Morgunblaðið - 03.01.1959, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 3. jan. 1959
Ágœfur bœjarbragur á gamlárskvöld
Háskólinn uppljómaður á gamlárskvöld.
GAMLÁRSKVÖLD var með allra
rólegasta móti hér í Reykjavík. —
Telur Erlingur Pálsson það vera
meðal hinna allra rólegustu sem
hann minniist, en þessi áramót
voru 39. áramótin sem hann er
úti með götulögreglumönnum við
löggæzlustörf.
Bæjarbragur var ágætur á
þessu helzta skemmti'kvöldi ársins.
Um allan hæ var gífurieg umferð
bíia og miest í námunda við þá
staði, sem stórbrennur voru. En
lögi'egían hafði búizt við þessu og
kom því ekki til umferðarörðug-
leika.
Strax um klukkan 6 tóku bráð-
tótustu strákarnir að bera eld að
áramótabrennum sínum, en lík-
lega munu brennur alls hafa ver-
ið um 70. Munu ekki hafa verið
jafnmargar áður.
Um klukkan 11 er kveikt var
í stóru brennunum þrem, var gíf-
lurlegur mannf jöHi saman kominn
við þær, fullorðnir og börn. Tók-
ust brennurnar vel, enda ágætt
veður, norðaustan gola.
Um níuleytið tóku unglingar
að safnast saman hér í Miðbæn-
um og í námunda við lögreglu-
stöðina. Voru þeir með ærsl og
óhljóð, en höfðust Lítt að
og ekki frömdu þeir nein skem.md
arverk. En lögreglan tók um 30
stráka úr umferð, þannig að
■yngstu strákarnir voru strax flutt
dr heim til sín, en hinir eldri voru
geymdir fram yfir miðnætti, en
þá fluttir heim.
Um miðnætti var þúsundum
flugelda skotið upp og vonu sum-
ir svo öflugir að engu var líkara
en að um tunglskot væri að ræða!
Nokkur skip, sem lágu skrautlýst
stafna í milli, flautuðu. En svo
fá vonu þau, að við lá að flug-
eldagnýr yfirgnæfði flaut þeirra,
meira að segja í hinum eldri bæj-
arhlutum.
• Ölvun á almannafæri var ekki
tiltakanlega mikil. Tuttugu menn
Tvö skáld
fá verðlaun
A GAMLÁRSDAG fór fram í
Þjóðminjasafnsbyggingunni af-
hending verðlauna úr „Afmælis-
sjóði útvarpsins", en að þessu
sinni urðu fyrir valinu skáldin
Guðmundur Ingi Kristjánsson og
Hannes Sigfússon. Fengu þeir
hvor 8000 króna verðlaun. Var
Hannes sjálfur viðstaddur og
veitti verðlaununum móttöku, en
Guðmundur Ingi gat ekki komið
til þess að taka við þeim. Krist-
ján Eldjárn afhenti verðlaunin
fyrir hönd sjóðsins, en útvarps-
stjóri flutti nokkur árnaðarorð.
Meðal viðstaddra var mennta-
málaráðherra.
Um áramótin sendu De Gaulle
og Krúsjeff hvor öðrum heilla-
skeyti. Krúsjeff óskaði hershöfð-
ingjanum til hamingju með for-
setakosninguna og kvaðst vona,
að vinátta Frakka og Rússa yrði
enn treyst á þessu ári, sem nú
er að hefjast, heimsfriðnum til
eflingar.
Vináttusamningur?
Áður en Rahman fór frá Kuala
Lumpur í dag, sagði hann, að
„við gætum útilokað kommúnista
áhrifin, ef við hefðum betri lífs-
kjör en kommúnistar bjóða upp
á“. Og hann bætti við. „Við verð-
voru teknir úr umferð á
götum úti. Meðail þeirra voru 2
menn, sem teiknir voru í sambandi
við ölvun við akstur.
Dansleikir fóru yfirleitt vel
fram og segja má_ að kyrrð hafi
verið komin á í bænum á öðrum
tím-anum aðfaranótt nýjársdags.
Þessa nótt fóru samgöngur
AÐ MORGNI nýársdags barst
Flugféiagi íslands beiðni um, að
flugvél yrði send til Egilsstaða
til þess að sækja mikið veikt
barn, sem nauðsynlegt var að
koma tafarlaust á sjúkrahús.
