Morgunblaðið - 21.02.1959, Side 8

Morgunblaðið - 21.02.1959, Side 8
8 MORCUNTtL 4ÐIÐ Laugardagur 21. febr. 1959 • JHiorgimMafo ití> Utg.: H.í. Arvakur Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vi"" Einar Asmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Askriftargald kr. 35,00 á mánuði innamandc í lausasölu kr. 2.00 eintakið. VEL STJÓRNAÐ UTAN UR IIEIMI Málaferli út af //Arnarhreiðrinu// „Arnarhreyðrið“ var lagt I rústlr árið 1945. FJÁRSTJÓRN Reykjavík- urbæjar er um margt óhjákvæmilega háð að- gerðum ríkisvaldsins. Glöggt dæmi þess er, að þegar fjárhags- áætlun bæjarins var lögð fram snemma í desember, var í henni miðað við vísitöluna 202 stig, sem þá gilti. Nú þegar áætlunin er samþykkt ,er aftur á móti miðað við gildandi vísitölu, 175 stig. Þetta hefur þau áhrif, að heildarupphæð fjárhagsáætlunar innar lækkaði úr 275 millj. kr. I desember niður í 256 milljónir króna, þegar búið var að endur- skoða hana og taka tillit til breytingatillagna bæjarráðs og fulltrúa Sjálfstæðismanna. Lækk unin nam 19 milljónum króna eða 7%. Hér er þess að gæta, að ef ekki hefði verið að gert, þá mundi vísitalan skjótlega hafa hækkað úr 202 stigum og sjálf- sagt nálgazt 300 stig fyrir lok þessa árs. Af því hefði aftur leitt sívaxandi útgjöld bæjar- sjóðs, sem bæjarstjórn hefði með engu móti getað við gert. Eins og á stóð var þess vegna ekki áhorfsmál um, að rétt væri að fresta samþykkt fjárhagsáætl- unar í desember, þangað til sýnt væri, hvað ofan á yrði um stöðv- un verðbólgunnar. Nú hefur stöðvun og niðurfærsla orðið og fyrsta afleiðing hennar varðandi hag bæjarsjóðs Reykjavíkur er sú, sem að framan greinir. ★ Af þessu leiðir aftur, að út- svarsupphæðin, sem í desember var reiknuð 234,6 milljónir kr., og hefði orðið miklu hærri, ef verðbólgan hefði fengið áfram að vaxa, lækkar nú í 215 millj. eða um 19,4 millj., þ. e. 8,3%. Þegar tekið er tillit til aukinna tekna bæjarbúa á sl. ári frá því, sem var næsta ár á undan, er talið líklegt, að á þessu ári muni verða hægt að lækka útsvarsstig- ann um a. m. k. 5%. Lækkunin er því athyglisverðari sem kaup- gjald verður, þrátt fyrir niður- færsluna, hærra á þessu ári en 1958. Þegar litið er á allar aðstæð- ur í okkar ört vaxandi bæjar- félagi, þá er lækkun útsvars- stigans nú frá því í fyrra öruggt vitni um ágæta stjórn bæjarins. Veldur hver á heldur. Fyrirskip- anir og framkvæmdir eða fram- kvæmdaleysi rikisvaldsins geta eins og fyrr segir haft úrslita- áhrif á hag bæjarsjóðs. Þar hef- ur oft verið við ramman reip að draga. En innan þeirra marka hefur Sjálfstæðismönnum farizt stjórn bæjarmála Reykjavíkur með prýði. Borgarstjóri og bæj- arstjórn hafa ætíð gert allt sem í þeirra valdi stendur til að halda útgjöldum í hófi en ann- ast þó nauðsynlegar framkvæmd- ir og láta Reykjavik halda for- ystu sinni um lífsþægindi borg- aranna. Fyrir öllu þessu gerði Gunn- ar Thoroddsen borgarstjóri ágæta grein í aðalræðu sinni um fjár- hagsáætlunina á bæjarstjórnar- fundi í fyrradag. ★ Gunnar Thoroddsen taldi þá upp sex atriði, sem einkum hefði verið reynt að gæta við end- urskoðun fjárhagsáætlunarinn- ar nú. Er þar um að ræða meg- inreglur. sem ætíð ber að hafa í huga, ef vel á að stjórna, og er þess vegna rétt að rifja þær upp. Borgarstjóri kvað þessi meg- in sjónarmið hafa verið ráðandi: í fyrsta lagi að færa niður út- gjaldaliði. 