Morgunblaðið - 03.01.1959, Page 8

Morgunblaðið - 03.01.1959, Page 8
p MORCTJNBLAÐIÐ Umferðin í höfuðborginni Stutt samtal við Valgarð Briem, framkvstj. umferðarnefndar : UMFEHÐARMÁLIN má telja meðal brýnustu vandamála dag- legs lífs í nútíma-þjóðfélagi. Hin fjölmörgu slys og árekstrar minna oss stöðugt á þörf þess að neyta allra mögulegra ráð til þess að gera umferðina sem greiðasta. —Á þetta ekki hvað sízt við um jafn-örtvaxandi borg og Reykja- vík, þar sem ökutækjum fjölgar yfirleitt um nokkur hundruð á ári hverju (á þessu ári t. d. um 400—500), en aðalumferðargötur miðbæjarins eru hins vegar fæst- ar miðaðar við þann umferðar- þunga, sem nú er orðinn. ★ Undirritaður náði um daginn tali af Valgarð Briem, fram- kvæmdastjóra Umferðarnefndar Reykjavíkur, og ræddi um stund við hann um störf nefndarinnar og ýmislegt varðandi umferðar- málin í bænum. — Umferðarnefnd var komið á fót árið 1955, sagði Valgarð sam- kvæmt ályktun, sem gerð var í bæjarstjórn hinn 3. marz það ár. Nefndin er nú skipuð sex mönn- um, og er lögreglustjóri formaður hennar. Verkfræðingur nefndar- innar er Ásgeir Þór Ásgeirsson, og sér hann um framkvæmd ým- iss konar athugana og umferðar- talningar, sem síðan eru lagðar til grundvallar tillögum nefndar- innar á hverjum tíma. — Vegna missagnar í einu dagblaða bæjar- ins nýlega er rétt að taka fram að nefndin er og hefur frá upp- hafi verið ólaunuð. Góður árangur — Eruð þér ánægður með ár- angurinn af störfum umferðar- nefndarinnar þennan stutta tíma, sem hún hefir starfað? — Umferðin er nær óþrjótandi umræðuefni mann á meðal og nefndin hefur bæði verið gagn- rýnd fyrir það, sem hún hefur gert og það sem hún hefur látið hjá líða að gera, en þó býst ég við að segja megi, að árangurinn hafi orðið allgóður, að minnsta kosti hafa flestar mikilsverðustu til- lögur nefndarinnar náð fram að ganga. — Og nú liggja til dæmis tillögur frá okkur fyrir bæjar- ráði og bæjarstjórn um einstefnu- akstur og akreinakerfi á nokkr- um stöðum í miðbænum. — Raun ar var umferðarfyrirkomulag það, sem stungið er upp á í til- lögum þessum, tekið upp nú fyrir jólin, sem liður í ýmsum ráð- stöfunum lögreglunnar þá til þess að greiða fyrir umferðinni, sem aldrei er jafnmikil og í desember- mánuði. Breytingar til mikilla bóta Ég á hér við breytingar þær, sem gerðar voru á umferð um Skólavörðustíg, Laugaveg, Ing- ólfsstræti, Bankastræti og Klapp- arstíg. Þetta fyrirkomulag ætti nú þegar að vera almenningi nokkuð kunnugt, en helztu breytingar eru í því fólgnar, að tekinn er upp einstefnuakstur í tveim ak- reinum niður Skólavörðustíg neð anverðan, niður Bankastræti og á Klapparstíg frá Hverfisgötu að Laugavegi. Jafnframt er komið á akstri í tveim akreinum á neð- enverðum Laugavegi frá Traða- kotssundi og bílastöður bannaðar á þeim kafla. — Teljið þér ekki líklegt, að tillögur nefndarinnar í þessum efnum verði samþykktar í bæjar- stj órn? — Jú, ég held að sú stutta reynsla, sem fengizt hefir af þessu fyrirkomulagi í jólaum- ferðinni megi teijast svo góð, að sjálfsagt sé að halda því fram- vegis. Afkastageta viðkomandi gatna hefir aukizt að miklum mun og umferðin því gengið greiðar en áður. — Hvernig er það með bíla- stæðin í Bankastræti — eru bílar, sem þar standa ekki til trafala, þegar ekið er þar í tveimur ak- reinum? — Ekki tel ég, að mikil brögð séu að því, að minnsta kosti ekki svo, að leggjandi sé til að banna bílastöður þarna að svo stöddu. Hér er raunar um nokkurt mats- atriði að ræða — bílastæðin eru líka mikilvæg, og þeim þarf enn að fjölga að miklum mun. Ný bílastæði — Eru einhver ný bifreiðastæði í undirbúningi núna? — Já, t. d. suðvestan við Tjörn- ina, þar sem „ísbjörninn" gamli stóð. Reyndar er það stæði þegar komið í notkun að nokkru leyti, en ætlunin er að stækka það enn talsvert. — Þegar þetta stæði er fullbúið, er svo gert ráð fyrir að takmarka bílastöður við Hótel Skjaldbreið og á Hótel íslands- lóðinni. Við