Morgunblaðið - 21.02.1959, Qupperneq 2
2
MORGUNBL4Ð1Ð
Laugardagur 21. febr. 1959
Vinna þarf betur að hags-
munamálum járnsmiða
NÚ UM þessa helgi fer fram
stjórnarkjör í félagi okkar járn-
smiða og í tilefni þess var hald-
inn fundur á miðvikudaginn var,
til að ræða málefni félagsins og
þá menn, sem í kjöri eru. En í
kjöri eru tveir listar, A-listi, skip
aður núverandi stjórn og B-listi,
sem skipaður er mönnum, sem
vilja með sameiginlegu átaki með
limanna, án tillits til hvar þeir
skipa sér í raðir hinna pólitísku
flokka, vinna félagið upp úr þeim
öldudal, sem það hefir verið að
sökkva í að undanförnu. Þar
sem á fundinn komu mjög fáir
af þeim, sem á kjörskrá eru, tel
ég rétt að segja frá því helzta,
sem þar kom fram.
I upphafi fundar fluttu þeir
formaður og gjaldkeri skýrslur
um starfsemi félagsins og síðan
hófust almennar umræður um
báðar skýrslurnar.
Fyrstur tók til máls Marteinn
Guðjónsson og lofaði hann margt
það, sem stjórnin hafði gert, en
deildi og á gjörðir hennar og þá
alveg sérstaklega fyrir afstöðu
fulltrúa félagsins er sátu þing
A.S.Í. varðandi tilmæli forsætis-
ráðherra til Alþýðusambands-
þings viðvíkjandi efnahagsvanda
málum þjóðarinnar.
Næst talaði formannsefhi B-
listans, Loftur Ólafsson. Hann
taldi að hin pólitíska barátta
næði allt of langt inn í raðir okk-
ar og að hún ætti sinn mikla þátt
1 því, hvernig komið væri í mál-
efnum okkar eigin félags. Milli-
bilið milli okkar og ófaglærðra
verkamanna væri alltaf að stytt-
ast og að aldrei hafi bilið orð-
ið minna, en eftir samningana í
sumar, en þá fengum við rúm-
lega 5% hækkun móti rúmum
9% hjá ófaglærðum. Hann benti
og á að það liti út fyrir að menn
væru að missa trúna til félags-
ins, því menn væru yfirleitt hætt
ir að sækja félagsfundi. Að lok-
um gat hann þess, að þeir sem
skipuðu B-listann vildu með sam-
eiginlegu átaki hefja félagið á
ný til vegs og virðingar og skor-
aði á menn að mæta vel til kjörs
þess sem framundan værL
Auk þeirra, sem áður er getið,
tóku þessir til máls: Varaform.
Hafsteinn Guðmundsson, sem að
sjálfsögðu varði gjörðir stjórnar-
innar og Kristinn Ág. Eiríksson,
sem var eini ræðumaðurinn utan
stjórnar, sem varði gjörðir henn-
ar, og taldi hann að hér hefði
enginn annar listi en listi stjórn-
arinnar átt að vera í kjöri. Á
þann hátt vildi hann tryggja A-
lista fullan sigur. Það er mikill
munur á að vera einræðis- eða
lýðræðissinni, góðir félagar. Ár-
mann Sigurðsson, Sigurjón Jóns-
son og Sveinn Hallgrímsson,
töldu að margt mætti betur fara
í störfum félagsstjórnar og gjald-
kera og tóku þeir undir orð Lofts
Ólafssonar, að það hlyti að vera
okkur mikið áhyggjuefni hvað
lítill munur væri á launum okk-
ar og verkamanna og í mörgum
tilfellum hefðum við lægri laun
en þeir, enda væri nú svo komið,
að bæði hefði fækkað meðlimum
félagsins, vegna þess að menn
leituðu betri vinnu og svo færi
lærlingum einnig fækkandi í iðn-
inni. Þá töldu þeir rekstri félags-
ins illa fyrir komið, og töldu þeir
að heppilegra mundi að ráða fast
an starfsmann til félagsins í stað
þess að greiða öllum stjórnarmeð
limum þóknun og auk þess nokk-
uð fyrir aukastörf að ógleymdum
kr. 7000, sem greiddar eru fyrir
bókfærslu og endurskoðun.