1 öðru lagi að áætla útgjöld sem næst sanni. Einmitt í þessu er eitt aðalatriði góðrar fjár- stjórnar fólgið. Það er mikill munur á, hvernig til hefur tek- izt í bæjarmálum undanfarin ár eða hjá ríkinu. Umframgreiðslur ríkisins hafa reynzt miklu meiri. Þar er tekjunum að vísu svo háttað, að auðvelt er að áætla þær ranglega. í framkvæmd hef- ur það verið svo, að fjármála- ráðherra hefur áætlað þær miklu lægri, en vitað var að þær mundu verða. Með því hefur hann aflað fjár til ráðstöfunar utan við lög og rétt. Hjá Reykja- víkurbæ eru útsvörin aðal tekju- liðurinn. Eðli málsins samkvæmt fara þau aldrei fram úr áætlun. Þar er því ekki um neinar ó- væntar tekjur að ræða í líkingu við það, sem verið hefur hjá ríkissjóði. Því meira ríður á, að gjaldanna sé vel gætt, og það hefur tekizt með afbrigðum vel undanfarin ár. í þriðja lagi er keppt að því að halda uppi allri nauðsynlegn þjónustu við borgarana. í fjórði lagi að halda uppi verk- legum framkvæmdum. Þar ber nú að haga framkvæmdum svo, að þær ýti ekki undir aukna verðbólgu. Með því móti væri spillt árangrinum, sem náðist með stöðvunar- og niðurfærslu- lögunum. Þessu hyggst bæjar- stjórn ná með því að hafa verk- legar framkvæmdir í svipuðu horfi og á sl. ári. I fimmta lagi ber að forðast hallarekstur bæjarfyrirtækja. Ef það tekst ekki, hlýtur það að bitna á fyrirtækjunum sjálfum í lakari þjónustu, eða hallinn verður að greiða með hækkandi útsvörum. í þessu sambandi er og rétt að minna á, að þegar menn kvarta undan hækkuðum fasteignagjöldum, hvort sem er til vatnsveitu eða almennra þarfa bæjarfélagsins, þá gæta þeir þess ekki, að fái bærinn ekki tekjur með þessu móti, verður hann að afla þeirra með auknum útsvör- um. En einmitt fyrir allan al- menning er mun hagkvæmara að keppt sé að því, að útsvarsupp- hæðin sé sem lægst og teknanna aflað með öðru móti, t. d. fast- eignagjöldum eða réttri greiðslu fyrir þá þjónustu, sem innt er af höndum. í sjötta lægi kvað borgarstjóri að því stefnt, að útsvarsstiginn gæti lækkað frá því í fyrra. Andstæðingar Sjálfstæðis- manna munu vafalaust nú sem fyrr reyna að þyrla upp mold- viðri til að varna mönnum að átta sig á megin atriðunum um stjórn bæjarmálanna. Sjálfstæð- ismenn leggja aftur á móti allt kapp á, að láta málin koma eins ljóst fram og frekast má verða. Þess vegna ættu bæjarbúar að lesa ágripið af ræðu borgarstjóra í blaðinu í gær og annað það, sem sagt verður frá þessum bæjar- stjórnarfundi. Með því móti verður þeim auðveldara en ella að átta sig á vandamálunum, sem við er að etja, og sannfærast um, hversu vel hefur tekizt að leysa þau. DÓMSTÓLL í Miinchen mun á næstunni dæma i viðkvæmu máli. Svo er mál með vexti, að um 70 manns hafa gert kröfu til þess að fá að flytjast aftur á gamlar landareignir sínar á svæðinu, þar sem Hitler á sínum tíma gerði hið fræga „Arnar- hreiður“ sitt — við Brechtesgad- en. ★ Meginhlutinn af svæði þessu liggur enn í rústum, en upp úr þeim rís þó á einum stað ný- tízkuhótel, sem er vinsæll dval- arstaður forvitinna ferðamanna — og sumir segja, að gamlir, gallharðir nazistar leiti tíðum þangað — til þess að rifja upp gamlar minningar um „foringj- ann“. Árið 1935 var stóru landsvæði kringum sveitasetur Hitlers lok- að fyrir