Morgunblaðið - 21.02.1959, Side 16
VEÐRID
Suffaustankaldi meff slyddu
___og síffan rigningu._
Bœjarmálefni
Sjá bls. 9.
Aðeins einn bjarghringur
fannst við leitina í gœr
t GÆR var enn leitað með fjör-
um suður á Reykjanesskaga, ef
ske kynni, að einhverju skolaði
t>ar á land úr Hermóði. Var
einkum leitað milli Kalmans-
tjarnar og Merkiness, en þar hef-
ur flest það komið á land, sem
hingað til hefur rekið úr skip-
inu. — Ekki fundu leitarmenn í
gær annað en einn bjarghring,
«em merktur var Hermóði.
Þeir, sem leituðu í gær, voru
menn úr slysavarnadeildinni í
Höfnum, ásamt Hermanni Sig-
urðssyni á Kalmanstjörn, svo og
gamlir skipsfélagar áhafnarinnar
á Hermóði.
★
Þessu til viðbótar er eftirfar-
andi tilkynning frá landhelgis-
gæzlunni:
Leitinni að vitaskipinu Her-
móði var haldið áfram í allan
gærdag, og tók m. a. þátt í henni
varðskipið María Júlía, sem leit-
aði grunnt undan ströndinni frá
Garðskaga að Reykjanesi. Gæzlu
flugvélin Rán flaug með allri
ströndinni frá Grindavík, inn
Faxaflóa, um Mýrar og út Snæ-
fellsnes allt að öndverðarnesi og
til baka aftur, auk þess sem hún
svipaðist um í sjálfum flóanum.
Hvorugt þeirra varð þó vart
nokkurs frekar um afdrif skips-
ins, en þegar er kunnugt.
Leitinni verður haldið áfram í
dag.
Nýr þáttur í starfsemi Varðar
Skemmtun í Sjálfstœð-
ishúsinu annað kvöld
^ANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörð-
ur hefur nú ákveðið að efna til
skemmtana fyrir félagsmenn
og gesti þeirra undir heitinu:
Varffarfagnaöur. Verða haldnar
kvöldskemmtanir í Sjálfstæðis-
húsinu eftir því sem henta þyk-
ir. Leitazt verður við að hafa
uppi nýjungar í skemmtiatrið-
um og stilla verði aðgöngumiða
mjög í hóf. Fyrsti Varðarfagn-
aðurinn verður í Sjálfstæðis-
húsinu annað kvöld.
, Þaff er gert ráff fyrir aff
fyrsta dagskráratriði hvers
Varðarfagnaffar verffi for-
spjall. Þetta forspjall verður
jafnan flutt af þjóffktunnum
manni. Því er ætlaff aff fjalla
um stjórnmál, en vera flutt af
manni, sem er fremur kunn-
ur fyrir annað en afskipti af
stjórnmálum. Fyrsti ræðumaff-
ur í þessu hlutverki Varffar-
fagnaffarins verffur Bjarni Guff
xnundsson, blaðafulltrúi. Af
öffrtum sem lofaff hafa að flytja
síffar forspjallið má nefna dr.
Pál Isólfsson og Tómas Guð-
mundsson, skáld.
Eftir forspjallið koma skemmti-
atriði, sem verða með sínum
hætti á hverjum Varðarfagnaði.
Annað kvöld verður m.a. sýndur
þáttur úr leikritinu „Víxlar með
afföllum“ eftir Agnar Þórðarson,
sem hlaut hinar miklu vinsældir
í útvarpsflutningi á sl. ári. Á síð-
ari Varðarfögnuðum mun verða
reynt að koma upp skemmtiatrið-
um, sem félagsmenn sjálfir leggja
til.
Þá mun og á hverjum Varðar-
fagnaði verða dansað. Inn í dans-
inn verður fléttað Icikjum og
skemmtiatriðum eftir því sem
samkvæmisgestum sjálfum þókn-
ast. Stjórn dansins mun Axel
Helgason hafa á hendi.
