Morgunblaðið - 07.03.1959, Síða 15
Laugardagur 7. marz 1959 M O RG U 1\ B L A DIÐ, 15
Krúsjeff talar tvesm
tursgum
Evrópumeistarar KR, þeir Torfi Bryngeirsson og Gunnar Huseby,
Forseti Frakk-
lands heiðrar tvo
Islendinga
FORSETX franska lýðveldisins
hefur sæmt doktor Halldór Han-
sen, lækni, sem þar til nýlega
hefur verið yfirlæknir við Sankti
Josepsspítala í Reykjavík, Ridd-
aragráðu Frönsku Heiðursfylk-
ingarinnar (Chevalier de la
Légion d'Honneur).
Jón Gunnarsson, skrifstofu-
stjóri Hf. Hamars í Reykjavík
var sæmdur gráðu „Chevalier du
Mérite Maritime“.
Heiðursskjöl þessi og orður
hafa verið afhent viðkomandi af
sendiherra Frakka á íslandi,
herra Voillery, við móttökur, er
haldnar voru við þessi tækifæri.
Hriðarveður og
frost á Husavík
HÚSAVÍK, 6. marz. — Undan-
farna daga hefir verið hér hríð-
arveður og töluvert frost, en ekki
stórviðri. í kvöld eru hér 14 stig
og frostið að herða.
Mjólkurflutningar hafa gengið
erfiðlega. Þó snjór sé ekki mik-
ill, þá er hann jafnfallinn. Mý-
vetningar hættu við að reyna að
komast til Húsavíkur í dag með
mjólkina, en úr Reykjadal og
Aðaldal lögðu bílarnir upp í
morgun og er ekki von á þeim
fyrr en í kvöld. Venjulega fara
þeir þessa leið, sem er um 40 km,
á 1—1% klst., en gera má ráð
fyrir að ferðin taki þá nú 10—12
klst. Kinna mjólkurbíllinn lagði
ekki af stað í morgun, en mjólk-
in var flutt á tveimur beltisdrátt-
arvélum. Mjólkurflutningurinn
tók 7 klst., en tekur yenjulega
einn klukkutima.
Vaðlaheiði er alveg ófær og
allir fjallvegir, en bíll fór í fyrra
dag frá Kelduhverfi fyrir Tjör-
nes, en sú leið mun núna ófær
í giljunum þremur, sem eru á
þessari leið. — Fréttariari.
BRUSSEL, 6. marz. (Reuter), —
Belgíska lögreglan tilkynnti í dag
að látinn hefði verið laus starfs-
maður pólska sendiráðsins í Brúss
el, eftir að hann hafði verið yf-
irheyrður og bókaður. Maðurinn,
sem heitir Matusack, var tekinn
þegar hann var við njósnastörf.
Talsmaður sendiráðsins staðfesti
við fréttamenn að maðurinn hefði
verið látinn laus, en neitaði að
annar starfsmaður sendiráðsins,
Marian Adamski, væri í haldi,
eins og annar sendiráðsmaður
hafði gefið í skyn.
Njósnarinn Matusack var hand
tekinn ásamt öðrum manni í gær-
kvöldi ,eftir að hann hafði kom-
ið fyrir á ákveðnum felustað orð-
sendingu og peningafúlgu handa
einum erindreka sínum. Þessi er-
indreki gekk líka í gildru lög-
reglunnar.
NAÍRÓBÍ, 6. marz. NTB-Reuter.
1 dag voru 34 leiðtogar Þjóð-
flokksins í Kenýa handteknir, en
þeir eru allir blökkumenn. Jafn-
framt voru tvö vikublöð bönnuð.
í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
segir, að handtökurnar hafi ver-
ið gerðar í samræmi við reglu-
gerð ffá 1952, þar sem fjallað er
um neyðarástand. í yfirlýsing-
unni segir að annað vikublaðið
hafi farið mjög lofsamlegum orð-
um um leiðtoga MaU-mau hreyf-
KR 60 ára
Framh. af bls. 6.
þriðjudag í sambandi við vígslu
skíðaskála félagsins og verða hér
ekki gerð að umtalsefni frekar.
