Morgunblaðið - 03.01.1959, Page 20
VEÐRIÐ
Allhvass austan
og dálítil snjókoma.
wgttttÞIftjtófe
1. tbl. — Laugardaginn 3. janúar 1959
Aramótaávarp
forseta íslands á bls. 11.
Samningafundir fram
á nótt
í GÆRDAG hófust á ný samn-
ingafundir milli nefndar ríkis-
stjórnarinnar og samninganefnda
útvegsmanna og sjómanna varð-
andi starfsgrundvöll og kaup og
kjör á vertíðinni, sem nú fer í
hönd.
Fundir stóðu yfir í ailan gær-
dag. Eftir því sem Mbl. frétti
seint í gærkvöldi munu samn-
ingar útgerðarmanna við sjó-
menn í Reykjavík og Hafnarfirði
hafa verið komnir allvel á veg
og jafnvel hafi orðið samkomu-
lag um allt nema fiskverð til
skipta. Hins vegar þykir enn alls
óvíst um, hvernig samningunum
muni Iykta. 1 gærkvöldi stóð
fundur yfir, er blaðið var full-
búið til prentunar.
Drengur á Hólmavík
missti auga at völdum
heimagerðrar sprengju
Lœknislaust í Strandasýslu, en s/ys tíð
og mislingafaraldur
I»essi mynd var tekin í gær í skipasmíðastöðinni Dröfn í Hafnarfirði, en þar eru nú margir
bátar til hreinsunar og lagfæringar fyrir vertíðina. Er mikill hugur í útgerðarmönnum að hafa
bátana tilbúna þegar samningar hafa tekizt. — (Ljósm. Ól. K. M.)
Verð lækkað á ýmsum
nauðsynjavörum
Til dæmis lækkar verð á kindakjoii og
nýmjólk um 21 prósent
RÍKISSTJÓRNIN hefir ákveðið
að greiða niður ýmsar helztu
nauðsynjavörur almennings frá
og með 1. jan. 1959, og lækkar
t.d. verð á kindakjöti og nýmjólk
um 21% og nokkrar aðrar vöru-
tegundir lækka svipað eða að-
eins minna.
Mjólkurlítrinn lækkar um 90
aura: Flöskumjólk úr kr. 4,30 í
3,40, en brúsamjólkin úr kr. 4,10
í 3,20. Smásöluverð á smjöri gegn
miðum lækkar um kr. 9,70 hvert
kg. úr 56,30 í 46,60 kr. Verðið
helzt óbreytt á smjöri, sem ekki
eru látnir miðar fyrir.
Heildsöluverð á kindakjöti í
heilum og hálfum skrokkum af
1. og 2. gæðaflokki lækkar úr
24.85 kr. hvert kg í 19,50. Smá-
göluverð á súpukjöti lækkar úr
kr. 29,80 í 23,40, heil læri úr 34
lcr. í 26,60, hryggur úr 35,30 í
27,70 kr. og hangikjöt úr 43,40 í
Maður féll niður
37 kr., svo að nokkur dæmi séu
nefnd.
Smásöluverð á kartöflum lækk
ar úr 2,05 kr. hvert kg í 1,45 kr.
Einnig hefir verið ákveðið að
lækka hámarksverð á smjörlíki
gegn miðum úr 10,20 kr. í 8,50 í
smásölu. Verð á smjörlíki, sem
ekki er látið út á miða, helzt ó-
breytt. Hámarksverð á fullþurrk-
uðum 1. flokks saltfiski hefir og
verið lækkað úr 9 kr. í 7,35. Verð-
ið helzt óbreytt, þó að saltfisk-
urinn sé afvatnaður og sundur-
skorinn.
Verð á rjóma, skyri og ostum
helzt hins vegar óbreytt. Þess
má geta, að fitumagn rjómans
var nýlega aukið úr 30% í 33%
án verðhækkunar, að því er for-
stjóri Mjólkursamsölunnar tjáði
blaðinu í gær. Kvað hann þetta
jafngilda 10% lækkun. Tilgang-
urinn með því að auka fitumagn
rjómans er, að auðveldara sé að
þeyta hann. Undanfarið hefir
mikið verið kvartað undan því,
að rjóminn þeyttist illa, en for-
ráðamenn Mjólkursamsölunnar
telja, að aukning fitumagnsins
hafi bætt mjög úr þessu.
