Morgunblaðið - 14.01.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.01.1959, Blaðsíða 1
20 síður 46. árgangur 10. tbl. — Miðvikudagur 14. janúar 1959 Prentsmiðja Morgu íblaðsln* "T1 Beígar heita að leiða Kongó- þjóðina til sjálfstæðis Vona að þegar svertingjar taka völdin i Kongó geti báðir unað vel við BRUSSEL í Belgíu, 13. janúar. — (Reuter). Belgíska stjórnin birti í dag áætlun sína um aS gera ný- lenduna Belgísku Kongo að „lýðræðisríki, sem fært er um að stjórna sér sjálft. Skýrði Gaston Eyskens forsætisráð- herra frá áætlun þessari í stefnuskrárræðu sem hann flutti belgíska þinginu. Síðar í kvöld hélt Baldvin Belgíukonungur útvarpsræðu til þjóðarinnar, þar sem hann lýsti því yfir að Belgía yrði að stýra för nýlenduþjóðarinnar til sjálfstæðis og tryggja henni frelsi, frið og framfarir. Þjóðþing á næsta ári Eyskens forsætisráðherra flutti þjóðþinginu í dag Kongó-áætlun þá sem ríkisstjórnin hefur undir- búið síðustu mánuði. Er talið að áætlunin sjálf sé óbreytt þrátt fyrir síðustu atburði í Leopold- ville, þótt þeir hafi mjög breytt aðstöðunni í þessum málum. í ræðu sinni lagði Eyskens áherzlu á það, að fyrsti vísir að þjóðþingi Kongó yrði settur á fót árið 1960. Yrði þannig farið að því að í lok þessa árs skyldi fara fram nýjar héraðsstjórnarkosn- ingar í Kongó og myndu héraðs- stjórnirnar síðan velja fulltrúa á hið væntanlega þjóðþing, er kæmi saman í marz 1960. Hvítir og svariir jafnir f>á lýsti Eyskens því yfir að öll merki um mismunum kynþátt- anna yrðu að hverfa bæði í verki og í skráðum reglum. Hið bráð- asta yrði að gera kynþættina hvítan og svartan jafnréttháa svo að tekizt geti einlægt sam- starf þeirra. Til þess að ná þessu verður dómaskipun og verkalýðs löggjöf endurskipulögð og löggjöf um jarðeignir verður tekin til endurskoðunar. Þá verður að taka menntamál nýlendunnar alveg nýjum og ákveðnari tökum, þar sem menntun svertingjanna er forsenda þess að þeir geti tekið völdin að sér í náinni framtíð. Eyskens sagði, að Belgar HELSINGFORS, 13. jan. (NTB). — Kekkonen forseti Finnlands kallaði Sukselainen forseta finnska þjóðþingsins í dag á sinn fund og fól honum að mynda minnihlutastjórn Bændaflokks- ins. En Sukselainen er foringi þess flokks síðan Kekkonen varð forseti 1956. Sukselanen tók að sér stjórnar myndun og er búizt við að til- kynning um myndun nýrrar stjórnar verði gefin út með kvöld inu. Stjórnarkreppunni er þar með lokið eftir að hafa staðið í 41 dag. Þó er hér aðeins um að ræða bráðabirgðalausn. Ýmsar sagnir hafa verið á kreiki um, hverjir skipi ráðherra embættin. Fundur hófst í þing- flokki Bændaflokksins kl. 6 síð- degis, þar sem skipun stjórnar- innar verður endanlega ákve'din. byggju sig undir það að afhenda svörtum íbúum Kongó smám saman völdin í eigin landi. Hann kvaðst vilja heita því að belgíska stjórnin gerði allt sem í hennar valdi stæði til þess að valdataka svertingjanna á næstu árum yrði með þeim hætti að báðar þjóð- irnar Kongóbúar og Belgar gætu vel við unað og gætu unnið sam- an í framtíðinni í friði og ein- drægni. Baldvin Belgíukonungur flutti áhrifamikla ræðu í útvarpið í kvöld um Kongó-málið, þar sem hann lagði megináherzluna á það að Belgía myndi leiða Kongó til fulls s.iálfsstæðis. Síðustu fréttir: Seint í gærkvöldi