Starf þessarar deildar verður KR
ætíð til hins mesta sóma og skál-
inn sem nú er risinn, ber þess
gleggst vitni hvílíkum valmenn-
um skíðadeildin hefur haft á að
skipa þau nær 25 ár sem hún hef-
ur starfað.
Handknattleikur
Handknattleikur er yngstur í-
þróttagreina er KR leggur nú
stund á — en líklega sú sem með
hvað mestum blóma stendur og
er þá allmikið sagt. Lið félagsins
un ákveðinna starfsmanna pólska
sendiráðsins, og voru handtök-
urnar í gærkvöldi árangur langra
rannsókna og eftirgrennslana af
hálfu sérstakra deilda lögregl-
unnar.
Fáar sjóferðir
Hornafjarðarbáta
HÖFN, 3. marz. — Hornafjarðar-
bátar fóru aðeins 22 sjóferðir í
febrúar og var heildarafli bát-
anna 6 samtals röskar 130 lestir
eða um 6 lestir að meðaltali.
Flesta róðra, eða 7 að tölu, fór
Gissur hvíti og varð afli hans
nær 44 lestir frá áramótum. Er
afli bátanna þessi: Gissur hvíti
158.4 lestir í 25 róðrum, Jón
Kjartansson 142,6 lestir í 19 róðr-
um, Helgi 113,9 lestir í 18 róðr-
um, Akurey 108,7 lestir í 19 róðr-
um, Sigurfari 101,6 lestir í 17 róðr
um, Hvanney 93,1 lest í 16 róðr-
um, samtals 718,3 lestir í 114 sjó-
ferðum.
ingarinnar, en hitt blaðið, sem
gefið er út af hægrisinnuðum
Evrópumönnum, hafi birt æsi-
greinar. Meðal leiðtoganna 34,
sem handteknir voru, er Sammy
Maine framkvæmdastjóri Þjóð-
flokksins og ritstjóri vikublaðs-
ins, sem fyrr var getið. Nokkrir
leiðtoganna, sem handteknir
voru, hafa þegar verið sendir til
héraðanna, þar sem þeir eiga
búsetu.
í karlafl. er fslands- og Reykja-
víkurmeistarar og lið kvenna er
í allra fremstu röð kvennaflokka
og sívaxandi að getu og hæfni.
Deildin hefur byggt starf sitt
vel upp, er óvenjusamhent og hef
ur á þann hátt náð langt íþrótta-
lega séð jafnt sem félagslega.
Hefur þá í stuttu máli verið
minnzt deilda félagsins, en saga
KR er þó aðeins hálfsögð með
því. Hið sameinaða átak deild-
anna er það sem að minnsta kosti
á síðustu 2—3 áratugunum skilur
KR verulega frá öðrum félögum.
Hin glæsilegu hús félagsins við
Kaplaskjólsveg, þar sem er fé-
lagsheimili, sem fær tugþúsundir
heimsókna á ári og íþróttahús,
sem er í notkun til íþróttaiðkana
frá kl. 8 að morgni til kl. 11 að
kvöldi, sýna ljóattega þýðingu
slíkra félaga fyrir bæjarfélagið
og þjóðarheildina.
KR hefur skipað sér sess sem
forystufélag fyrir gífurlegt starf
stórs hóps manna. En það starf
hefur ekki verið unnið fyrir gíg.
Gifta KR er að það býr enn að
störfum þeirra manna sem mest-
an þátt áttu í mótun þess og út-
þenslu fyrir nær 30 árum eða
manna, sem síðan þá hafa iðk-
að einhverja grein eða unnið
sérstaklega að framgangi ein-
stakra greina, og aldrei þreytzt
á því að leiða æskufólkið fram
til átaka.
Forystumenn KR frá byrjun
hafa verið:
Þorsteinn Jónsson 1899—1910.
Ben. G. Waage 1910—1915.
Árni Einarsson 1915—1923.
Guðmundur Ólafsson 1933—1935
Erl. Ó. Pétursson 1935—1958
Einar Sæmundsson frá 1958.
Starf þessara manna hefur á-
vallt orðið KR heilladrjúgt. Þeir
hafa verið samnefnarar stórs
hóps starfsfúsra manna, sem vel
hafa skipulagt samtök sín.