Þá ræddi Sigurjón um hve
eignir okkar væru í raun og
veru litlar, þótt krónurnar væru
margar og benti hann í því sam-
bandi á getuleysi öryggissjóðs-
ins, sem þó er búinn að vera
starfandi nær 20 ár án þess að
hafa getað rétt nokkrum félaga
hjálparhönd. Hann sagðist því
ekki sjá aðra leið en að félagið
færi að athuga með stofnun líf-
eyrissjóðs, svo meðlimir þessa fé-
lags gætu öðlazt meira og betra
öryggi en þeir eiga nú við að
búa.
Að lokum þetta.
Ég tel að við getum allir sam-
einast um B-listann, enda er efsti
maður hans Loftur Ólafsson,
maður sem hefir á undanförnum
árum verið kosinn í allar helztu
nefndir félagsins og það jafnt
af þeim, sem taldir eru fylgjend-
ur núverandi stjórnar eða ekki.
Stuðningsmenn B-listans, kjós-
ið strax í dag og vinnið á þann
hátt að sigri hans.
Járnsmiður
Vetrarsíldveiðí
Norðmanna
Óveður hömluðu veiði
VETRAKSÍLDVEIÐI Norðmanna
lauk 14. febrúar og nam heildar-
aflinn fram að þeim tíma:
1959 3.453.000 hektólítra
1958 1.938.000
1957 5.671.000
Af þessum afla fóru í bræðslu
hjá síldarverksmiðjunum:
1959 1.761.000 hektólítra
1958 1.215.000
1957 4.157.000 „
Áætlað er, að úr bræðslusíld-
inni hafi komið þessar afurðir:
1959 Lýsi 14.000 tonn Mjöl 32.000 tonn
1958 10.000 »* 22.000 *»
1957 22.000 »» 75.000 »*
> ‘ " ' ' ^ ’
Börnin kunna alltaf vel að meta blessaðan snjóinn. — Þessa
mynd tók ljósmyndari blaðsins á Skúlagötunni, þar sem börnin
voru að hoppa og leika sér á alhvítri götunnL — Vonandi hafa
þau gætt sin nógu vel fyrir bílunum.
Hrímfaxi á mettíma frá
Reykjavík til Hafnar
Allmikið flogið innanlands í gær
Ástæðan fyrir því, að tiltölu-
lega minna fer nú af aflanum til
síldarverksmiðjanna en áður er
sú, að samið hefur verið um sölu
á meira magni af nýrri síld og
frosinni og saltsíld, heldur en
undanfarin ár.
Það hefur hamlað veiðinni, að
mjög stormasamt hefur verið við
vesturströnd Noregs undanfarnar
vikur, því að talið er, að mikið
síldarmagn hafi komið á miðin.
Veiðihorfur eru nú taldar versn
andi, þar sem hrygningartími
síldarinnar nálgast óðum og hún
dýpkar á sér og erfiðara verður
að veiða hana. Aðalveiðitíminn
er nú liðinn hjá og vetrarsíld-
veiðinni lokið. Eftir 15. febrúar
nefna Norðmenn veiðarnar vor-
síldarveiði.
Góð sjósókn frá
Sauðárkróki í jan.
SAUÐÁRKRÓKI, 12. febr. —
Sjór hefir verið sóttur héðan með
lang mesta móti síðan um ára-
mót, miðað við þennan tíma árs,
enda hefur bátunum fjölgað og
þeir eru stærri en alllengi að
undanförnu.
Þrír þilfarsbátar leggja upp
hjá Fiskiveri og öfluðu þeir í jan.
sem hér segir: m.b. Bjarni Jóns
son, 22 tonn að stærð, reri 14
róðra með 100—120 lóðir og var
afli 59 lestir.
M.b. Jón formaður, 10 tonna
bátur, reri 12 róðra með 50—60
lóðir, afli 26 lestir.
M.b. Muninn, 10 tonn að stærð,
reri 7 róðra með 40 lóðir, afli
8% tonn.
Auk þess lagði b.v. Norðlend-
ingur afla sinn upp hér í lok
mánaðarins, 253 tonn af karfa, er
skiptist milli beggja frystihús-
anna.
Það sem af er febrúar hefir
afli verið tregur, enda sjaldan
gefið á sjó, en langt sótt.
Þess má að lokum geta að Fiski
ver h.f. hefir framleitt rúmlega
2000 ks. af flökum, en ekkert
á sama tíma í fyrra. Fiskiðjan
hefir hins vegar framleitt minna
magn á þessu tímabili, þar eð
lítið hefir borizt þangað aí báta-
fiski. — Jón
HRÍMFAXI, millilandaflugvél
Flugfélags íslands, setti í gær
hraðamet á leiðinni Reykjavík
— Glasgow — Kaupmannahöfn.
