Morgunblaðið - 07.03.1959, Page 9

Morgunblaðið - 07.03.1959, Page 9
Laugardagur 7. marz 1959 MORC.VISBLAÐIÐ 9 EINU SINNI, fyrir langa löngu, I á mælikvarða núlifandi .kynslóð- ar en fyrir stuttu á mæli kvarða sögunnar komu 18 dreng- ir saman í búð Gunnars Þor- bjarnarsonar. Slíkt þykir ekki í frásögur færandi í dag á tím- | um alls kyns skólabúða og sölu- | turna. En drengjunum þeim stóð j annað og meira í huga en að verzla. Búðin sem þeir hittust í s'óð ] á þeim stað þar sem nú stendur Morgunblaðshúsið. f fyrrinótt voru á sama stað sett saman þessi ófullkomnu sögubrot félagsins, sem drengirnir 18 stofnuðu — félagsins sem í dag er elzta, segj- um fótboltafélag (til heiðurs við stofnendurna) og stærsta íþrótta félag landsins. Félagið þekkir hvert mannsbarn — Knattspyrnu félag Reykjavíkur. Drengirnir í búðinni skírðu félagið „Fótboltafélag Reykja- víkur“. Hópur þeirra stækkaði og töldust brátt 28 í hópnum. Enn hittast margir KR-ingar í búð á sama stað og félagið var stofnað til skrafs og ráðagerða. Búðin heitir nú Bókabúð Lárusar Blön- dal. Drengirnir bekktu lítt til skrif- finnsku i þá daga og sömdu vist aldrei félagslög, og gjöld þurftu þeir eigi önnur að greiða en þau er þurfti fyrir knetti. En knettirnir voru innfluttir frá Liverpool. Flestir munu hafa lagt 25 aura af mörkum við bolta- kaupin hvert sinn. Það voru þessir piltar sem léku fyrsta knattspyrnukappleikinn sem háður var hér á landi. Þeir skiptu í lið eftir hlutkesti — því annað félag en „Fótboltafé- lag Reykjavíkur" var ekki til þá. Þessir menn ruddu veginn, lærðu, kynntu og kenndu knatt- spyrnu sem tugþúsundir íslend- inga hafa notið á öllum árum sxðan. Féiag drengjanna var stofnað um knattspyrnuíþróttina og æ síðan hefur KR verið forystufé- lag í knattspyrnumáium og um löng tímabil „bezta knattspyrnu- félag landsins“. Þetta varð úr hinum mjóa vísi drengjanna. Fast form komst á félagið 1910 eftir mikinn vakningai'fund, og eftir það eru til skilmerkileg fé- 'lagslög og fundargerðir sem yf- ir löng tímabil eru forkunnarvel gerðar og spegilmynd íþróttalífs í landinu. Sú saga sem í fundargerðum KR er fólgin, geymir frásagnir um snarpar deilur innbyrðis miili ungra en ákafra manna, hún geymir kafla úr hvatningarræð- um svo eldheitum að jafnvel hjarta hins daufasta manns fer á sprett, hún geymir frásagnir um sigra félagsmanna KR, suma svo stóra að öll þjóðin og jafnvel fleiri þjóðir hafa hrifizt eins og t.d. er tveir KR-ingar hlutu Evrópumeistaratitil í frjálsum íþróttum 1950. Aðrir sigrar eru minni en félaginu sem heild engu síður kærir og þarfir. En það sem skilur KR mest frá öðrum félögum er hinn mikli félagslegi sigur þeirra á síðari árum og sú sigurganga félagsins stefnir mi æ hærra og síðustu dæmin eru hinar myndarlegu byggingar við Kaplaskjólsveg og hinn glæsti skíðaskáli í Skálafelli svo eitt- hvað sé nefnt. Hvort hefur þá ekki uppátæki drengjanna í Gunnarsbúð 1899 orðið til góðs? Um það þarf ekki að efast. Þjóðin er rík í vissum skilningi meðan meðal hennar eru til fé- lög á borð við KR. f þeirri stuttu grein sem hér gefst rúm til að birta um KR sex- tugt verður ógerningur að rekja svo nokkru