Morgunblaðið - 21.02.1959, Blaðsíða 15
Láugardagur 21. febr. 1959
MORCUNBLAÐ1Ð
15
Sorpeyðingar-
stöðin —
Framh. af bls. 1.
Njáll lét aka skarni á hóla
Eftir að gestir höfðu skoðað
Sorpeyðingarstöðina, var boðið
til kaffidrykkju I Sjálfstæðishús-
inu. Bauð Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, gesti velkomna í
stuttri ræðu. Sagði hann að í dag
væri miklum og merkum áfanga
náð. Það hefði lengi verið hið
mesta vandamál að losa bæinn
við úrgang allan og fyrir nokkr-
um árum hefði verið ákveðið að
koma því máli í það horf að við-
unandi væri frá þrifnaðar- og
menningarlegu sjónarmiði. Þegar
Jón Sigurðsson, borgarlæknir,
hefði tekið við embætti, hefði
það verið hans fyrsta verk, að
taka þetta mál til athugunar. Nú
hefðu orðið hér á mikil umskipti
frá því sem áður var. Sorpinu
yrði ný breytt í þýðingarmikinn
lífrænan áburð, sem rannsóknir
benda til að muni verða mjög
gagnlegur til ræktunar.
Hinn nýi áburður hefði hlotið
nafnið Skarni. Það nafn væri
komið úr Njálu. Hefði Njáll látið
aka skarni á hóla í því skyni,
„at þar yrði taða betri en annars
staðar“. Væri það álit sumra
fræðimanna, að Njáll hefði fyrst-
ur manna borið á tún hér á
landi. Kvaðst hann nú spá því,
að þar sem Skarni verður á bor-
inn, verði taða betri en annars
staðar.
Að lokum þakkaði borgarstjóri
dr. Jóni Sigurðssyni afskipti
hans af þessu máli og vélsmiðj-
unni Héðni smíði vélanna í hina
nýju Sorpeyðingarstöð.
Sorphaugarnir alltaf hvimleiðir
Næstur talaði dr. Jón Sigurðs-
son, borgarlæknir, en undir
hann heyrir öll sorphreinsun í
bæjarlandinu. Ræddi hann um
það hve lítil áburðarnotkun hefði
verið hér á landi öldum saman
og lönd verið rányrkt, enda hefði
ekki verið til mikið af nothæfum
áburði í landinu. Minntist hann
á garðyrkjukver Hans Schier-
bechs landlæknis, sem hér var
fyrir aldamót, en hann ráðlagði
mönnum að vinna áburð á garð-
ana úr úrgangsefnum frá heim-
ilunum.
Rakti Jón Síðan aðferðir þær
sem Reykvíkingar hefðu haft
síðan um aldamót við að losa sig
við allan úrgang frá heimilunum.
Hefði öllur úrgangi framan af
verið ekið niður í fjöru, en 1919
hefði verið ákveðið að sorp
skyldi fjarlægt á kostnað bæjar-
sjóðs. Árið 1924 var svo farið að
flytja allt sorp vestur á Eiðis-
granda. Hefðu sorphaugarnir á
Eiðisgranda alltaf verið hvim-
leiðir, og borgarstjóra og bæjar-
stjórn hefði löngum verið það
Ijóst. Lýsti borgarlæknir síðan
aðdraganda að byggingu hinnar
nýju sorpeyðingarstöðvar á Ár-
túnshöfða og sagði frá gangi
mála, þangað til stöðin var tekin
í notkun í júlímánuði í sumar.
Þá komu í ljós ofurlitlir gallar á
vélakosti, sem nú hefur verið
ráðin bót á. Verða nú framleiddir
10.000 rúmmetrar af áburði úr
sorpi á ári, og hefur verið reynt
að gera áburðinn eins ódýran og
frekast er unnt. Sagði hann að
óhreinindi þau, sem hingað til
hefðu verið til óprýði í bænum,
mundu nú stuðla að því að prýða
hann.