Þess er að vænta að Varðar-
félagar sæki þessar skemmtanir
sínar því að Varðarfagnaðurinn
á að vera bezta og ódýrasta
skemmtunin. 1
Sansu" aðgerðarlaust
//
VEÐRAHAMURINN undan-
farið hefir víða hamlað störfum
og alls konar framkvæmdum og
valdið margvíslegu tjóni, svo
sem kunnugt er. — Sanddælu-
Stjórnarkjör í
Járniönaðarmanna
hefst i dag
Listi lýðrœðissinna er B-listinn
STJÓRNARKJöR fer fram í Félagi járniðnaðarmanna nú um helg-
ina. Kosið er í skrifstofu félagsins, Skólavörðustíg 3, og hefst kosn-
;ngin kl. 12 í dag og stendur til kl. 8 síðdegis. Á morgun hefst kosn-
ingin kl. 10 árdegis og stendur til kl. 6 síðdegis og er þá lokið.
Tveir listar eru í kjöri: B-listi, sem skipaður er lýðræðissinn-
um og studdur af andstæðingum kommúnista í félaginu, og svo A-
listi kommúnista.
skipið Sansu kom til Akraness
fyrir tæpum mánuði til þess að
dæla skeljasandi upp úr Faxa-
flóa fyrir Sementsverksmiðjuna.
Vegna illviðranna hefir Sansu
hins vegar ekki getað sótt nema
tvo farma á „miðin“ á þessum
tíma, og hefir skipið lengst af
legið hér í Reykjavíkurhöfn, en
þar er meðfylgjandi mynd tek-
in.
Samúðarskeyti
SENDIHERRAR Bandaríkjanna,
Svíþjóðar, Frakklands, Danmerk
ur, Þýzkalands, Bretlands og
Noregs, hafa vottað utanríkisráð-
herra samúð sína, þjóða sinna og
ríkisstjórna vegna hinna miklu
mannskaða, er íslendingar hafa
orðið fyrir undanfarna daga.
Jafnframt hafa borizt samúð-
arkveðjur frá sendiráðum íslands
og íslendingum í Noregi og Dan-
mörku.
Vísitolon 6 stig-
um lægri en í
jnnúnr
MBL. barst í gær svohljóðandi
tilkynning frá viðskiptamálaráðu
neytinu:
„Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu framfærslukostnaðar
í Reykjavík hinn 6. febrúar sl.,
og reyndist hún vera 206 stig“.
Þess má geta hér til viðbótar,
að er vísitala framfærslukostn-
aðar var síðast reiknuð út, í byrj-
un janúar, reyndist hún vera 212
stig, og hefur hún þannig lækkað
um 6 stig undanfarinn mánuð.
Nær mánaðar
landlega
AKRANESI, 20. febr. — Heita
má, að hér hafi verið landlega í
25 daga samfellt, eða síðan 26.
janúar. — Tíðin hefir verið með
afbrigðum stormasöm, oft stór-
viðri og stundum fárviðri. — Að
vísu voru bátarnir hérna á sjó
2. eða 3. febrúar, línubátarnir 14,
allir með tölu, en þeir höfðu
lítið annað en hrakninginn, og
7 þeirra töpuðu frá 9 til 20
bjóðum hver. Daginn eftir fóru
svo þessir bátar aftur út og fundu
sumt af línunni, en hvergi nærri
allt.
Hlutavelta Óðins
HLUTAVELTA Óffins verffur
lialdin í Listamannaskálanum á
sunnudaginn kemur. Trúnaffar-
menn og affrir félagsmenn, sem
aðstoffa vilja viff hlutaveltuna,
eru beðnir aff gefa sig fram
strax.
★
KÓPAVOGUR
Fulltrúaráð Sjálfstæffisfélaganna
í Kópavogi heldur fund n. k.
sunnudag kl. 15,30 í Sjálfstæffis-
húsinu í Reykjavík. Bjarni Bene-
diktsson ritstjóri ræffir um stjórn
málaviðhorfiff.
★
Varðarkaffi í ValhÖll
í dag kl. 3-5 s.d.