Flugvélin var 2 klst. og 10 mín-
útur héðan til Glasgow, og frá
Glasgow til Hafnar var hún 1
klst. og 56 mínútur.
Ekki er vitað um, að flugvél
hafi nokkru sinni verið jafnfljót
í förum milli þessara staða, en
meðalhraði Hrímfaxa á leiðinni
var 630 km. á klst. — Þess er að
gæta, að mikill meðvindur var.
★
Eins og frá var skýrt í blaðinu
í gær, var í fyrradag . flogið til
ísafjarðar og Egilsstaða, en þá
hafði engin flugvél hreyft sig
til innanlandsflugs í sex daga.
Hins Vegar féll ráðgerð flugferð
til Akureyrar niður vegna veð-
urs.
f gær var sæmilegt flugveður,
enda flogið til allmargra staða
á landinu. — Fjórar ferðir voru
farnar til Akureyrar, en flug-
samgöngur þangað höfðu þá leg-
ið niðri um vikutíma. Tókst
þannig í gær að flytja alla þá,
sem pantað höfðu flugfar milli
Akureyrar og Reykjavíkur. —
Auk þess var í gær flogið til
Patreksfjarðar, ísafjarðar og
Þingeyrar, og einnig austur að
Kirkjubæjarklauatri. Sömuleið-
is var fyrirhuguð flugferð til
Vestmannaeyja, en flugvélin, er
þangað átti að fara, bilaði smá-
vegis á Akureyri, svo að sú ferð
féll niður.
Bandarískt
körfuknattleíkslið
ÚRVALS bandarískt körfuknatt-
leikslið (All Star) er væntanlegt
til landsins í lok mánaðarins og
mun þreyta keppni á vegum
Körfuknattleiksráðs Reykjavík-
ur hinn 1. marz nk. við íslenzkt
landslið í þessari íþróttagrein, i
íþróttahúsi f. B. R. að Háloga-
landi.
Samúðarkveðjur
vegna Júlí-slyssins
MORGUNBLAÐINU barst i
gær eftirfarandi frá Félagi
ísl. botnvörpuskipaeigenda:
„F.Í.B. hafa borist eftírfarandi
samúðarkveðjur vegna b.v. Júlí.
F.Í.B. Reykjavík.
Við erum djúpt snortin að
frétta um hið sorglega slys sem
orðið hefur á Júlí, skipstjóra þess
og áhöfn allri. Vinsamlegast mót-
takið okkar innilegustu samúð 1
ykkar miklu sorg og sára harmi.
Nanna og Þórarinn Olgeirsson.
Formaður F.Í.B., Reykjavík.
Félag mitt og ég sendum okkar
innilegutu samúðarkveðjur til
yðar og fjölskyldna áhafnarinn-
ar, sem týndist í sjóslysinu við
Nýfundnaland. Fiskveiðum fylg-
ir ávallt hætta, og við vitum, að
sjómenn og útgerðarmenn um
allan heim taka undir með okkur
að lýsa harmi okkar yfir þessum
sorglega atburði og mikla mann-
tjóni.
Farndale Phillips Félag
brezkra togaraeigendá,
Grimsby.
Tögarasjómenn
hljóta meiðsl
í ÓVEÐRINU, sem gekk yfir ný-
lega, vildi það slys til 18. febrúar
um borð í b/v „Ingólfi Arnar-
syni“, að Ólafur Jónsson, háseti,
frá Arnarfirði slasaðist. Hlaut
hann mikinn skurð á höfði, rif-
brotnaði og tveir tindar á hrygg
brotnuðu.
Var hann lagður í spítala á
Flateyri. Samkvæmt upplýsing-
um læknisins þar, líður honum
eftir atvikum vel.
Sigurður Kolbeinsson, 2. stýri-
maður, sem slasaðist um borð i
b/v „Þorkeli mána“ fyrir
skömmu á Nýfundnalandsmiðum,
er nú farinn að hafa fótavist. Við
rannsókn á meiðslum hans hefir
komið í Ijós, að tindar í hrygg
hafa brotnað og vöðvar í baki
marizt og slitnað. Mun Sigurður
eiga í þessum meiðslum um
tveggja mánaða skeið.
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Mótmæli við skrifum Þjóðviljans
frá Bæjarútgerð Reykjavíkur
í TILEFNI af grein í dagblaðinu
„Þjóðviljinn" föstudaginn 20.
febrúar í cambandi við byggingu
hraðfrystihúss fyrir Bæjarútgerð
Reykjavíkur, leyfum vér oss að
biðja yður um eftirfarandi til
birtingar:
Á undanförnum árum hafa
framkvæmdastjórar Bæjarútgerð
ar Reykjavíkur í samráði við
borgarstjórann í Reykjavík og
samkvæmt samþykktum útgerðar
ráðs og bæjarstjórnar Reykjayík-
ur, unnið að því, að Bæjarútgerð-
in eignaðist hraðfrystihús.
