin skipaður yf- irmaður stjórnarherjanna. Hann Framh. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.