barst Mbl. NTB-fregn um að myndun nýrrar stjórnar hefði opinberlega verið til- kynnt. í stjórninni eiga sæti 15 ráðherrar, allir úr Bænda- flokknum, nema Ralf Törn- gren, sem verður varafor- sætisráðherra og utanríkis- ráðherra. Sukselainen er for- sætisráðherra. Leo Haeppolae er landvarnaráðherra, Eino Palovesi innanríkisráðherra, Ahti Karjalainen verzlunar- og iðnaðarmálaráðherra, Vilj- ah Sarjala fjármálaráðherra. n-------------------D Sukselainen myndar minnihlutastjórn Bænda- flokksins n-----------D Þetta er fyrsta myndin sem Rússar láta frá sér fara af hinni nýju reikistjörnu, sem þeir hafa skotið á loft. Stjarnan er reyndar kúlulaga en mun snúast kringum sólina á braut nokkru fyrir utan braut jarðarinnar. Þó myndin sýni lögun gerviplánetunnar er hún þó minna virði fyrir það að ekkert er á myndinni til samanburðar um stærðarhlutföll. Talið víst að Molo- tov komi til Haag liörmuleg ógæfa skall yfir hinn friðsæla bæ, Ribeldelgado á Norður-Spáni í síðustu viku, þegar stífla fyrir ofan hann brast í sundur og árflaumur sópaði húsunum burt. Um 150 manns ’étu lífið. Myndin sýnir staðinn þat sem bærinn áður stóð. Þar stendur ekki lengur steinn yfir steini. Hollendingar eru samt ekki hrifnir af þvi að taka við honum MOSKVU, 13. jan. Rauter/NTB - Það er nú haft fyrir satt meðal erlendra sendimanna í Moskvu, að hollenzka stjórnin hafi til- kynnt Sovétríkjunum, að hún hafi ekkert á móti því að Molotov verði skipaður sendiherra í Haag. Er sagt, að J.G. de Beus sendi- herra Hollands í Moskvu hafi af- hent rússneska utanríkisráðuneyt inu orðsendingu þar að lútandi. Opinber staðfesting hefur ekki fengizt á þessu. Þegar starfsmenn hollenzka sendiráðsins hafa verið spurðir um þetta, svara þeir: „Við höfum heyrt þennan orð- róm, en við vitum ekkert og höf- um engu við hann að bæta. Orðrómur um að Molotov ætti að fá nýtt embætti hefur verið á kreiki í Moskvu í nokkra mánuði. Hins vegar eru skiptar skoðanir um, hvaða þýðingu slík breyting á högum hans hefur. Sumir eru þeirra skoðunar að með því sé verið að ýta Molotov í hlé. Aðrir telja að nota eigi þekkingu hans á vestrænum stjórnmálum og að- stöðu Molotovs sem sendiherra í Haag til að gefa valdhöfunum í Kreml betri innsýn í mál Vestur- landa. Hins vegar eru allir sammála um að það beri vott um mjög mot sagnakennda stefnu í Kreml, ef Molotov verður skipaður sendi- herra í Haag. Það myndi brjóta algerlega í bág við harðorða for- dæmingu Krúsjeffs á hinni flokksfjandsamlegu Molotov- klíku. Síðast í dag birti Pravda ár ásargrein á Molotov-klíkuna. ★ HAAG, 13. jan. (Reuter). — Hol- lendingar taka fregnunum um skipun Molotovs með mjög blönduðu geði. Blöðin gera mjög Framh. á bls. 2. ★-------------------------★ Efni blaðsins m.a.: Miðvikudagur 14. janúar Bls. 3: Happdrætti S.Í.B.S. * — 6: Sjálfstæðishreyfing Afríku hef- ir grafið um sig meðal svert- ingja í Kongó. — 8: Hlustað á útvarp. — Raunar- saga reykvísks drykkjumanns. — 10: Ritstjórnargreinarnar: — Efling landhelgisgæzlu og bátaeftir- lits. — Hvað er að gerast í Finnlandi? — 11: Slysahætta á ísum vatna, eftir Jóliann Hannesson, Þingvöllum. — 12: P. V .G. Kolka: Aldahvörf I Eyjum. — 13: Kvennadálkar. ¥-------------------------*

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.