Þá talaði Sveinn Guðmunds-
son, forstjóri í Héðni Ræddi hann
um hina svokölluðu Danoaðferð,
eem hér verður notuð til sorp-
eyðingar, en fyrstu stöðvarnar af
þessu tagi voru reistar í Dan-
mörku. Sagði hann að slíkar
verksmiðjur væru nú starfrækt-
ar víða um heim. Lýsti hann síð-
an vélakosti nýju sorpeyðingar-
stöðvarinnar og vinnsluaðferðum,
og afhenti borgarstjóra að lokum
vélakerfið. Gat hann þess að ís-
lenzkir iðnaðarmenn gætu verið
stoltir af því að hafa sparað mik-
inn erlendan gjaldeyri með þvi
að smíða vélarnar heima.
Hákon Bjarnason, skógræktar-
stjóri, þakkaði veitingar fyrir
hönd „ney'.enda" hins nýja áburð-
ar, og lét í ljós þá skoðun að
Skarni ætti eftir au prýða bæjar-
landið. Minntist hann m. a. á þáð
áð ef nægilegur hiti fengist í
bæjarlandinu og nægilega góður
áburður -i til staðar, gæti ver-
ið full ástæða til að flytja gróður-
húsræktunina í nágrenni bæjar-
ins. Sagði hann að bygging sorp-
eyðingarstöðvarinnar væri senni-
legar stærra skref en menn gerðu
sér almennt ljóst.
Tildrög að byggingu stöffvarfnnar
Með byggingu hinuar nýju
sorpeyðingarstöðvar á Ártúns-
höfða hefur merkum áfanga verið
náð. Forsaga þess máls er sú, að
í júnímánuði 1948 skipaði bæjar-
ráð þá Jón Sigurðsson borgar-
lækni, Ásgeir Þorsteinsson verk-
fræðing og Þór Sandholt arkitekt
í nefnd, sem gera skyldi tillögur
um sorpeyðingu í Reykjavík.
Nefndin skilaði áliti i maí 1949 cg
lagði til að komið yrði upp sorp-
eyðingarstöð, sem ynni úr sorp-
inu lífrænan áburð, en mikil
þörf er fyrir hann hér. f nóvem-
ber 1949 samþykkti bæjarráð að
koma slíkri stöð upp. Á þessum
tíma var erfitt um framkvæmdir,
einkum af gjaldeyrisástæðum.
Árið 1955 tókst Vélsmiðjunni
Héðni að fá leyfi til að byggja
mestan hluta vélasamstæðnanna
hérlendis. Á gamlársdag það ár
var undirritaður samningur við
Vélsmiðjuna Héðin um að hún
annaðist smíði og uppsetningu
véla. Árið 1956 var unnið að
teikningum og stöðinni ætlaður
staður á Ártúnshöfða.
Ólíklegt að gert
verðivið Gunnfaxa
f GÆR var lokið rannsókn á
skemmdum þeim, sem urðu á
Douglasflugvélinni Gunnfaxa í
ofviðrinu um s.l. helgi, þar sem
hún stóð á flugvellinum í Vest-
mannaeyjum. — Kom í ljós við
athugun þessa, að auk þess sem
stýri vélarinnar eru ýmist brot-
in eða stórskemmd, hefir sjálf-
ur burðarás hennar brostið, en
við hann eru vængirnir festir.
Munu því litlar líkur til, að
það svari kostnaði að gera við
flugvélina. Úr því mun endan-
lega skorið, er skoðunarmaður
ríkisins hefir lagt fram skýrslu
sína um skemmdimar, en hann
er væntanlegur til Reykjavík frá
Vestmannaeyjum í dag.
Camalmenna-
skemmtun
í Bolungarvík
BOLUNGARVÍK, 19. febrúar —.
Kvenfélagið Brautin hélt sína
árlegu gamalmennaskemmtun sl.
laugardag fyrir fullu húsi, þrátt
fyrir mjög vont veður.
Frú Elísabet Hjaltadóttir setti
skemmtunina með ræðu. Síðan
var leikinn gamanleikurinn „Fjöl
skyldan ætlar að skemmta sér“
eftir Hans Klaufa. Leikendur
voru Sigurður E. Friðriksson,
Ásgerður Hauksdóttir, Halldóra
Helgadóttir, Ósk Guðmundsdótt-
ir og Vélaug Steinsdóttir. Guð-
bjartur Oddson, annaðist andlits-
förðun, en Friðrik Sigurbjörns-
son var leikstjóri. Leikendur léku
af hjartans lyst við mikinn fögn-
uð áheyrenda. Guðm. Jóhannes-
son héraðslæknir flutti ræðu
kvöldsins. Sýnd var skrautsýn-
ing „Þrek og tap“, með Ásdísi
Hrólfsdóttur og Kristni Árnasyni.
