Morgunblaðið - 07.03.1959, Side 16
VEÐRIÐ
NA-gola, léttskýjað,
frost 7—10 stig
imX» XíiÍJi Íí
55. tbl. — Laugardagur 7. marz 1959
Fjölbýlishús
Sjá bl.s 6.
Mikið ísrek á hafinu
fyrir norðan land
MIKIÐ ísrek er nú á hafinu norð-
•nundan, og fer það mikið eftir
veðurlagi á næstunni hvort ísinn
kemur nær eða ekki. Þessar upp
lýsingar fékk blaðið hiá Jóni Ey-
þcrrsyni, veðurfræðingi, er það
leitaði í gær fregna hjá honum
um þetta efni.
Sagði Jón, að um mánaðamótin
hefði hann haft fregrir af því
að óvanalega .nikill ís væri kring
um Jan Mayen, miðað við undan-
farin ár. Náði ísbrúnin frá suð-
urodda Jan Mayens, suðvestur í
hér um bil 60 mílna fjarlægð
norður af Hornbjargi og þaðan
juðvestur um 60—70 sjómílur
vestur af Bjargtöngum. Er ísmn
því óvenjulega nálægt okkur, en
ekki er vitað hversu þéttur hann
er á þessu svæði.
í gær sást ísrek um 25 sjómíi-
ur norð-austur af Grímsey, en
ekkert er vitað hve mikið það er.
Þessi óvenjumikli ís stafar sjálf
sagt af því að vestanátt héfur
verið fyrir norðan og ísinn lón-
að frá Grænlandi og austur um
Jan Mayen.
Nú er það undir veðurlaginu
komið á næstunni hvort ísinn
færist nær eða ekki, sagði Jón
Eyþórsson. Nú er veðrið aðgerðar
laust, en gott væri að fá austan-
átt, til að drífa ísinn aftur upp
að Grænlandsströndinni.
j mv, '>'<m w
Víða ófœrð á vegum
Helztu vegir ruddir
i gœr
1 FYRRAKVÖLD voru flestir
vegir í nágrenni Reykjavíkur ó-
færir með öllu. í gær var svo
unnið að því að ryðja aðalleið-
irnar með öllum þeim vinnu-
tækjum, sem vegagerðin hefur
yfir að ráða. Og síðdegis í gær
var Keflavíkurleiðin orðin fær
öllum bifreiðum, Hellisheiðar-
leiðin fær stórum bílum og jepp-
um, en ekki litlum fólksbílum, og
imnið var að því að opna Hval-
fjarðarleiðina. Miðaði verkinu
vel og var búizt við að bílarnir
kæmust í Borgarnes í gærkvöldi.
Krísuvíkurleiðinni var ekki
sinnt, vegna þess hve mikið var
að gera á öðrum leiðum. T. d.
þurfti að ryðja vegina milli ver-
stöðvanna á Suðurnesjum.
í gærkvöldi var Holtavörðu-
heiði ófær, en reiknað var með
að hægt yrði að ryðja hana strax
í morgun. í fyrradag var snjóbíll
sendur frá Fornahvammi til að
sækja farþega í áætlunarbíl Norð
urleiða, en farþegar höfðu gist í
Hrútafirði. Bilaði snjóbíllinn og
var þá tekið það ráð að draga
bílinn yfir heiðina. Tókst það og
Skellinöðru stolið
UM ellefuleytið eða seint á sunnu
dagskvöldið var skellinöðru stol-
ið, þar sem hún stóð fyrir utan
Hálogalandsskálann. Skellinaðr-
an var grá að lit, af NSU gerð
og er skrásetningarnúmerið
R-574. Mótorinn á hjólinu var
læstur, en ekki hjólið sjálft. Hef-
ur sá sem tók það því þurft að
leiða það í burtu. Er einhver hef-
ur orðið var við þjófnaðinn, er
hann beðinn um að gera rann-
aóknarlögreglunm aðvart.
Varðarkatti í Valhöll
í dag kl. 3-5 s'.d.
Sjálfstæðisfélögin í Keflavík,
halda sameiginlegan fund á morg
un, sunnudag, kl. 4. Fundarefni
bæjarmál. Frummælandi er bæj-
arstjórinn Eggert Jónsson. Fund-
urinn verður haldinn í Sjálfstæð-
ishúsinu.
var bíllinn væntanlegur til
Reykjavíkur seint í gærkvöldi.
