Morgunblaðið - 07.03.1959, Qupperneq 2
MORCUNBL AÐIh
Laugaridagur 7. marz 1959
Hljóðmerkin berast
648.567 kílómetra
NEW YORK, 6. marz. (NTB-
Reuter). — Bandarísk útvarps-
stöð náði um hádegið í dag
greinilegum hljóðmerkjum frá
bandaríska gervitunglinu Pioneer
IV, sem þá var kominn um 648.-
567 kilómetra út í geiminn. Hljóð
merkin heyrðust í útvarpsstöð
„General Electric Company“ í
New York-ríki. Formælandi fyrir
tækisins sagði, að þetta væri í
fyrsta sinn, sem hljóðmerki heyrð
ust frá senditæki svo langt úti í
geimnum. Pioneer IV var skotið
á loft frá Canaveral-höfða á
Florida á þriðjudaginn, og er bú-1
izt við að gervihnötturinn fari
á braut umhverfis sólina.
Einn af helztu sérfræðingun-
um við stjörnuturninn í Jodrell
Bank í Englandi sagði fyrr í dag,
að ef hleðslurnar í senditækjum
gervihnattarins entust, mundi
vera hægt að fylgjast með hon-
um sex til sjö hundruð þúsund
kílómetra út í geiminn. Forstjóri
stjörnuturnsins, Lovell prófessor,
sagði að hljóðmerkin væru miklu
sterkari en búizt hefði verið við.
Hraði gervihnattarins er nú áætl-
aður 6700 til 6800 kílómetrar ú.
klukkustund.
CrundfírÖings II.
kom í góðar þarfir
Ofœrf um Crundarfjörð eftir óveðrið
GRUNDARFIRÐI, 6. marz — Að-
faranótt 4. þ. m. reru allir bátar
frá Grundarfirði og lögðu lóðir
sínar á venjulegum fiskislóðum.
Um hádegi hinn 5., þegar bátarn-
ir voru langt komnir að draga
línuna brast á norðaustan stór-
hríð með mikilli fannkomu. —
Hélzt svo allan daginn og alla
næstu nótt. Af þessu leiddi að
bátarnir lentu í erfiðleikum að
ná landi og tóku sumir þann
kostinn, að láta út dufl og and-
æfa við það.
Einn bátur úr Grundarfirði,
Grundfirðingur II, skipstjóri og
eigandi Zóphonías Cecilson, er
útbúinn radartækjum og tók
hann að sér að leiðbeina hinum
bátunum í land. Hann varð að
fara nokkrum sinnum til þess að
leita að hverjum bát og fylgdi
þeim síðan upp á Grundarfjörð,
en svo dimm var hríðin að bát-
arnir sáu ekki ljósin í þorpinu
fyrr en þeir komu alveg að
bryggjunum.
Óhætt er að fullyrða að sumir
þessara báta hefðu ekki náð
landi fyrr en daginn eftir, ef þess
arar aðstoðar hefði ekki notið
við. Var klukkan orðin 5 á
fimmtudagsmorgun, þegar Grund
firðingur II hafði leiðbeint síð-
asta bátnum til lands.
Þess má geta, að radarinn í
Grundfirðingi II hafði verið í
ólagi, en daginn áður en þetta
gerðist, kom hann úr viðgerð
með strandferðaskipi úr Reykja-
vík.
í þessu veðri gerði mikla ófærð
hér í Grundarfirði. Voru skafl-
arnir utan við sum húsin á aðra
mannhæð í gærmorgun, þegar
komið var út. Má kalla ófært um
þorpið, en hér eru engin mokstr-
arverkfæri, og horfir til hreinna
vandræða ef ekki verður úr bætt.
Að sjálfsögðu eru allir vegir að
og frá þorpinu tepptir. — E. M.
Kosningar í
Austurríki í maí
VÍNARBORG, 6. marz. NTB-
Reuter. — Sósíalistaflokkur Aust
urríkis, sem hefur verið við völd
í landinu ásamt íhaldsflokknum
frá stríðslokum, varð í dag við
kröfum íhaldsmanna um að efna
til þingkosninga í maí. í dag sak-
aði leiðtogi íhaldsflokksins,
Julius Raab, forsætisráðherra,
sósíalista um að hafa verið and-
vígir því að stefnuskrá stjórnar-
innar frá 1956 yrði hrundið í
framkvæmd.
Frá keppni körfuknattleiksliðanna á sunnudaginn. Birgir Birnir
skorar fyrir islenzka „tilraunalandsliðið“.
„Su dagsetning er
ekki í dagbókum
okkar/y
Vlnarborg, 6. marz (Reuter). —
WILLY Brandt yfirborgarstjóri
Vestur-Berlínar sagði í Vínarborg
í dag, að ef Austur-Þjóðverjar
undirrituðu sérstaka friðarsamn-
inga við Rússa, þá ætti Vestur-
Berlín ekki annars úrkosta en
sameinast Vestur-Þýzkalandi.