öllum óviðkomandi — þ.e. öðrum en nánustu vinum og samstarfsmönnum hans. Fram að þeim tíma hafði þessi staður verið mjög eftirsóttur til sumar- dvalar, einkum af þýzkum lista- mönnum. Þarna voru þá um fimmtíu bændabýli og nokkur smáhótel — en nú var það allt rýmt, og flest rifið niður. ★ Umhverfis „Arnarhreiðrið" voru reist glæsileg sveitasetur fyrir gæðinga Hitlers, svo sem Bormann, Göring, Göbbels, Speer o. fl., ásamt stórum búðum fyr- ir SS-lífverðina. í stríðinu tókst lengi vel að verja „Arnarhreiðr- ið“ fyrir sprengjuárásum. Þar hafði verið komið upp sérstöku viðvörunarkerfi, og í hvert sinn, sem það vitnaðist, að sprengju- flugvélar Bandamanna væru á leiðinni, voru fjallatindarnir um- hverfis huldir þykkri gerviþoku, svo árásarflugvélarnar urðu frá að hverfa. — En árið 1945 flugu inn“, eins og sumir hafa kallað hana virðist hreint ekkert kulda- leg á þessari mynd. Hann Tony er ekki heima, svo hún hefir leitað sér stundar-afþreyingar með því að skreppa í næturklúbb. — Hann Tony er eiginmaður hennar, eins sprengjuflugvélar Bandamanna norður yfir Alpana frá Ítalíu — og þá barst aðvörunin of seint. Þegar flugvélarnar höfðu verið yfir Brechtesgaden um stund, var ekkert nema rústir að sjá. ★ Það var ekki fyrr en árið 1952, sem byrjað var að ryðja til í „hreiðrinu", og árið eftir settu Bandaríkjamenn þar á stofn hressingarheimili fyrir her- menn. — Fyrir rúmu ári keypti og allir hljóta að vita, enski leik- arinn Anthony Steel, svo sem hann heitir reyndar fullu nafni — og hann þurfti að fara til Hollywood og dveljast þar um tíma. Sagt er, að Anita muni brátt leika í spánsk-ítalskri kvikmynd þýzki hóteleigandinn Steigen- berger heimili þetta, ásamt öll- um rústunum, en leigði það síð- an aftur amerísku félagi, sem hefir mikinn hótelrekstur. Þegar að styrjöldinni loklnni höfðu Bandamenn tekið allt svæðið eignarnámi, en siðan var því „skilað“ til Bayern. — Og það er með málsókn gegn Bay- ern, sem hinir upprunalegu íbú- ar hyggjast ná aftux eignum sín- um. —• á móti unga manninum á myndinni. Hann heitir Franco Silva, 25 ára gamall, spánskur — og blóðheitur. Þau Anita hafa að- eins einu sinni hitzt áður í sam- kvæmi í Róm fyrir nokkru, svo það hefir sjálfsagt verið æskilegt að þau kynntust eitthvað meira, áður en þau taka að leika saman í kvikmyndinni. Og eftir myndinni að dæma virðast þau skemmta sér aldeili* lystilega við það að kynnast bet- ur .... Óveður á Sauðárkróki Bátur sökk í höfninni SAUÐÁRKRÓKI, 19. febr. — Undanfarna sólarhringa hefur hið versta veður geisað hér 1 Skagafirði, ýmist hvass suðvest- an eða suðaustap, með éljagangi. Veðurofsinn mun þó hafa náð hámarki síðastliðinn miðviku- dagsmorgun. Seinni hluta næturinnar stóð vindur af suðri, en um 8 leytið um morguninn snerist hann í suð- vestanátt, með aftakastormi. Mót orbáturinn Andvari sökk í höfn- inni og mótorbáturinn Bjarni Jónsson, var hætt kominn. Búið er að ná Andvara á flot, en talið er að hann hafi skemmzt talsvert. Einnig mun Bjarni Jónsson hafa skemmzt nokkuð. í veðrinu fuku járnþök af hús- um, rúður brotnuðu, en fólk sak- aði ekki. Ekki hefur frétzt um teljandi skemmdir annars stað- ar í Skagafirði — Jón. Tony ekki heima - og An’ita skemmtir sér ANITA EKBERG, „sænski ísjak-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.