Reynt var að moka vegi í
Borgarfirði í gær, en þeir voru
mjög illfærir eða ófærir. Áætl-
unarbíllinn í Dalina, sem kom til
Borgarness sl. þriðjudag, var þar
enn í gær og hafði ekki haldið
áfram ferðinni.
1 gær var þung færð kringum
Akureyri og Vaðlaheiði ófær.
Aftur á móti var Reykjavíkur-
flugvöllur opinn í gær, en í
fyrradag var hann lokaður annað
slagið. Var ágætt flugveður í
gær og flogið til margra staða
úti á landi.
Hiff glæsilega félags- og iþróttaheimili KR viff Kaplaskjólsveg. — KR er nú 60 ára. — Sjá grein
á blaffsíffu 9.
Fáir brezkir togaror
helgi v/ð SV-land
i
land-
Söfnunardagur Ekkna-
sjóðs er á morgun
EKKNASJÓÐUR íslands var
stofnaður árið 1943. — Það var
sjómannskona, sem lét af hendi
rakna eitt þúsund krónur af á-
hættuþóknun mannsins síns, og
var það stofnfé sjóðsins. Síðan
hefir sjóðnum vaxið ásmegin með
gjöfum, áheitum og sölu merkja
og minningarspjalda. — Prestar
landsins hafa undanfarin ár tekið
á móti gjöfum til sjóðsins og selt
merki. — Biskup íslands, herra
Ásmundur Guðmundsson, er for-
maður sjóðsstjórnar og hefir unn
ið þessu málefni mikið.
Enda þótt þegar hafi áflazt all-
mikið fé í sjóðinn, þarf þó énn
stór átök til þess að hann komi
að tilsetluðum ríotum. Reykvík-
ingar eru löngu þekktir að rausn
og höfðingsskap, þegar leitað er
til þeirra um frjáls framlög til
fátækra og bágstaddra. Vegna
góðra undirtekta er þegar byrjað
að úthluta úr sjóðnum. — Við
leitum því til ykkar enn á ný og
væntum þess, að sem flestir
kaupi merki sjóðsins.
Foreldrar eru beðnir að leyfa
börnum sínum að selja merkin á
götum Reykjavíkur á morgun. —
Merkin verða afhent í fyrramál-
ið, sunnudaginn 8. marz, kl. 9,30
í Sjálfstæðishúsinu (í litla saln-
um). — Minningarspjöld eru seld
Afli
Sandgerðisbáta
SANDGERÐI, 6. marz. — Tíu bát
ar voru á sjó frá Sandgerði í gær
og fengu samtals 62 tonn. Hæst-
ur var Víðir II með 7.5 lestir.
Almennt fiskirí var 6—7 tonn.
Bezta veður er, allir bátar á sjó
og róa vafalaust aftur í kvöld.
*— Axel.
á eftirtöldum stöðum: Hjá frú
Guðnýju Gilsdóttur, Freyjugötu
24, Holts-Apóteki, skrifstofu
biskups íslands, Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis, Kap-
ellunni í Fossvogi, Barnaskólan-
um á Seltjarnarnesi og í Bóka-
verzlun Þorvaldar Bjarnasonar,
Hafnarfirði.
einu, og mest 4—5 á Selvogs-
grunni enn sem komið er. Allt
eru þetta gömul skip og gæta
EINS og kunnugt er tilkynntu stundað þessar ólöglegu veiðar í
Bretar hin 'ólöglegu veiðisvæði
sín fyrir brezka togara við Snæ-
fellsnes og á Selvogsgrunni fyrir
viku, en hingað til hefur frekar
lítið borið á veiðum brezku togar
anna á þessum miðum. — Ber
þar m. a. tvennt til, nefnilega
fiskileysi og óhagstæð veðrátta.
Við Snæfellsnes hafa undanfar
ið sjaldan fleiri en 1—2 togarar
þeirra alls þrjú brezk herskip
ásamt birgðaskipi.
Hins vegar er togurum nú sem
óðast að fjölga djúpt á Selvogs-
grunni, og voru þar í dag alls um
25 skip, flest brezk og þýzk og
svo íslenzkir og belgískir togarar,
allt stór skip.
Ætlaði til Akureyrar —■
lenti í utanlandsferð
f GÆR gerðist það á Reykjavík-
urflugvelli, að farþegi einn, sem
hafði ætlað norður á Akureyri,
álpaðist inn í aðra flugvél, sem
hélt með hann suður á bóginn,
áleiðis til Glasgow og Kaup-
mannahafnar.