B-listi lýðræðissinna er þannig skipaður:
Happdræftið
AFGREIÐSLAN í Sjálf-
stæðishúsinu er opin til kl. 5
í dag, sími 17104.
Gerið skil sem fyrst.
Loftur Ólafsson, formaður,
Bæjarsm.
Þorvaldur Ólafsson, varafor-
maður, Hamri.
Ármann Sigurðsson, ritari,
Héðni.
Ingólfur Jónsson, vararitari,
Kr. Gíslasyni.
Rafnar Sigurðsson, fjármálarit-
ari, Héðni.
Sveinn Hallgrímsson, gjald-
keri, Vegagerð ríkisins.
Trúnaffarmannaráð
Sigurjón Jónsson, Sindra.
Ragnar Krúger, Landssmiðj-
unni.
Rögnvaldur Axelsson, Stál-
smiðjunni.
Þórður Guðnason, Bjargi.
Varamenn
Páll Guðmundsson, Steðja,
Hermann Hermannsson, Bæjar-
smiðjunni, Magnús Magnússon,
Tækni.
Þess er fastlega vænzt að járn-
smiðið mæti vel á kjörstað og
vinni að sigri B-listans.
Fulltrúaráð
Heimdallar
ÁRÍÐANDI fundur í fulltrúaráði
Heimdallar í dag klukkan 14.
Rússneska sendiráðið
kvartar yfir Morgunbl.
SENDIRÁÐ RÚSSA hér á landi sneri sér nýlega til dóms-
málaráðuneytisins og kvartaði yfir grein, sem birtist í
janúar sl. á æskulýðssíðu Morgunblaðsins. Var þar m. a.
skýrt nokkuð frá ferli Voroshilovs, forseta Sovétríkjanna.
Mun sendiráðinu ekki hafa fundizt nægilega virðulega talað
um hann í fyrrnefndri grein.
Nú hefur dómsmálaráðuneytið falið sakadómara að
hefja rannsókn í máli þessu. Hafa ritstjórar æskulýffssíð-
unnar og ábyrgðarmaffur blaðsins verið kvaddir á fund
hans. Engin ákvörffun hefur ennþá verið tekin um það,
hvort mál verði höfffað á hendur Morgunblaðinu fyrir aff
hafa ekki talað nógu virffulega um Voroshilov og þá hæfi-
leika, sem menn verði að vera gæddir til þess að komast
í hinar æðstu trúnaðarstöður í Sovétríkjunum.
Fundur um
steinuskrú Heimdullar
A SlÐASTA aðalfundi Heimdallar var stjórn félagsins falið að sjá
nm endurskoffun stefnuskrár félagsins fyrir næsta aðalfund. Stjórn
Heimdallar kaus því á sl. hausti nefnd til þess að hrinda verkinu
í framkvæmd. Skipti hún stefnuskránni niður í fimm málaflokka
og skipaffi nefndir til þess aff gera tillögur í hverjum málaflokki
fyrir sig. Er nú störfum flestra þessara nefnda að verffa lokiff.
Nú hefur verið ákveðið að halda félagsfundi um álit nefnd-
anna, en affalfundur Heimdallar í marzbyrjun gengur endanlega
frá stefnuskránni.
Fundirnir verða haldnir sem hér segir:
Sunnudaginn 22. febrúar kl. 14: EFNAHAGSMÁL.
Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20.30: STJÓRNARSKRÁIN OG
UTANRÍKISMÁL.
Sunnudaginn 1. marz kl. 14: TRYGGINGAMÁL OG MENN-
INGARMÁL.
FYRSTI FUNDURINN VERÐUR SAMKVÆMT ÞESSU Á
MORGUN, sunnudag, og hefst kl. 14. Verffur þar tekiff til umræðu
álit efnahagsmálanefndar. Um framsögumenn nefndarinnar verður
tilkynnt í blaðinu á morgun. Fundirnir verða haldnir í félags-
heimili Sjálfstæöismanna, Valhöll við Suðurgötu.