Skjaldbreið munu verða settir upp stöðumælar, en á hinum staðnum verður að lík- indum hafður sérstakur stæðis- vörður til þess að sjá um, að fylgt verði reglum þeim, sem þar verða settar um bílastöður. Þá er einnig í athugun að gera bílastæði við knattspyrnuvöllinn hjá Gamla-Garði í framtíðinni. Er þarna rúm fyrir stórt og gott stæði, og mun verða miðað við, að menn geti geymt bíla sína þar ailan daginn. Líklegt er og, að í þessu sambandi yrðu teknar upp sérstakar strætisvagnaferðir frá stæðinu niður í miðbæinn. Enn fleira er í undirbúningi á þessu sviði, sem ekki er tímabært að skýra frá enn. Stöðumælarnir þýðingarmiklir — Stöðumælum fer sífjölgandi í bænum — það virðist benda til þess, að þetta fyrirkomulag hafi gefizt vel? — Já, við erum yfirleitt mjög ánægðir með árangurinn af stöðu mælunum. Þeir hafa áreiðanlega haft mikil áhrif í þá átt að gera umferðina greiðari og árekstra- minni. — Hvernig er tekjunum af stöðumælunum varið? — Ég get bezt svarað því með því að vitna í reglugerð þá, sem gefin var út í Reykjaþvík 1. ágúst 1957. Þar segir m. a. svo í 7. grein: „Tekjum stöðumælasjóðs má ekki verja í almennar þarfir bæjarfélagsins. Þeim má ein- göngu verja til þess að greiða fyrir rekstur mælanna, viðhald þeirra, til þess að endurgreiða afturkræft framlag bæjarsjóðs, til þess að fjölga mælum í bænum og til þess að stuðla að aukningu bifreiðastæða, þ. á. m. með lóða- kaupum, byggingu geymsluhúsa eða byrgja eða á annan hátt.“ Lausn á bílastæðavandamálinu ---- Já, bifreiðageymsla — er kannski gert ráð fyrir að byggja slíkt hús hér á næstunni? — Það mál er nú einmitt mjög til umræðu. — Fyrir rúmu ári var komið á fót sérstakri nefnd til þess að gera tillögur um tegund, stærð og staðsetningu bifreiða- geymslu, rekstur hennar o. s. frv. Þetta er sem sagt stöðugt í athug- un, frumdrættir að slíku húsi hafa verið gerðir og ákveðnir staðir eru hafðir í huga. Hins vegar hefir nefndin ekki enn skil að áliti, og er því ekki margt um þetta að segja að sinni. En tví- mælalaust yrði slíkt geymsluhús ein helzta lausnin á bílastæða- vandamálinu. ★ — Eru nokkrar sérstakar nýj- ungar eða breytingar í umferðar- málum væntanlegar á næstunni? — Nei, ekki sem ég tel tíma- bært að ræða nú a. m. k. — Þó ættum við kannski að láta þess getið, að það er nú mjög til at- hugunar að afnema tvistefnuakst ur á neðsta hluta Hverfisgötunn- ar, frá Ingólfsstræti, og virðist raunar eðlilegt að svo verði gert í framhaldi af ráðstöfunum þeim, er við minntumst á hér í upphafi. — Hvernig hefir gengið að framfylgja nýju umferðarlögun- um? — Segja má, að það hafi gengið®- Valgarð Briem mjög sæmilega, en þó skortir þar nokkuð á í ýmsum greinum. Það er einkum eitt, sem ég vildi gjarn an benda á í því sambandi. Alltof mikil brögð eru að því, að öku- menn leggi bifreiðum sínum hægra megin á götum, þar sem tvístefnuakstur er. Þetta veldur oft mjög miklum erfiðleikum og getur beinlínis verið hættulegt, enda er mér kunnugt um, að víða erlendis er slíkt talið mjög alvar- legt brot. Umferðarnefnd hefir annars gert allmikið að því að kynna umferðarlögin nýju; til dæmis gekkst hún fyrir fræðslunám- skeiði fyrir bifreiðastjóra sl. vor, eftir að nýju lögin gengu í gildi. Einnig gekkst nefndin fyrir því, að flutt voru allmörg erindi um umferðarmál í útvarpið á sl. sumri, og greinarflokkar um umferðarlögin voru ritaðir á veg- um nefndarinnar og birtir í dag- blöðum bæjarins. Vona ég að nokkur árangur hafi orðið af þessari fræðslustarfsemi. Allmik- il fræðsla um umferðarmál fer nú einnig fram í skólum, og ætti að mega vænta góðs árangurs af henni. Umferðarnefnd er hins vegar ekki aðili að því starfi. Aftur á móti er það í athugun hjá nefndinni hvort unnt sé að koma á umferðarstjórn skólabarna, þ. e. að fela börnunum að stjórna um- ferð t. d. í grennd við skóla sinn. Þetta tíðkast allvíða erlendis og þykir raunhæf og árangursrík leið til þess að innræta