Þá sungu þær frúrnar Hildur
Einarsdóttir, Ósk Guðmundsdótt
ir og Sigrún Halldórsdóttir 5 lög
við góðar undirtektir. Sungið var
milli atriða og síðan farið í leiki
og dansað.
Gamalmenni hér þakka Kven-
félaginu vel fagnað þennan. For-
maður nefndarinnar var Sigrún
Halldórsdóttir. Skemmtunin var
endurtekin á sunnudag fyrir
fullu húsi. — Fréttaritari.
Tónskáldafélagið
Á FUNDI Tónskáldafélags ís-
lands var nýlega samþykkt svo-
hljóðandi ályktun:
„Tónskáldafélag íslands mót-
mælir eindregið frumvarpi því,
sem komið er fram á Alþingi,
um að leyfa hljóðritun hugverka
á segulband án heimildar höf-
undar eða greiðslu til hans. Tel-
ur fundurinn óhjákvæmilegt, ef
ákvæði frumvarpsins komast í
framkvæmd, að íslenzk tónskáld
stöðvi alla útgáfu tónverka
sinna og leyfi flutning þeirra úr
handriti aðeins gegn tryggingu
fyrir misnotkun. Jafnframt skor-
ar fundurinn á STEF að mæta
framkvæmd frumvarpsins, ef
þörf gerist, með algeru banni við
flutningi verndaðra tónverka,
innlendra og erlendra, í útvarpi
og annars staðar þar, sem óleyfi-
leg hljóðritun gæti orsakazt.
Fundurinn lýsir furðu sinni á
því, að Alþingi skuli gerast vett-
vangur ofsókna gegn listamönn-
um, sem vinna endurgjaldslaust
að sinni list, en vilja síðan ráða
sjálfir hinum listrænu eignum
sínum".
ACCRA í Ghana 20. febr. (Reut-
er) — Bandarískur sérfræðingur
að nafni William Voorduin er
kominn til Ghana til að rannsaka
vatnskortinn 1 Accra höfuðborg
landsins og hvernig bæta megi
úr því vandræðaástandi, sem
skapazt hefur við langvarandi
þurrka. f dag ræddi hann við
Nkrumah forsætisráðherra, sem
hefur miklar áhyggjur af þessu
máli, en hreinlæti og heilbrigðis-
háttum í borginni hefur mjög
farið aftur við þurrkana, sem
eru þeir verstu, sem nokkru sinni
hafa yfir landið dunið. Borg-
in fær vatn úr Densu-fljóti
skammt frá en fljótið er nú að
heita má þurrt.
Bátar aftur á sjó
EFTIR hina nær samfelldu land-
legu, sem verið hefir í febr.
hér suðvestanlands, var loks róið
nokkuð almennt frá verstöðvun-
um í fyrrinótt. Afli var yfirleitt
í tregara lagi, algengast frá 5
og upp í 8 lestir. — Ekki var
fullljóst í gærkvöldi, hvort al-
mennt yrði róið í nótt, þar sem
veðurspá var í lakara lagi. —
Yfirleitt var leiðindaveður á mið
um bátanna í fyrrinótt og fram
á morgun, en fór batnandi, er
á daginn leið.
Frá Keflavík reru allir bátar
nema 5, og var aflinn 5 til 8
lestir. 17 bátar reru frá Grinda-
vík og höfðu 4—7,7 lesta afla.
Enginn af Akranesbátum fór á
sjó, en einn reri í gærmorgun
frá Vestmannaeyjum.
Kýpur —
Framh. af bls. 1.
fagna þeim.
Búizt er við því, að Makaríos
haldi til Kýpur einhvern næstu
daga, en Menderes var enn í
sjúkrahúsi í gær og hafði ekki
náð sér að fullu eftir flugslysið.
I. O. G. T.
Unglingastúkan Unnur nr. 38
Fundur á morgun kl 10 f.h. í
G.T.-húsinu. Kvikmynd og fleiri
skemmtiatriði.
— Gæzlumaður.
Barnastúkan Díanna nr. 54
50 ára afmælishátíð stúkunnar
verður á morgun kl. 2 e.h. í Templ
araihöllinni. —
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Leikþáttur og fleira.