Þegar farþegar til Akureyrar
voru beðnir að stíga upp í flug-
vélina í afgreiðslu F.í. á flug-
vellinum í Reykjavík í gærmorg-
un, kom í ljós að einn farþegann
vantaði. Var þá farið að grennsl-
ast fyrir um hann og haft sam-
band við „Hrímfaxa", sem ný-
lega hafði flogið af stað til Glas-
gow og Kaupmannahafnar. Kom
þá í ljós, að þar sat Akureyrar-
Rœtt um sameiningu eða
samvinnu flugfélaganna
BLAÐ stjórnarinnar, Alþýðublað
ið, skýrir frá því í gær, að komin
sé á d tgskrá sameining flugfélag-
anna tveggja, Flugfélags íslands
og Loftleiða.
Það er Guðmundur í. Guð-
mundsson fjármála- og utanrík-
isráðherra, í þessu tilfelli sem
fjármálaráðherra, sem hefur látið
taka mál þetta upp. Hefur hann
falið Vilhjálmi Þór, bankastjóra,
að ræða við framkvæmdastjóra
og stjórnir flugfélaganna um mál-
ið. Mun hann eiga að kanna mögu
leika á sameiningu Flugfélags ís-
lands og Loftleiða, eða mun nán-
ari samvinnu félaganna en nú er
með þeim.
Hér er að sjálfsögðu um um-
fangsmikið mál að ræða. Er mál-
Handknattleiks-
mótið
Handknattleiksmeistaramót
Reykjavíkur heldur áfram í
kvöld og fara fram þessir leikir:
3. fl. karla A B Valur—FH.
2. fl. kvenna A B Ármann—FH.
1. fl. karla A Víkingur—SBR.
1. fl. karla B Valur—Þróttur.
ið á algjöru byrjunarstigi, en
blaðinu er kunnugt um, að Vil-
hjálmur Þór hefur átt viðræður
við báða aðila um málið, en það
á eðlilega enn langt í land eins
og nú standa sakir.
farþeginn, á leiðinni til útlanda.
Ástæðan fyrir því að maðurinn
komst svona viðstöðulaust út í
millilandavélina, mun vera sú, að
farþegarnir til Glasgow og Kaup-
mannahafnar höfðu verið látnir
snúa við aftur inn í afgreiðslu-
salinn eftir að þeir höfðu stigiff
upp í vélina, og þá blandaðist
Akureyrarfarþeginn í hópinn.
Hrímfaxi átti að koma aftur til
Reykjavíkur seint í gærkvöldi og
hefur hinn seinheppni farþegi þá
væntanlega komið til baka með
flugvélinni.
Skíðaferð
frá Hafnarfirði
'SKÍÐA- og skautafélag Hafnar-
fjarðar hefur nú hafið starf eftir
nokkurt hlé og efnir til skíðaferð
ar á morgun. Verður lagt af stað
frá Álfafelli í Hafnarfirði kl. 9,30
á sunnudag og höfð viðkoma í
Kópavogi og á Digraneshálsi.
Farið verður í skála félagsins
sem er skammt frá Skíðaskálan-
um í Hveradölum.
Dauðaslys á Keflavík-
urflugvelli
KEFLAVÍK, 6. marz. — Um fimm
leytið í gærmorgun varð það slys
á Keflavíkurflugvelli, að snjó-
ýta ók yfir liðsforingja úr banda
ríska varnarliðinu, með þeim af-
leiðingum að hann mun hafa beð-
ið bana samstundis.
Eins og kunnugt er af fréttum
er mikill snjór á flugvellinum og
hafa vegir teppzt. Var Bandaríkja
maðurinn á skíðum í gærmorgun
og lét bíl draga sig í taug eftir
einum veginum inni á vellinum.
Á þessum vegi var snjóýta að
ryðja snjó og ók henni íslenzkur
maður. Mun ýtan hafa vikið út á
vegarbrún fyrir bílnum, en ýtu-
stjórinn talið öllu óhætt, þegar
bíllinn var kominn framhjá, og
þá ekið aftur á bak inn á veginn,
með þeim afleiðingum sem áður
er getið. Fór ýtan yfir Bandaríkja
manninn, sem mun hafa beðið
samstundis bana.
Happdrættið
DREGIÐ eftir tíu daga. — Af-
greiðslan opin alla daga, sími
17104