Um tvöleytið lagði Gljáfaxi af
stað austur undir stjórn Snorra
Snorrasonar og Ingimars Svein-
björnssonar. Þrátt fyrir óhagstæð
veðurskilyrði á Egilsstöðum lenti
Gljáfaxi þar eftir rúmlega einnar
og hálfrar klukkustundar flug frá
Reykjavík. Sjúklingurinn kom á
flugvöllinn í sama mund og flug-
vélin. Er Gljáfaxi lenti á Reykja-
\ tkurflugvelli um klukkan hálf
sex, beið þar bifreið, sem flutti
sjúklinginn þegar í Landsspítal-
ann. Þar var sjúklingurinn, sem
Jólatrésfagnaður
KEFLAVÍK, 2. jan. — Kvenfélag
Keflavíkur hefir undanfarin ár
haldið jólatrésfagnað fyrir eldra
fólk hér í bænum og mun fagnað-
ur þessi nú verða 4. jan. í Ung-
mennafélagshúsinu. og hefjast kl.
3. Það eldra fólk, sem erfitt á
með að sækja skemmtunina nema
það verði sótt, má hringja í síma
62 eftir kl. 2 og munu þá kven-
félagskonur sjá þeim fyrir far-
kosti — Ingvar.
um að aðstoða hverir aðra ef góð
ur árangur á að nást í barátt-
unni við kommúnistana".
Ekki þykir ósennilegt, að niður
stöður viðræðna þessara manna
muni leiða til þess, að Fillipps-
eyjar og Maiajaríki geri með sér
einhvern vináttusamning.
með leigúbílum meir og minna í
mola. En ein helzta ástæ&an, að
sögn leigubílstjóra, var sú, að um
klukkan 2,30 aðfaranótt nýárs-
dags byrjaði að snjóa og setti
niður allniikinn snjó á skömmum
tíma, en leigubílstjórar voru ekki
við því búnir að setja keðjur á
bílana og hættu þá akstri.
heitir Árni Finnbjörn Þórarinsson
og er sex ára gamall, þegar skor-
inn upp. f gær leið Árna eftir
atvikum. Hann þjáðist af slæmri
botnlangabólgu.
10.000 króna stykki
stolið
AÐFARAN ÓTT Þorláksmessu
var stolið úr bíl, sennilega vestur
við slippinn, stykki úr mælitæki
í fiskiskip. Hér er um dýrt stykki
að ræða, kostar rúmar 10, 000
krónur. Er nær ógerningur fyrir
þann, sem stal því að koma því í
verð. Var það í umbúðum og
merkt skipstjóra vestur í Grund-
arfirði. Þeir, sem kynnu að hafa
orðið stykkisins varir, en um það
er búið í kassa, eru beðnir að
gera rannsóknarlögreglunni við-
vart.
Ös í slysavarðstof-
imni um áramótin
H JÚKRUN ARFÓLK Slysavarð-
stofunnar, kandidat og aðstoðar-
læknir, voru önnum kafnir frá
því á gamlársdag og þar til á ný-
ársdagsmorgun, en á þessu tíma-
bili leitaði mikill fjöldi fóiks til
læknastofunnar vegna meiðsla.
Var bókstaflega um ös að ræða á
gamlárskvöld.
Meðal þeirra, sem læknar
Slysavarðstofunnar veittu hjálp,
voru þrír drengir, sem allir
höfðu hlotið talsverða áverka,
þegar heimagerðar sprengjur
sprungu. Eins var það athyglis-
vert, að meðal 19*manns sem hlot
ið höfðu brunasár og starfsfólk
Slysavarðstofunnar hjúkraði,
höfðu margir hlotið sár sin frá
„kínverjum“, sem í sumum til-
fellum hafði verið varpað að hin-
um slösuðu. Er því síður en svo,
að þessir „kínverjar" séu með
öllu hættulausir.
En yfirleitt voru öll meiðslin
sem gert var að minniháttar og
ekki hættuleg. Þetta ár, sem nú
var að líða hefur verið mikið
annaár hjá læknum og öðru
starfsfólki Slysavarðstofunnar,
einkum þó í haust og vetur.
