Morgunblaðið - 03.01.1959, Side 16

Morgunblaðið - 03.01.1959, Side 16
16 M O R C rr n n r 4T)lf> Aðeins andlitið með næstuni slafneskftim kinnbeinum og helzt til stuttu nefi var óamerískt . . . I. Á GÖTUHORNINU nam stúlkan undrandi staðar. Fyrir framan hrunið húsið stóð hópur manna í hiðröð. Slíkt var þó ekkert ó- venjulegt. Fólk stóð í biðröðum fyrir framan mörg sundur- sprengd hús. Menn urðu að bíða í röðum eftir öllu: brauði og mjólk og sokkum. En í tvílyfta húsinu með myrku gluggaaug- unum var ekkert brauð, engin mjólk, engir sokkar. Aðeins stundargaman. Þetta var nætur- klúbbur. Hann hét „Femina“. Þetta var í Berlín á bví herr- ans ári 1945. Stúlkan var í einkennisbúningi amerískra stríðsfréttaritara. Margir Þjóðverjar héldu að það væri liðsforingjabúningur. Stúlkan kserði sig ekkert u.m að vera álitin liðsforingi, en henni þótti vænt um einkennisbúning- inn. Hann fór henni mjög vel. Hún var grönn og hávaxin, ijós- hærð. Hún hafði langa fótleggi eins og margar Ameríkukonur. Aðeins andlitið_ með næstum siaf neskum kinnbeinum og helzt til stuttu nefi, var að engu leyti am- erískt í útliti. Hún var tuttugu og sjö ára að aldri og hét Helen Cuttier. Vindurinn næddi ylfrandi fyrir hornið. Hann feykti ryki framan í andlitið á stúlkunni. Hvenær sem nokkuð kaldaði, varð loftið mett- að af ryki. Eins og hinir dauðu verða að dufti, þannig var borgin orðin að dufti. í mannfjöldanum þekkti Helen óðar manninn sem hún var að leita að. Hann var í f jórtándu eða fimmtándu röðinni. Fyrir fram- an hann biðu rússneskur hermað- ur og tvær stúlkur: Þær þekktust á skónum. Á meðal hundrað þjóða hefði mátt þekkja Þjóðverjana á ekónum þeirra. Maðurinn stóð á milli tveggja annarra manna. Hægra megin við hann var amerískur hermaður, en til vinstri fran.sk u.- liðsforingi með ljósbiáa einkennishúfu ný- lendu-herdeildarinnar á höfðinu. Stúlkan furðaði sig á því, að hún skyldi þekkja manninn svona fljótt. Hann var að vísu höfði hæri.i en flestir aðrir í hópnum, en að öðru leyti mjög lítið frá- brugðinn hinum Þjóðverjunum. Hann var um þrítugt, ljóshærður og bláeygur, í of þröngum jakka og of stuttum buxum. 1 útliti var hann eins og „der Fiihrer“ viidi að Þjóðverjamir eínir væru. Aðeins sultarlegri. Helen Cuttler fann ekki til neinnar samúðar með manninum — í fyrsta lagi_ sökum hins fyrir skipaða, þýzka útlits hans og í öðru lagi vegna þess, að hann virt iet kenna í brjósti um sjálfan sig, eins og allir Þjóðverjar. Til frekara öryggis geymdi hún mynd af honum í leðurtöekunni,, ■em hékk við öxl hennar. Kunn- ingi hennar í New York, útflytj- andi og æskuvinur mannsins, hafði sent henni myndina. Helen gekk til mannsins. „Eruð þér hr. Möller?" spurði hún. „Já“_ sagði hann. „Ég er Helen Cuttler. Komið þér með mér“. Hann gekk út úr röðinni og fylgdist með henni. Fyrir framan dyrnar á einum næturklúbbnum stóð eftirlitismað- ur. Hann var í blettóttum, rauðum frakka með gylltum borðum og snúrum. Helen tók upp vegabréf og sýndi honum. Eftirlitsmaður- inn skoðaði það kurteiislega, en með nokkurri tortryggni. Svo sneri hann sér að amerískum MP (herlögregla) sem stóð við hlið hans. Lögregluþjónninn — risi að vexti með Texas svip — skoðaði vegabréfið. Svo sneri hann sér að Helen Cuttler. „Þér megið fara inn“, sagði hann. — ,.En aðeins ein“. „Hann verður að koma með. Ég þarf að tala við hann“. „Þér hvorki þurfið né eigið að tala við nokkuni „Kraut“, hreytti lögregluþjónninn út úr sér. „Eng- in náin vináttutengsl. Það vitið þér nógu vel“. Helen roðnaði. Stúlka í fremstu röðinni hló ósvífnum hæðnisihlátii. Helen leitaði aftur í töskunni sinni og tók upp annað blað. Meðan risinn frá Texas sneri og velti hinu margstimplaða blaði milli fingranna_ virti hún mann- inn sem stóð við hlið hennar fyr- ir séi'. Hún hafði til þessa ávarp- að hann á þýzku. Nú braut hún heilann yfir því, hvort hann myndi skilja ensku. Orðið „Kraut“ hafði hann þó a. m. k. skilið. „O.K.