Hefir hvað eftir annað verið
leitað til fyrrverandi ríkisstjórna
og einnig til núverandi ríkisstjórn
ar um kaup á Fiskiðjuveri ríkis-
ins, en þær málaleitanir engan
árangur borið enn sem komið er.
Jafnframt hefir í tíð fyrrver-
andi ríkisstjórnar, sem sagði af
sér í byrjun desember sl., verið
sótt um fjárfestingarleyfi til bygg
ingar hraðfrystihúss á vegum
bæjarútgerðarinnar. Bvar hefir
ennþá ekki borizt við umsókn-
inni, eru þó meira en tvö ár síðan
hún fyrst var send og um það bil
ár síðan hún var endurnýjuð.
Bæjarútgerð Reykjavíkur hefir
byggt stóra og afkastamikla fisk-
verkunarstöð með tilheyrandi
fiskþurkunartækjum, reitum og
hjöllum, til verkunar á saltfiski
og skreið. Hefir meginhluti afla
togaia bæjarútgerðarinnar annar
en karfi verið verkaður í þessari
eigin stöð hennar.
Saltfiskurinn og skreiðin hafa
að mestu leyti verið seld fyrir
frálsan gjaldeyri, sem er mun
verðmætrri fyrir þjóðarbúið en
annar erlendur gjaldeyrir. Þessi
munur á verðmæti gjaldeyrisins
var viðurkenndur af stjórnar-
völdunum, með því að greiða um
tvöfallt hærri útflutningsuppbæt-
ur á þennan gjaldeyri en gjald-
eyri frá löndum með „clearing"
viðskipti, þar til á síðasta ári, að
þessi munur var felldur niður
með lögunum um Útflutnings-
sjóð. Með þessum ráðstöfunum
var hlutur þeirra útflytjer.da, sem
öfluðu frjáls gjaldeyris rýrður
samanborið við hlut þeirra, sem
fyrst og fremst seldu útfiutr.ings-
afurðimar til landa með „clear-
ing“ viðskipti.
Þegar Sovétríkin hófu aftur
kaup á íslenzkum afurðum árið
1953 gjörbreyttust horfur um
rekstur hraðfrystihúsa og hefir
rekstur flestra hraðfrystihúsanna
hér í bænum gengið vel síðan.
Sérstaklega hefir rekstur hrað-
frystihúsanna aukizt seinni helm-
ing sl. árs og fyrsta mánuð yfir-
standandi árs, vegna hins mikla
karfaafla, sem borizt hefir fra
hinum nýju miðum við Nýfundna
land.
Eins og ljóst er af því, sem
skýrt hefir verið frá hér að fram-
an, þá hafa margendurteknar til-
raunir framkvæmdastjóra og út-
gerðarstjómar bæjarútgerðarinn-
ar til þess að eignast eigið hrað-
frystihús, engan árangur borið til
þessa. Er það ekki vegna skorts
á vilja hjá borgarstjóra, bæjar-
stjórn, útgerðarráði eða fram-
kvæmdastjórum, heldur er það
vegna tregðu fyrrverandi ríkis-
stjórna og þeirra, sem ráðið hafa
fjárfestingarmálum í umboði rík-
isvaldsins.
Ekki skal neitt um það fullyrt,
hvers bæjarútgerðin hefir misst
við það, að eiga ekki hraðfrysti-
hús, en fullyrðing Þjóðviljans um
milljónatöp útgerðarinnar af
þeim sökum, nær engri átt.
Ásakanir Þjóðviljans um fram-
taksleysi forráðamanna bæjar-
útgerðarinnar í þessu efni eru
fjarri sanni.
Hér eftir sem bingað tíl mun
verða unnið að því að leysa þenn-
an þriðja þátt í hagnýtingu afla
togara bæjarútgerðarinnar þann-
ig, að hún hafi, auk stöðvar til
saltfisk- og skreiðarverkunar,
einnig til umráða hraðfrystihús,
og geti að mestu eða öllu leyti
fullnýtt fiskafla togara sinna 1
eigin verkunar- og vinnslustöðv-
um.
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Trésmiðir
TRÉSMIÐIR eru minntir á fé-
lagsfundinn í Breiðfirðingabúð
klukkan 2 í dag.