— Kúha
Framh. af bls. 1.
var eitt sinn hermálafulltrúi við
kúbanska sendiráðið í Washing-
ton, en hefur setið í fangelsi tvö
undanfarin ár vegna þess að
hann reyndi að steypa Batista
af sóli. Barquin hefur verið í
sambandi við Castro og forseta-
efni hans, Urrutia, og vonast
menn til að stjórnarherinn fali-
ist á, að Urrutia verði forseti til
bráðabírgða. Ekki er minnzt á
Carios Piedra í útvarpsfréttun-
um, en herforingjaklíkan út-
nefndi hann forseta í gær.
Allsherjarverkfall
Fréttamenn segja, að allsherj-
arverkfall sé í Havana og göt-
urnar séu auðar og ékki ásjáleg-
af eftir eyðilegginguna í gær.
Allar verzlanir í borginni hafa
verið lokaðar í dag. Svo til hver
einasti maður, sem var utan dyra,
var úr röðum uppreisnarmanna.
Höfðu þeir allir svört og rauð
armbönd. Mikið hefur verið um
rán og þjófnaði í borginni und-
anfarna tvo daga. Lögreglan
reyndi að grípa í taumana, en
ekki tókst betur til en svo, að
hermenn urðu að fylgja lögreglu-
mönnum í öruggt skjól. Þeir
réðu sem sagt ekki við neitt.
f Oriente.
Fréttamenn benda ennfremur
á það, að þær hersveitir sem
hafa tögl og hagldir í Havana séu
ekki úr hinum eiginlegu upp-
reisnarsveitum Castros, heldur
sé hér um að ræða menn sem
hafa unnið í neðanjarðarhreyf-
ingu uppreisnarmanna í borg-
inni. Aðalherstyrkur Castros
heldur sig í Oriente-héraði, en
er á leið til höfuðborgarinnar.
Ekki alls fyrir löngu börðust
uppreisnarmenn við stjórnarher-
inn í þessu héraði og tókst að um
kringja um 10 þús. hermenn.
Kosningar.
Ekki er vitað um skipan hinnar
nýju stjórnar uppreisnarmanna,
en skjólstæðingur Castros í Kan-
ada segir í dag í viðtali við
Montreal-blaðið The Gazette, að
Castro sjálfur hafi í hyggju að
verða landvarnaráðherra. í sam-
taiinu segir fyrrnefnd persóna
ennfremur, að sennilega muni ný
stjórn starfa í 18 mánuði til bráða
birgða, en þá muni fara fram
kosningar í landinu. Castro sjálf-
ur lýsti því yfir í dag, að hann
mundi efla lýðræðið á Kúbu af
öllum mætti.
Affeins 32 ára.
Ekki er búizt viff, aff Castro
verffi í kjöri til forsetaembætt-
is, þegar þar aff kemur. f nú-
verandi stjórnarskrá ríkisins
segir, að forsetinn verffi aff
vera 35 ára aff aldri, en Castro
er ekki nema 32 ára gamall.
Hver verður stefnan?
Nú velta menn því fyrir sér,
hver verði pólitík hinnar
nýju stjórnar. Sumir sérfræð-
ingar i Bandaríkjunum túlka
fyrri ummæli Castros á þann
veg, að hann hafi í hyggju að
þjóðnýta stóriðnaðinn í land-
inu, svo og sykurekrurnar.
í þessum mánuði hefst sykur-
uppskeran á eyjunni og er
hún í nokkurri hættu vegna
borgarastyrjaldarinnar. Hún
er um 800 millj. dollara virði.
Einn helzti talsmaður Castros
sagði í dag, að hann hefði
enga samúð með kommúnist-
um og ekki væri gert ráð fyr-
ir því, að iðnaður eða land-
búnaður yrði þjóðnýttur.
•k
Talsmaður Castros í New York
sagði í kvöld, að um 75 þúsund
Kúbubúar væru nú í Bandaríkj-
unum, flestir pólitískir flótta-
menn. Helmingur þeirra eru
ákafir fylgismenn Castros, sagði
talsmaðurinn. Hann bætti því við,
að gert væri ráð fyrir, að um
20 þús. af þessum mönnum mundi
snúa heim aftur, og hygðust
stjórnarvöldin sjá þeim öllum
fyrir fríu fari heim.