“, sagði Texasbúinn við ums jónarmanninn. Ilelen gekk á undan og maður- inn fylgdi henni þegjandi. Báðir salimir í næturklúbbnum „Femina“ voru svo þéttskipaðir, að varla varð gengið eftir gólf- inu. Svört tjöld voru dregin fyrir rúðulausa gluggana, því að bæði var myrkvun fyrirskipuð og svo hefði bjart sólskinið átt illa. heima í sölum næturklúbbsins. — Við eitt borðið voru þó tvö laus sæti_ í hálf-hringmyndaðri stúku við vegginn. Við borðið sátu rússneskur her- maður og tvær stúlkur. Önnur hönd hans hvildi á hálfnöktu brjósti annarrar fylgikonu hans, en hin krepptist um tómt glas, sem stóð á borðinu fyrir framan hann. „Mér þykir það leitt", sagði Helen — „en ég verð að senda skýrslu um þennan stað, símleiðis fyrir morgundaginn. 0o ég átti líka að tala við yður. Ég hafði hugsað mér. ...“ ,_Ágætt“, sagði maðurinn. „Ég fékk þá a. m. k. að koma inn í næturklúbb". „Frits Stein gaf mér heimilis- fang yðar“. „Ég veit það. Hvernig gengur það fyrir honum?“ „Vel“, sagði hún og bætti svo við: ,_Ágætlega“, eins og til þess að leggja áherzlu á það, að í Am- eríku gengi öllum vel. — „Hann var í hernum okkar“. „Við gengum saman 1 skóla. Ég er annars hissa á því að hann skuli muna eftir mér. Við vorum ekki neinir sérstakir kunningjar". Stúlkan hlustaði á orð manns- ins með vaxandi undrun. Þetta var alveg nýtt. Flestir þeir Þjóð- verjar, sem einhverja þekktu í Amerí'ku, voru vanir að leggja mikla áherslu á hina gömlu og innilegu vináttu. Hún bægði samt þeirri hugsun frá sér aftur. — ,_Og þér heitið raunverulega Jan Möller?“ spurði hún lágt. „Já“. „Þrjátíu ára gamall?“ ,Já“. Hún hugsaði með sér, að hann liti út fyrir að vera eldri. En þann ig var það með alla Þjóðverja. Þeir virtust allir eldri, en þeir raunverulega voru. ,_Þér komið úr fangabúðum?“ „Maður getur nefnt það því nafni. Rússamir tóku mig til fanga í síðasta bardaganum um Berlín. En nú hef ég fengið mig lausan aftur“. Hann hló þurrlega. Frits skrifaði mér að þér væruð and-nazisti“. „Hvernig vissi hann það?“ „Er það ekki rétt hjá honum?“ Það kenndi óþolinmæði í rödd (hennar. Fyrst þóttist hann varla þekkja Frits og nú lézt hann ekki einu sinni vera and-nazisti. „And-nazistarnir eru dauðir, liðsforingi“_ sagði Jan Möller ró- lega. „Ég er enginn liðsforingi. Ég er fréttaritari við Morrison-Blátter“. Hún leit ósjál'frátt á nýja, ble.ttalausa einkennisbúninginn sinn. Stúkan var þröng og hún varð að færa sig alveg út á bekkj- arbrúnina, til þess að hnén á henni, í þunnum nælonsokkunum, snertu ekki hné hans. Maðurinn horfði á hana, frjáls- lega og áhyggjulaust. —- „Frétta- ritari? Alveg rétt. Frits skrifaði mér eitthvað um það. Og hvaða upplýsingar viljið þér svo fá hjí mér?“ Helen vissi eiginlega ekki hverju hún ætti að svara. í vand'- ræðum sínum varð henni litið yf- ir að drykkjarsöluborðinu. Á því stóð kalktrog. Á veggtjaldinu fyrir ofan borðið var stórt gat. Út um gatið lak kalkblanda niður á borðið, eða öllu heldur niður í Itrogið. Þegar það var svo fullt_ •var það tekið og annað tómt sett í tstaðinn. „Ég ætla að skrifa um yður“, isagði hún að lokum. ,,Er ég svona merkileg per- sóna?