3. Góðar og miklar veitingar.
Félagar, mætið öll og takið með
ykkur nýja félaga.
— Gæzlumenn.
Samkomur
Fíladelfia
Sunnudagaskóli kl. 10,30. — Á
sama tíma í Eskihlíðarskóla. Að
Herjólfsgötu 8, Hafnarfirði kl.
1,30. — Brotning brauðsins kl. 4.
Almenn samkoma kl. 8,30. Ræðu-
menn: Þórarinn Magnússon og
Ásmundur Eiríksson. — Allir
velkomnir!
SkíðaferSir um helgina
Laugardaginn 21, febr. kt. 2 &
Hellisheiði, kl. 6 á Hellisheiði, kL
2,30 Skálafelli. — Sunnudagsmorg
un kl. 9, Hellisheiði, kl. 10 Hellis-
heiði. — Firmakeppni Skíðaráðs
Reykjavíkur byrjar kl. 11, ferðir
frá B. S. R.
Skíðafélögin í Reykjavík.
K. F. U. M. — Á moigun:
Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn.
Kl. 10,30 f.h. Kársnessdeild.
Kl. 1,30 e.h. Drengir.
Kl. 8,30 e.h. Samkoma, Júhannes
Sigurðsson prentari talar. — Allir
velkomnir.
Körfuknattleiksmót ÍFRN
Þessir skóla keppa mánudagink
23. febr.: Menntaskólinn á Laug-
arvatni og Kennaraskólinn kl. 13.
Héraðsskólinn á Laugarvatni og
Verzlunarskólinn kl. 14. Gagn-
fræðaskóli landsprófsins og Gagn-
fræðaskóli Vesturbæjar B-Iið kL
14,45. Menntaskólinn í Reykjavík
og Gagnfræðaskóli verknámsin*
B-lið kl. 15,30. -— í kvennaflokki t
Menntaskólinn og Kennaraskólinn
kl. 16,15. Verzlunarskólinn og
Hagaskólinn kl. 16,45. Menntaskól
inn á Laugarvatni, piltar og Há-
skólinn kl. 17,15. — Stjórnin.
COBRA
gólfbón. Það er hið rétta.
Heildsölubirgðir
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
Sími 1-14-00.
1 Siml 15300
| Ægisgötu 4
Nýkomnar
málningar-
sprautur
ásamt auka-
könnum og
munnstykkjum
Félagslíi
Aðalfundur Iþróttafélags kvenna
var haldinn nýlega. Stjórnina
skipa nú: Frk. Fríður Guðmunds-
dóttir, formaður. — Meðstjórnend
ur: frú Ellen Sighvatsson, frk.
Jóhanna Eiríksdóttir, frk. Sæunn (
Magnúsdóttir, frú Elísabet Jóns- j
dóttir. — Eins og að undanförnu
hélt félagið uppi fimleikakennslu
og skíðafarðum. Voru farnar skíða
ferðir um flestar helgar í fyrra-
vetur. — Félagið hyggst að beita
sér fyrir aukinni fimleikákennslu
fyrir konur á öllum aldri.
Ungling
vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi
Nesveg
(Nesvegur og Granaskjól)
JHwgimMaftib
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
70 óra afmæli Glímufélagsins
Armanns
verður haldið í Sjálfstæðishúsinu laugardagixut 2L
febr. kl. 6,30.
Aðgöngumiðar að dansleik fyrir félagsmenn og gesti
þeirra, er hefst að loknu borðhaldi, verða seldir við
innganginn.
Dökk föt STJÓRNIN
Jazzklúbbur Reykjavíkur
Klúbburinn opnar U. 2,30 í dag,
í Framsóknarhúsinu. — Dagskrá:
1. Plötukynning.
2. Jazzkvikmynd.
3. „Tlot Session“.
4. „Cool Session“. 1
Eiginmaður minn
ÓSKAR ARNASON
rafv.m. Hringbraut 41,
andaðist að Landakotsspítala hinn 19. þ.m.
Olga Arnason
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug, vegna
andláts og jarðarfarar konu minnar og dóttur okkar
GUÐRÚNAR KARLSDÓTTUR
Sigurður Hallgrímsson,
Maria Hjaltadóttir, Karl Guðmundsson.