hinum ungu borgurum réttar umferðar- reglur. — Hvert teljið þér mikilvæg- asta verkefnið í umferðarmálum í náinni framtíð? — Verkefnin eru fjölmörg og flest brýn. En eitthvert mikil- vægasta verkefnið, og það sem við verðum að snúa okkur að fyrr en seinna, er að koma upp gatna- mótum í tveim hæðum, þar sem umferðin er þyngst. Ég vil t. d. í þessu sambandi benda á mót Suðurlandsbrautar og Nóatúns; þar eru nú tíðar umferðartafir, sem ekki mundu þekkjast, ef hægt væri að aka samtímis um brautina og undir hana um Nóa- tún. — Slíkar framkvæmdir verða að sjálfsögðu dýrar — en þetta er það sem koma skal. H. E. Hlustað á útvarp JÓNAS Þorbergsson, fyrrverandi útvarpsstjóri flutti athyglisvert erindi er hann nefndi Brotalöm íslenzkra sögutengsla. Erindi þetta var flutt í tvennu lagi, mjög langt mál og verður því ekki unnt að rekja það hér í þessum pistli nema að litlu leyti. Ræðumaður gat þess, að styrjaldir þessarar aldar hefðu mjög breytt viðhorfi manna til lífsins, mætti heita að um stökkbreytingu hefði verið að ræða í og eftir síðustu heims- styrjöld. Smátt og smátt hafa skólarnir tekið við, ekki einungis fræðslu, heldur og að miklu leyti uppeldi barna. Nú taka skólarnir við börnum 6 til 7 ára og mörg heimili skilja þetta svo, að þau séu þar með leyst frá þeim vanda að fræða börnin eða veita þeim uppeldi. Skólarnir eru góðir, margir, það sem þeir ná, en þar þarf einkum að kenna margt sem oft er vanrækt að kenna, sem sé hreinlæti, kurteisi, kristilegt Þessar myndir sýna akstur í tveimur akreinum neðst á Laugavegi (t. v.) og efst í Bankastræti (t. h.) Umferð gengur greiðar en áður um þessar götur, eftir að þar voru settar tvær akreinar. — Takið eftir, að litli bíllinn (á myndinni til sem ætlar að bejgja niður í Ingólfsstræti, er nær því inn á miðju Bankastræti. Er nokkuð við það að athuga*’ nu mun hægri), hugarfar, virðingu fyrir foreldr- um, kennurum og yfirvöldum. Lestur þarf að kenna betur en nú er gert, svo og skrift, reikning og móðurmálið. Þjóðin er nú yfir- leitt illa læs, flest fólk er varla sendibréfsfært hvorki hvað snert- ir réttritun, stíl né skrift. Tæt- ingur hversdagslífs fullorðna fólksins orsakar það, að börnin fá ekki nægilega fræðsiu heima né uppeldi. Þurfa því skólar að vera sérstaklega góðir, æskilegt að börnum sé skipt í hópa eftir gáfum og námshæfileikum, vakin forvitni þeirra á sögu landsins. Þarf á ný að tengja fortíðina við nútímann. Nú vita, þótt merki- legt sé eftir alla ítroðsluna, flestir unglingar lítið um sögu landsins. Svo þarf að kenna börnum og unglingum að ganga upprétt og bera sig vel og þó látlaust. Sýna þeim söfn og fræga staði, eftir því sem við verður komið. En umfram allt verða skólarnir að hafa samvinnu við heimilin. — Yngsta kynslóðin hefur farið á mis við erfiði og átök elztu kynslóðarinnar, viðreisnarstarfið og frelsisbaráttuna. Þeir sem voru ungir á fyrstu áratugum þessarai aldar höfðu að visu félagsstarf og skemmtanir, en á þeim sam- komum var ætíð byrjað á því að fræðandi erindi var flutt og svo, oft, umræður á eftir. 'Síðan var dansað. Nú eru samkomur æsku- lýðsins eingöngu dans og oft fylg- ir slark og drykkjuskapur. Kald- rifjuð efnishyggja og styrjaldir hafa hrundið æskufólki úr tengsl um við fortíð og sögu landsins. Margir eru eins og þeir hafi misst minni, hringsóla áfram í heimi sem þeir þekkja lítið eða ekki. Jónas Þorbergsson vill láta byggja bér kvikmyndaver sem fullkomlega standi slíkum er- lendum liststofnunum á sporði Þar víll hann láta kvikmynda sögu landsins frá öndverðu, fá rithöfunda, skáld og leik- ara til þess að framleiða sögu- legar myndir, einkum fyrir æsku- lýð íslands, til þess að kenna unglingum sögu landsins, svo og til útflutnings. Saga vor er svo dramatísk (t. d. Njála, Laxdæla o. fl.) að vafalaust mætti gera úr þeim listaverk í kvikmyndum, sem gengið gætu um heim allan. Framh. á bls. i?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.