“ „Já, þér voruð foringi falHhlífar sveitarinnar. Þér voruð sæmdur riddarakrossi". Hún reyndi að isegja þetta eins og riddarak)x>ss- ónn væri ekki aðeins minjagripur, eem henmennirnir sýndu þegar iheim kaami. — ,_Faðir yðar kvað íhafa gegnt sérstöku nlutverki í iflokknum og mér er sagt að þér Ihafið leynt og haldið hlí'fiskildi yfir Gyðingi, ættingja Frits". 1) „En hvað um nesti handa •kkur, Markús? Ekki eetunn við Ielt stóra hundinn án þess að haía [ en að ánni. Komdu, ég skal sýna 3) „Eltu hann, Andi .... Eltu það". I þér“. Vask!“ 2) „Við eltum hann ekki lengra I „Og hvað meira?" Hann horfði beint framan í hana, eins og hon- um sýndist hún ekki síður undar- leg, en henni rannst hann vera. „Hvað meira? Hafa kannske alli.r riddaiakross-hermienn hjálp- að og bjargað Gyðingum?" „Með öðrum orðum: Þér viljið skrifa um Kaus... .“ _,Kaus? Hvað er það?“ _,Undarlegur fugl“. Helen gat ekki varizt brosi. — Einn þjónninn í kjól með matan- islettum á annari hliðinni, kom að borðinu með rauðvínsflösku. Svo rétti hann fram höndina, til þess lað taka við borguninni. Jan Möll- er gerðd ósjálfrátt hreyfingu, eins log hann ætlaði að borga. Helen iborgaði. „Ég er enginn Kaus“, sagði Jan. — „K-A-U-S_ undarlegur ifugl. Hlutirnir eru bara ekki jafn einfaldir og þér gerið yður í hug- arlund. Synir nazista eru ekki ailir nazistar. Ég þekki ein hjón, sem voru aldrei nálægt vígstöðv- ’unum, en leyndu þó ek'ki einunt ■einasta Gyðingi. Og gagnstætt". Hún tók upp pakka af Chester- 'field og bauð honum vindling. „Nei, þökk fyrir“, sagði hann og hristi höfuðið. — „Ég reyki ekki“. Hún ætlaði að þrýsta pakkan- um í lófa hans. Það var alveg ósjálfráð hreyfing. 1 Þýzkalandi reyktu allir. Líka þeir seim sögð- ust ekki reykja. En hönd hennar stanzaði á miðri leið. Svo stakk hún pakkanum aftur í vasann. — _,Ég þarf að vita meira um yður“, sagði hún. — „Þér eruð fyrsti Þjóðverjinn, sem ég gef ‘tækifæri til að vera kappi í varn- anstríðinu og sem hafnar því. — Hvað gerðuð þér fyrir stríðið?" Hann horfði framihjá henni yf- ir að drykkjarsöluborðinu. — „Fyrir stríðið? Ah ........' yður mun eflaust þykja það skringi- legt. Eiginlega erum við nokkurs konar starfssystldn. Ég var nefni- lega blaðamaður". Hann leit bros- andi til hennar. — „En það er 'önnur saga. Ég orti einu sinni af- mælisljóð, eða kannske öllu held- ur lofsöng, til der Fiihrer. Seinna köstuðu þeir mér vegna pólitískr- ar tvöfeldni. Ef þér dveljizt nógu lengi í Þýzkalandi munuð þér sjá hvað það er. Fleirtalan af Kaus er Káuse“. SHlltvarpiö Laugardagur 3. jamíar: Fastir liðir eins og venjulega. 12_50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 16,30 Miðdegis- fónninn. 17,15 Skákþáttur (Bald- ur Möller). 18,00 Tómstundaþátt- ur barna og unglinga (Jón Páls- ison). 18,30 Útvarpssaga barn- anna: „1 landinu, þar sem eng- iinn bíma er til“, kínverskt ævin- ’týri eftir Yen Wen-ching; I. (Pétur Sumarliðason kennari þýðir og les). 18,55 1 kvöldrökkr- 'inu; — tónleikar af plötum. 20,20 iLeikrit Þjóðleikhússins: _,Horft af brúnni" eftir Arthur Miller. — Þýðandi: Jakob Benediktsson. — iLeikstjóri: Lárus Pálsson. Leik- .endur: Róbert Arnfinnsson, Reg- ína Þórðardóttir, Haraldur Björns son, Jón Aðils, Helgi Skúlason, Krisbjörg Kjeld, Ólafur Jónsson, 'Klemens Jónsson, Flosi Ólafsson og Bragi Jónsson. 22,10 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. -ftappdrætti HÁSKÓLANS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.