Síðustu fréttir
frá Iíúbu
Þegar síðast fréttist frá
Kúbu í gærkvöldi, var Castro
uppreisnarforingi ekki kom-
inn til höfuðborgarinnar Hav-
ana. Ástandið þar var mjög
ótryggt og ekki var vitað um
dvalarstað Castros. Áður
hafði verið tilkynnt, að hann
mundi koma til Havana og
vera viðstaddur, þegar hinn
nýi forseti, Urrutia dómari,
yrði settur inn í embætti. —
Þegar Castro kom ekki, gerðu
menn sér í hugarlund, að
hann hefði skipt um skoðun
og mundi láta setja hinn nýja
forseta inn í embætti í Santi-
ago, sem er til bráðabirgða
höfuðstaður landsins.
ik
Seint í gærkvöldi flutti Fidel
Castro uppreisnarforingi ávarp í
úívarp. Hann sagffi m. a.: Meff
byltingunni leita ég ekki eftir
völdum fyrir sjálfan mig. Ég hef
engan áhuga á völdum. Þaff eina
sem ég hef áhuga á er aff tryggja
fólkinu frelsi.
—- Farndale
Framh. af bls. 1.
sízt sjómenn og útgerðarmenn, að
sýna sanngirni okkar í verki.
Löndun á frosnum íslenzkum
fiski í Bretlandi er ekki óvenju-
legur atburður. í rauninni hefur
slíkum fiski verið landað í Bret-
landi allt s.l. ár nema í septem-
bermánuði. Og meira að segja
hefur verið landað meiri fiski frá
íslandi í Bretlandi en 1957.
Síðan bendir Sir Farndale á,
að með þessum löndunum geti
Bretar einmitt sýnt íslendingum
sanngjarna afstöðu sína svart á
hvítu. Við óskum aðeins eftir því,
sagir hann, að íslendingar sýni
slíka sanngirni hið fyrsta, svo að
unnt verði að komast að varan-
legri lausn í landhelgisdeilunni.
Geðvonzka og
mótmæli
I fréttum seint í gærkvöldi
segir, að togaraskipstjórafélagið í
Grimsby hafi á fundi sínum sam-
þykkt að mótmæla harðlega við
togarasambandið brezka, lönd-
unum á íslenzkum fiski í sl. viku.
í mótmælunum segir m. a. að
þetta sé ekki ósanngjarnt, því ís-
lenzkir varðbátar hafi stanzlaust
sigit upp að brezkum togurum
og sagt, að áhafnir þeirra ættu
fyrir höndum tveggja ára fang-
elsisvist, ef til þeirra næst. Þá
segir, að brezkir sjómenn hafi
veitt íslenzkum sjómönnum við-
nám, þegar þeir hafa gengið um
borð í skipin, en þó með mikilli
óttatilfinningu, því ef íslenzkur
sjóliði félli í sjóinn og drukkn-
aði, mundu Bretarnir verða
ákærðir fyrir morð, ef til þeirra
næðist. Þá hafi brezkum sjó-
mönnum verið úthýst úr íslenzk-
um sjúkarhúsum og þeim meinað
að leita vars, segir ennfremur í
mótmælasamþykktinni.
AKRANESI, 2. jan. — f Reyk-
holtsskóla dveljast í vetur við
nám 96 nemendur. Um þrjú ár
eru liðin, síðan gerð var teikn-
ing af íþróttavelli og leikvangl
með hlaupabrautum. Var svo eitt
hvað hafizt handa um að gera
völlinn, sem liggur fyrir neðan
skólann. Komst verkið nokkuð á-
leiðis, en hefir legið niðri um
skeið. — Oddur.
Rahman og Gareia rœð-
ast við í Manila
Hvernig er bezt að hefta útbreiðslu
kommúnismans ?
MANILA, 2. jan. — Tveir helztu andstæðingar kommúnismans í
Asíu, Tunku Abdul Rahman, forsætisráðherra Malaja og Carlos
Garcia, forseti Filippseyja, hittast hér í borg á morgun og ræða
um leiðir til að stemma stigu við framsókn kommúnismans í
Saðaustur-Asíu.
Fársjúkt barn sótt í tlug-
vél til Egilssfaða