Þjóðþekktur var Erl. Ó. Pét-
ursson. Eldheit var hvatning hans
til æskumannanna, einlæg var
gleði hans við hvern ávinning og
einlæg hans trú á nytsemdarstarf
íþróttafélaganna. Hann gat hrif-
ið alla með — og gerði. Hann var
KR-ingur og lét í þem efnum
aldrei bilbug á sér finna, en hann
mat vel og réttilega aðra sem að
sömu málum vinna og keppa að
sama marki, stundum með betri
árangri en KR, stundum lakari.
í keppni við önnur félög hefur
KR vaxið og dafnað og á 60 ára
afmælinu er það ósk mín að það
megi áfram eiga jafngóða keppi-
nauta og til þessa, því þá mun
félagið enn vel dafna. — A.St.
LETPZIG, 6. marz. Krúsjeff for-
sætisráðherra Sovétríkjanna
sagði í Léipzig í dag, að Rússar
mundu kaupa vélar og verkfæri
frá Sviss, Vestur-Þýzkalandi og
Bretlandi, og er talið að þetta
standi í sambandi við heimsókn
Macmillans til Moskvu, en til
þessa hefur verið útflutningsbann
á vélum og verkfærum til Aust-
ur-Evrópu í umræddum löndum.
í Bretlandi eru menn ánægðir
með ræðu Krúsjeffs í Leipzig í
gær, þar sem hann sagði að hægt
væri að fresta því, að austur-
þýzka stjórnin tæki við yfirráðum
Austur-Berlínar, ef það gæti
greitt fyrir samningum. Annars
þykir sumt í ræi'u Krúsjeffs
nokkuð þokukennt, en á það er
bent, að í nóv. lýsti hann þvi
yfir í Postdam, að Þýzkalands-
samningar stórveldanna væru úr
gildi fallnir, en í gær sagði hann
að Sovétstjórnin mundi halda á-
fram að gegna skyldum sínum í
samræmi við þessa samninga,
þangað til undirritaður hefði ver
ið nýr samningur.
Ská taskemm tunin
1959
Sunnudaginn 8. marz kl. 3 og.kl. 8,30 e h. Fimmtudag-
inn 12. marz kl. 8,30.
Aðgöngumiðar verða seldir í dag kl. 3—5 e.h. í Skáta-
heimilinu.
Afh.: Sunnudaginn 8. mars kl. 3 verður Skátaskemmt-
unin fyrir Ylfinga og Ljósálfa.
Vetzlunarstarf
Stúlka óskast í úra- & skrtgripaverzlun. Eiginhand-
arumsókn með mynd ásamt upplýsingum um mennt-
un, aldur og fyrri störf sendist fyrir 12. þ.m. í póst-
hólf 812 merkt: ,,Afgreiðslustúlka‘‘.
ÓDVR BLÓHV
munið ódýru laugard. búntin og túlípana á kr. 7.
Látið blómin tala.
Blóm og Avexfir
Vitamálaskrifstofan
verður lokuð
laugardaginn 7. marz.
Innilega þökkum við öllum er vottuðu okkur samúð
með heimsóknum og vinarkveðjum við fráfall okkar
ástkæra fóstursonar og fósturbróður
MAGNtTSAR GUNNARS SVEINSSONAR
er fóst með b/v Júlí.
Guðrún Halldórsdóttir, Torfhildur Jóhannesdóttir,
ljósmóðir
Anna S. Guðinundsdóttir, Steinþór Guðmundsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við fráfall sonar
okkar
MAGNCSAR steinars
er fórst með b/v Júlí 8. febr. s.l.
Sigríður Jónsdóttir, Gísli Árnason.
Hjartkærar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur
samúð við fráfall ástkærs sonar okkar
JÓNS HARALDSSONAR
sem fórst með b/ v Júlí.
Guðrún Jónsdóttir, Haraldur Valdimarsson.
Innilega þakka ég auðsýnda samúð og vinarhug við
fráifall konu minnar,
KRISTlNAR stefAnsdóttur
Og
VALTÝRS
sonar míns, sem fórust með b.v. Júlí.
Júlíus Jónsson, Hítarnesi, Hnappadalssýslu
Pólskir njósnarar teknir
í Belgíu
Lögreglan í Brussel hafði lengi
veitt eftirtekt grunsamlegri hegð-
Fjöldahandtökur í Kenýa