nemi sögu félagsins. Aðeins verður stiklað á einstök- um atriðum, kannski af þekking- ar- og gáleysi sleppt einhverju mikilsverðu en ýmislegt mark- vert tínt fram. Knattspyma Fyrstu 20 ár félagsins helgaði það sig eingöngu knattspyrau og gekk á ýmsu um mátt þess og megin. Það var allt á þessu tímabili — sterkt, veikt, sundurlaust unz vakningin kom 1910. Og hugsum okkur aðstöðu- muninn. Þá ekki síður en nú snörp átök — átök sem kannski bara efldu félagið. Knattspyrnusigrar KR eru fræg ir. Félagið hefur stundum haldið öllum verðlaunagripum allra flokka í senn. En á ýmsu hefur þó oltið, eins og gengur. En æðsta bikar ísl. knattspyrnu hafa KR-ingar unnið alls 15 sinnum eða oftar en nokkurt annað fé- Talið frá hægri: Kristján L. Gestsson, sem var upphafsmaður margra sérdeilda KR. í miðið Erlendur Ó. Pétursson, mesta sameiningartákn KR og t. v. Guðmundur Ólafsson, einn skel- eggasti forystumaður KR á knattspyrnusviðinu. Fyrstu Islandsmeistarar KR 1912. [ jáns L. Gestssonar, sem hóf máls | á því „að æfa hlaup þar til völl-1 urinn yrði nothæfur til knatt-1 spyrnu. Slíkar hlaupaæfingar | • væru reglulegur nauðsynjaundir- búningur fyrir knattspyrnuæfing- 1 ar“. Það tókst misjafnlega, en stefnt var að þátttöku í Víða- ] vangshlaupi ÍR. „Æfingarnar ! voru sniðnar eftir aldarhættin- um“, segir Brynjólfur Ingólfsson í gömiu afmælisriti KR. Segir hann að síðan 1925 hafi þannig verið æft, að „hlaupararnir klæddu sig úr í Haraldarbúð á sunnudagsmorgnum og hlupu svo snöggklæddir inn í Sund’augar, hvérnig sem viðraði, og alltaf í keppni“. En eftir 1920 eiga KR-ingar sí- vaxandi þátt í uppbyggingu frjáls íþrótta hérlendis og hafa um ára- bil verið sterkastir einstakra fé- laga, þó misjafnlega hátt hafi ris- ið „veldi“ þeirra. Margan frægan garpinn á þessu sviði hefur KR alið, t.d. menn eins og Magnús Guðbjörnsson, en frægastir KR-inga til þessa eru þeir Gunnar Huseby og Torfi Bryngeirsson, sem unnu það af- þurfti völl til að iðka knatt- spyrnu, en þá var bara enginn völlurinn til. Það þurfti svolítið meira en löngunina eina til að leika knattspyrnu í þá daga. Og knattspyrnumenn ruddu völlinn að miklu leyti sjálfir hæði KR- ingar og önnur félög, sem síðar komu upp. Við tilkomu vallarins 1912 lifnaði verulega yfir íþrótt- um. Fyrsta meistaramót knatt- spyrnu var haldið og keppt um bikar þann sem enn er keppt um og einnig nafnbótina „bezta knattspyrnufélag fslands". Af þremur liðum sem kepptu vann KR. Árið 1915 var nafninu breytt úr upphaflegu heiti „Fótboltafélag Reykjavíkur" í „Knattspyrnufé- lag Reykjavíkur". Það kostaði lag. Hin síðustu ár hefur KR alltaf átt sterkt lið og vann m. a. ís- landsmeistara Akraness í auka- leik í sumar, þó Skagamenn séu handhafar bikarsins. En hvað merkast af öllu starfi KR á knattspyrnusviðinu eru unglingastarfsemin. í henni er , fólginn einn af stórsigrum KR, og mun sá sigur tryggja að nafni fé- lagsins verður hátt á loft haldið á komandi árum. Þessi starfsemi hefur kostað þrotlaust starf [ margra áhugamanna er viljað hafa vinna félaginu — og af slík- um mönnum er KR auðugt. Frjálsar íþróttir Fi jálsiþróttadeild KR var stofn úð 1919 fyrir frumkvæði