Brandt kom við í Vínarborg á
leiðinni heim úr för sinni um
Bandaríkin, Kanada og ýmis
Fréttir i stuttu máli
Canberra, 6. marz. Reuter.
— Um 20.000 af þeim 309.455
Bretum, sem fluttust til Ástralíu
á árunum 1947—1958, fóru aftur
heim til Bretlands innan tveggja
ára.
■fc Rómaborg, 6. marz. Reuter.
— Öflugur lögregluvörður gætir
nú austurrísku menningarstofn-
unarinnar í Róm, eftir að ítalsk-
ur æskulýður stórskemmdi bygg-
inguna með benzínsprengju í
gærkvöldi. Rósturnar í Róm
stafa af deilum ítala og Austur-
ríkismanna um Suður-Tyrol.
Oporto, Portúgal, 6. marz.
Reuter. — Níu manns særður og
8 manns er saknað, eftir að vegg-
ur einn frá 14. öld, sem stóð í
einu fátækrahverfi Oporto-borg-
ar, hrundi yfir átta hús í hverf-
inu. —
Stœrsfa skip er smíðað
hefur verið í Evrópu
GAUTABORG. 6. marz Einka-
skeyti til Mbl. — Uni hádegi á
morgun verður stærsta skipi, sem
smíðað hefur verið í Evrópu,
hleypt af stokkunum í Udde-
valla sem er bær með 31.000 íbú-
um skammt fyrir utan Gauta-
Eining
í Baridaríkjunum
Washington, 6. marz.
NTB — Reuter.
Repúblikanar, sem fara með rík-
isstjórn Bandaríkjanna, og demó-
kratar, sem eru í minnihluta 'í
báðum deildum þjóðþingsins, eru
algerlega sammála um stefnu
Bandarikjanna varðandi Berlín
og Þýzkalandsmálið. Þetta kom
fram í dag á fundi Eisenhowers
við leiðtoga beggja flokka.
Macmillan fer vestur
17. marz
LONDON, 6. marz NTB-Reuter.
Macmillan forsætisráðherra
Breta kemur til Washington 19.
marz til að ræða við Eisenhower
Bandaríkjaforseta. Þær viðræð-
ur hefjast 20. marz og standa yf-
ir nokkra daga, en fyrst mun
Macmillan eiga viðræður við
Diefenbaker forsætisráðherra
Kanada, og þangað flýgur hann
17. marz. í för með Macmillan
verður Lloyd utanríkisráðhérra.
Viðræðurnar snúast fyrst og
fremst um Berlínarvandann og
Þýzkalandsmálið, og svo um
heimsókn Macmillans til Sovét-
ríkjanna. Ekki hefur komið til
orða að kalla aðra vestræna leið-
toga til fundar þeirra Macmill-
ans og Eisenhowers.
borg. Skipið, sem er olíuflutn-
ingaskip, er eitt af sex skipum
sömu stærðar, sem skipasmíða-
stöðin er að byggja fyrir Ameriku
markað.
Stærð skipsins er 68.000 tonn
og hafa um 19.000 tonn af stáli
farið í smíðina. Eftirvæntingin er
mikil á staðnum, en enginn af
verkfræðingunum við skipasmiða
stöðina veit, hve hratt svo stórt
skip rennur af stokkunum, en
reiknað er með 6—7 metrum á
sekúndu. Fólk kemur hvaðan-
æva úr heiminum til að vera við-
statt athöfnina á morgun, m.a.
frá Ameríku, Ítalíu og Frakk-
landi. — Fréttaritari.
Vilja starfa að
sjávarútvegs-
framleiðslu
EFTIRFARANDI ályktun var
gerð á fjölmennum málfundi í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar 6.
marz 1959.
„MÁLFUNDUR haldinn í Gagn
fræðaskóla Austurbæjar lýsir því
yfir, að nemendur skólans séu
fúsir til að starfa að sjávarút-
vegsframleiðslu þjóðarinnar, e£
þess gerist þörf“.
Ríkti á fundinum mikill ein-
hugur um þetta þjóðþrifamál,
tóku margir til máls, og var þetta
samþykkt með öllum atkvæðum.
Asíulönd. Hann kvaðst fagna
ræðu Krúsjeffs í Leipzig í gær,
þar sem hann bauðst til að fram
lengja frestinn, sem Rússar höfðu
sett í sambandi við lausn Berlín-
armálsins.
„Ég hef ævinlega fullvissað
samlanda mína um að ég tryði
ekki á tímatakmörkin sem Rúss-
ar settu okkur með 27. maí. Við
höfum aldrei skrifað þessa dag-
setningu í dagbækur okkar, af
því að við berum fullt traust til
vina okkar um allan heim“, sagði
Brandt. „Ég trúi því að gerðir
verði samningar um Berlínardeil
una, og að Vestur-Berlín muni
losna úr þeirri úlfakreppu, sem
hún er í eins og stendur".