HÓLMAVÍK, 2. jan. — Það slys
vildi til hér á Hólmavík daginn
fyrir gamlársdag, að drengur slas
aðist svo í andliti af völdum
heimatilbúinnar sprengju, að
hann missti annað augað. Nánari
atvik eru þau, að þrír drengir
voru að leika sér úti við með
heimagerðan flugeld og kveiktu
í honum. Sprakk hann um leið
og fór í andlit eins þeirra. Gerðist
þetta kl. rúmlega níu um kvöld-
ið. —
Var þegar í stað reynt að búa
um sár drengsins eftir beztu
getu, en jafnframt hringt gftir
sjúkraflugvélinni og var Björn
Pálsson kominn á vettvang eftir
klukkustund. Flaug hann með
slasaða drenginn suður til Reykja
víkur og var hann lagður inn á
Landsspítalann. — Var drengur-
Banaslys á
landsmiðum
ÍSAFIRÐI, 2. jan. — Sá hörmu-
legi atburður átti sér stað, er
togarinn Sólborg var að hefja
veiðar á Nýfundnalandsmiðum í
nótt, að einn skipverja tók út af
togaranum — og drukknaði hann.
Þetta var Skúli Hermannsson, há
seti, búsettur á Hnífsdal. Skúli
úr ljósastaur
AKURÉYRI, 2. jan. — Það slys
vildi til hér á gamlársdag, að
•tarfsmaður Rafveitunnar, Bjarni
Hjaltalín, féll úr ljósastaur, er
hann var að koma fyrir peru.
Bjarni var í staurskóm. Hann var
þegar fluttur í sjúkrahús. Hafði
hann fulla meðvitund og var
óbrotinn á útlimum. Rannsókn á
meiðslum Bjarna er ekki lokið,
•n líðan hans er sæmileg eftir at-
vikum. — vig.
Varðarkaffi í Valhöll
í dag kl. 3-5 s.d.
Unglingar stálu 18 þús.
króna, tóbaksvörum
LOKIÐ er hjá rannsóknarlög-
reglunni yfirheyrslum yfir fjór-
um unglingum 15—17 ára, sem
hafa viðurkennt að hafa framið
mikinn þjófnað í kaupfélagi Kjal
nesinga við Brúarland, aðfara-
nótt gamlársdags.
Aðeins einn þessara pilta hef
ur áður komið lítillega við sögu
samkvæmt skjölum lögreglunn-
ar. Strákarnir fóru aðfaranótt
gamlársdags upp að kaupfélags-
verzluninni í bíl, sem einn þeirra
stjórnaði.
Eftir að hafa brotizt inn í hús-
ið, gengu þeir með verkfærum á
eldtraustan peningaskáp, tókst
að höggva gat á hann, en þar
voru geymdar í peningum um
18000 krónur. Stálu drengirnir
því, en létu síðan greipar sópa
um hillur sem 1 voru tóbaksvör-
ur. Stálu þeir um 30 lengjum af
sígarettum, 26 pökkum af smá-
vindlum og einnig tóku þeir með
sér 200 kínverja til að sprengja
á gamlárskvöld.
Þegar á gamlársdag hófst rann-
sóknarlögreglan hér í Reykjavík
handa við að grafast fyrir um
innbrotsþjófnað þennan. Á gaml-
ársdag og gamlárskvöld tókst
rannsóknarlögreglunni að upp-
lýsa málið að mestu, því þá voru
þrír piltar 15—17 ára handteknir,
grunaðir um að vera valdir að
þjófnaðinum í kaupfélaginu. Þeir
játuðu og upplýstist að hinn
fjórði hefði verið með þeim og
var hann handtekinn á nýársdag
og játaði einnig að hafa tekið
þátt í þessum þjófaleiðangri.