Krist- Isiands- og Reykjavikurmeistarar KK í nandknattleik 19a». Fimm af beztu fimleika- mönnum KR að æfingu. rek að sigra á Evrópumóti, Gunn- ar tvívegis, Torfi einu sinni. Þess- ir menn og miklu fleiri hafa hænt og laðað æskumenn til íþrótta- iðkana til gagns fyrir þá sjálfa og þjóðina í heild. Fimleikar. Árið 1923 var fimleikadeild stofnuð innan félagsins. Forgöngu að því átti Kristján L. GeStsson einnig. Var vel af stað farið og komu 100—120 á fyrstu æfinguna, en æft var í tveim flokkum. Kenn ari 3 fyrstu árin var Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ. Var ötullega unnið næstu árin og tekið þátt í sýningum ásamt öðrum en fyrsta sýning KR fór fram 1930, öll saga fimleika í KR fyrstu árin er skilmerkilega sögð í fundarbók- um KR, en þáverandi ritari var Erlendur Ó. Pétursson heitinn. Sama ár og fyrsta fimleikasýn- ing félagsins var fékk KR eigið hús. Þá störfuðu innan félagsins 11 fimleikaflokkar hver með 30 þátttakendum. Ótaldar eru sýningar fimleika- flokka síðan, bæði í Reykjavík og utan og eins utanlandsferðir. En alls staðar hafa flokkarnir fengið góða dóma. Áhugi almenn- ings hefur minnkað á fimleika- íþróttinni og þar með fækkað í KR, en félagið hefur aldrei lagt niður fimleikaiðkun og á í dag á að skipa mjög góðum karla- flokki. Glíma Kristján L. Gestsson lét ekki við það eitt sitja, að stofna frjáls j íþróttadeild og fimleikádeild. [ Hann stofnaði líka ásamt Ben. G. Waage til glímuæfinga innan félagsins og enn kenndi Benedikt. Saga glímunnar innan KR varð þó slitrótt, lá niðri stundum en „blossaði“ upp á milli. Margt á- gætra glímumanna sem sannar- lega settu svip á glímumótin æfði í KR — „en nú er hún Snorra- búð stekkur .... “ Sund Enn liggja spor Kristjáns L. Gestssonar í nýja átt. Árið 1923 átti hann frumkvæðið að stofnun sunddeildar innan félagsins. Hin öra stofnun sérdeilda á þessum árum á rót sina að rekja til stiga- keppni félaganna á Allsherjar- mótinu, en það mót náði til sunds- ins m. a. Og þess var ekki lengi að bíða að KR setti hvað mestan svip á sundmót er haldin voru, og taldi í sínum hóp ýmsa af kunnustu sundgörpum landsins á síðari ár- um, t.d. Regínu Magnúsdóttur, Pétur Eiríksson, Rafn Sigurvins- son og síðast en ekki sízt Sigurð Jónsson. Hnefaleikar Árið 1919 hófst iðkun hnefa- leika hjá KR fyrir frumkvæði Eiríks Bech. En áhuginn dvínaði og lagðist iðkunin alveg niður við brottför hans af landinu. Vif heimkomu hans hófust hnefaleik ar aftur innan félagsins og meðal iðkenda_ var Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ. Fyrsta sýning félags- ins var 1927. Blés þó ekki byrlega fyrir íþróttinni þá, því að hún var almennt gagnrýnd og þótti líkari slagsmálum en íþrótt. Árið 1935 hófst nýtt blómskeið þessarar greinar hjá félaginu við tilkomu reglna er ÍSÍ'stóð að og tók Þorsteinn Gíslason við kennsl unni og skapaði mikið líf og fjör. KR iðkaði síðan. hnefaleika allt þar til er íþróttin var bönnuð af Alþingi og átti deild hnefaleika- iðkenda sinn þátt í félagsíifinu. Skíðadeildin. Má, eirrar deildar voru að nokkru rakin hér í blaðinu sL Frh. á bls. 15 KR. 60 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.