Athuga um kaup
á nýjum togara
HAFNARFIRÐI: — Forstjórar
Bæjarútgerðarinnar eru nýlega
farnir til Englands og Vestur-
Þýzkalands til að leita fyrir sér
um kaup á nýjum togara í stað
Júlí. Einnig verða athugaðir
möguleikar á að fá togara leigðan,
ef ekki verður úr kaupum. Er
brýn nauðsyn fyrir útgerðina að
fá a. m. k. einn togara, svo að
Fiskiðjuverið hafi jafnan næg
verkefni, en æskilegast væri að
hingað yrðu keyptir tveir ný-
tízku togarar. — G.E.
Frá Alþingi
FUNDIR voru settir í báðum
deildum Alþingis á venjulegum
tíma í gær. Tvö mál voru á dag-
skrá efri deildar. Frumvarp um
vöruhappdrætti Sambands ís-
lenzkra berklasjúklinga var til 1.
umræðu og vísað til 2. umræðu
og fjárhagsnefndar með sam-
hljóða atkvæðum. Frumvarp um
breytingar á lögum um almanna-
tryggingar var til 1. umræðu og
vísað til 2. umræðu og heilbrigð-
is- og félagsmálanefndar sam-
hljóða.
Tvö mál voru á dagskrá neðri
deildar. Frumvarp um breytingu
á lögum um almannatryggingar
var til 1. umræðu og vísað til 2.
urhræðu samhljóða og frumvarp
um sölu Bjarnastaða var til 2.
umræðu og vísað til 3. umræðu
samhljóða.
Að loknum fundi í neðri deild,
sem boðaður hafði verið, voru
haldnir tveir fundir og lokið um-
ræðum í deildinni um frumvarp
um breytingar á kosningalögún-
um.
Góður afli
DALVÍK, 6. marz. — 1 gær og
í dag landaði hér Snæfell 30 lest-
um og Björgvin 18 lestum af
þorski, er þeir fengu á tveimur
sólarhringum. Aflinn er unninn í
frystihúsi KEA. Björgvin varð
fyrir því óhappi að missa trollið.
Óvíst er hvenær hann fer út aft-
ur. — SPJ.
Bezti afladagur
Sty kkishólmsbáta
STYKKISHÓLMI, 6, marz — 3
bátar voru á sjó í dag. Var þetta
bezti afladagurinn á árinu. Afla.
hæstur var Svanur með 12 tonn.
Hinir fengu 9 og 7 tonn. Einn
bátur kom af netjaveiðum eftir
þrjá daga og mun hafa haft
9—10 tonn. — Fréttaritari.
Heildarsöfnun
Mbl. 686 þús.
SÖFNUNIN til aðstandenda
þeirra, sem fórust með Júlí og
Hermóði heldur áfram. í gær
tók Morgunblaðið við um 56 þús.
krónum og er héildarsöfnun blaðs
ins þá orðin kr. 686.443.85.
Aðalfundur Verzl-
unarsparis j óðsins
AÐALFUNDUR Verzlunarspari-
sjóðsins verður haldinn í Þjóð-
leikhúskjallaranum í dag kl.
2,30 e. h.
Formaður stjórnarinnar, Egill
Guttormsson, stórkaupmaður,
flytur skýrslu um starfsemi
sparisjóðsins á liðnu ári og fram
verða lagðir reikningar síðasta
árs. Á fundinum fara fram öll
venjuleg aðalfundarstörf.
Stuttur
langur
leikur —
eftirleikur
LONDON, 6. marz. Reuter. —
Edward Lenihan, 21 árs gamall
myndarlegur maður, og brúður
hans, Mary, þrýstu hendur hvors
annars í heitri ást þegar brúð-
kaupsgestirnir komu til þeirra og
óskuðu þeim lángra og hamingju-
samra lífdaga í hjónabandinu.
Þessi hátíðlega athöfn átti sér
stað í bóndabýli nálægt New-
castle á írlandi. Á hálfu andar-
taki umhverfðist þetta klukku-
stundar gamla hjónaband í ó-
gæfu. Kona nokkur á meðal gest-
anna sakaði brúðina um að vera
helmingi eldri en brúðguminn
og eiga tvö börn.
Mary rauk á dyr í brúðarskarti
sínu og hljóp heim til sín.
Þetta var fyrir 13 árum.
Síðan hafa Edward og Mary
ekki búið saman og ekki skipzt
á einu einasta orði. Edward, sem
nú vinnur í London, fékk hjóna-
bandið ógilt i gær á þeim for-
sendum, að eiginkonan hefði ekki
rækt skyldur eiginkonunnar.
4