Nokkru af peningunum skiluðu
þjófarnir aftur svo og mestum
hluta af tóbaksvörum þeim, er
þeir stálu.
Þá kom og í ljós við rannsókn
málsins, að tveir þessara ungl-
inga höfðu áður heimsótt kaup-
félagsbúðina. Voru þeir þá með
drengjum á svipuðu reki og
stálu þá um 600 kr. í peningum
og 30 lengjum af sígarettum.
KEFLAVÍK, 2. jan. — Enn er
nokkur ufsaveiði hér í höfninni
Bárust 75 tonn á land í morgun
frá fjórum bátum. Tjaldur var
með mestan afla, 36 tonn. Fyrir
áramótin hafði Fiskiðjan tekið á
móti 357 tonnum af ufsa og eru
þá komin á land 432 tonn. Auk
I þess hafa um 100 tonn komið il
1 Njarðvíkur. — Ingvar.
Nýfundna-
heitinn var um fertugt, og lætur
hann eftir sig konu og fimm
börn.
Samkvæmt skeyti frá skipstjór
anum á Sólborgu náðist Skúli
inn, en allar lífgunartilraunir
voru árangurslausar en ekki er
vitað um nánari tildrög. Mun
togarinn sigla með líkið til Bona
Vista á Nýfundnalandi, en þaðan
verður það flutt heim.
Togarinn lét úr höfn á ísafirði
á annan jóladag.
inn mikið skaddaður í andliti og
þurfti að taka úr honum annað
augað er suður kom. Drengurinn,
sem slasaðist, er tólf ára gamall
og heitir Guðmundur Þórðarson.
Þetta er annað slysið, sem verð-
ur af völdum sprengina hér með
stuttu millibili. Laust fyrir jólin
varð fullorðinn maður hér fyrir
því, að kínverji sprakk í hendi
hans. Slasaðist maðurinn nokkuð
á hendinni og m.a. losnaði kögg-
ull framan af einum fingri. Kom
Hvammstangalæknir og gerði að
sárum mannsins og saumaði kögg
ulinn við, en ekki er enn vitað
hvort hann missir framan af fingr
inum. Þá varð einnig það slys hér
29. des., að gömul kona datt og
handleggsbrotnaði.
Þessi tíðu slys hafa verið ugg-
vænlegri en ella sakir þess, að nú
er hörgull á læknum hér um slóð-
ir. Héraðslæknirinn, sem var hér
til 1. des. sl., Arnbjörn Ólafsson,
fluttist þá til Keflavíkur. Garðar
Guðjónsson fékk þá veitingu fyr-
ir Hólmavíkurlæknishéraði frá 1.
des, en hann er ekki kominn
hingað enn og ekki væntanlegur
fyrr en 9. þ.m. Setti hann í sinn
stað læknanema, sem er færeysk
stúlka.
Árneslæknishérað er nú lækn-
islaust eins og oftast yfir vetur-
inn í seinni tíð. Er mikill óhugur
í mönnum hér yfir þessu ástandi
í læknamálum, ekki sízt þar sem
mislingar eru nú komnir í hér-
aðið. — A.Ó.
ÞEGAR liðnar voru um 150
mínútur af hinu nýja ári,
gerði allmikla #njókomu hér
í Reykjavík, en hún stóð ekki
lengi. Logn var og ákaflega
fallegt um að litast. Þcgar
birti á nýársdagsmorgun var
mjög fagurt útsýni frá bæn-
um til hins snæviþakta f jalla-
hrings, er baðaður var í
skammdegissólinni, sem nú
hækkar aftur sinn gang. —
1 trjágörðum voru greinar
trjánna þaktar þykku snjólagi,
en yfir bænum hvíldi mikil
ró. Flestir tóku daginn seint,
þvi lengi hafði verið vakað
nóttina áður. En krakkarnir
kunnu vel að meta svo ágætt
veður og í dálítilli skíða-
brekku utan f Öskjuhlíð voru
þessar tápmiklu tclpur að
renna sér á skiðum — þó
færið mætti gjarnan vera
betra, eins og ein þeirra komst
að orði.
(Ljósm. Mbl. Ol. K. M.)